Dagblaðið - 29.05.1978, Page 21
25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1978.
ð
Iþróttir
Iþróttir
I
Iþróttir
Iþróttir
BREIÐABUK SÓTT1
FRAM SIGRAÐI!
Mikill HeppnissigurFramíKópavogiíl. deildá laugardag, Breiöablik0-Fram2
Knattspyrnan er oft miskunnarlaus.
Það fengu leikmenn Breiðabliks i Kópa-
vogi að reyna í 1. deildarleiknum við
Fram á laugardag í suðaustan hvass-
viðri á Kópavogsvelli. Nær allan leikinn
voru þcir sterkari aðili — fengu fjölmörg
góð tækifæri til að skora, en ekkert
heppnaðist. Leikmenn Reykjavikurliðs-
ins fengu hins vegar tvö tækifæri i leikn-
um, sem hægt var að nefna þvi nafni, og
skoruðu úr báðum. Fram sigraði þvi í
leiknum með 2—0 — einn mesti heppni-
sigur sem undirritaður hefur orðið vitni
að lengi. Tvívegis björguðu varnar-
menn Fram á marklínu. Hvað eftir ann-
að fór knötturinn rétt yfir þverslá eða
framhjá stöngum Fram-marksins — og
oft sýndi Guðmundur Baldursson mikla
snilli í marki Fram. Var bezti maður
Ásgeir Eliasson, landsliðskappi Fram,
lagði upp bæði mörkin.
SNURUR
OG TENGLAR
hvað viltu mikið?
RAFVÖRUR Sli
LAUGARNESVEG 52 - SlMI 86411
Fram í leiknum — öryggi og skynsemi
þessa 18 ára markvarðar yljaði manni
vissulega í nepjunni. Já, unglingalands-
liðsmarkvörðurinn tók ekki áhættuna að
grípa knöttinn oft i rokinu, heldur ýtti
honum hvað eftir annað yfir þverslána og
honum urðu ekki á mistök i leiknum.
Vissulega verðskuldaði hann að vera i
sigurliði, þó flestir aðrir leikmenn Fram
ættu það skilið.
Breiðablik lék undan vindinum í fyrri
hálfleik og fljótt skapaðist mikil hætta
við mark Fram. Hinrik Þórhallsson
skallaði „hárfint” yfir þverslá. Einar
bróðir hans Þórhallsson átti hörkuskot
rétt framhjá og Benedikt Guðmundsson,
16 ára piltur i liði Breiðabliks, fast skot
en Rafn Rafnsson bjargaði á marklínu.
Léikurinn fór að mestu fram á vallar-
helmingi Fram — ogsókn Blikanna var
þung. Guðmundur Baldursson sló yfir
gott skot frá Ólafi Friðrikssyni og varði
hörkuskot Guðmundar Benediktssonar
af löngu færi.
Svo kom fyrsta reiðarslagið fyrir Blik-
ana. Það var á 30. min. Fram sneri vöm
skyndilega i sókn. Ásgeir Eliasson gaf
vel á Pétur Ormslev. sem var kominn
inn að vitateig hægra megin. Pétur tók
knöltinn niður með brjóstinu, lék á bak-
vörðinn og frá markteigshominu spyrnti
hann fast á markið. Knötturinn kom á
mitt markið efst við þverslána og Sveinn
Skúlason kom ekki við neinum vörnum.
Fram hafði skorað í sinni fyrstu góðu
sókn — sinu fyrsta tækifæri, og vel var
að markinu unnið hjá Pétri og Ásgeiri.
Sókn Blikanna hélt áfram. Ólafur átti
fast skot neðst í hornið. sem Guðmund-
ur varði i horn — ogeftir hornspyrnuna
var bjargað á marklinu Fram. Einar
skallaði rétt framhjá áður en Ólafur
komst i dauðafæri á lokaminútu hálf-
leiksins. Laust skot hans fór framhjá.
þegar hann hefði getað „gengið" með
knöttinn inn i Fram-markið.
Ekki hresstust
Framarar
í siðari hálfleiknum bjóst ég við að
SigurBjörns
BorgíRóm
Svlinn ungi, Björn Borg, sigraði I
italska meistaramótinu í tennis i gær.
Hann sigraði ítalann Adriano Panatta i
úrslitum í Róm, 1—6, 6—3, 6—1, 4—6
og 6—3. Það sem setti mestan svip á
leikinn voru óspektir áhorfenda. Þeir
köstuðu peningum og öðru dóti inn á
völlinn þar sem Björn Borg var. Hvað
eftir annað báðu dómarar leiksins áhorf-
endur að stilla sig. En ekkert dugði.
