Dagblaðið - 12.05.1978, Blaðsíða 18
18
I
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1978.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttii
Öster heldur
strikinuogTeitur
skoraði
Heil umferö var leikin i AUsvenskan 1 gærkvöld.
Öster heldur sinu striki i keppninni. Vann góðan sigur
á heimaveUi gegn Stokkhólmsliöinu Hammerby, 3—
0. Teitur Þóröarson, miðherji Öster, skoraði annað
mark liðsins um miðjan siðari hálfleik. Fékk fyrirgjóf
utan af kanti og spyrnti viðstöðulaust af 4—5 metra
færi á markið. Knötturinn hafnaði neðst í markhorn-
inu en litlu munaði að einum varnarmanni Hammarby
tækist að bjarga á markUnunni. Tommy Eveson
skoraði fyrsta mark öster um miðjan fyrri hálf-
leikinn. Sfðan skoraði Teitur og síðasta markið
skoraði Pio Bild úr vftaspyrnu.
Eftir leikina í gær er Teitur í öðru sæti mark-
hæstu leikmanna f Allsvenskan.. Hann hefur skorað
fimm mörk en efstur er Per Olof Olhsson,
Norrköping, með átta mörk. Margír hafa skorað
fjögur mörk. Úrslit f leikjunum f gær urðu þessi:
Öster-Hammarby 3—0
Norrköping-Vesteras 5—0
Gautaborg-Elfsborg 1—0
Malmö FF-Landskrona 2—0
Djurgaarden-AIK 0—0
Halmstad-Örebrö 2—0
Atvidaberg-Kalmar 2—3
Nú verður gert hlé á keppninni framyfir heims-
meistarakeppnina — en hins vegar mun sérstakt
keppnismót verða fyrir liðin f AUsvenskan til að leik-
menn haldi sér f æfingu. öster leikur t.d. gegn
Malmö FF á laugardag í Málmey. Staðan f
Allsvcnskan er nú þannig:
Malmö FF
öster
Norrköping
Gautaborg
Halmstad
Kalmar
Landskrona
Hammurby
Djurgaarden
Elfsborg
Örebrö
AIK
Vásbrás
Atvidaberg
1
3
2
0
2
2
2
1
1
3
1 1
12- 2 13
15-6 11
13- 5 10
8- 4 10
9- 5 10
10-7 10
6—8 6
5-6
8— 9
10-13
9— 16
4— 9
5- 16
8-16
Ólafur ekki með ÍBV
gegn Víking
Ólafur Sigurvinsson, landsliðsbakvörðurinn kunni f
1. deildarliði Vestmannaeyja i knattspyrnunni, mun
ekki leika tvo fyrstu leiki ÍBV á íslandsmótinu.
Hann er I sumarfrfi á Spáni. Fyrsti leikur ÍBV verður
á laugardag gegn Víking i Vestmannaeyjum. Hefst kl.
þrjú — og þá verður einnig annar leikur f 1. deild.
Breiðahlik leikur viö KA frá Akureyri á grasvellinum i
Kópavogi.
Eins og áður segir mun Ólafur Sigurvinsson ekki
leika tvo fyrstu leiki ÍBV í deildinni. Í annarri umferð
eiga Vestmannaeyingar að leika gegn ÍBK í Keflavfk
20. mai. -FÓV
Úlfarnirkaupa
Wolverhampton Wanderers, scm tókst með
ágætum að forðast fall niöur f 2. dcild í ensku knatt-
spyrnunni, keypti í gær bakvörðinn Peter Daniel frá
Hull City fyrir 150 þúsund sterlingspund. Þessi efni-
legi lcikmaður hefur leikið sjö leiki f landsliði Eng-
lands — leikmenn 21 árs og yngri. Skiljanlega hafði
hann Iftinn áhuga á að leika með Hull i 3ju deild.
Framkvæmdastjóri Úlfanna, Sammy Chung, hefur
á tæpu ári eytt 400 þúsund sterlingspundum á nýja
leikmenn með þessum kaupum.
Frakkarvinna
ItalíuáHM
— spáirtölvaíBuenos Aires
Argentina, gestgjafar f sambandi við HM i knatt-
spyrnu, sem hefst f byrjun næsta mánaðar, mun sigra
úngverjaland 2-0 i 1. umferð í 1. riðli. Það var spá
tölvu f sjónvarpsþætti i Buenos Aires i gær. Einnig að
Frakkland mundi sigra Ítaliu 1-0 i sama riðli — og
Mexikó mundi sigra Túnis 3-0 í 2. riðli.
