Dagblaðið - 22.06.1978, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1978.
15
Hver er stórveldi?
Fyrir tæplega 8 árum ákváðum við
íslenskir námsmenn í K-höfn
að leita til Magnúsar Torfa Ólafssonar
þáverandi verslunarstjóra Máls og
menningar um að halda hátíðarræðu
félagsins 1. desember. Ræðuefnið
völdum við hugstætt námsmönnum á
erlendri grund, þ.e. stórveldi og smá-
ríki. Mér er minnisstæður ótti sumra
ráðamanna íslenskra um að þessi ræða
yrði of „pólitisk”. Við bjuggum þá við
samstjórn Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks hér heima og gerðir þeirra
voru náttúrlega ekki pólitískarl!
Ræðan var pólitísk — ekki á þann
veg sem óttast hafði verið, þ.e. að
Bandaríkjunum yrði úthúðað og aust-
ræn ríki hafin í dýrðarljóma. Nei, hún
var pólitísk vegna þess að i henni var
lögð áhersla á þá nauðsyn smáþjóða
að standa vörð um sjálfstæði sitt, að
vernda rétt hinna smáu, að efla með-
vitund smáþjóða og að fá þær til að
leggja af mörkum í heimsmyndina i
stað þess að vera auðfenginn leiksopp-
ur stórvelda. Stórveldin voru fleiri en
eitt og þau áttu kannski fleira sameig-
inlegt en þau vildu vera láta. Stórveld-
isdraumurinn var að hafa svo mikinn
styrk að ekki þyrfti að leita ráða ann-
arra, að ekki þyrfti að leita aðstoðar
annarra, að ekki þyrfti að hlita
ákvörðunum annarra, að ekki þyrfti
að standa öðrum skil gerða sinna.
Siðan þetta gerðist úti í Kaup-
mannahöfn hafa mörg vötn runnið til
sjávar. Gestur okkar námsmannanna
hefur setið á þingi tvö kjörtímabil og
aflað sér óskiptrar virðingar fyrir
vandvirkni í skoðanamyndun, víðsýni,
þekkingu og vandaðan málflutning.
Við stöndum nú frammi fyrir þriðju
alþingiskosningunum þar sem Samtök
frjálslyndra og vinstri manna bjóða
fram. Mér virðist skoðanir fólks á því
hvað pólitík sé hafa hreyfst nokkuð
fram á veg. Að pólitískt val sé afleið-
ing lifsskoðunar og tilraun til að vinna
henni fylgi er að verða mörgum aug-
Ijósara. Og það á greinilegra minni
hljómgrunn en nokkru sinni fyrr að
kosningar snúist um að það að halda
flokki, sem kjósendur eru óánægðir
með við stjórnvöl, af einskærri
hræðslu við hið óþekkta. Þetta er spor
fram á við.
Sveitarstjórnarkosningar sýndu
glöggt-að kjósendur telja í stórauknum
mæli að félagshyggjumenn hafi betri
úrlausnir við vandamálum á heima-
■slóðum en einstaklingshyggjuöflin
hafa. Lítum nánar á kosningarnar í
Reykjavík. Hver einasti kjósandi sem
greiddi atkvæði sitt öðrum en D-lista
gerði það vitandi að það væri lóð á
vogarskál samstjórnar. Hver einasti
kjósandi þeirra vissi að hann var að
hafna einræði stóra flokksins, stór-
veldisins og hvetja til samvinnu
smærri flokka. Og hver hugsandi kjós-
andi gerði sér ljóst að slík samstjórn
mætir óhjákvæmilega ýmsum erfið-
leikum sem flokkseinræði þarf aldrei
aðglíma við.
Það var ánægjulegt að sjá myndaða
samstjórn þriggja flokka í Reykjavik
og gerðan málefnasamning i félagsleg-
um anda. Það er því miður jafn dapur-
legt að fylgjast með tilraunum sjálf-
stæðismanna til að sundra samstarfs-
aðilunum. Jafn lágkúruleg barátta og
þar er háð þjónar engum nema skratt-
anum og hrindir aðeins fleiri stuðn-
ingsmönnum frá Sjálfstæðisflokknum.
í sveitarstjórnarkosningunum buðu
Samtök frjálslyndra og vinstri manna
óvíða fram, heldur miðuðu starf sitt
við alþingiskosningar. Þar sem ekki
var um framboð að ræða kaus að sjálf-
sögðu hver samtakamaður þann flokk
sem hann treysti best til að vinna að
markmiðum okkar. Atkvæðisréttur-
inn er of dýrmætur til að láta hann
ónotaðan. Því veit ég varla hvort ég á
nú að brosa eða gráta þegar gamlir og
mosavaxnir forkólfar Alþýðubanda-
lagsins eigna þvi allan sigur vinstri
manna, vara við þvi grafalvarlegir að
kjósa litlu flokkana, tala um glund-
roðaöflin og hættuna af þeim. Hvefs
konar stórveldistal er þetta? Hver er
nú að tileinka sér valdsmannssvipinn?
