Dagblaðið - 12.05.1978, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAt 1978.
\
(Jtgsfandi Osgbladifi M.
Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjólffsson. Ritstjórí: Jónas Kristjánsson.
Fróttastjórí: Jón Birgir Pétursson. Ritstjómarfulitrúi: Haukur Heigason. Skrifstofustjóri ritstjómar
Jóhannes Reykdal. íþróttir Hallur Sfmonarson. Aðstoðarfróttastjóri: AUi Steinarsson. Handrit
Ásgrimur Pálsson.
Blaóamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómaoson, Bragi Sigurflsson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur Sigurfls-
son, Hallur Hallsson, Helgi Pátursson, Jónas Haraldsson, Óiafur Geirsson, ólafur Jónsson, ómar
Valdimarsson, Ragnar Lár.
Ljósmyndir Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Hörflur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurfls-
son, Sveinn Pormóflsson. ,
Skrifstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Práinn Þorieifsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson
Dreifingarstjórí: Már E. M. Halldórsson.
Ritstjóm Siflumúla 12. Afgreiflsia PverhoW 2. Áskriftir, auglýsingar og skrifstofur Pverhottí 11. Aflai-
simi blaflsins 27022 (10 Hnur). Áskrift 2000 kr. á mánufli innanlands. í lausasöiu 100 kr. eintakifl.
Setning og umbrot Dagblaflifl hf. Siflumúia 12.
Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf. Siðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 10.
Innreiö nubmans
Rafmagnsveitur ríkisins hafa riðið á
vaðið með eina merkustu nýjung síðustu
ára í stjórnun opinberra þjónustustofn-
ana. Þær hafa falið óháðum ráðgjafar-
fyrirtækjum að meta hinn félagslega þátt
framkvæmda sinna.
Kristján Jónsson rafmagnsveitustjóri skýrði frá því á
fundi Sambands íslenzkra rafveitna fyrr í þessari viku, áð
tillögum stofnunarinnar vegna næsta fjárlagafrumvarps
ríkisins mundi verða skipt í tvennt, í arðbærar fram-
kvæmdir annars vegar og félagslegar framkvæmdir hins
vegar.
Ætlunin er að athuga á einangraðan hátt útstreymi og
innstreymi peninga vegna hverrar fjárfestingar fyrir sig.
Komi í ljós, að útstreymi peninga sé meira en innstreymi,j
er að því marki um félagslega framkvæmd að ræða.
Félagslega þáttinn má þá raunar mæla í hlutfallstölum.
Rafmagnsveitustjóri nefndi í erindi sínu nokkur dæmi
um útreikninga af þessu tagi. Nýja línan milli Grímsár
og Reyðarfjarðar, sem tekin var í notkun í fyrrahaust,
hefur minnkað flutningstap um heilt megavatt. Hún
stendur því sem framkvæmd vel undir sér fjárhagslega.
Háspennulínan milli Þórshafnar og Bakkafjarðar, sem
er á framlögum þessa árs og á að kosta 51 milljón
krónur, er hins vegar 85% félagsleg framkvæmd. Það
þýðir, að Rafmagnsveitur ríkisins geta fengið arð af 7,5
milljón króna eigin framlagi, ef ríkið gefur þeim á móti
43,5 milljón krónur í arðlausu fé. Þessi lína er langt frá
því að standa undir sér.
Kristján Jónsson nefndi líka 290 milljón króna nýjan
sæstreng til Vestmannaeyja, sem sennilega verður fljót-
lega lagður, þótt hann muni ekki skila Rafmagnsveitun-
um neinum tekjum fyrr en árið 1982. Sá tímamismunur
felur í sér félagslega framkvæmd, sem veiturnar geta
ekki kostað af eigin fé.
Nýjung rafmagnsveitustjóra felur í sér ósk um, að
stofnunin verði því aðeins látin leggja í óarðbærar fram-
kvæmdir, að þingmenn og ráðherrar geri sér grein fyrir
því, að þær eru óarðbærar og leggi sérstaklega fram fé til
þeirra úr hinum sameiginlega sjóði landsmanna.