Siglingasamband íslands
hyggur á þátttöku í EM
— Fyrsta siglingakeppni sumarsins á Arnarvogi á laugardag
„Við erum nú að reyna að glæða
áhugann á siglingum og endurskipu-
leggja starfsemi Siglingasambands
fslands eins og hægt er eftir nokkra lægð
að undanförnu,” sagði Brynjar M.
Valdimarsson, formaður Siglingasam-
bandsins, þegar blaðið ræddi við hann f
gær. Skráðir félagar eldri en 16 ára eru
nú á þriðja hundrað — en þegar aUir eru
taldir, sem siglingar stunda á vegum
æskulýðs- og tómstundaráða er fjöldinn
yfir eitt þúsund.
„Það er ýmislegt i bigerð hjá okkur og
fyrsta siglingakeppni sumarsins hjá
siglingamönnum verður á laugardag, 13.
maí. Þá verður keppt á Arnarvogi —
fyrir framan aðstöðu þá, sem siglinga-
klúbbarnir Vogur og Þytur hafa,” sagði (
Brynjar ennfremur. Þetta verður opin
keppni og hefst kl. 14.30. Mæting kl.
14.00.
Önnur mót, sem minnast má á, eru 3.
júní á vegum Vogsog Þyts. Kjölbátar. Á
sjómannadaginn, sunnudaginn 4. júni,
verður opið mót á vegum siglingaklúbbs-
ins Brokey i Reykjavík og siglt í Naut-
hólsvík. 17. júni verður kænukeppni
Ýmis i Kópavogi, 24,—25. júní kjölbáta-
keppni Brokeyjarog 14.—15. júlí kænu-
keppni. Þá verða ýms mót í ágúst á
vegum mótanefndar Siglingasambands-
ins og þá yfirleitt siglt á Fossvogi. Loka-
mótið verður 2.—3. september. Nánari
upplýsingar um þessi mót veita Brynjar
(simi 43754), Gísli Arni Eggertsson
(84502), og Þórður Helgason (51944) — '
en auk þess er einnig hægt að fá upplýs-
ingar um þau hjá siglingaklúbbunum.
Siglingasambandið hyggur á þátttöku
í erlendum mótum. Þar má nefna
Evrópumót í Frakklandi 9.—15. ágúst
og hyggst sambandið styrkja þá áhöfn,
sem bezt stendur sig á mótum og æfing-|
um í sumar, í Fireball keppnina þar.
Norðurlandamót verður í Helsinki 14 —
16. júlí. Fireball. í Farum í Danmörku
11.—13. ágúst. Flipper, og i Vesterás í
Svíþjóð 10.—13. ágúst. Optimist.
Ekki er enn ákveðið hvort farið
verður út með báta. Hugsanlegt er að
fara með siglingabúnað út og leigja
skrokka erlendis.
Nægur snjór í Bláfjöllum
og þrjár lyftur í gangi!
. „Það verða þrjár skíðalyftur f gangi á
vegum Ármanns f Bláfjöllum um hvfta-
sunnuna frá laugardegi og fram á mánu-
jdag. Nægur snjór f BláfjöUum og veður-
lútlit allgott,” sagði Sigurður Haukur
Sigurðsson f viðtali við DB f morgun.
Nokkrir Ármenningar fóru upp i Blá-
fjöll í gær og þar var góður snjór undir
þremur lyftum. Ekkert til fyrirstöðu aði
hægt verði að renna sér þar um tjv!ta-|
Ólafur H.
Jónsson
Handboltapunktar
frá V-Þýzkalandi
Minden 8. maf 1978.
Grosswallstadt varð f fyrsta sinn
vestur-þýzkur meistari f handknattleik
með sigri sfnum á Gummersbach f
síðustu umferðinni f Bundesligunni.
Hvert sæti og stæði var skipað f Gross-
wallstadt (2800 áhorfendur) þegar liðið
hlaut hinn eftirsótta titil. Kannski var
kominn tfmi til. Tvívegis hefur
Grosswallstadt orðið i öðru sæti — og
þá var það Dankersen sem tók meistara-
titilinn af liðinu, fyrst 1971 — sfðan
1977.
