Dagblaðið - 12.05.1978, Page 33
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12.MAI 1978.
Útvarp
37
Sjónvarp
I
Með aðalhlutverkin 1 myndinni í sjónvarpinu laugardagskvöldið 13. maí fara Walter Brennan, Fred Astaire og Edgar
Buchanan.
Sjónvarp
laugardaginn
fyrir hvítasunnu:
Gömlu kempurnar
afturáferð
FRED ASTAIRE
LEIKUR HÁLF-
GERDANRÓNA
Fred Astaire með 5 daga skegg og
fordrukkinn í ofanálag, það ætti að
vera þess virði að horfa á. Og það
geta menn gert laugardagskvöldið
fyrir hvítasunnu. Þetta býðst í
myndinni Gömlu kempurnar aftur á
ferð sem er framhald á myndinni
Gömlu kempurnar sem við sáum i
sjónvarpinu um daginn.
Riddaraliðarnir gömlu frétta að
fornvinúrþeirra og félagi (Fred) sé að
fara í hundana af of mikilli drykkju.
Þeir dusta því rykið af gömlu marg-
hleypunum og söðla gæðingana, sem
líka eru komnir til ára sinna, og þeysa
á vit ævintýranna í síðasta sinn þrátt
fyrir elli og lasleika. Ekki þarf að
segja að allt fer vel að lokum eftir að
kapparnir hafa lent í hinum mestu
ævintýrum.
Ásdmt Fred Astaire leika Walter
Brennan, Chill Wills og Edgar
Buchanan í þessari mynd eins og þeirri
sem sýnd var um daginn. Myndin er
gerð fyrir sjónvarp en með því sama
„vestra” sniði og gömlu „vestrarnir”.
DS
Sjónvarp á laugardaginn kl. 20.20:
Karlmennska og kvennadyggðir
Utvarpið á laugardaginnkl. 11.20:
Barnatfminn
HVAÐ VERÐUR
A BODSTÓLUM í
SUMAR?
Að morgni næstkomandi laugardags
kl. 11.20 mun Gunnvör Braga hafa um-
sjón með barnatímanum. 1 þeim þætti
mun hUn kynna krökkunum efni, sem
verður á boðstólum útvarpsins í sumar.
Sagði Gunnvör okkur að útvarpið
hefði fengið til liðs við sig fjóra stjórn-
endur, og mun hver þeirra hafa umsjón
með barnatimanum á laugardagsmorgn-
um kl. 11.20 einu sinni í mánuði. Er því
gert ráð fyrir að hver stjórnandi hafi um-
sjón með 6—7 þáttum yfir sumarið.
Sigrún Björnsdóttir leikkona mun
hafa umsjón með bamatima sem nefnd-
ur hefur verið Ég veit um bók. 1 þeim
þætti verður tekin fyrir ein bók og höf-
undur hennar. Eru það ýmist gamlar ís-
lenzkar eða þýddar bækur sem lesið
verður úr, eða bækur sem útvarpið
hefur látið þýða sérstaklega fyrir þátt-
inn.
Þá mun Valgerður Jónsdóttir sér-
kennari hafa umsjón með barnatíma er
nefnist Þetta erum við að gera. í þeim
þáttum verður fjallað um sumarvinnu
og tómstundastörf 11 —14 ára unglinga.
Verður þá farið með hljóðnemann á
ýmsa staði bæjarins. M.a. verður farið á
vinnustaði unglinga á þessum aldri og þá
staði í bænum sem bjóða þessum aldurs-
flokki upp á einhvers konar tómstunda-
störf.
Kristján Jónsson kennari mun hafa
umsjón með barnatimanum. Það er
sama hvar frómur flækist. Verður það
þáttur blandaður bæði gamni og alvöru.
1 honum verða leiðarlýsingar, staðalýs-
ingar, frásagnabrot, ýmsar nytsamlegar
upplýsingar og getraun verður í hverjum
þætti meðsmáverðlaunum.
í barntfmanum á laugardagsmorguninn
mun Gunnvör Braga kynna það sem
verður á boðstölum útvarpsins fyrir börn
og unglinga í sumar.
Sagði Gunnvör að ekki væri full-
gengið frá fjórða barnatímanum, en í
honum er gert ráð fyrir efni sem ætlað er
bæði foreldrum og börnum, og miðast
þeir jafnvel við það að samræður verði
milli foreldra og barna eftir þáttinn. En
Gunnvör mun væntanlega skýra nánar
frá þvi í þættinum á laugardagsmorgun-
inn.
- RK
Hinn eini sanni
karlmaður — hin
eina sanna kona
„Þetta er heimildarmynd i léttum dúr
um hvernig karlimynd og kvenímynd
kemur fram í fjölmiðlum,” sagði Bríet
Héðinsdóttir um myndina Karlmennska
og kvennadyggðir sem hún þýðir og les
texta með. Myndin sem er í litum er á
dagskrá sjónvarpsins annað kvöld eftir
fréttir.
„Fjallaö verður um hvernig þessar
ímyndir kynjanna koma fram í sjón-
varpi, kvikmyndum og öðrum fjölmiðl-
um. Er það mikið í sömu átt og við
höfum verið að tala um hér á landi
undanfarið þó þetta sé líklega nýstár-.
legra hjá Bretum. í myndinni er til
dæmis vitnað til Svíþjóðar sem mikils
fyrirmyndarlands sem sé langt á undan í
þróuninni.
