Dagblaðið - 12.05.1978, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1978.
Varöveitum góðan
f járhagsgrundvöll—
höfnum pólitískum
f orskrif tum
— segirÁrni Gunnlaugsson hrl„ efsti maður
á lista óháðraíHafnarfirði
„Ég trúi á yfirburði óháðrar bæjar-
málastefnu, sem hefur þaö að leiðarljósi
að láta ábyrgt og heilbrigt mat á málefn-
um ráða afstöðu til mála, óbundna af
flokkspólitískum forskriftum og kredd-
um, sem landsmálaflokkum er hætt við
að troða upp á menn og málefni,” sagði
Árni Gunnlaugsson hæstaréttarlög-
maður. Hann er í efsta sæti á lista
óháðra borgara og raunar frumkvöðull
þeirra samtaka.
Árni telur flokkspólitísk átök í bæjar-
málum hafa skaðleg áhrif og leggur
áherzlu á þau jákvæðu áhrif, sem óháðir
bæjarfulltrúar hafa haft, i 12 ára meiri-
hlutasamstarfi. Þeir skapi festu i
stjórnarháttum, sem aftur hafi leitt til
blómlegra og jákvæðra framkvæmda á
síöasta kjörtímabili.
„Við stefnum að þvi, að varðveita
góðan fjárhagsgrundvöll bæjarins og
áframhaldandi ráðdeild, sem meðal
annars hefur t.d. leitt af sér
möguleikann á lægri fasteignagjöldum
en víðast annars staðar,” sagði Árni.
„Við lítum á stöðu bæjarstjórans eins
og ópólitískt embætti en ekki til afnota
fyrir pólitíska flokka. Þannig á þetta að
vera, hver sem starfinu gegnir,” sagði
Árni.
„Annars munu fulltrúar okkar i
bæjarstjórn og félag okkar styðja öll
velferðarmál, sem fjallað er um. Af
einstökum verkefnum má nefna áætlun
um að Ijúka malbikun á öllum götum
Hafnarfjarðar á næstu tveim árum,
umbætur i húsnæðismálum á félagsleg-
um grundvelli, og aukinn stuðning við
aldraða.”
Árni Gunnlaugsson: „Bjartsýnir á aukið fylgi.” — DB-myndir: Bjarnleifur.
„Okkar framboð er hið eina, sem bjartsýnir á aukið fylgi við skoðanir fjarðarkaupstaðar,” sagði Árni Gunn-
hefur konu I öruggu sæti. Við erum okkar og stefnu i málefnum Hafnar- laugssonaðlokum. -BS.
Manneskjulegrí bæ
þarsem fólkið finnur
aðþaðáheimaí
bezta skilningi
— segirHörðurZópharaasson, efsti
maðurAlþýðufiokksins
Hörður Zóphaníasson: „Reglulegir hverfafundir borgaranna og bæjarfulltrúa.”
„Ég legg mikla áherzlu á að bæta
sambúð og auka samskipti bæjarbúa og
bæjarfulltrúa. Hér þarf að halda reglu-
lega hverfafundi þar sem sjónarmið
beggja hópa og raunar einstaklinga
koma fram,” sagði Hörður Zóphanías-
son skólastjóri. Hann er efsti maður á
lista Alþýðuflokksins í bæjarstjórnar-
kosningum i Hafnarfirði.
„Ég vil að bæjarstjórnin sýni meiri
áhuga á því að gera Hafnarfjörð að
manneskjulegri bæ til jvess að fólkið
finni að þar eigi það heima í bezta
skilningi,” sagði Hörður.
Hann kvaðst bera skólamál og félags-
Menntun erekki bara tilað framleiða læsa
skattborgara
segirJónBergsson verkfræðingur (A)
- „Án hafnar hefði hér ekki þróazt nein
byggð. Höfninni þarf stöðugt að sýna
fullan sóma. Hingað þarf að laða þá
flutninga og samgöngur, sem
staðsetning bæjarins býður upp á. Auk
þess á hér heima venjulegur sjávarút-
vegur,” sagði Jón Bergsson verk-
fræðingur, sem er annar maður á lista
Alþýðuflokksins i bæjarstjórnarkosning-
um í Hafnarfirði. Hann taldi að alla
aðstöðu við höfnina þyrfti að bæta
mjög, meðal annars til skipasmíða.
