Dagblaðið - 12.05.1978, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAl 1978.
U7
Norðuk
+ Á65
<?Á2
OD97
+ÁDG64
Vesti'r
+ KD109842
83
0 enginn
+ K732
Austuk
A73
<?KDG 10954
02
+ 1085
SUÐUR
+ G
^76
OÁKG1086543
+ 9
Eins og við sjáum standa bæði sjö
tíglar og sjö grönd, en tiglarnir eru miklu
betri. Það var óvænt að félagi skyldi eiga
þrjá ása eftir þessar sagnir, en fjögur
gröndin voru sögð með þeim ásetningi
að segja sex grönd, ef félagi ætti tvo ása..
Einar Þorfinnsson fær yfirleitt
manna lélegust spil (að sögn hans sjálfs).
Það er því ekki hægt að birta einhverja
sjö slemmu, sem hann og Ásmundur
Pálsson spiluðu. Því kemur hér spil, sem
þeir félagar spiluðu og eru þeir i
vörninni í tveim laufum. Svona voru öll
spilin.
VtSTl'K
+ 76
VD1054
«G64
* D972
Norðuk
+ D1052
<?K3
9 Á9853
+ KG94
«■ Á987
0 D102
* 105
+ A83
^G62
°K7
*ÁG864
*K3
SUÐUK
Ásmundur i vestur spilaði út
spaðasexi, því Einar hafði sagt einn
spaða. Sögnin var tvö lauf spiluð í suður.
Sagnhafi lét lítið frá blindum og Einar
spaðaníu, sem drepin var á ás. Þá tók
sagnhafi tígulkóngog spilaði tígli á kóng
og litlum tigli og trompar. Þá kom lauf á
kóng í blindum og enn spilar sagnhafi
tígli, sem Einar trompar með lauftíu,
Tveir af íslandsmeisturunum, þeir Örn Arnþórsson, lengst til vinstri, og Guðlaugur Jóhannsson að spila við Guðmund Pét-
ursson og Karl Sigurhjartarson. Þessir fjórir spilarar hafa unnið sér rétt til að spila i islenzku sveitinni i opna flokknum á
Norðurlandamótinu, sem háð verður i Reykjavík i sumar. Myndin var tekin i lokaumferðinni á íslandsmótinu. DB-mynd
Bjarnleifur.
sagnhafi gefur lítinn spaða og
Ásmundur lítið hjarta. Þá tók Einar á
spaðakóng og spilaði meiri spaða, sem
sagnhafi trompar með laufáttu og er
yfirtrompuð með laufniu. Þeir félagar
voru búnir að fá þrjá slagi og Ásmundur
spilaði þá laufi frá drottningu — sjö i
laufinu upp i ás-gosa og sex, en það voru
þrír síðustu slagir sagnhafa, hann gaf
þrjá slagi á hjarta i lokin og varð einn
niður á sína 24 punkta.
Bridgefélag
Akureyrar
Vetrarstarfi BA er lokið. Síðasta
keppni félagsins var minningarmót um
Halldór heitinn Helgason, sem var einn
af máttarstólpum félagsins um margra
ára skeið. Landsbanki íslands gaf veg-
legan skjöld til að keppa um. AUs tóku
12 sveitir þátt i keppninni og var spilað
„Board a Match”. Sigurvegari varð sveit
Páls Pálssonar með 190 stig. Að öðru
leyti urðu úrslit þessi:
StÍK
2. Sveit Ingimundar Ámasonar 189
3. Sveit Angantýs Jóhannssonar 182
4. Sveit Alfreðs Pálssonar 181
S.Sveit Páls H. Jónssonar 165
6. Sveit Gylfa Þórhallssonar 156
Spilararí sigursveitinni auk Páls eru
Frímann Frímannsson, Gunnlaugur
Guðmundsson, Magnús Aðalbjörnsson
:Og Soffía Guðmundsdóttir.
Gleðisjóinn
geyst eg fer
Föstudaginn 14. mars árið 1884 sátu þau Jón
Árnason bókavörður og kona hans, Katrín Þor-
valdsdóttir, að miðdegisverði, sem á þeim tímum
var snæddur um nónbU, ásamt systursyni hús-
freyju, Skúla Thoroddsen. Hann hafði kvöldið
áður komið til Reykjavikur með póstskipinu frá
Kaupmannahöfn, en lokið þar glæsilegu prófi I
lögfræði I janúar eftir aðeins hálfs fimmta árs
nám. Frú Katrin vUdi gera frænda sínum vel til
og hafði látið elda baunir, sem hún vissi, að hón-
um þótti aUra mata bestar. Þegar þau voru
nýsest að borðum, kom í stofuna tvitug stúlka,
sem var heimagangur þar I húsinu, Theodora
Guðmundsdóttir frá Breiðabólstað á Skógar-
strönd. Ekki þekktust þau Skúli, þótt bæði væru
Breiðfirðingar að uppruna og þremenningar að
frændsemi. Skúli var aUnn upp í Reykjavík frá
tíu ára aldri og farinn til Hafnar, áður en
Theodora kom til höfuðstaðarins í fyrsta sinn.
En svo mikið varð hinum unga kandidat um
gestakomuna, að hann gætti þess ekki framar að
snerta á matnum. Varla hefur unga fólkinu að
þessu sinni farið öllu fleira á milli en sagt varð
með augunum. Skúli var aldrei framur né marg-
máll við ókunnuga, og Theodora hefur sjálfsagt
líka verið dálítið feimin við svo forframaðan
mann. En hvorugt gekk þess dulið, að með
þessum fyrstu tillitum væru örlög þeirra ráðin.
