Dagblaðið - 12.05.1978, Blaðsíða 32

Dagblaðið - 12.05.1978, Blaðsíða 32
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1978. Sjónvarp 36 I Utvarp ^ Sjónvarp Laugardagur 13. maí 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Fclixson. 18.15 On We Go. Enskukennsla. 26. þáttur endursýndur. 18.30 Skýjum ofcir. Sœnskur sjónvarpsmynda- flokkur i Ut i sex þáttum. Lokaþáttur. Nissi. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 19.00 Enska knattspyman (L). Hlé. 20.00 Fréttir og veóur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Á vorkvöldi (L). Umsjónarmenn Ólafur RagnarssonogTage Ammendrup. 21.20 Karlmennska og kvennadyggðir (L). TaUö er, að menn eyði að meðaltaU átta árum ævi sinnar í að horfa á sjónvarp. í þessari bresku mynd er fjaUað á kaldhæðinn hátt um áhrifa- mátt fjölmiðla, einkum sjónvarps og kvik- mynda, þegar fjaUað er um hlutverkaskiptan karls og konu. Þýðandi og þulur Briet Héðins- dóttir. 22.00 Gömlu kempurnar enn á ferð (L). (The Over-The-Hill Gang Rides Again). Banda- rískur „vestri” í léttum dúr, eins konar fram- hald af sjónvarpsmyndinni „Gömlu kemp- umar”, sem sýnd var 14. april siðastliðinn. Aðalhlutverk Walter Brennan, Fred Astaire og Edgar Buchanan. RiddaraUðamir fregna, að fomvinur þeirra sé að fara i hundana. Þeir dusta því rykið af marghleypunum, söðla gæðinga sína og þeysa á vit nýrra ævintýra. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 23.25 Dagskrárlok. Sunnudagur 14. maí hvftasiinnudagur 17.00 Hvitasunnumessa i sjónvarpssal (L). Séra Bjöm Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór Akraneskirkju syngur. Stjórnandi Haukur Guðlaugsson. Orgelleikari Friða Lárusdóttir. Stjórn upptöku öm Harðarson. 18.00 Stundin okkar (L). Nemendur úr Hvassa- leitisskóla flytja leikþátt, Soffía Jakobsdóttir og Þórunn'Magnea Magnúsd., flytjaf seinni hluta leikþáttarins „AfmælisgjöfiiT, Amar Jónsson les sögur úr myndaflokknum „Striga- skór” eftir Sigrúnu Eldjárn, nemendur úr Þroskaþjálfaskólanum sýna brúðuleik og fylgst verður með undirbúningi að upptöku á atriði fyrir Stundina okkar. Umsjónarmaður Ásdis Emilsdóttir. Kynnir ásamt henni Jóhanna Krístín Jónsdóttir. Stjóm upptöku Andrés Indriðason. Þessi þáttur er hinn siðasti á þessu vori. 20.00 Fréttir, veður og dagskrárkynning. 20.20 Söngleikar ’78Frá söngmóti i Laugardats höll 15. apríl sl. í tilefni 40 ára afmælis Lands- sambands blandaðra kóra. Eftirtaldir kórar koma fram: Kór Menntaskólans viðlíamra- hlið, Ámeskórinn, Samkór Rangæinfca, Söng- félagið Gigjan, Sunnukórinn, Kór Langholts kirkju, Þrándheimskórinn og Hátiöakór L.B.K. Stjórn upptöku Andrés Indriðason. 21.25 Gæía eða gjörvilelki (L). Nýt, bandarísk- ur myndaflokkur í 21. þætti, framhald af samnefndum myndaflokki, sem var á dagskrá i vetur. 2. þáttur. Efni fyrsta þáttar: Eftir að Tom Jordache hefur verið myrtur af útsend- urum Falconettis skömmu eftir brúðkaup sitt, býðst Rudy til að taka að sér son hans, Wesley, og kosta hann til náms. Julie er drykk- felld sem fyrr, og þau Rudy verða ásátt um að skilja. Rudy er i þingmannanefnd, sem send er til Vietnams að kynna sér gang styrjaldar- innar. Þar hittir hann Julie, sem er aftur tekin að fást við Ijósmyndun. Falconetti losnar úr fangelsi og hyggur á hefndir. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 22.15 Snertingin (L). (The Touch). Kvikmynd eftir Ingmar Bergman, gerð árið 1971. Aðal- hlutverk Elliot Gould, Bibi Andersson og Max von Sydow. Bandariskur fomleifafræðingur kemur til starfa i sænskum smábæ. Hann kynnist hjónunum Karin og Andrési, sem hafa verið gift í fimmtán ár, og hann verður ást- fanginn af Karin. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 00.05 Dagskrárlok. Umferðarráð, Hverfisgötu 113 Reykjavík, auglýsir nýtt síma- númer: 27666 Umferðarráð. f .......... Sinfóníuhljómsveit íslands TÓNLEIKAR í Háskólabíói fimmtudaginn 18. maí kl. 20.30. Stjórnandi Karsten Andersen Einleikari Emil Gilels Efnisskrá: Sjostakovitsj — Sinfónía nr. 12 Grieg— Píanókonsert.. Aðgöngumiðar í bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg og Eymundsson, Austurstræti. - Hádegisverðar- fundur um tekjuskatt Verzlunarráð lslands efnir til hádegisverðarfundar um tekjuskatt at- vinnurekstrar þriðjudaginn 16. maí 1978 kl. 12.15 til 15.00 i Vikinga- sal Hótel Loftleiða. Dagskrá: 12.15— 12.35: Hádegisverður. 12.35—13.00: Ávarp fjármálaráðherra, MatthíasarÁ. Mathiesen. 