Mér er sem ég sitji aftur úti i Kaup-
mannahöfn. Viðaeru stórveldin.
Gera alþýðubandalagsmenn sér
ekki ljóst að kjör Reykvíkinga í borg-
arstjómarkosningunum var persónu-
kjör umfram allt — kjör persónu sem
borgarbúar i þúsundavís treystu til að
framfylgja félagshyggjustefnu þótt um
samstarfsvandamál flokka gæti orðið
að ræða.
Kjör til alþingis er líka háð þvi að
við treystum þeim sem við greiðum at-
kvæði. Það er ekki nóg að flokkur
móti ítarlega og víðtæka stefnu. Það
stjórnar sem betur fer enginn flokkur
einn í dag. Þegar á alþingishólminn er
komið' duga ekki breiðfylkingamar
einar með stefnuskrárnar. Á alþingi
Kjallarinn
Anna Kristjánsdóttir
þurfum við viðsýnt fólk sem vandar
skoðanir sinar og störf, fólk sem getur
fylgt stefnu sinni eftir í samstarfi við
aðra. Magnús Torfi Ólafsson hefur
þegar sýnt að hann er traustsins verð-
ur og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir er
eini fulltrúi islenskra verkakvenna
sem á möguleika á þingsetu. Verndum
rétt hinna smáu. Hvetjum þær til að
'setja svip sinn á alþingismyndina.
Kjósum F-listann á sunnudaginn.
Anna Kristjánsdóttir
námsstjóri.
TRYGGJUM FRELSIÐ
í aukablaði Þjóðviljans 9. júní sl. er
viðtal við Gils Guðmundsson alþingis-
mann um atvinnumál á Suðurnesjum.
Sama dag kemur með Þjóðviljanum
blaðastúfur, sem nefndur er Reykja-
nesblað og er í blaðastúf þessum grein
eftir Jóhann J. E. Kúld. Það verð ég að
segja að eftir að hafa lesið viðtalið við
Gils og greinarstúf Jóhanns, varð ég
gjörsamlega orðlaus, kemur það þó
ekki oft fyrir mig.
Hefur alþingismaðurinn Gils
Guðmundsson sofið i þau sárafáu
skipti sem hann hefur látið það eftir
sér að koma hingað suður með sjó til
þess að ræða við okkur um at-
vinnumál og vanda sjávarútvegsins,
eða er hann vísvitandi að gera okkur
Suðurnesjamenn tortryggilega í aug-
um landsmanna? Hefur þingmaðurinn
ekki ennþá skilið það að höfuðvanda
mál okkar á Suðumesjum er stór-
kostlegur aflabrestur undanfarnar
vetrarvertíðir, allt upp i 36,5%
síðastliðnar 5 vertíðir?
Hvaða tslendingum öðrum en
þessum tveim framangreindum
höfðingjum og þeirra fylgifiskum
lætur sér til hugar koma að hersetan á
Miðnesheiði eigi hér hlut að máli?
Nei, kæru vinir, þótt Bandaríkja-
mönnum sé margt til lista lagt þá ráða
þeir ekki ennþá að minnsta kosti
fiskigengd á miðin við Suðvestur-
landið. Það er annað sem hefur valdið
því að við Suðurnesjamenn erum verr
í stakk búnir til þess að mæta svona
vandamálum, sem aflabrestur er, og
það er byggðastefnan, sem hér hefur
helriðið húsum.
Þegar vel gekk hér á Suðurnesjum
var fjármagn flutt héðan í stórum stíl
til uppbyggingar á landsbyggðinni og
taldi enginn eftir, en þegar fór að halla
undan fæti hjá Suðurnesjamönnum,
brugðust þeir hópar illa við sem vilja
halda við byggðastefnu í þeirri mynd
sem hún er í nú.
