Dagblaðið - 12.05.1978, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12.MAÍ 1978.
Kannskí eru vegir almennt ekki alveg svona slæmir á lslandi En þad kemur þó fyrir. Ástand vega almennt veröur þó aö
teljast fyrir neöan allt velsæmi, undir þaö munu allir bílstjórar skrifa. — DB-mynd.
ÁlitDalvíkurfundarFÍB:
HUÐSTÆÐUR AÐEINS HJA
VANÞRÓUÐUSTU ÞJÓDUM HEIMS
— þegar litið er á ástand vegamála á íslandi
Ástand vega á íslandi er nú þannig
að óhjákvaemilegt er að gera stórátak'
til úrbóta, segir í ályktun er gerð var á
álmennum fundi er FÍB hélt á Dalvik
sl. laugardag. t ályktuninni segir enn-
fremur að leita verði hliðstæðna hjá
vanþróuðustu þjóðum veraldar til þess
að fá samjöfnuð við íslenzka vegi.
Fundurinn taldi að það stórátak sem
gera þyrfti í vegamálum til úrbóta
væri ekki stærra né fjárfrekara átak en
unnið hefði verið á ýmsum öðrum
sviðum islenzks þjóðlifs á liðnum ár-
um, s.s. raforkumálum.
Dalvikurfundur FtB taldi að beina
yrði stórauknu fjármagni til vegamála
og setja verði það markmið að allir
helztu þjóðvegir verði bundnir slitlagi
á næsta áratug. Þessu mar^i taldi
fundurinn unnt að ná með því að verja
sérsköttun á bifreiðir og rekstrarvörur
til þeirra til vegamála^og taldi að bif-
reiðaeigendur ættu skýlatis^r kröfur til
stjórnvalda að svo yrði gert. -. - ASL
Skáksamband íslands:
Miklu stavfsári lokið—merkir áfangar í augsýn
Einar S. Einarsson var einróma
kjörinn forseti Skáksambands tslands á
aðalfundi þess laugardaginn 6. mai sl.
Aðrir I stjórn 'voru kosnir Þorsteinn
Þorsteinsson, Gísli Árnason, Þráinn
Guðmundsson, Högni Torfason, Árni B.
Jónasson og Guðfmnur Kjartansson. t
varastjórn eru Helgi Samúelsson, dr.
Ingimar Jónsson Jörundur Þórðarson
og Sigfús Kristjánsson.
Forseti sambandsins gerði grein fyrir
störfum þess síðastliðið starfsár. Var það
mjög umsvifamikið. Hæst bar þar fram-
boðsmál Friðriks Ólafssonar í forseta-
stöðu FIDE, alþjóðaskáksambandsins.
Með ýmsum hætti var mikið unnið að
þvi máli á starfsárinu, þótt enn sé tals-
vert ógert.
1 skýrslu forseta var ekki sizt fjallað
um húsakaup Skáksambandsins að
Laugavegi 71. Þar eru nú höfuðstöðvar
þess.
Lögð var fram fjárhagsáætlun fyrir
næsta starfsár þar sem útgjöld nema
12,5 milljónum króna.
Samtimis ólympíumótinu í Buenos
Aires í Argentínu í haust verður haldinn
aðalfundur FIDE og þá kjörinn for-
maður í stað dr. Max Euve. Skáksam-
bandið mun vinna mjög að kjöri
Friðriks Ólafssonar og kosta nokkru til.
BS
íslenzkur f iskur í Bandarík junum:
Ódýrari en á
heimamarkaði
- og mun betri
„Fiskmáltiðina sá ég auglýsta og
ákvað að reyna hvernig Bandaríkja-
menn fara með íslenzkan fisk, enda
orðinn langeygur eftir okkar góða fiski
eftir langa ferð um Bandarikin,” segir
séra Róbert Jack, sóknarprestur á
Tjörn, Vatnsnesi, í bréfi til blaðsins.
Undanfarnar vikur hefur séra Róbert
ferðazt, um Bandaríkin og haldið fyrir-
lestra á 12 stöðum í 7 rikjum. „Nú
síðast hélt ég tölu yfir 1200 vandræða-
drengjum í Boy’s Town í Omaha í
Nebraskaríki,” segir séra Róbert.
