Dagblaðið - 12.05.1978, Side 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1978.
27
GARÐYRKJA
Jurtimarí garðinum okkar
eru komnar víða að
GARÐYRKJA
Hermann Lundolm
ieiðbeinir
um garðyrkju
UÚKIÐ VIÐ LÓÐA-
HREINSUN SEM FYRST
Jurtirnar sem skreyta garða okkar og
þær sem við ræktum okkur til matar eru
komnar víðsvegar að úr heiminum.
Jurtir frá Kína, Perú, Persíu og Afríku
dafna nú í bezta bróðerni innan um inn-
lendan gróður. Fingurbjörg og beitilyng,
alparósir og glitfifill.
Vaxtarstaðirnir eru eins mismunandi
og þjóðerni plantnanna, grýttir fjalls-
tindar, frjósöm engi, kalkauðugar
hlíðar, þurrar heiðar, skuggsæl skóg-
lendi og margir aðrir staðir. Vegna þessa
mismunandi uppruna hafa margar jurtir
orðið að þróa með sér sérstök einkenni
til þess að þola hin mismunandi skilyrði,
meiri eða minni hita, meiri eða minni
vætu, meira eða minna kalk o.s.frv.
Sjáið t.d. kaktusa og vatnaliljur, sóleyjar
og fífla sem breiða úr sér i sólarbirtunni
og svo bergfléttur og burkna, sem skríða
í skugganum - þetta ber allt vott um
dásamlega aðlögunarhæfileika. Nýlega
var sýnd í sjónvarpinu mynd frá Sval-
barða. Sýnd var jurt sem haföi aðlagað
sig svo að staðháttum þar að hún hætti
að þroskast á miðju blómgunarskeiðinu,
því sumarið þar er ekki nógu langt fyrir
hana og tekur svo upp þráðinn þar sem
frá var horfið næsta ár á eftir.
Mismunandi
kröfur
tegundanna
Sá sem vill njóta góðs árangurs af
garðræktarstarfi sínu verður að vita
svolítið um kröfur hinna mismunandi
tegunda til lifsviðurværis. T.d má ekki
kvelja alparósir í brennandi sól eða
fullsóp í blautum lægðum. Þar að auki
þarf hinn sami að kunna skil á gróður-
setningu og fjölgun einstakra tegunda.
Heilbrigði og næringu fær jurtin
aðallega með hjálp tveggja liffæra,
rótanna og blaðann. Gegnum ræturnar
tekur jurtin næringu úr moldinni. Það
eru uppleysanleg sölt fyrir tilverknað
vatns. Rótin getur verið digur, stólparót,
sem vex beint niður eins og hjá lúpínu,
njóla og gulrót. Hún getur einnig verið
trefjarót, sem er marggreind, eins og t.d.
hjá sóley, rósum o.fl. Með þessum
rótum leitar jurtin eftir fæðu. Þaðeru þó
ekki hinar áberandi sveru rætur sem
sjúga í sig næringuna heldur örfin nær
ósýnileg rótarhár sem myndast nærri
rótarendanum. Því er það áriðandi að
ræturnar verði fyrir sem allra minnstu
hnjaski við umplöntun og skal ávallt
i taka þær upp með góðum moldarköggli.
Sé moldin of þurr er hún vanalega
annað hvort svo hörð að ræturnar vilja
slitna eða þá svo laus að hún hrynur af
þeim. Því er nauðsynlegt að vökva
plönturnar vel áður en þær eru teknar
upp.
Gegnum blöðin sem eru þétt setin
óteljandi örmjóum holum fer fram
miklu margbrotnari starfsemi. Jurtin
svitnar, losar sig við vatn. Hún andar,
tekur í sig lofttegundir, sem húnþarfn
ast og losar sig við aðrar og fyrir til-
verknað blaðgrænu vinnur jurtin
kolvetni, sem er aðalorkugjafi hennar.
