Dagblaðið - 29.05.1978, Síða 10
Qí#cs^a^ai@^cífe§i3fe. aife-a^ cjfe 3fe- o^.q^ cfe, rj& ofe c»@ a^> cjfe qfe afe tafe d& cafe? ufe- o^.ci^ cjfe qfe o& aff^a^
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1978.
Dömu- og
herraklippin<
SILBlgittlIÍIiii'Ílil'n?!
Pantið
tíma
ísíma
34878
Hársnyrting Villa Þórs
Ármúia26
2. hæð
Sími34878.
GINGE
garðsláttuvélar
í miklu úrvali
fr6 1^”_7i”
MAURINN
er nýjung frá
Einföld.
traustogódýr
þyrilsláttuvél.
MAURINN
er með 3,5 hestafla fjórgengisbensínmótor.
Sláttubreidd: 19'748 sm.
Sláttuhæö (auðstillanleg); 3,5 og 7 sm.
Verð: Aðeins um 70 þúsund kr.
SÖLUFÉLAG
GARÐYRKJUMANNA
Reykjanesbraut 6 — Reykjavík
Klámbækur orðn•
ar stórútflutn-
/nfliir Bretlands
Bretland er nú orðið eitt helzta
framleiðslu- og útflutningsrikið á sviði
klámbókmennta að sögn lögregluyfir-
valda þar. Einnig mun innflutningur á
slíku til Bretlands hafa aukizt mjög á
síðustu árum. Það sem af er þessu
ári hafa klámblöð að söluvirði nærri
einum milljarði islenzkra króna verið
gerð upptæk í London einni. Telur lög-
reglan enga leið að gera sér grein fyrir
hve viðskiptavelta klámútgáfufyrir-
tækjanna sé mikil í heild sinni.
— Þetta eru vönduð blöð hvað
varðar pappír, prentun og ljósmyndun
og eru ljóslega framleidd í tæknilega
fullkomnum prentsmiðjum vítt og
breitt um landið, sagði talsmaður lög-
reglunnar.
Ungfrú Skillern, sem nýlega tók við
stjórn þeirrar deildar Scotland Yard
sem fylgist með klámritaútgáfu, telur
engan vafa á að flest þessi rit sýni
hreint klám samkvæmt túlkun brezkra
laga um þetta efni. Mun þá átt við að
kynferðislegu óeðli séu ekki gerð þar
nein skil. Aftur á móti sagði lögreglu-
foringinn að mörg hinna innfluttu
blaða helguðu sig alls kyns óeðli og
væru jafnvel hættuleg að mati lögregl-
unnar.
Mikið af því innflutta klámritaflóði
' sem hellist yfir þegna hennar hátignar
Bretadrottningar mun koma inn í
landið á fölskum forsendum, jafnvel
flutt I gámum á bifreiðum þar sem bif-
reiðastjórarnir hafa ekki hugmynd um
hver flutningur þeirra er.
Samkvæmt brezkum lögum hefur
lögreglan heimild til að gera upptækar
þær bókmenntir sem hún telur að
brjóti gegn lögum landsins. Síðan er
send skýrsla um málið til opinbers
ákæranda, sem ákveður hvað gera á I
málinu. Þrátt fyrir aðgerðir lögregl-
unnar eykst klámiðnaðinum ásmegin I
Bretlandi og mun nú svo vera komið
að stórborgirnar eru ekki einar um hit-
una heldur spretta hvarvetna upp
verzlanir sem bjóða klámbækur til
kaups.
Fulltrúa innanrikisráðuneytisins
brezka mun að sögn hafa brugðið í
brún er hann við vettvangskönnun í
skemmtanahverfmu Soho I London
fann tuttugu klámkvikmyndahús og
fjörutíu bókaverzlanir sem seldu klám-
bækur I samtals sex götum hverfisins.
LAUS
Elísabet önnur Bretadrottning var I
opinberri heimsókn í Vestur-Þýzka-
landi, fyrsti brezki þjóðhöfðinginn frá
lokum síðari heimsstyrjaldar. Mikla
athygli vakti hve litlar öryggisráðstaf-
anir voru við komu hennar og á með-
an á heimsókninni stóð. Mun það
hafa verið vegna óska drottningar
sjálfrar en henni lék hugur á að fá sem
mest að ræða við og komast i kynni
við þýzkt almúgafólk. Á myndinni
sjást þau drottning og Walter Scheel
forseti Vestur-Þýzkalands rétt eftir
komu hennar og eiginmannsins, Fil-
ippusar prins, til Bonn.
Er drottingin kom til Vestur-Berlín-
ar vakti athygli að fulltrúar sovézka
hersins þar og aðrir austantjaldsfull-
trúar neituðu að vera við móttökuat-
höfn henni til heiðurs. Var það að
sögn vegna þess að í fylgd með henni
voru embættismenn Vestur-Þýzka-
lands. Sovétmenn viðurkenna ekki að
Vestur-Berlín sé hluti Vestur-Þýzka-
lands.
BETA GENGUR
FUÓTIÐ
RANN
UM
AÐAL-
GÖTUNA
Ofsarigningar ollu miklum flóðum i
ám og fljótum í Þýzkalandi fyrir nokkr-
um dögum. Fóru sum þeirra yfir bakka
sína og rufu skörð í vegi og brutust í
nokkrum tilfellum inn í þorp og urðu
ibúar sumra þeirra að flýja heimili sín.
Ekki er vitað um nein slys á mönnum af
völdum vatnagangsins en bæjarstjórnin
í Aschaffenburg sá sér þann kóst vænst-
an að biðja herinn um aðstoð við að
ryðja framburði ár einnar, sem venju-
lega rennur þar framhjá en tók sér það
bessaleyfi öllum að óvörum að ryðjast
eftir aðalgötu bæjarins. Eins og sjá má á
myndinni hér til hliðar hefur verið ljótt
um að litast er hamförunum lauk.