Fiskmáltiðina i St. Louis, Missoui-
ríki, kvað séra Róbert hafa verið alveg
fyrsta flokks og mun betri matur en
gerður er úr fiskinum á islenzkum
veitingastöðum, auk þess sem máltiðin
kostaði mun minna — menn geta
borðað dýrindis fisk frá tslandi fyrir 668
krónur, eins og þeir geta í sig látið, börn
greiða 358 krónur. JBP
Séra Róbert — fer viða um Bandarikin
og talar um tsland.
With Our New
Cod From Iceland
You Could
GetHooked
All the fish
you can eat
Wednesday
lla.m.-9p.m.
Our new cod from Iceland
is delivered fresh-frozen
to our Idtchens. There,
the delicate, boneless,
flaky, uhite meat is filleted.
breaded and fried to a crispy
golden brown perfection. We
then add our great steak fries
and cole slaw; but to make
this meal a really great value,
tjou can eat all the fish
you can hojd for just...
JacksorBetter
Restauramts
Grcat Food Sorvcd With Spirit! 8=-—
LJIisullc • Crcsluood • i lonsvmi • Bridgelim • I itíiummi • K<m kliill
AlKMi-Gndhey. III. • 1-70 al Cave S|irinys lixii • Jainestuuu M.ill
Þannig auglýsir veitingahós i St. Louis
islenzkan fisk — og selur stórkostlegar
máltiðir á hlægilega lágu verði miðað við
verðlag á veitingastöðum hérlendis.
Vissar tegundir fjársvika-
mála látnar afskiptalausar
Undanfarnar vikur hefur rann-
sóknarlögreglustjóri ríkisins skýrt
ýtarlega frá niðurstöðum rannsóknar i
svonefndu handtökumáli. Hinsvegar
hefur ekki heyrst orð um rannsóknina
á meintu fjármálamisferli Guðbjartar
Pálssonar o. fl. Málið mun hafa verið
sent frá Sakadómi Reykjavíkur til
ríkissaksóknara til meðferðar nokkru
eftir lát Guðbjartar. Rannsóknaraðil-
um var Ijóst þegar við upphaf rann-
sóknarinnar, að hér var um að ræða
mjög umfangsmikil brot varðandi
meint skattsvik, fjármálamisferli hvers
konar og óeðlilegar ráðstafanir fjár-
muna fjölda manna. Það var því eng-
an veginn réttlætanlegt að rannsókn
skyldi hætt skömmu eftir andlát Guð-
bjartar. Hefði mátt ætla af við-
brögðum rannsóknaraðila og ríkissak-
sóknara að Guðbjartur hafði verið eini
aðilinn í málinu, sem grunaður var um
saknæmt atferli. Sannleikurinn er sá,
að Guðbjartur gegndi ákveðnum hlut-
verkum í umfangsmiklum viðskiptum
við ýmsa einkaaðila og opinberar
stofnanir, sem báru fulla samábyrgð
með honum á hinum meintu fjármála-
misferlum.
Því er eðlilegt að almenningur I
landinu spyrji. Af hverju gaf Saka-
dómur Reykjavikur ekki út fréttatil-
kynningu um niðurstöður rannsóknar-
innar á sínum tíma? Af hverju hefur
ríkissaksóknari ekki fyrirskipað fram-
haldsrannsókn í málinu? Ólögmæt
handtaka og andlát Guðbjartar á ekki
að koma í veg fyrir að málið fái eðli-
lega og endanlega málsmeðferð. Það
hefur vakið sérstaka athygli hversu
augum almennings hefur rækilega
verið beint að handtökunni, en hins
vegar verið dyggilega þagað yfir þeim
aðilum, sem öðrum fremur koma við
sögu þessa máls. Það er löngu kunn
staðreynd, aö vissar tegundir fjár-
svikamála hafa verið látnar að mestu
afskiptalausar um áratuga skeið.
