Dagblaðið - 22.06.1978, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1978.
DB á ne ytendamarkaðí
Langódýrasti maturinn
sem við höfum heyrt um:
APPELSINULIFUR
UM100 KR. SKAMMTURINN
OKkur hafa borizt nokkrar
uppskriftir frá lesendum Neytenda-
síðunnar. Pétursson, sem er úti-
vinnandi húsfaðii, sendi okkur eftir-
farandi uppskrift af appelsinulifur.
Uppskriftina segist hann hafa rekizt á í
einum af sparnaðardálkum norsku
blaðanna þegar hann var við nám í
Noregi, á sultarárunum, eins og hann
kallar það.
Að visu er lamþalifur ekki neitt sér-
staklega ódýr matur hér á landi, kg
Borgarinn vegur 70 gr. en ekki 50 gr.
Guðfinnur framkvæmdastjóri í
Nesti hringdi til Neytendasíðunnar og
vakti athygli á þvi að hamborgarinn
sem Nesti selur vegur ekki 50 g eins og
getið var um í samanburði DB á
hamborgurum I miðvikudagsblaðinu i
gær, heldur 70 g. Einnig vildi fram-
kvæmdastjórinn að fram kæmi að
minnsti kartöfluskammturinn i Nesti
vegur300g. -A.Bj.
KOSMNGA
Fæst i
bókaverzlunum
UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN
AÐVÖRUN
um stöðvun atvinnurekstrar
vegna vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og
heimild í lögum nr. 10, 22. mars 1960, verður
atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér í
umdæminu, sem enn skulda söluskatt fyrir
janúar, febrúar og mars 1978 og ný-álagðan
söluskatt frá fyrri tíma, stöðvaður, þar til þau
hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöld-
um, ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostn-
aði. Þeir, sem vilja komast hjá stöðvun, verða
að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstof-
unnar við Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
14. júnf 1978.
Sigurjón Sigurðsson (sign).
kostar núna 1363 kr., en lifur er rík af
bætiefnum og matvælafræðingar
ráðleggja fólki að borða lifrarmáltíð að
minnsta kosti einu sinni í viku. Þetta
er nýstárlegur og spennandi máls-
verður. í hann fara:
ca400g lifur,
smjörliki til aðsteikja í,
2 appelsínur,
kryddað meðengiferi, salt og pipar.
Lifrin er skorin í sneiðar og steikt á
pönnu I litlu smjörlíki við vægan hita.
Önnur appelsínan er skorin í sundur
og safinn úr öðrum helmingi hennar
látinn drjúpa yfir lifrina. Hin
appelsínan er tekin i sundur i báta
sem látnir eru á pönnuna þegar lifrin
er fullsteikt. Afgangurinn af safanum
settur á pönnuna og hann blandaður
með ofurlitlu af rjóma. Með þessu eru
borðaðar soðnar kartöOur.
Lifrarrétturinn kostar um 715 kr. úr
lambalifur. — Að viðbættum 500 g af
kartöflum kostar rétturinn 806 kr. eða
um 200 kr. á mann.
Það skal enn tekið fram að þetta er
frekar litill skammtur og hverjum í
sjálfsvald sett að bæta við hann, en þá
verður hann líka dýrari.
En ef notuð
er nautalifur —
l þennan rétt er tilvalið að nota
nautalifur og breytist þá kostnaðurinn
við hann talsvert mikið Pétursson
keypti nautalifur i Kjöthöllinni á
þriðjudaginn sem kostaði 350 kr. kg.
Sagði hann að þessi lifur hefði verið
stórfin, mjúk og góð og ekki orðíð
hörð við steikinguna.
Með nautalifur kostar rétturinn þvi:
404 kr. með kartöflunum, eða um 100
kr. hver skammtur! Geri aðrir betur!
Tekið skal fram að hjá Vigfúsi
Tómassyni sölustjóra hjá Sláturfélagi
Suðurlands fengust þær upplýsingar
að jafnan væri fyrir hendi nautalifur i
litlum pakkningum og kostar hún 387
kr. kg i heildsölunni. Hægt er að
panta slika lifur í gegnum kjötkaup-
nienn sem verzla við Sláturfélagið.
Tómat-
arnir
komnir
á sumar-
verö
Loksins hefur orðið verðlækkun á
tómötum, en nú eru þeir komnir á
svokallað sumarverð. Kg kostar núna
1050 kr. i smásölu, en kostaði áður
1125 kr. Þeir kosta 750 kr. i heildsölu.
Nú er tilvalið að hafa tómata á
boðstólum I öll mál og á morgun
birtum við fyrstu tómatuppskriftina
með verðútreikningi að sjálfsögðu.
DB-mynd Bjarnleifur.
Raddir neytenda
Koffein-f rítt kaff i
til í Hraunbænum
Kaupmaður læ tur f rá sér heyra
Kristján kaupmaður i Kjörbúð
Hraunbæjar hringdi og sagði okkur að
hann ætti til koffeinfritt kaffi, sem lýst
væri eftir í bréfi frá neytanda i fyrra-
dag. Það heitir Gaphren instant korn
kaffi, og kosta 80 g 445 kr. I kjörbúð
Hraunbæjar er einnig til Planters
hnetusmjör og kosta 340 g 743 kr.
Við þökkum Kristjáni góðar
ábendingar hans en hann lýsti áhuga
sinum á Neytendasíðu Dagblaðsins.
Hann sagðist allsendis óhræddur við
allan verðsamanburð en þótti miður
að ekki hefur verið tekið fram að stór
hluti þeirrar neyzluvöru, sem
almenningur kaupir, mjókurvörur,
brauð og dilkakjöt, er á sama verði i
öllum verzlunum, bæði stór-
mörkuðum og litlum kaupmanns-
verzlunum. Hins vegar getur verð
verið mismunandi á svokölluðum
hilluvörum og pakkavörum, vegna
mismunandi verðs á sendingum og
einnig vegna þess að í sumum tilfellum
er ekki notuð full álagning.
Ágóðu
verði
í Kron á Dunhaga er
rússnesk jarðarberjasulta á mjög
hagstæðu verði, 490 g kosta ekki
nema 290 kr. Þar eru einnig til
niðursoðnar ferskjur frá Kína og
kostar l/2 dós 200 kr. og blandaðir
ávextir (tvær tegundir), l/2 dós, á
225 kr.
til
T
Koffein-lausa
kaffið er víða til
Döðlurnar á góðu verði á Dunhaga
Leví, verzlunarstjórinn I Kron á
Dunhaga, hringdi og sagðist hafa á
boðstólum rússneskt hunang, 450 g, á
285 kr. Einnig hefur hann á
boðstólum pressaðar döðlur, 250 kg, á
290 kr., sem er mjög gott verð. Einnig
er til koffein-laust kaffi frá Brasilíu,
frostþurrkað, instant kaffi og kosta 50
g 785 kr. Loks er einnig til rússneskt
hunang í Kron á Dunhaga og kosta
450 g 285 kr. — Þannig kemur I ljós
að Sonja Haraldsdóttir, sem bað okkur
að hafa upp á þessum vörum fyrir sig,
getur nú valið úr stöðum þar sem
vörurnar fást og það á dálítið mismun-
andi verði.