Ljómann frá þeirri stundu mátti enn sjá I augum
frú Theodoru Thoroddsen á gamalsaldri, þegar
hún minntist á baunadaginn. Sá mánaðardagur
var alltaf einn af tyUidögum ársins á heimili
hennar.
Með þessari snjöUu og skemmtilegu lýsingu
hefur prófessor Sigurður Nordal formála sinn
fyrir ritsafni frú Theodoru, sem hann sá um til
útgáfu i einni bók árið 1960. Ekki er rúm til þess
hér að rekja sögu skáldkonunnar frekar. En í
þessum þætti eru vísur eftir Theodoru Thorodd-
sen.
Gleðisjóinn geyst eg fer,
þó gutli sorg und kili.
Vonina læt eg ljúga að mér
og lifl á henni 1 bUi.
Gegnum brim og báru her
beiti eg lffsins nökkva,
og ef eg hleypi á huUð sker,
hlægir mig að stökkva.
Geiglaus lifs um grýttan sttg
gleypti eg skvettu marga,
en þegar svefninn svlkur mig,
sé eg fátt til bjarga.
Eins og sjá má á þessum visum er skáldkon-
unni tamt að leita til hafsins um líkingar, er hún
ræðir um æviför sína oe annarra.
Margsi er að minnast:
Augun þreyttu eftir þér
útí stara bláinn.
AUt er horfið yndi mér,
öU er vonin dáin.
Þessi vísa er víst fremur um bróður dauðans
en sjálfan hann:
Hafðu, kerUng, hljótt um þig:
Hann er á næstu grösum,
sem feUir þig og freisar mig
með frið og hvild 1 vösum.
Ekki vistaðist Theodora sjálf á elliheimili, en
Vísur og
vísnaspjall
Jön Gunnar Jönsson
-v 1 1 ■
eftirfarandi vísa mun vera ort á hennar góðu
árum. Hún heimsótti kunningja á sUkum stað:
Héðan vU ég flýta för,
mér finnst svo smátt um gaman,
þar dauði, eUi og afturför
eru að dansa saman.
Og:
Gömul, hrukkótt, kreppt og köld
kenni eg þrá i hjarta:
að vera ung og eiga völd
á eldinum heita og bjarta.
Frú Theodora hafði jafnan yndi af fallegum
og sérkennilegum steinum. Hún safnaði sjálf og
vinir hennar gáfu henni sUkar gersemar:
Glugginn minn er geislahýr,
geymir margt í leyni.
1 urðinni minni álfur býr
inni I hverjum steini.
Þegar angur að mér fer
og eymsl í fornu meini,
léttir þraut að leika sér
við litinn álf i steini.
Mikill ljómi leikur um minningu sýslumanns-
hjónanna á Ísafirði, Skúla og Theodoru, og
þeirra stormasama hamingjulíf. Um þær slóðir
orti hún:
Mörg eru faUn fetin min
fram með þessum víði.
Blessuð æ sé byggðin þin,
blessaður Tanginn friði.
Ein vísa af mörgum um ísafjörð:
Þú átt bæði skart og skjól,
þó skyggi haust og vetur,
og annars staðar islensk sól
aldrei skein mér betur.
Theodora var fædd 1863 og dó á 91. aldurs-
ári, 1954. Mann sinn hafði hún misst á miðjum
aldri. Þau eignuðust 5 dætur og 8 syni. Eitt
barna þeirra dó I æsku og tveir synirnir á fyrstu
manndómsárunum. Hin börnin lifðu móður
sína. Hún orti:
Helja sló og hauður fól
haukana góðu mina.
Daglangt aldrei siðan sól
sá eg I heiði skina.
En Theodora lét aldrei hugfallast. Hún átti
fagrar minningar, mannvænleg börn og margt
til aðgleðjast við langa ævi.
Að sér draga dimman fer
dapurt laga-veldi,
Ijós og fagur liðinn er
lengstur dagur að kveldi.
Þegar lánsins þorna mið
og þrjóta vina tryggðir,
á eg veröld utan við
allar mannabyggðir.
Ég mun reyna að þegja um það,
þó að meinin svfði,
og þegar seinast syrtir að,
eg sofiia og neinu ei kvfði.
J.G.J.-S. 41046.
önnumst hvers konar matvœlareykingar
fyrir
verslanir, mötuneyti og einstaklinga.
REYKIÐJAN HF.
SMIDJUVEGI 36 •S' 7 63 40
mi/w/ff
Ifijálsf, áhað dagblað
ÚTBOÐ
Grindavíkurbær óskar hér með eftir tilboðum í
lagningu holræsa í Ægisgötu og Túngötu að lengd ca
500 m.
Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofunni Hnit hf.,
Síðumúla 34, R. gegn kr. 20.000,- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til bæjarstjóra Grindavíkur, Víkur-
braut 42 fyrir kl. 18.00 mánudaginn 22. maí og verða
þau þá opnuð þar að viðstöddum bjóðendum.
Félag Loftieiðaflugmanna
FUIMDARBOÐ
Áríðandi félagsfundur mánudaginn 15. maí kl. 20.30
stundvíslega í Leifsbúð, Hótel Loftleiðum.
Fundarefni: Samningar og heimild til verkfallsboðunar.
Önnur mál.
Stjómin.