Gummersbach nægði jafntefli þar
sem Grosswallstadt hafði tapað I
Minden 3. maí fyrir Dankersen. Loka-
tölur urðu 15— 13 heimaliðinu í vil.
Daginn eftir lék Gummersbach i
úrslitum Evrópubikarsins í Dortmund
og varð Evrópumeistari í fimmta sinn,
lék gegn júgóslavneska liðinu Nis, sem
mátti lúta í lægra haldi í einum lélegasta
úrslitaleik er sézt hefur hér. I 50 mín
urðu Júgóslavarnir að leika einum færri
— eða með fimm útileikmönnum — þar
sem einum leikmanni liðsins var vikið af
velli fyrir fullt og allt. Dómararnir voru
aðöllu leyti meðGummersbach.
Að sjálfsögðu sat þreyta i leikmönn-
um Gummersbach tveimur dögum siðar
i Grosswallstadt. Leikurinn var jafn
allan timann og mikil barátta hjá
|báðum liðum. En Grosswallstadt stóð
uppi I lokin sem sigurvegari — og má
|segja að liðið hafi verið vel að sigrinum
!komið. Það hefur leikið allra liða jafnast
í vetur. Bezti maður þess — eins og svo
oft áður — var markvörðurinn Hoff-
mann. Ennfremur var Meisinger
sterkur. Hjá GummersbachvoruHeiner
Brand og Deckarm beztir. Mörkin skipt-
ust þannig: Grosswallstadt: Meisinger
5/3, Klúhspiess 3, Lang 2, Schulz,
Friesler eitt hvor. Gummersbach:
Deckarm 5, Fey 2, Nolde 2, Westebbe,
Wunderlich.
| Aðrir leikir voru meira formsatriði er
hitt. Helzt var það leikur Dietzenbach
og Milbertshofen, þar sem eitthvað var
undir. Með sigri átti Dietzenbach mögu-
leika á aukaleik við Kiel — það er ef Kiel
tapaði í Nettelstedt sem Kielar-liðið og
gerði, 14—21. En Dietzenbach tókst
ekki að ná nema jafntefli og liðin sem
falla niður í 2. deild eru því Neuhausen,
Hannover, Derschlag og Dietzenbach.
Lokastaðan varð þannig:
Grosswallst. 26 21 1 4 471-382 43
Gummersb. 26 20 2 4 490-399 42
Dankersen 26 18 2 6 448-401 38
Hofweier 26 13 4 9 472-433 30
iHuttenb. 26 13 1 12 411-410 27
Milbertsh. 26 12 2 12 431-441 26
Nettelstedt 26 11 3 12 464-435 25
Göppingen 26 II 2 13 431-432 24
Rheinh. 26 II 2 13 474-494 24
Kiel 26 10 2 14 420-448 22
. Derschlag 26 10 1 15 455-471 21
Dietzenb. 26 9 3 14 418-450 21
,Hannover 26 6 1 19 372-457 13
iNeuhausen 26 3 2 21 392-506 8
Helztu punktar i Bundeslígunni á leik-
tímabilinu:
• Meistari varð Grosswallstadt.
jHannover og Neuhausen féllu niður í 2.
deild i þriðja sinn, Derschlag og Dietzen-
jbach i annaðsinn.
|» í 182 leikjum unnust heimasigrar í
1114, útisigrar I 41 og 27 leikjum lauk
!með jafntefli. I allt voru skorúð 6155
mörk i þessum leikjum.
[• Flest mörk voru skoruð í leik Gross-
Iwallstadt-Rheinhausen eða 54(32—22)
en fæst i leik Hannover-Dankersen eða
17(9-8).
j« Stærstu sigrar á leiktímabilinu:
Húttenberg-Hannover 21—9, Nettel-
stedt-Hannover 22—10 og Hofwier-
Húttenberg 24—12. Stærstu útisigram-
ir: Dietzenbach-Hofweier 13—23 og
jDietzenbach-Gummersbach 14—24.
]• í þremur leikjum skoraði lið yfir 30
mörk. Grosswallstadt-Rheinhausen
32—22, Gummersbach-Rheinhausen
sunnuna — og Armenningar munu gera
allt klárt við þessar þrjár lyftur. Hins
vegar eru borgarly fturnar hættar.
Axel
Axelsson
30—21 og Hofweier-Rheinhausen 30—
20.
!• Nettelstedt skoraði 464 mörk.