Skiptingin í arðbærar og félagslegar framkvæmdir er
merkust fyrir þá sök, að hún þvingar ráðamenn
þjóðarinnar til að gera sér betur grein en áður fyrir verð-
mæti fjármunanna, sem þeir eru að ráðstafa. Hún varpar
kastljósi á hverjaráðagerð fyrir sig,svo sterku, að í augun
sker, ef ráðamenn gamna sér við rándýr kjördæmismál.
Vinnubrögðin, sem hinn tiltölulega nýi rafmagns-
veitustjóri er að reyna að koma af stað, eiga jafnmikinn
rétt á sér í ýmsum öðrum opinberum stofnunum, sem
sinna jöfnum höndum arðbærri þjónustu og ýmissi
óskhyggju ráðamanna.
Símamálastjórnin getur áætlað tekjur og gjöld af nýj-
um símalínum og símstöðvum og skipt fjárlagatillögum
sínum í tvennt á sama hátt og Rafmagnsveiturnar. Sama
er einnig unnt að segja um ýmis opinber fyrirtæki, sem
ekki selja þjónustu sína, svo sem um Vegamálastofn-
unina. í þeim tilvikúm yrði þá að áætla notkunar-
verðmæti framkvæmdanna.
Nýjungin felst í að beita tvískiptingunni ekki aðeins í
ákveðnum verkefnum, heldur kerfisbundið í áætlunum
heilla stofnana. Sú vinnubrögð eru þau, sem koma skulu.
.....
Bandaríkin:
Er umræða um vin-
sældir og gengi
forsetans aðeins
hugarburður fjöL
miðla í efnishraki?
Þeir eru margir sem segja að Jody
Powell sé ekki rétti maðurinn í starf
blaðafulltrúa Hvita hússins og Banda-
ríkjaforseta. Helztu gagnrýnendur
Jimmy Carters forseta segja meira að
segja að flestir séu á þeirri skoðun. En
er fallandi gengi forsetans honum
sjálfum eða' blaðafulltrúa hans að
kenna? Ekki eru allir vissir um það.
Þeir hinir sömu segja að ekki mundi
skipta máli þó Gabriel erkiengill tæki
að sér blaðafulltrúastarfið og himna-
kórinn syngi forsetanum lof og dýrð á
blaðamannafundum. Hann mundi
þrátt fyrir það vera lágt metinn meðal
almennings og í fjölmiðlum. Þetta er
óhjákvæmileg þróun, sem á lítið skylt
við það, sem raunverulega er að
gerast í heiminum.
Vinsældir eða óvinsældir Banda-
ríkjaforseta eru ákvarðaðar af
skoðanakönnunum framkvæmdum af
ýmsum fyrirtækjum á þeimvetivangi.
Þessi bandariska uppfinning, sem oft
hefur gefið góðan árangur er einnig
líka hörmulega rangar niðurstöður
miðað við raunveruleikann, sveiflast
stundum ótrúlega skjótt og mismunur
á niðurstöðum skoðanakannana er
einnigoft furðumikill.
Gallup fyrirtækið tilkynnti sautj-
ánda fyrra mánaðar að aðeins 39%
þeirra sem spurðir voru hefðu verið
ánægðir með störf forsetans. Þótti
það mikil breyting frá því í byrjun
mánaðarins. Þrem dögum siðar til-
kynnti annað skoðanakönnunarfyrir-
tæki, Harris, að ekki nema 33%
Bandaríkjamanna teldu forsetann
standa sig mjög vel eða nokkuð vel í
starfi sinu.
Hvað skyldi hafa valdið svo mikilli
breytingu á afstöðu almennings til
Bandarikjaforseta? Hærri skattar?
Lægi laun? Eða' fækkun á frídögum?
Ekkert slíkt hefur orði.
Hver er þá skýringin? Sumir halda
því fram að minni vinsældir forsetans
séu óhjákvæmilegar á öðru ári kjör-
tímabilsins. Þetta sé óhjákvæmilegur
fylgifiskur þess að margir, blaða- og
fréttamenn séu nú önnum kafnir við
að fullyrða að forsetinn efni ekki
kosningaloforð sín. Ástæðan fyrir því
að þannig sé skrifað á öðru ári kjör-
timabilsins er talin einföld.
