Dagblaðið - 12.05.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1978.
AF HVERJU DEILA BRÆÐUR í
ANDA SVO MIKID A EIK (m-l) ?
lokaorð um 1. maí
Allrnikil blaðaskrif urðu vegna 1.
mai, einkum orðaskipti Samfylkingai
1. maí og svo hins vegar Rauðrar
verkalýðseiningar/Baráttueiningar.
Skrif Samfylkingar 1. maí gerðu
glögga grein fyrir því að Samfylking 1.
mai væri samtök einstaklinga innan
og utan pölitískra samtaka. Samfylk
•Gífurlegur fjöldi fólkstók þátt i úti-
hátiðahöldunum 1. maí, enda viðraði
vel til þess að spóka sig utan dyra.
DB-mynd RagnarTh.
ing 1. mai bað RVEI/Baráttueiningu
um að segja til um hvar ágreiningsat-
riði lægju milli sin og Samfylkingar-
innar. Formaður svonefnds „Komm-
únistaflokks” svaraöi og fulltrúi fram-
kvæmdanefndar Fylkingarinnar einn-
ig-
í vandræðum
með svör
Einingarsamtök kommúnista (m-l)
hafa engu við öll umrædd skrif að
bæta, nema að þvi leyti sem þau
snertu EIK (m-l). Það virðist sam-
merkt formanni „flokksins” og full-
trúa Fylkingarinnar að þeir eru i vand-
ræðum með svör til Samfylkingar I.
maí og helga þá pistla sína hálfa EIK
(m-l). Vinsælasta lumman er sú að
EIK (m-1) séu í raun Samfylking 1. mai
— samtökin hafi bara breytt um nafn
til að fífla fólk — og siðan fjalla þeir
kumpánar um ótal atriði sem varða
EIK (m-1) en eru Samfylkingu I. maí
alls óskyld. Skyldi það vera furða að
margur sé þreyttur á deilum á svo-
nefndum vinstri væng þegar menn eru
ekki málefnalegri en þeir fyrrnefndir
bræður i anda.
Fylkingarfulltrúinn nefnir 21. ágúst
nefndina (vegna innrásar i Tékkó-
slóvakíu), Baráttunefndina 1. des.
(baráttufundur gegn báðum risa-
veldunum), 8. mars-hreyfinguna (bar-
áttufundur á alþj. kvennadeginum)
sem dæmi um felusamtök EIK(m-l) að
ógleymdri Samfylkingu 1. maí.
Sannleikurinn er hins vegar sá að
frumkvæðishópar, sem í eru oft
félagar, og utanfélagsmenn EIK (m-l),
stofna þessar tímabundnu baráttu-
hreyfingar á opnum og auglýstum
fundum, þær halda liðsfundi fram að
viðkomandi baráttudegi og með þeim
starfar grúi af ófélagsbundnu fólki,
fylgismönnum annarra stjórnmála-
flokka o.fl. Þetta er önnur tegund sam-
fylkinga sem kommúnistar stofna og
margreynd skipulagsaðferð. Hin
tegundin er samfylking samtaka —
með fulltrúasniði hvað snertir stjórn-
unogstefnumótun.
Margar skýringar
eflaust til
Á skilningsleysi eða fölsunum
þeirra félaganna úr „Kommúnista-
flokknum” og Fylkingunni eru eflaust
margar skýringar sem ekki verður hirt
um hér. Þeir mættu hafa hugfast að
fjöldinn utan EIK (m-1) sem starfaði
með Samfylkingu I. mai gefur litið
fyrir þær tilraunir þeirra sem i grein-
unum eru, til þess að gera fólk að ösn-
um sem EIK (m-1) teymir á eyrunum
útogsuður.
Sömu aðf erðirnar
Annars er merkilegt að sjá að auk
„Kommúnistaflokksins” og Fylkingar-
innar nota Alþýðubandalagsmenn,
margar Rauðsokkur og kratabroddar
úr Háskólanum nákvæmlega sömu að-
ferðir við að deila á EIK (m-l) og sam-
fylkingar sem félagar samtakanna
starfa með.
Þarna ætti að vera góður samstarfs-
grunnur fyrir háleita alþýðuvini —
a.m.k. þangað til þeir komast ekki hjá
rökræðum við kommúnista.
Í framhjáhlaupi skal að lokum tekið
fram að ummæli fulltrúa Fylkingar-
innar þess efnis að EIK (m-l) hafi hvatt
fólk til þess að vinna i verkfali BSRB
og ASÍ 1. og 2. mars eru óprúttnar
falsanir. Þessu var þveröfugt farið. svo
sem sjá má á fjöldamörgum tölu-
blöðum Verkalvðsblaðsins.
F.h. framkvæmdanefndar
mirtstj. EIK(m-l).
Ari T. Guðmundsson.
KR. 7.980.
KR. 6.750
KR. 7.980
KR.
5.980
KR. 6.750
KR. 6.750
Spurning
dagsins
3
Sv
Hvað ætlarðu
að gera um
hvítasunnuna?
Rósa Friðríksdöttir nemi: Ég verð að
lesa undir próf. Það verður enginn timi
til aðfara neitt.
Hörður Jösefsson sölumaður: Ef veðnð
er gott er ég að spá í aðfara norðurf
Skagafjörð.
bygló Guðmundsdóttir húsmóðir: Eg fer
i fermingarveizlu á hvitasunnudag. Ætli
ég hvili mig ekki þess á milli, það er nóg
að gera hjá mér þvi ég hef sjö manns i
heimili.
Guðný Ægisdóttir nemi: Ætli ég verði
ekki heima að lesa undir próf. Það
verður vist enginn timi aflögu til að
skemmta sér.
Magnea Ólafsdóttir húsmóðir: Ég er
ekki búin að ákveða það enn. Ætli ég
verði ekki heima, það er vist nóg að gera
þar.
Sigurbjörn Krístinsson: Ah: Ég ætla að
drekka brennivín og borða kökur. Þú
verður að lofa þvi að segja engum frá
þvi.