Loks eftir þriggja tima baráttu stóð
Borg uppi sem sigurvegari. Hann lyfti
höndum, fagnandi sigri og brosti. Hans
fyrsta bros í þrjá tima en óspektir áhorf-
enda tóku mjög á taugar hans.
ADMIRAL OG HENSON
íþróttapeysur, buxur og
sokkar
★
Útvegum félögum og
liðum íþróttabúninga.
* Sjáum um að setja í
auglýsingar og númera
búninga frá okkur
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44. — Simi 11783.
leikmenn Fram myndu nýta sér vindinn
vel — bjóst við góðum sigri liðsins eftir
að hafa sloppið svo vel frá fyrri hálf-
leiknum — markalega séð. En það var
öðru nær — leikmenn Breiðabliks gáfu
tóninn nær allan hálfleikinn. Sóttu
miklu meira og það meira að segja sið-
ustu I5 min. leiksins þegarþeirlékuein-
um færri. Breiðablik hafði þá sett báða
varamenn sína inn á, Valdimar Valdi-
marsson og Sigurð Halldórsson. Sigurð-
ur hafði ekki verið nema nokkrar minút-
ur inn er hann slasaðist og varð að
flytja hann á Slysavarðstofuna. Meiðsli
hans voru þó ekki alvarleg.
Og enn lék lánið við Fram — liðið
skoraði eina mark hálfleiksins rúmri
minútu fyrir leikslok. Ásgeir Eliasson
átti snilldarsendingu fram i vítateiginn
til Kristins Jörundssonar, sem skoraði
laglega af miklu öryggi. Það var raun-
verulega í eina skiptið sem sást til Krist-
ins í leiknum en eins og svo oft áður
nýtti „Marka-Kiddi" tækifæri sitt vel.
Þó á móti vindinum væri að sækja
voru leikmenn Breiðabliks mun meira
með knöttinn — og sóttu meira. Léku
oft netta knattspyrnu — þar sent knött-
urinn gekk milli manna en endahnútinn
vantaði eins og áður. Smáspilið brotnaði
oft, þegar að vitateignum kom, og reynt
að brjótast i gegn. þar sem vörn Fram
var sterkust — Sigurbergur og Kristinn
Atlason miðverðir Fram — en illa nýtt-
ur hinn mikli veikleiki Fram i vörninni
vinstra rnegin. En tækifæri fengu Blik-
arnir þó sem strönduðu oftast á öryggi
Guðmundar i Fram-markinu. Langtim-
um saman var Pétur Ormslev eini sókn-
armaður Fram — svo mikill var þung-
inn i sókn Blikanna. Klaufar voru þeir
líka. Á lokamínútu leiksins tókst Ólafi
Friðrikssyni að spyrna framhjá i dauða-
færi aðeins 3—4 metra frá marki — en
hinum megin veitti maður athygli
hörkuskoti Sigurbergs af löngu færi. sent
rétt sleikti þverslá marks Breiðabliks,
auk marks Kristins.
Það verður að segjast eins og er að
lánleysi Breiðabliks var algjört i leikn-
um. og á það bættist einnig klaufaskapur
leikmanna liðsins. Margir léku þó vel —
einkum þó Einar Þórhallsson. Bjarni
Bjarnason og Benedikt Guðmundsson.
Þá stóðu Helgi Helgason. áður Vikingi.
og Hinrik vel fyrir sínu.
Hjá Fram léku tveir menn mjög vel.
Guðmundur i ntarkinu og Ásgeir en hin
litla barátta leikmanna liðsins kom á
óvart. í liöinu eru einnig ákaflega veikir
punktar. Kristinn Atlason ogSigurberg-
ur allsterkir og leikni Péturs vekur alltaf
athygli. i hcild slakur leikur liðsins en
lánið elti Fram. Vissulega mikið um-
hugsunarefni fyrir hinn snjalla þjálfara
liðsins, Guðmund Jónsson.
Dómari var Hreiðar Jónsson — og
voru hinir fáu áhorfendur ekki beint
ánægðir með hann. Vildu tvivegis að
dæmdar yrðu vitaspyrnur á Framliðið.
Guðmundur Baldursson, markvörður
Fram — varði af öryggi og skynsemi all-
an leikinn.
Það hefðu þó verið mjög harðir dómar.
svoekkisém irasagt. Hann bókaði einn
leikmann. Rafn Rafnsson. Frarn.
-hsím.
Æfinga-
gaiiar
urvalt
skor
Pós tjnen dum
m í
nraðgnnn
Lajjpáveýi
SÍmi 15599*
1. Vekjaraklukka
2. Klukka
3. Fullkomin tölva
4. Raf hlöðurnar endast
í 3000 klst.
|5 Kaupið
BANKASTRÆTI 8