Það segir talsverða sögu að meðal-
maður í Bretlandi horfir á sjónvarp í 8 ár
af lífi sinu og verður því fyrir mjög
miklum áhrifum, bæði hvað þessa hluti
varðar og aðra. Við erum sem betur fer
ekki orðin eins háð þessum miðli þar
sem ekki er samfelld dagskrá hér.
Myndin er mjög vel gerð og skemmti-
leg,” sagði Bríet og ætti því engan að
skemma að horfa á hana.
- DS
Brúður Súpermans hugsar angistarfull um framtíd sfna innan veggja heimilisins í stað þess að byggja brýr.
Sjónvarp
S)
Föstudagur
12. maf
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Fuglarnir okkar. (L). Litmynd um íslenska
fugla, gerö af Magnúsi Jóhannssyni. Síöast á
dagskrá 11. júní 1972.
21.05 Hljóðfærakynning. Skólahljómsveit
Kópavogs leikur. Handrit og umsjón Bjöm
Guðjónsson og Jón Múli Ámason.
21.45 Tölvurnar og viö (L). Bandarisk
fræðslumynd. Þýöandi og þulur Guöbjöm
Björgólfsson.
22.10 Bæjarslúöríð I Bervik. (Jagszenen aus
Niederbayem). Þýsk bíómynd frá árinu 1969.
Leikstjóri Peter Fleichman. Aöalhlutverk
Martin Sperr og Angela Winkler. Sagan gerist
i litlu þorpi í Bæjarlandi. Uppskeran stendur
sem hsest, þegar ungur maður, Abram, kemur
heim eftir dvöl i borginni. Brátt komast á kreik
sögur um lífemi hans þar, og honum verður
lifiö i borginni óbærilegt . Þýöandi Eirikur
Haraldsson.
23.35 Dagskrárlok.
Föstudagur
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynníngar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Middegissagan: „Saga af Bróöur Ylfing”
eftir Fríörík Á. Brekkan. Bolli Gústavsson les
(20).
15.00 Miðdegistónleikar. Tékkneska fil-
harmóníusveitin leikur
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. TUkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popp.
17.20 Tónlistartlmi barnanna. Egill Fríöleifsson
sér um tímann.
17.40 Tónleikar. TUkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. TUkynningar.
19.35 Söguþáttur. Umsjónarmenn: Broddi
Broddason og Gisli Ágúst Gunnlaugsson;
lokaþáttur.
20.00 Tónleikar Sinfóniuhljómsveitar íslands i
Háskólabiói kvöldið áöur; — fyrri hluti.
Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Einleikarí: Unnur
Sveinbjarnardóttir. a. Konsertkantata eftir
Guðmund Hafsteinsson (frumfiutningur) b.
Víólukonsert eftir Béla Bartók. — Jón Múli
Ámason kynnir tónleikana —
20.50 Hákarlaútgeró Eyfiróinga á sióarí hluta
19. aldar. Jón Þ. Þór sagnfræðingur fiytur
fyrsta eríndi sitt.
21.20 Barnalagaflokkur op. 65 eftir Serge
Prokofieff. Gyorgy Sandor leikur á píanó.
21.35 „Borgarmyndir”, Ijóö eftir Pjetur Lárus-
son. Höfundur les.
21.50 BaUaða og Polonesa eftir Henri Vieux-
temps. Arthur Grumiaux leikur á fiðlu og
Dinorah Varsi á píanó.
22.05 Kvöldsagan: Ævisaga Siguróar Ingjalds-
sonar frá Balaskaröl Indríði G. Þorsteinsson
les síðari hluta (8).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Áfangar. Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Gisli Rúnar Agnarsson.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur
13. maí
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15
og 10.10. Morgunlelkfimi kl. 7.15 og 8.50.
Fréttir kl. 7,30, 8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. TUkynn-
ingar kl. 9.00. Létt lög mUli atriða. Óskalög
sjúklinga kl. 9.15: Krístin Sveinbjömsdóttir
kynrir. Bamatimi kl. 11.20: Umsjón: Gunn-
vör Braga. Meðal annars verður kynnt efni
sem á boðstólum verður í sumar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. TUkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. TUkynningar. Tón-
leikar.
13.30 Vikan framundan. Hjalti Sveinsson
kynnir dagskrá útvarps og sjónvarps.
15.00 Miödegistónleikar. David Bartov og Inger
Wikström leika Svitu op. 10 fyrir fiðlu og
píanó eftir Christian Sinding. Robert Tear
syngur Ljóöasöngva op. 39 cftir Robert
Schumann; PhUip Ledger leikurmeð á pianó.
15.40 íslenzkt mái. Jón Aðalsteinn Jónsson
flytur þáttinn.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin. Vignir Sveinsson
kynnir.
17.00 Enskukennsla (On We Go) Leiðbeinandi:
Bjami Gunnarsson.
17.30 Baraalög.
18.00 Tónleikar. TUkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauld. TUkynningar.
19.35 Viö Heklurætur. Haraldur Runólfsson I
Hólum á Rangárvöllum rekur minningar
sinar. Annar þáttur. — Umsjón: Jón R.
Hjálmarsson.
20.05 Hljómskálamúsik. Guðmundur GUsson
kynnir.
20.40 Ljóóaþáttur. Umsjón: Jóhann Hjálmars-
son.
21.00 Vinsæl dæguríög á klassiska vlsu. Sin-
fóníuhljómsveit Lundúna og kór flytja.
21.40 Teboö. Um félagsleg áhrif tónlistar.
Sigmar B. Hauksson ræðir við Geir VUhjálms-
son sálfræðing og Ragnar Bjömsson organ-
leikara.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.