Dagblaðið - 12.05.1978, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1978.
TIL SÖLU
23 feta mjög rúmgóður bátur úr krossviði á eikargrind og kiæddur
trefjaplasti. Vél 2.4 I. Ford diesel, ekki fullkláraður. Vagn fylgir.
Tilboð. Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022. H—11227.
Aðalfundur
Aðalfundur Glímufélagsins Ármanns
fyrir árið 1976—1977 verður haldinn
fimmtudaginn 18. maí kl. 20 í Snorra-
búð, Snorrabraut 37.
Stjórnin
Blaðburðarbörn óskaststrax
í eftirtafín hverfi:
Skúlagötu frá 58 og út Skipholt
Rauðarárstíg 1—13 Tjarnargötu
Lindargötu Suðurgötu
Hverfisgötu Leifsgötu
Upplýsingar á afgr. ísíma 27022.
mmiAÐw
*•? Smurbrauðstofqn
BJORNINN
Njólsgötu 49 - «mi .15105
AUGLÝSING
íbúð fræðimanns í húsi Jóns Sigurðssonar í
Kaupmannahöfn er laus til íbúðar 1. septem-
ber 1978 til 31. ágúst 1979.
Fræðimönnum eða vísindamönnum, sem
hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að vís-
indaverkefnum í Kaupmannahöfn, er heimilt
að sækja um afnotarétt af íbúðinni. í íbúðinni
eru fímm herbergi og fylgir þeim allur nauð-
synlegasti heimilisbúnaður. Hún er látin í té
endurgjaldslaust. Dvalartími i íbúðinni skal
eigi vera skemmri en þrír mánuðir og lengstur
12 mánuðir, en venjulega hefur henni verið
ráðstafað í þrjá mánuði í senn.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist stjórn
húss Jóns Sigurðssonar, Islands Ambassade,
Dantes Plads 3,1556 Köbenhavn V., eigi síðar
en 1. júní næstkomandi. Umsækjendur skulu
gera grein fyrir tilgangi með dvöl sinni í Kaup-
mannahöfn, svo og menntun og fyrri störfum.
Þá skal tekið fram, hvenær og hve lengi er
óskað eftir íbúðinni, og fjölskyldustærðar um-
sækjanda.
Sérstök umsóknareyðublöð er hægt að fá á
skrifstofu Alþingis í Alþingishúsinu í Reykja-
vík.
Æskilegt er, að umsókninni fylgi umsögn sér-
fróðs manns um fræðistörf umsækjanda.
Stjórn húss Jóns Sigurðssonar.
Flugræningjar
yfirbugaðir
Andartaki eftir aö eitt hundrað og
tíu farþegar colombísku flugvélarinnar
voru látnir lausir, réðst lögregla inn i
vélina og handtók ræningjana þrjá.
Gerðist þetta á eynni Curacao undan
ströndum Venuzuela;
Tveir lögreglumenn og tveir flug-
ræningjanna urðu fyrir skotsárum,
þegar flugvélin Boeing 727 var tekin.
Áður hafði flugstjórinn fengið skot í
fótinn. Samkvæmt upplýsingum er
ekki talið að neinn hinna særðu sé í
lífshættu.
Flugræningjarnir höfðu krafizt
60.000 dollara lausnargjalds, sem er
óvenju litið eða ekki nema um það bil
jafnvirði sextíu milljóna íslenzkra
króna.
Yfirvöldum tókst að fá ræningjana
til að sleppa öllum farþegunum
skömmu eftir komuna til Curacao og
voru þeir þvi orðnir einir eftir um borð
I þotunni ásamt fimm manna áhöfn
hennar, þegar þeir voru yfnbugaðir.
Þær heita Nehama Shutan, Etti Zuberli og Lisa Gold og eru í ísraelska sftng-
hópnum Alpha Beta, sem söng verðlaunalagið i Eurovision sftngvakeppninni fyrir
nokkru.
Lítið
gengi
verð-
launa-
lags
Israelski verðlaunasöngurinn úr
Eurovision söngvakeppninni hefur
ekki náð neinum verulegum vinsæld-
um og engan veginn þeim sem mörg
verðlaunalögin sem þar hafa komið
fram á undanförnum árum hafa náð.
í Bretlandi hefur lagið. sem heitir A-
Ba-Ni-Bi hlotið mjögdræmar viðtökur
og heyrist sjaldan i útvarpi. Izhar
Cohen, söngvarinn ísraelski. sem söng
lagið í keppninni. er þekktur i heima-
landi sinu en stúlkurnar, sem
aðstoðuðu hann, eru tiltölulega
óþekktar og höfðu bundið miklar
vonir við frama sinn i framhaldi
sigursins.
Burmaflótta-
menn til
Bangladesh
Meira en tuttugu þúsund flótta- ið sé ólöglegir innflytjendur. sem
mcnn hafa komið til Bangladesh haldið hafi á brott, þegar innflytjenda-
undanfarna tvo daga frá nágrannarik- eftirlit landsis vildi hafa af þeim tal.
inu Burma. Stjórnvöld þar i landi hafa
krafizt þess að Burmastjórn taki við Stjórn Banlgadesh, sem komið
þessu fólki. þvi nú er talið að flótta- hefur upp búðum fyrir flóttamcnnina.
menn i Bangladcsh séu mcira en ein segist óttast um afkomu þeirra. Þegar
milljón tvö hundruö og fimmtiu þús- hafa hátt í eitt hundrað látizl' búðun
und. Búa þeir við mjög þröngan kost. um og óttazt er að farsóttir brjótist þar
Yfirvöld i Burma segja að flóttafólk- út.
Dæmdur fyrir
að nauðga
konusinni
í fyrsta skipti i sögu Ástraliu var karl-
maður t'undinn sekur um að hafa nauðg-
að eiginkonu sinni. Var þar farið eftir
lögum sem sett voru 1976. Hinn ákærði.
37 ára. hafði lýst sig saklausan. Hjónin
höfðu ekki búið saman i tæplega eitt ár.
þegar til verknaðarins á að hafa komið.
Af ótta við hótanir um að hún yrði
drepin lét konan undan og hafði mök
við manninn. Hjónabandið hafði staðið
frá 1964 og eiga þau tvö börn.
Erlendar
fréttir
Reyndiað
myrða
eiginmanninn
ogvill núfá
eignirnar
Marlene Seimley, eiginkona her-
manns sem býr i Illinoisfylki i Banda-
rikjunum, var fundin sek fyrir að drepa
eiginmann sinn fyrir nokkru og hefur
vakið athygli fyrir skörulega framkomu
við skilnaðarréttarhöldin. Vill hún að
eiginmaðurinn fyrrverandi greiði henni
um það bil áttatiu þúsund krónur i fram-
fræslueyri mánaðarlega auk þess að fá
til umráða einbýlishús þeirra sem metið
er á jafnvirði sjötiu milljóna islenzkra
króna.
Eiginmaðurinn hafði krafðizt
skilnaðar þegar árið 1974 eftir að konan
hafði verið handtekin, ákærð fyrir að
hafa greitt leigumorðingja fyrir að
drepa hann.