Dagblaðið - 12.05.1978, Page 34
38
DAGBLAÐIÐ.'FÖSTUDAGUR 12. MAl 1978.
Á morgun, laugardaginn 13. maí kl.
16.00
Gunnar Brusewitz frá Svíþjóð: „Skógur og
vatn”, fyrirlestur og kvikmyndasýning.
Verið velkomin
Veriðvelkomin NORRÆNA
HUSIÐ
BREIÐHOLT -■
KÓPAVOGUR
Látíð kunnáttumennina smyrja bílinn á smur-
stöðinni ykkar
SMURSTÖÐ ESSO
Stórahjalla 2, Kópavogi
Snjólfur Fanndal
SÍMI
43430
IVIOLD
Úrvals gróðurmold tíl sölu, fljót og góð þjón-
usta. Upplýsingar í síma 81710, 71193 og
32687.
Nýr umboðsmaður Dagblaðsins
á ísafirði frá 8. maí er
Erna Sigurðardóttir,
Tangagötu 24, sími 94—4220.
imBIABIB
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrval notadra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
Ford Fairlane Fiat 128
Mini Peugeot 204
M. Benz 220 Saab 96
Einnig höfum vid úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleöa.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höfiatúni 10 - Simi 11397
fl
Utvarp
Sjónvarp
RAGNHEIOUR
KRISTJÁNSDÓtTII
Sjónvarp á hvítasunnudag kl. 18.00: Stundin okkar
Síðasta Stundin
okkar á þessu vori
Á hvítasunnudag kl. 18.00 verður
siðasta Stundin okkar á þessu vori, því
að í sumar mun hið hefðbundna snið
Stundarinnar lagt niður, og sýndar
verða ýmsar skemmtilegar myndir og
smáþættir fyrir börn í þess stað. Má þvi
segja að það efni sem hefur verið á dag-
skrá á miðvikudögum í vetur og ætlaö
fyrir börn flytjist yfir á sunnudagana.
Meðal efnis á sunnudaginn verður þvi
seinni hluti leikþáttarins Afmælisgjöfm.
Soffía Jakobsdóttir fer með hlutverk
Lóu, sem fær dúkku í afmælisgjöf, en
dúkkuna leikur Þórunn Magnea
Magnúsdóttir. Leikstjóri er Arnhildur
Jónsdóttir.
Þá munu nokkrar hressar stelpur úr
Hvassaleitisskóla flytja stuttan gaman-
þátt. Saga úr myndaflokknum Striga-
skór eftir Sigrúnu Eldjárn verður einnig
á dagskrá. Einnig munu nemendur úr
Þroskaþjálfaskólanum flytja brúðuleik
um Láka jarðálf.
Spjallað verður við átta ára tvíbura,
I stundinni okkar á hvitasunnudag verður sýndur seinni hluti leikþáttarins Afmælis-
gjöfin. Það eru þær Soffia Jakobsdóttir og Þórunn Magnea Magnúsdóttir sem fara
með hlutverkin i þeim þætti.
sem munu einnig syngja fyrir okkur. Þá
verður fylgzt með því hvernig efni er
unnið í Stundina okkar, en það eru vafa-
laust margir sem hafa mikinn áhuga á
að kynna sér það. í því atriði verður
fylgzt með Ásdísi Magnúsdóttur, sem
æfir þrjá unga dansara og fylgzt með
upptöku dansanna. Einnig fáum við að
svipast um i sjónvarpinu og fylgjast með
vinnu starfsfólks í upptöku. Þegar undir-
búningur og upptaka hafa verið sýnd, fá-
um við að sjá dansinn, en hann er gerður
við lag við kvæðið Bráðum kemur betri
tið eftir Halldór Laxness. Með þessu at-
riði kveður Stundin okkar að sinni.
Stundin er i litum og umsjónarmaður
er Ásdís Emilsdóttir og kynnir ásamt
henni er Jóhanna Kristín Jónsdóttir.
Stjórnandi upptöku er Andrés Indriða-
son. RK
Astarþríhyrningurinn, læknirinn, fomleifafræðingurínn og konan.
Sjónvarp á hvítasunnudag kl. 22.15: Snertingin
Kvikmynd gerð af
Ingmar Bergman
„Myndin segir frá læknishjónum, og
þó aðallega konunni, sem búa i litlum
bæ i Svíþjóð,” sagði Óskar Ingimarsson
okkur m.a. um myndina The Touch eða
Snertinguna, sem er á dagskrá sjón-
varpsins á hvítasunnudag kl. 22.15.
Fornleifafræðingur nokkur kemur í
bæinn. Hann vinnur þar við gamla
kirkju sem verið er að endurgera.
Læknisfrúin og fornleifafræðingurinn
kynnast og verða hrifin hvort af öðru,
enda hefur læknisfrúin orðið fyrir von-
brigðum i hjónabandi sínu og er forn-
leifafræðingurinn henni kærkomin til-
breyting. Fjallar myndin síðan um sam-
skipti þeirra.
Óskar sagði þessa mynd hvorki
gamanmynd né dramatíska. Hún ergerð
árið 1971 af Ingmar Bergman og með
aðalhlutverkin fara Elliot Gould, sem
leikur fornleifafræðinginn, Bibi Anders-
son sem leikur læknisfrúna og við könn-
umst m.a. við úr sjónvarpsmyndaflokkn-
um Varnarræða vitfirrings, en þar lék
hún Siri von Essen, og Max von Sydow,
sem leikur lækninn.
Myndin, sem er í litum, er tæplega
tveggja klukkustunda löng og var hún
sýnd i kvikmyndahúsi hér fyrir stuttu.
- RK