Dagblaðið - 12.05.1978, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAl 1978.
7
Félögin eru hluti af
okkur og við erum
hluti afþeim
— segir 3. maður á D-lista Sjálfstæðisflokksins
„Ég er búinn að vinna að bæjar-
málum í bæjarstjórn undanfarin fjögur
ár og hef áhuga á að vinna áfram að
uppbyggingu bæjarsins. Ég vil að hér sé
traustur fjárhagur eins og verið hefur,”
sagði Einar Þ. Mathiesen, framkvæmda-
stjóri, sem skipar þriðja sætið á D-lista
sjálfstæðismanna.
„Stærstu málin hér þarf að leiða í far-
sæla höfn á komandi kjörtimabili,” sagði
Einar. „Þaö eru gatnagerð og hita-
veitan. Ég legg líka mikla áherzlu á
félagsleg málefni í Hafnarfirði. Ég vil
styrkja frjálsa æskulýðsstarfsemi, þann
kraft, félagslega styrk og þær hugsjónir,
sem að baki liggja. Við erum hluti af
þessum félögum og þau eru hluti af
okkur. Égerá mótiþví aðsetja allt undir
miðstýringu hins opinbera.”
Einar Þ. Mathiesen, hefur verið for-
maður hafnarstjórnar undanfarin
fjögur ár. Hann sagði að mikið upp-
byggingarstarf hefði verið unnið við
höfnina á kjörtímabilinu. „Nú eru til
tillögur um framtíðarskipulag í suður-
höfninni. Þar eru mörg skemmtileg
verkefni framundan og það er meðal
annars þess vegna sem ég gef kost á mér.
Ég vil leggja mitt af mörkum til míns
bæjarfélags. Ég lofa ekki öðru en því, ég
vil gera mitt besta.”
Einar kvaðst telja að sjálfstæðismenn
héldu sínum fimm mönnum í bæjar-
stjórn og jafnvel fleirum.
-ÓV.
Einar Þ. Mathiesen: Framtíðarskipulag suöurhafnarinnar.
Ægir Sigurgeirsson: „Ekkert nema gatan.
Enginn
loforða-
listi
— segirfimmti
maðurá D-lista
Sjálfstæðisflokksins
Hildur Haraldsdóttir, skrifstofustjóri
hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar skipar
fimmta sæti lista sjálfstæðismanna við
bæjarstjórnarkosningarnar, en i því
sæti lenti hún í prófkjöri flokksins vegna
kosninganna.
„Ég gef kost á mér fyrst og fremst
vegna þess að ég hef áhuga á málefnum
Hafnarfjarðar og tel mikilvægt að þar sé
vel haldið á málum,” sagði Hildur i sam-
tali við DB. Hún hefur starfað með
Stefni, félagi ungra sjálfstæðismanna i
Hafnarfirði, í 5—6 ár og á nú sæti í
stjórn félagsins.
Hildur sagðist ekki telja vafa á þvi að
sjálfstæðismenn héldu meirihluta sínum
I Hafnarfirði. „Ég tel okkur fara langt I
sjötta manninn,” sagði hún.
„Ég er ekki með neinn loforðalista
handa kjósendum,” sagði Hildur enn
fremur. „Ég vil vinna að öllum málum
bæjarfélagsins, þótt áhugi minn beinist
fyrst og fremst að æskulýðs- og iþrótta-
málum auk umhverfismála.”
ÓV.
Hildur Haraldsdóttir: „Förum langt með að fá sjötta manninn.
Opnum stjórih
kerfi bæjaríns
— segirefsti maöurá G-lista
Alþýðubandalagsins
„Ég er fyrst og fremst i framboði
vegna þess að ég var beðinn um það af
mínu flokksfélagi — fyrst fyrir fjórum
árum og svo aftur núna,” sagði Ægir
Sigurgeirsson kennari, sem er efstur á
framboðslista Alþýðubandalagsins.
„Brýnustu verkefnin hér eru á sviði
félagsmála,” sagði Ægir. „Hér þarf að
gera stórátak I dagvistunarmálum og
æskulýðsstarfi. Unga fólkið sjálft á að
taka þátt í mótun þeirrar stefnu.”
Ægir sagði að alvarlegast væri að í
Hafnarfirði vantaði alveg aðstöðu fyrir
ungt fólk á aldrinum 16—20 ára. „Þar
er það ekkert nema gatan. Það gefur
auga leið, að þau sækja þá talsvert
mikið út úr bænum i leit að lifi. Við
þurfum að halda okkar fólki heima, að
svo miklu leyti sem eðlilegt er.”
Hann kvað skort á skólahúsnæði
hefta skólastarf i Hafnarfirði. „Það
hefur einfaldlega ekki verið byggt nóg af
skólum til að mæta þörfinni,” sagði
Ægir.
„Þá finnst mér ástæða til að nefna
þörfina fyrir félagslegar ibúðabygging-
ar fyrir láglaunafólk og fólk, sem er að
hefja búskap. Á ég þar bæði við leigu-
ibúðir og verkamannabústaði á hag-
kvæmum kjörum.”
Ægir lagði á það áherzlu, að -stjórn-
kerfi bæjarins væri opnara og bæjar-
fulltrúar ekki einangraðir frá bæjarbú-
um, eins og hefði borið á.
Hann sagðist telja að Alþýðubanda-
lagið væri i talsverðri sókn í Hafnarfirði,
en vildi engu spá um hugsanlega skipt
inguj bæjarfulltrúa eftir kosningar.
ÓV.
Trillukarlar eru fjölmargiri Hafnartirði, enda útgerð talsurð l'rá hænum. DB-nnnd: IIV,