13.00—13.15: Ný skattalög — kostir, gallar og æskilegar umbætur: Hjalti Geir Kristjánsson, form. VÍ. 13.15— 13.40: Helztu breytingar skat'.alaganna varðandi atvinnu- rekstur: — Ólafur Nilsson, löggiltur endurskoðandi. — Sigurður Stef- ánsson, löggiltur endurskoðandi. 13.40— 15.00: Fyrirspurnir og almennar umræður. Fundarstjóri: Hjörtur Hjartarson. Endurskoðendur og bókarar fyrirtækja eru velkomnir. Þátttaka tilkynnist i sima 11555. Útvarpið f kvöld kl. 22.50: Áfangar Bezti sópran- saxófón- leikari heims Föstudaginn 19. maí kemur hingað til landsins brezki saxófónleikarinn Evan Parker og mun hann halda hér tvenna einleikstónleika. Verða fyrri tónleikarnir í Norræna húsinu 20. maí kl. 16 og þeir seinni 21. mai kl. 21 á Kjarvalsstöðum. í tilefni komu Parkers ætla þeir Guðni Rúnar og Ásmundur að kynna tónlist hans í þætti sínum Áföngum, sem er á dagskrá útvarpsins í kvöld kl. 22.50. Töldu þeir félagar þá tegund tónlistar sem Parker flytur, eiga eftir að koma mörgum ókunnuglega fyrir sjónir og virka frekar framandi. Parker er er brautryðjandi á sviði svo- nefndrar frjálsrar tónlistar eða spuna (improvisation). Þessi stefna hefur sótt töluvert til bandaríska free-jazzins. Hún er ekki fyrirfram ákveðin heldur spinnur flytjandi hana um leið og hún er flutt. Parker hefur verið í fremstu línu i brezku spunahreyfingunni síðan hún fór að láta til sín taka snemma á sjöunda áratugnum. Hann var einn af stofnend- um hljómplötufyrirtækisins Incus, sem gefur út tónlist af þessu tagi í Bretlandi. Meðal stofnenda þessa fyrirtækis eru einnig þeir Tony Oxley og gítarleikarinn Derek Daily. Saxófónninn er það hljóðfæri sem Parker hefur helgað sér. Hann hefur þó sérhæft sig á sópransaxófón og á sl. ári var hann kjörinn bezti sópransaxófón- leikari heims. Þess má geta að hann hefur tileinkað sér alveg sérstakar önd- unaraðferðir, sem auðvelda honum að leika þessa eftirlætistónlist sina, spuna. Þátturinn er tæplega klukkustundar langur. RK Saxófónleikarinn Evan Parker kemur hingað og heldur hljómleika 20. og 21. maí. Sjónvarp á laugardagskvöldið kl. 20.30: A vorkvöldi Ólafur Ragnarsson kveður Á laugardagskvöldið kl. 20.30 verður siðasti þáttur þeirra Ólafs Ragnarssonar og Tage Ammendrup Á vorkvöldi á dagskrá sjónvarpsins. í þeim þætti kemur fram hljómsveitin Randver, sem allflestir unglingar og kannski einnig eldra fólk kannast vel við. Sagði Ólafur að meðlimir hljóm- sveitarinnar væru hressir strákar og væru flestir ef ekki allir þeirra kennarar við öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Þeir hafa gefið út hljómplötu, en í þessum þætti ætla þeir að flytja alveg ný lög og hafa þeir samið flest þeirra sjálfir. Þá mun Jónas Jónasson útvarps- maður koma í heimsókn og spjalla stutta stund við Ólaf. En Jónas mun gera fleira en spjalla. Hann mun einnig syngja lag sem hann hefur samið sjálfur. Atburðir ársins 1913 verða rifjaðir upp og mun Ólafur ræða við Árna Óla, en hann er sennilega öllum eldri lands- mönnum kunnur. Árni Óla verður ni- ræður á þessu ári og hafa atburðirnir sem hann rifjar upp gerzt fyrir 65 árum. Geri aðrir níræðir betur. Þá munu tvær ungar og efnilegar 14 og 15 ára stúlkur syngja tvö lög sem þær hafa sjálfar samið. Smáleikþættir munu verða inn á milli atriða og eru það þau Ingunn og Sigurður sem ætla að taka fyrir eitthvað spaugilegt sem nýlega hefur gerzt. Fleiri þekktir og góðir menn munu koma fram í þættinum. Ekki er þó víst að spjallað verði við þá um þá hluti eða þau störf sem þeir eru þekktastir fyrir og megum við eiga von á að sjá þá gera eitt- hvað okkur til skemmtunar sem við viss- um ekki að þeir gætu. Ekki er vert aö nefna hvað verður gert, en þó má geta þess að einn gestanna verður Óttar Möller forstjóri Eimskipafélags íslands. Og vitanlega verður falda myndavélin á ferð. Þessi sem fólk er farið að sjá við. Ólafur sagði að þessi filma hefði verið tekin áður en fólk fór að átta sig á livað var að gerast. t þetta sinn var myndavél- inni komið fyrir við Keflavikurveginn. Og hver er ekki reiðubúinn til að rétta ungri og fallegri stúlku hjálparhönd þegar hún kemur ekki bílnum sínum í gang. Kvað Ólafur þetta örugglega verða síðasta þáttinn Á vorkvöldi. Björn Baldursson hjá sjónvarpinu sagði okkur einnig að enginn íslenzkur þáttur kæmi í stað þáttarins Á vorkvöldi. Hann byggist við að fá til sýningar einhvern erlendan skemmtiþátt, en ekki er enn ákveðið hvaða þáttur það verður. - RK Síspakur Símsen er mjög spekingslegur á svipinn, en hann situr hér i fanginu á „manninum á bak við röddina hans’

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.