Þess sé krafizt að i það minnsta hálf
milljón orða komi frá fréttastofum og
fréttamönnum, sem aðsetur hafa i
Washington. Stór hluti þessa mikla
orðaflóðs fjallar auðvitað um alvarleg
málefni svo sem lagasetningu og
framkvæmdir stjórnvalda. önnur
segja frá drukknum þingmönnum og
hvað þeir afreka í ölvimunni og ekki
má gleyma uppáhaldsfréttunum þessa
mánuöina, spillingunni innan CIA,
njósna- og upplýsingaþjónustu Banda-
ríkjastjórnar. Eins og engum hafi
veriö kunnugt um það fyrr að þar
væru notaðar ýmsar vafasamar að-
ferðir við upplýsingasöfnun.
Stundum er aftur á móti þannig
ástatt að ekkert raunverulegt er að
skrifa um og þá eru góð ráð dýr. Oft
verður frammistaða forsetans þá
þrautalendingin. Raunverulega er
alltaf hægt að skrifa um forsetann. Á
fyrsta ári kjörtimabilsins er til dæmis
hægt að skrifa um fyrirætlanir hans
og framkomu i nýja embættinu og
auðvitað hafa allir áhuga á forsetan-
um í byrjun. Ekki er síðasta eina og
hálfa árið í embætti erfiðara. Þá er
hægt að velta vöngum fram og aftur
yfir möguleikum forsetans á endur-
kjöri og hverjir verði hans hættuleg-
ustu keppinautar i komandi kosning-
um.
Þá er aðeins eftir að gera grein fyrir
um hvað hægt er að skrifa um forset-
ann um mitt kjörtímabilið, þegaf
nýjabrumið er farið af honum og
vangaveltur og komandi kosningar
eru ekki timabærar.
Þá er komið að kosningaloforðun-
um. Hægt er að segja frá þvi að for-
setinn hafi ekki uppfyllt ýmis loforð
sem hann hafi gefið meðan á
kosningabaráttunni stóð. Við þessi
skrif finnst mörgum mesti óþarfi að
taka til greina þá staðreynd að það
tekur ár og jafnvel áratugi að koma
sumum þessara loforða i fram-
kVæmd.
Þingið er auðvitað stundum and-
stætt forsetanum og þess vegna er
hægt að rita fram og aftur um erfiða
stöðu gagnvart þinginu. Reyndar
mun hver einasti forseti einhvern tíma
komast i þá aöstöðu og alls ekki af
óeðlilegum orsökum, því skoðanir for-
Þeir gripa til flestra ráöa, stjórnmála-
mennirnir i Bandaríkjunum, þegar út í
kosningabaráttuna kemur og baráttan
er hafin. Á myndinni sjáum við Jimmy
Carter i reiptogi á útiskemmtun i KaU-
forníu.
setans og þingmanna fara ekki alltaf
saman fremur en annarra manna.
Á öðru ári forsetans i embætti fer
að koma i ljós að ýmis þau verk-
efni sem hann hóf í byrjun embættis-
ferils síns munu ganga erfiölegar
heldur en hinir bjartsýnustu vonuðu.
Þá er hægt að skrifa um það og jafnvel
gefa i skyn aö forsetinn sé að missa
tökin á starfi sinu.
Staðreyndin er aðeins sú, að allir
stjórnmálamenn verða fyrir því að
koma ekki öllum sinum málum í gegn-
um þingið, forsetinn ekki síður en
aðrir.
Vegna þessa segja margir að full-
yrðingar um vinsældir og óvinsældir
forsetans sé hlutur, sem verði fyrst og
fremst til hjá fjölmiðlunum. Al-
menningur i Bandarikjunum láti sig
stjórnmál engu skipta um mitt kjör-
timabil forsetans. Enginn er að velta
því mikið fyrir sér hvern þeir vilji
fyrir forseta og flestir taka fullyrðing-
ar fjölmiðlanna um gengi eða gengis-
leysi forsetans í starfi trúanlegar.
Verið getur að meiri sveiflur séu á
niðurstöðum skoðanakannana nú en
oft áður en fylgistap forseta Banda-
rikjanna á öðru ári kjörtimabils er
venja sem haldizt hefur alveg frá því
Eisenhower var forseti og segir að
líkindum litið um fylgi hans i kosning-
um eða gengi hans i starfi.
Jody Powell blaðafúlltrúi Jimmy
Carters Bandaríkjaforseta er ekki allt-
af öfundsveröur af starfi sínu.