Jón Bergsson leggur mikla áherzlu á
stuðning við frjálsa félagastarfsemi, ekki
hvað sizt vegna nálægðarinnar við
Reykjavík. „í allri þessari vinnuþrælkun
og skattpiningu þarf að styrkja íþrótta-
hreyfinguna og skátastarf til að nefna
eitthvað. Það þarf að taka stefnuna frá
einhverju allsherjarhallærisplani.
Menntun er ekki bara til þess að fram-
leiða læsa skattborgara,” sagði Jón.
„Hið opinbera leysir aldrei allar
félagslegar þarfir borgaranna. Það getur
gert samþykktir og mótað stefnuna í
vissum tilvikum. Framkvæmdaaflið er í
höndum fólksins sjálfs. Þaðgeturbæjar-
stjórnin styrkt með ýmsu móti.”
„Ég legg þunga áherzlu á endur-
skoðun öryggismála bæjarins. Þar er
mér efst I huga slökkviliðið, sem býr við
úreltan tækjakost og ófullnægjandi
aðstöðu. Stigabifreiðin er 47 ára gömul,
aðrar þrjár bifreiðar eru 32, 25 og 24
ára gamlar. Ein bifreið er þó þriggja ára
gömul. Brunahanar eru víða orðnir
gamlir og vatnsmagn ekki nægilegt.
Flatahraunið sem slökkvistöðin stendur
við, er ekki malbikað, enda ekkert hús
til sölu við þá götu," sagði Jón.
„Til þess eru vitin að varast þau og
minna má á, að tjónið sem varð í
Slippstöðinni á Akureyri er meira en
kostar að reisa slökkvistöðvarhús og
kaupa nauðsynlegan búnað fyrir
slökkviliðið eftir nútíma kröfum,” sagði
Jón Bergsson.
Hann telur það ábyrgðarhluta að
ganga ekki til verks í þessu efni og ekki
síður fyrir þá sök, að slökkvilið Hafnar-
fjarðar er einnig fyrir Garðabæ, Bessa-
staðahreppogÁlftanes. -BS.
Jón Bergsson: „Nauðsynlegt að byggja
upp slökkviliðiö — til þess eru vítin að
varast þau.”
Msrkið j«m vann harðfiiknum nafn
Fmithjð: Kjötbúfl Suðurvers,
SttgahNð
Hjallur hf. • Sölusími 23472
mál mjög fyrir brjósti. Þar væri af
mörgu að taka sem betur mætti fara.
Hann kvað t.d. dagvistunarmál hafa
setið á hakanum. Þar væri brýnt
verkefniaðvinna.
„Það er verkefni bæjarstjórnar að
laða hingað ný atvinnufyrirtæki,” sagði
Hörður. Hann sagði að það væri liður i
atvinnumálum, sem hann hefði vaxandi
áhyggjuraf.
„Frjáls félagasamtök eru sá hom-
steinn, sem æska bæjarins bindur vonir
við. í því sambandi má nefna tóm-
stundaiðkun unglinga, sem þarf að gefa
meiri gaum en gert er. í þvi tilliti má
nefna að skólana þarf að nýta betur en
nú er gert. Þar er hægt að búa frjálsum
félagasamtökum og unglingastarfi sama-
stað, utan skólatíma. Þar væri raunar
hægt að rækta samband sem bæði
unglingar og foreldrar gætu notið. Þar
gætu orðið til menningarmiðstöðvar í
þessa orðs bezta og víðtækasta
skilningi,” sagði Hörður Zóphaníasson.
„Annars er hér eins og annars staðar
mörg verk að vinna. Ég mun Ijá góðum
málum allt það lið sem ég má,” sagði
Hörðuraðlokum. ’
-BS.
Þarna er malað gull á haustvertið
fyrir tveimur árum. Fjöldi gamalla
og fallegra húsa er I Hafnarfirði.
— DB-mynd: Bj. Bj.