Lúbking 107/52, Möller 102/24, Willisch
57/1, Boczkowski 41, Demirovic 33/5
voru markahæstir.
|* Dankersen skoraði 448 mörk. Waltke
i99/26, Axel 95/38, Ólafur H. 60, Grund
|47, Kramer 40 og Busch 40/8 voru
markahæstir.
|« Þrjátiu léikir unnust með eins marks
jmun — þar af vann Dankersen sjö leiki
jmeð eins marks munl! Tapaði hins vegar
þremur leikjum með eins marks mun.
]Grosswallstadt vann þrjá leiki með eins
marksmun.
|» Áhorfendur voru flestir í Kiel eða
T7.900 á 13 leikjum. Meðaltal 5992 á
jleik! Brúttótekjur um 500.000 mörk.
|. Áhorfendur hjá Göppingen voru
.36.516 eða 2808 að meðaltali, Hofweier
26000/2000, Dankersen 24197/1861 og
Grosswallstadt 24125/1855. Minnst
laðsókn var hjá Dietzenbach
14497/1115, og Derschlag, 8444/649.
|» Markahæstu leikmenn í Bundeslíg-
unni urðu: Lavmic (Derschlag) 173,
Frank (Milbertshofen) 143, Ehret
(Hofweier) og Klúhspiess (Grosswall-
stadt) 127, Kemmler (Neuhausen) 120.
j» Iþróttalega telja menn að það hafi
verið rétt að hafa vestur-þýzku deildina i
einni óskiptri deild, ekki tveimur, þ.e.
norður- og suðurdeild, eins og var hér
fyrir ári. Peningalega hefur það ekki
|heppnazt. Samkvæmt nýjustu upp-
lýsingum sóttu 334.000 áhorfendur þá
1182 leiki sem háðir voru i Bundeslíg-
unni, eða 1835 að meðaltali. Áhorf-
endur hefðu þurft að vera 620.000 til að
jfylla húsin. Leiktímabilið áður,
1976/1977, voru áhorfendur að meðal-
tali 1591, á leik. Um 15% aukningu er
því að ræða á þessu timabili. Leiktíma-
bilið 1971/1972 var meðaltal áhorfenda
12114 á leik og 1974/1975 1946 á leik.
Brúttótekjur af leikjum í Bundeslígunni,
um 3.500.000 þýzk mörk nægja ekki
fyrir hinum mikla kostnaði. En látum
jþetta nægja i bili.
Næstu helgar, fram til 17. júni, verða-
bikarleikir hér i Þýzkalandi leiknir
þg þykir mönnum nóg um þetta langa
keppnistimabil. Hætt er við að áhugi
leikmanna og áhorfenda minnki mikið.
Undirbúningur fyrir næsta leiktímabil
hefstsvo I. ágúst.
Þýzkalandsmcistarar Grosswallstadt 1978: Efri röð frá vinstri: Konz, þjálfari, Lang, Schulz, Klenk, Sinsel, Gnau, Diimig og
aðalþjálfarinn Zöll. Fremri röð: Meisinger, Fischer, lloffmann, Seufert, Freislerog Klúhspiess.
Með kveðju.
Ólafur H. Jónsson,
Axel Axelsson.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1978.
23
Sigurvegarar Menntaskólans á Akur-
eyri i karla- og kvennaflokki á skóla-
meistaramóti Blaksambands íslands.
Stúlkurnar eru — efri röð frá vinstri —
Sólveig Anna Jónsdóttir, Æsa Hrólfs-
dóttir, Anna Sæmundsdóttir og Auður
Aðalsteinsdóttir. Fremri röð Ragna
Rósa Ragnarsdóttir, Margrét Jónsdótt-
ir, fyrirliði, og Erna Þórarinsdóttir. Á
myndina vantar Katrinu Frímannsdótt-
ur, Ásdisi Elísu Aðalsteinsdóttur og
þjálfarann Björgólf Jóhannsson.
Strákarnir eru — efiri röð frá vinstri
— Gunnar Gtslason, Unnar Þ. Lárus-
son, Björn Lúðvfksson, Eysteinn Ara-
son, Stefán Magnússon og Magnús H.
Ólafsson, þjálfari. Fremri röð Baldur
Pétursson, Sigmundur Ófeigsson, Frið-
jón Bjarnason, fyrirliði, Helgi Már Hall-
dórsson, Hólmsteinn Björnsson og Árni
Jónsson.