Fimm aðalskilyrði:
Af þessu sjáum við að til þess að
tryggja jurtunum heilbrigðan vöxt þarf
að uppfylla fimm aðalskilyrði.
í fýrsta lagi: Eins og mannleg vera
þarfnast jurtir lofts. Þess vegna mega
þær ekki standa of þétt.
t öðru lagi: Jurtin þarfnast birtu, til
þess að jurtin geti drukkið í sig sólar-
orkuna. Ef óhreinindi eru á blöðunum
eða jurtin stendur i skugga af trjám, sem
vaxa yfir hana, dregur úr Ijósgeislunum.
Flestar jurtir þurfa birtu allan daginn
en margar hafa þó vanið sig á að þrifast i
meiri eða minni skugga. Það eru aðal-
lega jurtir með þykk, dökkgræn blöð.
Mjög fáar jurtir kæra sig um að vera i
miklum skugga. I flestum görðum er
eitthvert beðið i skugga og það getur
verið erfitt ’.iðureignar. Skuggi getur
verið mismunandi þéttur. Þar sem er
„hár” eða „blettóttur" skuggi má rækta
talsvert af runnum og fjölærum jurtum.
Eins i skáskugga sem stafar frá
byggingum, veggjum eða limgirðingum,
Þar sem er þéttur skuggi undir trjám
eða runnum má, ef rætur þeirra eru ekki
of ofarlega, rækta vorlauka sem
blómgast áður en trén laufgast. Eftir
blómgun hverfa visnir stönglarnir i
skugga trjánna.
t þríðja og fjóða lagi koma svo hiti og
vatn í mismunandi mæli eftir þvi hvort
,um er að ræða þurrlendis- eða votlendis-
jurtir, hitabelti- eða kuldabeltisjurtir að
uppruna.
Öndunarstarfsemin getur einnig orðið
fyrir skakkaföllum við of mikinn hita af
vindi eða of þurru lofti.
Allt getur þetta orsakað að upp úr
jurtinni gufar meiri vökvi en hún
getur tekið til sín með rótunum og þá
fellur hún eins og maður fellur I
hitabeltinu ef hann fær minni vökva en
hann lætur frá sér — líður af vökvatapi.
GARÐYRKJUÁHÖLD
SKÓFLUR ALLSKONAR
RISTUSPAÐAR
KANTSKERAR '
GARÐHRÍFUR
GREINAKLIPPUR
GRASKLIPPUR
HEYHRÍFUR
GIRDINGAVÍR, SLÉTTUR
GARÐKÖNNUR
HANDSIÁTTUVÉIAR
Ánanaustum V
Siml 28855
Vorið er nú væntanlega gengið I
garð fyrir alvöru eftir hretin í apríl.
Nú þarf að Ijúka við að hreinsa rusl úr
garðinum og heppilegast að koma þvi
á lóðahreinsun bæjarfélagsins.
Nokkuð er síðan bæjaryfirvöld tóku
að sér að fjarlægja rusl af lóðum
ibúunum að kostnaðarlausu, ef því er
komið fyrir á aðgengilegum stað.
Þetta hefur að vonum mælzt vel fyrir
því oft er miklum erfiðleikum bundið
að koma frá sér ýmsum úrgangi.
Gætið samt að því hvort ekki megi
nýta eitthvað sem til fellur við lóða-
hreinsunina i safnhauginn.
Ekki er vert að draga lengur að
gróðursetja trjáplöntur og runna.
Gróðursetningu á helzt að vera lokið
áður en laufblöðin fara að vaxa að
ráði. Rósum á að planta beint i garð-
inn en ekki reyna að forrækta þær
inni. Þá þola þær siður næðinginn
þegar þeim er plantað út. Þetta gildir
einnig um innfluttar blómplöntur.
Þeir sem ekki hafa komið þvi í verk
að kljúfa rabarbarahnausana og stór-
vaxnar fjölærar blómjurtir geta enn
gert það. Þó skal bent á að jurtum sem
lifna mjög snemma, eins og t.d. risasól,
er betra að skipta á haustin.
