Dagblaðið - 29.05.1978, Qupperneq 31
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1978.
35
Malibu er nýjasti Chevrolet á markaðinum í minni stærðarflokkunum.
Hann er búinn öllum eftirsóttustu þægindum og aukabúnaði Chevrolets
- á einu verði. Enginn sjálfsagður aukahlutur og lúxusbúnaður undanskilinn
í „standard“ bílnum svo sem: sjálfskipting, aflhemlar, vökvastýri, veltistýri,
litaðar rúður, 8 strokka vél, mælar í stað ljósa, heil grind, styrkt fjöðrun.
f fyrra keyptu fleiri Chevrolet en allar aðrar gerðir amerískra bíla samanlagt;
-og enn kaupa flestir Chevrolet, sem fá sér amerískan þessa dagana.
/S Véladeild
M Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Sími 38900
RAGNHEIOUR
kristjánSdótti
HefurÖu séð Malibu?
„Karlmenn vilja víð
og frjálsleg föt”
Svona rétt til þess aö gera ekki upp
á milli kynjanna og einnig vegna þess
að þessi fatnaður vakti athygli okkar,
ætlum við að birta nokkrar myndir af
karlmannafatatizkunni.
Karlmenn virðast ætla að feta í fót-
spor kvenfólksins, allavega hvað fata-
tízkuna snertir. Þeir kjósa nú, eins og
kvenfólkið, víð og þægileg föt. Einnig
hafa litirnir breytzt talsvert, til hins
betra, myndi ef til vill einhver vilja
segja. Græni liturinn, drappliti og
hvíti virðast vera talsvert vinsælir.i
Einnig leggja tizkuhönnuðir mikla
áherzlu á að karlmenn gangi sport-
klæddir. En í fáum orðum má segja að
frjálslegur klæðnaður I björtum og
ferskum litum sé það sem karlmenn
eiga að klæðast í dag. Athugið
meðfylgjandi myndir, þær tala sínu
máli.