Rikki og þjálfi eru hindraðir að komast til barónsins.
i Segðu honum að ef ekki
Iverður farið eftir reglum
hættir lið mitt.
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
MENNTSKÆLINGAR A AKUR-
EYRIBEZTIR í BLAKINU
Skólameistaramóti Blaksambands ts-
lands 1978 er nú lokið. Úrslitakeppnin
fór fram í nýja iþróttahúsinu að Laugum,
S-Þing. Þátttaka í mótinu fer vaxandi
með ári hverju, og tóku nú 25 skólar þátt
1 mótinu með samtals 43 keppnislið.
USAog
V-Þýzkaland
vörðust falli
Bandaríkin og Vestur-Þýzkalandj
björguðu sér frá falli niður í B-riðil
1 heimsmeistarakeppnlnni 1 ishokkey i|
gær. USA sigraði þá Finnland 4—3 i
Prag að viðstöddum 6300 áhorfendum.
Vestur-Þýzkaland og Austur-Þýzkaland
gerðu jafhtefli 0—0!! — Það verða því
annaðhvort Finnland eða Austur-Þýzka-
land, sem falla niður.
Keppt er i fjórum flokkum, þ.e.
grunnskólaflokki pilta og stúlkna og
framhaldsskólaflokki karla og kvenna.
Sigurvegarar í hverjum flokki fá auk
verðlaunapeninga að varðveita farand-
grip. Þessir farandgripir eru verðlauna-
skildir BLÍ, hinir veglegustu gripir, sem
verða í umferð til 1985. í framhalds-
skólaflokki karla og kvenna varði
Menntaskólinn á Akureyri titla sína. í
karlaflokki veitti íþróttakennaraskóli
íslands þeim harða keppni, en Mennta-
skólinn við Hamrahlíð hlaut þriðja sæti.
í kvennaflokki veitti aftur á móti
Gagnfræðaskóli Húsavikur þeim harða
keppni. Þar hlaut Menntaskólinn í
Kópavogi þriðja sætið.
1 grunnskólaflokki pilta náði Héraðs-
skólinn að Laugum meistaratitlinum frá
Húsavík. Víghólaskóli í Kópavogi varð í
öðru sæti og Flúðaskóli I Árnessýslu í
þriðja sæti.
í grunnskólaflokki stúlkna hélt Gagn-
fræðaskóli Húsavíkur meistaratitli sin-
um. Stúlkurnar frá Húsavík unnu með
glæsibrag þriðja árið í röð. í öðru sæti
varð Víghólaskóli í Kópavogi og i þriðja
sæti Hagaskóli i Reykjavík.
Frakkland
vanníran
Frakkland sigraði íran 2—1 1 lands-
le<k I knattspyrnu 1 Toulouse I gær. Bæði
jessi lönd leika á HM 1 Argcntínu.
Mikill viðbúnaður lögreglu var i sam-
bandi við leikinn vegna mótmæla-
aðgerða, sem beindust að ríkisstjórn
írans. 20 handteknir fyrir leikinn.
Frakkar — að viðstöddum 35 þúsund
áhorfendum — áttu í óvæntum erfiðleik-
um með iranska landsliðið. Gemmrich
skoraði á 14. min. en á fyrstu mín. siðari
hálfleiks tókst Eowshan að jafna í 1—1.
Six skoraði sigurmark Frakka á 69,min.
Stórhugur hjá
FRÍ-mönnum!
— Handbók Frjálsíþróttasambands
íslands komin út Ýmis merk mót í
sumar og hápunkturinn EM í Prag
„Það verður mikið um að vera á sviði
frjálsra iþrótta í sumar og hápunkturinn
verður Evrópumeistaramótið i Prag
dagana 29. ágúst til 3. september. Við
gerum okkur vonir um, að nokkrir
Islendingár keppi á EM — nái þeim
ströngu skilyrðum , sem þar eru sett
fyrir þátttöku, sagði örn Eiðsson, for-
maður Frjálsíþróttasambands tslands á
blaðamannafundi, sem FRl efhdi til 1
gær. Þar ræddi örn ásamt þeim Sigurði
Björnssyni, varaformanni FRÍ og Sveini
Sigmundssyni, fundarritara FRl um
helztu mót i sumar.