Ennþá er tími til að stinga græðl-
inga af trjá- og runnagróðri. Mörgum
fjölærum jurtum má einnig fjölga með
græðlingum sem þá eru skornir út úr
hnausnum, helzt þannig að einhverjar
smárætur fylgi. Þá þarf að raka sinu
og mosa upp úr grasblettinum og bera
á.
Hraustar plöntur með gott
rótakerfi eru beztar
Áður en hafizt er handa um gróður-
setningu trjáa og runna verður að
ganga úr skugga um að jarðvegurinn
sé nægilega djúpur og frjór. Sé hann
það ekki verður að bæta úr því.
Moldarlagið getur verið þunnt frá
náttúrunnar hendi eða þvi hefur verið
spillt með aðfluttu efni, t.d. í sambandi
við húsbygginguna. Enn eitt atriði
skal hafa í huga en það er það sem
Danir kalla „traktose” eða traktorsýki.
Þungar vinnuvélar eru notaðar við
húsbyggingar nú á dögum, sem þjappa
moldinni saman. Þarf að losa um
moldina svo að loft og vatn fái aðgang
að henni, ekki. eingöngu vegna trjá-
gróðursins heldur einnig vegna blóma
og grasræktar.
Til þess að limgerði geti þrifizt þarf
moldarbeð sem er 60 cm djúpt og helzt
einn metri á breidd. Ef jarðvegurinn er
þannig að nauðsynlegt reynist að
skipta um, skal grafinn skurðúr með
áðurgreindu máli.
Gæta verður þess að botninn sé ekki
þétttroðinn áður en nýja moldin er
látin í og að eitthvert frárennsli sé,
þannig að vatn geti sigið úr. .
í botninn er gott að láta alls kyns
gróft efni er fyrir hendi er svo sem
grashnausa, afskurð af limgerði og
blómabeðum, nýslegið gras eða hey,
einnig húsdýraáburð eða skarna ef
hann er fáanlegur. Beðið skal vera ivið
hærra en jarðvegurinn umhverfis.
Þegar undirbúningi er lokið — og
hafið hugfast að lengi býr að fyrstu
gerð — er komið að því að velja plönt-
urnar í gerðið. Það er ekki aðalatriðið
að plönturnar séu sem stærstar heldur
að þær séu hraustar og með gott róta-
kerfi.
Vtiíl
41
GRÓDRARSTÖDIN
STJÖRNUGRÓF 18 SÍMI 84550
Býöur úrval garöplantna
og skrautrunna.
Opiö
virka daga: 9-12 og 13-22
laugardaga 9-12 og 13-19
sunnudaga 10-12 og 13-19
Sendum um allt land.
Sækiö sumariö til okkar og
flytjiö þaö meö ykkur heim.
Við óskum öllum g/eði/egs
sumarsf
Salaágarðr
p/öntum hefst
16. maí.
B/ómaker, sva/a-
kassar og garðáhö/d
í úrvali.
ALASKA
BREIÐHOLTI
Símar
Blómabúðin 76225
Garðplöntusala 76450.
Ath. nýtt simanúmer.
GINGE
garðsláttuvélar
í miklu úrvali
iddfrá 15"—21"
MAURINN
ernýjungfrá
Ginge. Einföld,
traust og ódýr
þyrilsláttuvél.
MAURINN
er með 3,5 hestafla fjórgengisbensínmótor.
Sláttubreidd: 19"/48 sm.
Sláttuhæð (auðstillanleg): 3,5 og 7 sm.
Verð: Aðeins um 38 þúsund kr. með Aspera-
mótor.
Verð: Aðeins um 41 þúsund kr. með Briggs &
Strattonmótor.
SÖLUFÉLAG
GARÐYRKJUMANNA
Reykjanesbraut 6 — Reykjavík