Dagblaðið - 12.05.1978, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1978.
Áskorunarlistar um Tívoli
íReykjavík
Þrír ungir menn hafa nú forgöngu um
undirskriftasöfnun að áskorun til
borgaryfirvalda að eiga frumkvæði að
stofnun og rekstri skemmti- eða Tivoli-
garðs í höfuðborginni. Að þeirra frum-
kvæði hefur Björgvin Guðmundsson
borgarfulltrúi nú hreyft málinu í borgar-
stjórn. Það er ósk og von ungu mann-
anna að málið verði þar ekki baráttumál
eins flokks heldur að borgarfulltrúar og
borgarbúar sameinist um að hér rísi
skemmtigarður með menningarsvip, þar
sem gefst færi á ástundun alhliða
skemmtana ög þar verði skapað
afþreyjandi umhverfi.
Ungu mennirnir hafa fyrst og fremst
tvo staði í huga fyrir garðinn. Er það
Elliðaárhólminn og einnig krikinn milli
Nauthólsvikur og Öskjuhlíðar. Leggja
þeir rika áherzlu á að garðinum verði
valinn staður þar sem bæði sé aðgangur
að sjó og skrúðgarði, og slíkur
skrúðgarður er þegar að myndast i
öskjuhliðinni.
í garðinum vilja ungu mennirnir að
aðstaða verði sköpuð fyrir ýmsa
menningarstarfsemi t.d. útitónleika. Þá
vilja þeir að þar rísi ýmiss konar
leiktæki, bowlingbrautir, bilabrautir,
minigolf, snarlbarir og kaffistofur. 1
umræðum ungu mannanna við forráða-
menn Reykjavíkurborgar hefur einnig
verið stungið upp á hugsanlegum stað á
opna svæðinu milli SuÓurlandsbrautar
og Miklubrautar austan Skeifunnar. Það
svæði telja þeir ekki eiga mikla stækk-
unarmöguleika, sé aðþrengt og skorti
samband við garð og sjó.
Það er hugmynd ungu mannanna að
Reykjavíkurborg sjái um uppbyggingu
og stofnun garðsins og leigi síðar út
svæði innan garðsins til einstaklinga og
félagasamtaka sem reki þar einstaka
rekstrarþætti sem innan garðsins verða.
Veðurfars vegna yrði stór hluti leik-
tækja, sem yrði aðalhluti garðsins, að
vera innanhúss.
Lögð er áherzla á að svo myndarlega
sé að þessu staðið að framtíð verði úr og
garðurinn eigi vaxtarmöguleika.
Ungu mennirnir segja að áhuga-
mannafélög og klúbbar hafi með aðstoð
borgarinnar komið fram sínum hugðar-
efnum og benda t.d. á smábátahöfn sem
nýlega var ákveðin. Þar eigi hlut að máli
þröngur hópur borgarbúa. Að skemmti-
og afþreyingargarði með fjölbreyttum
möguleikum vinni enginn hópur fólks.
Þó sé þar um að ræða fyrirtæki sem allir
borgarbúar myndu nota og njóta. Þess
vegna leggja þeir höfuðáherzlu á að
borgin eigi frumkvæðið. ASt.
Junior Chamber heldur landsþing:
Konurstofna JC-klúbb
Junior Chamber-hreyfingin fylgist
greinilega með tímanum. A.m.k. eru
konur orðnar gjaldgengir félagar í JC.
Þannig var nýlega stofnað JC-Vik,
eingöngu skipað konum, af JC
Reykjavík. Þá hafa konur gengið í
önnur JC-félög og þykja hinir
ágætustu félagar.
Um hvitasunnuna heldur JC lands-
þing sitt i Hveragerði. Hefst það í dag
ogstendur fram á annan í hvítasunnu.
Nýlega var hér staddur varaforseti
alþjóðahreyfingarinnar, Lionel S.
Hartmann frá Suður-Afríku. Átti
hann fund með utanríkisráðherra,
borgarstjóra og með forstöðumönnum
landssamtaka iðnaðarins vegna sam-
starfs þeirra og hreyfingarinnar, sem í
ár fjaUar um málefni iðnaðarins sem
landsverkefni. JBP
Postulínsskjöldur til minn-
ingar um slysavarnastarf
Slysavamafélag Islands hefur i tilefni
af 50 ára afmæli félagsins látið gera
fagran veggskjöld hjá hinu fræga firma
Bing og Gröndahl í Kaupmannahöfn.
Skjöldurinn ber mynd sem Eggert
Guðmundsson listmálari teiknaði. Sótti
hann fyrirmyndina í þann þátt félags-
starfsins sem öðrum fremur hefur
einkennt störf SVFÍ í fimm áratugi —
björgun úrsjávarhásjcd.
Veggskjöldurinn ér til sölu hjá SVFÍ á
Grandagarði og hjá slysavamadeildum
um allt land. Hann kostar 5000 krónur.
ASt.
Þrír ungir menn taka að sér forystuhlutverk í máli
sem velf lestir Reykvíkingar hafa hug á
Ungu mennirnir sem standa að undirskriftasöfnuninni og hafa kynnt vel grundaðar áætlanir sínar forsvarsmönnum
borgarinnar. Þeir eru frá vinstri talið: Erlendur Á. Guðmundsson bankastarfsmaður, Kristinn Gestsson sölumaður og
Björgvin Björgvinsson nemi i Myndlista- og handíðaskólanum — DB-mýnd Bjarnleifur.
MUNIÐ KAPPREIÐAR FAKS
ANNAN HVÍTASUNNUDAG KL 14.00