Dagblaðið - 22.06.1978, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNt 1978.
Svipmynd f rá kosningu utan kjörstaðar:
„ENGAN ARODUR
Á KJÖRSTAД
— sagði dyravöiðurinn þegar sorgarsaga Steina
tannlæknis f rá kjördegi var sögð
„Viljiði gera svo vel að hafa röðina
tvöi'alda." sagði húsvörður Miðbæjar-
skólans á tiunda timanum í gærkvöldi
þegar þröng varð fyrir dyrum i utan-
kjörstaðaatkvæðagreiðslunni.
„Það flýtir nú litið fyrir að hafa
röðina tvöfalda. Það þyrfti að bæta
við skrifara," sagði vörpulegur maður
um þritugt.
„Er ekki hægt að fá fleiri skrifara?”
bergmálaði konurödd úr sömu átt.
Ungur maður sat og skráði hvern
mann um leið og röðin seiglaðist
áfram með talsverðum skriði. Hann
skrifaði á við þrjá.
„Hvar ætlið þér að dveljast á
kjördag?” spurði skrifarinn ungi.
„Á sjó." svaraði kurteis stúlka.
„A hvaða skipi?" spurði skrifarinn.
„Árna Friðrikssyni," svaraði
kjósandinn.
„Önnur kjördeild. gerið svo vel."
sagði skrifarinn um leið og hann hóf
að lesa af ökuskírteini sem næsti kjós-
andi rétti fram.
„Uppi í Börgarfirði." var næsta svar
um dvalarstað.
„Á Spáni." svaraði ung og falleg
kona. Það var ekki laust viö spennu
sigursins í raddblænum.
„Erlendis" skráði skrifarinn.
Honum varð ekki úr vegi að
samgleðjast sólarlándsfaranum með
brosi. Spánn eða Grikkland eða
Nigeria — allt er þetta einfaldlega
erlendis.
„Það er breytt heimilisfang. Ég bý
ekki lengur i Barmahlíðinni." sagði
næsti kjósandi.
Svona leið timinn og tvöföld röð af
fólki, sem tjáði iífsviðhorfið með
bókstaf, neytti réttar sins i annað
skipti á einum mánuði eftir fjögurra
ára afskiptaleysi um landsstjórn og
borgarmálefni.
„Fyrsta kjördeild er innstu dyr til
vinstri," sagði húsvörðurinn við þá
sem var l'lutt úr Barmahliðinni.
„Geriði svo vel að koma inn." sagði
aldraður dyravörður við innstu dyr til
hægri. Hann var svo finn að hann
ógnaði veldi kjósandans á þessu litla
sviði á fjölum lifsins.
„Hann Steini tanniæknir var rétt
lagztur i rúmið um daginn.” sagði sá
með hugmyndina um fjölgun skrifara.
„Það var ekki nóg meö útkomuna hjá
ihaldinu heldur þurfti Vikingur að
tapa fvrir Þrótti á kjördag.”
„Engan áróður á kjörstað." sagði
dyravörðurinn. „Geriði svo vel,
næsti."
„Þetta er ekki löglegt," sagði
Kosið utan kjúrstaðar í Miðbajarskólanum i Reykjavík í síðustu viku. — DB-
mynd R.Th. Sig.
myndarlegur niaður urn leið og hann
sleikti limið á umslaginu.
„Þú vildir kannski segja okkur
hvernig þetta á að vera." sagði ein í
kjörstjórninni.
„Þú gætir kontizt að þvi hvað ég
kýs. ef þú vildir." sagði kjósandinn.
„Það er ekki löglegt ef það er gert
öðruvisi en svona." sagði Jónas
Gústafsson fógeti og kjörstjóri. „Við
höfurp ekki samið kosningalögin,"
bætti hann við.
„Skrifa bókstafinn hér og lima svo
aftur,” sagði sú i kjörstjórninni.
„Takk.ogskrifa hér undir."
Umslög með utankjörstaðar-
atkvæðum duttu niður um rauf á
innsigluðum kassa.
„Hvernig á að strika út þegar
engin nöfn eru?" spurði ungur og
reiðilegur maður með sjávarseltu og
briliantín i hárinu.
„Það er vist dálitið erfitt," sagði
snaggaralegur félagi hans á hálferma-
bol og með tattóverað „Miranda" á
hægri upphandlegg. „Fjandann ætli
þú strikir út." bætti hann við. Það var
fersk kaupstaðarlykt af þeim.
„Næsti, geriði svo vel." hljómaði
eins og óperuaria með fótatak kjós-
andans á göngum Miðbæjarskólans
að undirleik. Röddin og fótatakið dóu
hvert öðru urn leið og kjósandinn
hvarf út i dagbjart vorkvöldið. Svona
mikið verður ekki haft við hann l'yrr
eneftirfjögurár. BS
Mazda 616 árg. 1976, ekinn 31 þ. km,
fallegur vei með farinn bíll. Litur
dökkgrænn. Verð 2.550 þús.
Fíat 131 S árg. 1976. Litur Ijðs, ekinn
32 þ. km. Verð 1900 þús.
BÍLASALAN SKEIFAN
Skeifunni 11 — Símar84848 - 35035
SELUR ALLA BÍLA,
DRÁTTARVÉLAR, GRÖFUR, HJÓLHÝSI, KRANA,
BÁTA, VÉLSLEÐA 0G MÓTORHJÓL
Austin Mini Clubman, 1977,
20 þ. km, gulbr. með
1600 þús.
Pontiac Trans Am. 1975 ekinn 56 þ.
milur, silfurgrár. Verð 3.2 millj. Skipti
koma til greina.
Pontiac Firebird Esprite 1976. Sá
glæsilegasti á götunni, ekinn 32 þ. m. 8
cyL, sjálfsk með öllu. Silfurblár. Verð
4.750. Skipn.
Mazda 929 station árg. 1976, ekinn
35 þ. km. Bill i algjörum sérfl. Blá-
sanseraður. Verð 2.950 þús.
Cherokee Jeep árg. 1975, 8 cyl.,
sjálfsk. m/öllu, breið dekk.
Krömfelgur, útvarp, segulb. Verð 3,7
millj. Skipti koma til greina.
Chevrolet Blazer K5 Cheyenne árg.
1974, ekinn 44 þ. km. Verð 3,8 m.
Skipti möguleg.
Chevrolet Blazer 1973 K5 Cheyenne,
ekinn 117 þús. Verð 3.250 þús.
Sunbeam Arrow 1971, sjálfskiptur bill
á göðu verði. Verð 500 þús.
Tovota Mark II árg. 1972,
gullfallegur bill, ekinn 85 þ. km. Verð
1350 þús.
Merc. Benz 220 D árg. 1969, ekinn 90
þús.. dökkblár, göður bill. Verð 1600
þús. Skipti koma til greina.
Volvo 144 de Luxe árg. 1972, ekinn
118þús. km. Ljösblár. Verð 1700 þús.
G.S. 1220 1974, ekinn 50 þús.
Verð 1450 þús.
Mustang '68.
millj.
Verð 1
Volkswagen sendibill '74. Ekinn ca 70
þ. allur nýyfirfarinn. Vél nýupptekin.
Góður bíll. Verð 1700þús.
Austin Mini '75, ekinn 35 þús. km.
Vcrð 950 þús. Útb. sem mest.
Staöreyndiner: SE BILLINN A STAÐNUM SELST HANN STRAX