Jafnframt var Handbók FRl kynnt
blaðamönnum. Sú bók er öllum vel-
unnurum frjálsra íþrótta þörf. Þar getið
m.a. allra helztu móta sumarsins og
islandsmeta i öllum aldursflokkum auk
ýmislegs annars fróðleiks. Bókin verður
til sölu á skrifstofum FRl, ÍSl og UMFÍ
og auk þess I Bókaverzlun tsafoldar i
Austurstræti. Kostar lOOOkrónur.
Frjálsiþróttamót sumarsins eru að
hefjast. Hið fyrsta — Burknamót FH,
kastmót — verður á Kaplakrikavelli á
laugardag. Fyrsta meiri háttar mótið er
Vormót ÍR 25. maí og EÓP-mót KR-
inga verður miðvikudaginn 31. maí.
Af helztu mótum má nefna, að Meist-
aramót íslands hefst með tugþrautar-
keppni 3. júní — en aðalhluti mótsins
verður 15.-17. júlí. Kastkeppni við Dani
Stigin byrjuð
að falla
KR-ingum
í skaut
Fyrsti leikur islandsmótsins i knatt-
spyrnu var háður á Melavellinum i gær-
kvöld. Þá léku KR og Fylkir i 2. deild.
KR-ingar sigruðu með 2-0 og eru því
þegar farnir að safna stigum í 2. deild-
inni. Þau verða áreiðanlega mörg áður
en yfir lýkur og ekki að efa, að þetta
gamalfræga féiag kemst aftur i 1. deild-
ina.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálf-
leiknum á Melavellinum í gær en þó
fengu KR-ingar til þess gullið tækifæri.
Dæmd var vítaspyma á Fylki úr Árbæn-
um. Ottó Guðmundsson, fyrirliði KR,
tók spyrnuna en spyrnti knettinum i
stöng Fylkismarksins.
Síðari hálfleikurinn var betur leikinn.
Þó án þess að leikurinn kæmist einhvern
tímann í gæðaflokk. Til þess gefur Mela-
völlurinn heldur varla tækifæri. KR-
ingar léku betur og uppskeran var tvö
mörk. Fyrst skoraði Sverrir Herbertsson
á 55. mín. eftir fyrirgjöf Stefáns
Sigurðssonar. Sverrir varð því fyrstur til
að skora mark á íslandsmótinu 1978.
Stefán skoraði síðara mark KR og sigur
KR-inga var vel verðskuldaður.
verður I Haderslev í Danmörku 24. og
(25. júní, unglingakeppni Norðurlanda-
mótsins í fjölþrautum hefst á Laug-
ardalsvelli 8. júlí. Norðurlandabikar-
keppni kvenna verður I Lyngby i Dan-
ímörku og hefst 22. júni. Kalott-
keppnin verður I Uema I Sviþjóð 29.-30.
júli og Reykjavíkurleikamir á Laugar-
dalsvelli 9.-10. ágúst. Ýmsir kunnir
kappar munu keppa þar. Til dæmis er
von á að þeir A1 Feurbach, Bandarikj-
unum, og Mac Wilkins, heimsmethafi í
kringlukasti frá Bandarikjunum, keppi
þar.
En helzta mót sumarsins verður
Evrópumeistaramótið í Prag. Óskar
Jakobsson, kringlukastari úr ÍR hefur
þegar náð þeim lágmarksárangri, sem
settur er fyrir mótið — og svo gæti farið,
að við ættum tvo kringlukastara þar —
einnig Erlend Valdimarsson, ÍR. Þá
verða KR-ingamir Hreinn Halldórsson
og Vilhjálmur Vilmundarson ekki í
erfiðleikum með að ná lágmarks-
árangrinum — og ýmsir fleiri hafa
jmöguleika. Til dæmis Lilja Guðmunds-
dóttir, IR, og Ingunn Einarsdóttir, ÍR,
— en Ingunn á við meiðsli að stríða. Var
komin i æfmgabúðir á ítaliu en hélt
heim til Islands vegna meiðslanna. Á
þessu stigi málsins er ekki vitað hvað
þau eru alvarleg. Ýmsir fleiri islenzkir
frjálsiþróttamenn hafa möguleika á að
ná lágmarksafrekunum.
ROCKWOOL
Sparnaóur á komandi árum.
HITAKOSTNAÐINN
Einangrun gegn
hita, eldi, kulda og
hljóði,
auðvelt í upp-
setningu
Algengustu stærðir
ávallt fyrirliggjandi.
Lækjargötu 34, HafnarRrAi
tfmi 50975