Hefur mannaflaleysi og skortur á sér-
hæfðum vinnukrafti í bókhaldsrann-
sóknum verið kennt um af hendi
dómsyfirvalda. Af hverju voru ekki
fyrir löngu ráðnir löggiltir endurskoð-
endur til starfa t.d. hjá Sakadómi
Reykjavikur og nú hjá rannsóknarlög-
reglustjóra ríkisins. Hvaða aðilar hafa
komið i veg fyrir það eða hefur aldrei
verið beðið um ráðningu þeirra?
Ég tel rétt að upplýsa almenning í
landinu um ákveðna þætti þessa máls,
þar sem þögn dómsyfirvalda kynni ella
að valda alvarlegum misskilningi og
tortryggni varðandi yfirhylmingu
ákveðinna aðila. Við húsleit hjá Guð-
bjarti fundust m.a. notuð reiknings-
hefti á ýmsa banka, en þessi gögn
ásamt öllu öðru sem fannst við hús-
leitina voru á sínum tíma send frá
bæjarfógetanum í Keflavík til Saka-
dóms Reykjavikur. Á svuntur þessara
reikningshefta voru skráðar upphæðir
ávísana, dagsetningar og til hvaða
aðila ávísanirnar voru greiddar. Sam-
kvæmt lauslegri athugun voru gefnar
út ávísanir 1964 og 1965 úr reiknings-
heftum frá Samvinnubankanum fyrir
um 50 millj. kr. Á reikningsheftum frá
Samvinnusparisjóðnum voru gefnar
út ávísanir á árunum frá 1962—1963
fyrir um 2 millj. kr.
Á reikningsheftum frá Sparisjóði
Reykjavíkur voru gefnar út áyisanir á
árunum frá 1962—1965 fyrir upphæð
um 21 millj. kr.
Á reikningsheftum frá Búnaðar-
banka lslands voru gefnar út ávisanir
á árunum 1963—1970aðupphæðum
16 millj. kr.
Á reikningsheftum frá Útvegsbank-
anum voru gefnar út ávisanir á árun-
um frá 1962—1971 aðupphæðum 16
millj. kr.
Samtalser um aðræða 105 millj. kr.
á þeim tíma, en sé þessi upphæö um-
reiknuð til núgildandi verðlags gerir
hún á annan milljarð kr. Ekki er vitað
hvað mikið af umræddum ávisunum
voru endurútgefnar eða notaðar i
Kjallarinn
Kristján Pétursson
formi skuldatrygginga. Vonandi getur
Sakadómur Reykjavikur upplýst það
að einhverju leyti svo og um frekari
banka — og einkaviðskipti viðkom-
andi aðila á árunum eftir 1970.
Skömmu eftir að þetta mál kom
upp, birti bankastjórn Samvinnubank-
ans yfírlýsingu í Morgunblaðinu varð-
andi viðskipti bankans við Guðbjart
Pálsson. Það sem vakti hvað mesta
athygli við umrædda yfirlýsingu var
að einn umfangsmesti og athyglisverð-
asti reikningur Guðbjartar við bank-
ann nr. 3131 var ekki birtur. Tel ég
slíka yfirhylmingu bankastjórnarinnar
vitaverða, þar sem því verður vart trú-
að að núverandi bankastjóra Sam-
vinnubankans sé ókunnugt um reikn-
inginn.
Einhverjum kann að finnast, að
ódrengilegt sé að vera að skrifa um
meint sakamál látins manns. Við þá
sem þannig hugsa vil ég segja þetta:
Reynt hefur verið í fjölmiðlum að
læða því inn hjá fólki á óheiðarlegan
hátt, að Guðbjartur væri hinn eini
seki i þessu máli og dómsyfirvöld hafa
með aðgerðaleysi sínu beinlínis stutt
við þennan fréttaflutning fjölmiðla.
Til að koma I veg fyrir frekari rang-
hugmyndir og ósannindi um afskipti
Guðbjartar og aðild hans í þessu máli
þá skora ég á viðkomandi dómsyfir-
völd að skýra opinberlega frá niður-
stöðu málsins. Það er augljóst rétt-
lætismál, aðskýrt verði frá helstu hlut-
deildaraðilum til að koma í veg fyrir
frekari sögusagnir og hvers konar
slúður fjölmiðla i þessum efnum.
Kristján Pétursson
deildarstjóri
✓