Þeir félagar Gils og Jóhann leggja
mikið upp úr því í sinu máli, að þeir
Gils Guðmundsson og Geir Gunnars-
son hafi á liðnum vetri flutt þings-
ályktunartillögu á alþingi um að fela
Framkvæmdastofnun rikisins að gera
Suðurnesjaáætlun um atvinnumál, en
þeir þegja báðir tveir dyggilega yfir því
að tillaga um sama efni hafði þá þegar
verið samþykkt í stjórn Framkvæmda-
stofnunarinnar. Sú tillaga var
samþykkt af fulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins og forstjórum stofn-
unarinnar og Steingrimi Hermanns-
syni, en hann lét fylgja sínu atkvæði,
að hann væri i eðli sinu á móti
tillögunni. Gegn tillögunni greiddu at-
kvæði þeir Ragnar Arnalds, flokks-
bróðir þeirra, Gils, Geirs og Jóhanns,
og Ingvar Gíslason framsóknarmaður,
en Benedikt Gröndal sat hjá. Það ætti
Karl Steinar Guðnason að athuga vel
áður en hann snýr sér að því að endur-
reisa atvinnuvegina á Suðurnesjum að
flokksbræður hans aðrir bera sama
hug til Suðurnesja og Benedikt
Gröndal. Þeir greiða því ekki atkvæði
sín með þvi að Suðurnesin fái fyrir-
greiðslu úr sameiginlegum sjóðum
landsmanna, það samræmist ekki
þeim hugmyndum þessara manna um
nýja vinstristjórn og aukna byggða-
stefnu. Það eru nánast sagt þau einu
stefnumörk er þessir flokkar, það er
Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur
og kommúnistar (alþýðubandalags-
menn eru ekkert annað en ^
kommúnistar), geta komið sér saman»-
um: aukin byggðastefna á kostnað
Suðurnesja og óvarið land, svo að
kommúnisminn eigi greiðari aðgang
að landinu.
Hvað mundu vinstri
menn gera?
Ég trúi því ekki að nokkur sannur
íslendingur óski eftir þvi að hér ríki
þjóðskipulag svipað þvi sem gerist í
Austur-Evrópulöndunum, þar sem
menn fá ekki að hugsa, tala eða skrifa
nema það sem valdhöfunum þóknast,
ef út af er brugðið eru menn
hnepptir i varðhald, dæmdir á
geðveikrahæli eða i þrælkunarvinnu.
Ég vil benda þeim sem efast um á-
standið þar á að lesa bókina Hróp úr
austri eftir danska prestinn H. K
Neerskov, þar sem lýst er á átakanleg-
an hátt hvernig fólk er lagt i einelti
fyrir þær sakir einar að trúa á Guð og
reyna að breiða úr riki Hans.
I
Góðir Suðurnesjamenn, hvert það
atkvæði sem greitt er vinstri-
flokkunum er greitt gegn atvinnu-
uppbyggingu á Suðurnesjum. í tíð
fyrrverandi vinstristjórnar var algjört
bann við lánveitingu úr Byggðasjóði
til Suðurnesjanna. Hver trúir þvi í
alvöru að Gils Guðmundsson fái
Ragnar Arnalds og hans fylgifiska til
að hverfa frá loforðinu um aukna
byggðastefnu? Sama er að segja um
Alþýðuflokkinn. Gerir nokkur sér
vonir um að Karl Steinar fái Benedikt
Gröndal til að leggja þvi lið að sam-
þykkt sú sem gerð var í stjórn Fram-
kvæmdastofnunarinnar sem að
framan er greint, verði framkvæmd?
Sama verður upp á teningnum með
Framsókn. Með nýrri vinstristjórn
getur Steingrímur Hermannsson sam-
kvæmt eðli sínu verið á móti því að
samþykkt sjálfstæðismanna nái fram
að ganga.
Góðir Suðurnesjamenn, við skulum
i fullri alvöru snúa saman bökum gegn
kommúnismanum, gegn nýrri vinstri-
stjórn, gegn þeirri hættu sem því fylgir
að hafa landið óvarið í þeim viðsjám,
sem nú eru í heiminum. Sjálfstæðis-
flokkurinn er eini stjómmála-
flokkurinn á íslandi sem hefur á
stefnuskrá sinni að varðveita frelsið,
frelsi til athafna, frelsi til að hafna og
velja. og siðast en ekki sist frelsi til að
játa trú sina á Jesúm Krist. Góðir
Suðurnesjamenn, með þvi að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn í alþingiskosning-
unum 25. júní nk. eruð þið að tryggja
þetta frelsi um leið og þið stuðlið að
því að koma Suðurnesjamanni á þing
til þess að rödd af Suðurnesjum fái að
hljóma í alvöru með þeim þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins sem lagt
hafa grunninn að Suðurnesjaáætlun
um uppbyggingu atvinnulífsins á
Suðurnesjum. Við skulum hafna sýnd-
armennsku-mönnunum, sem vilja
fórna öllu fyrir kommúnismann.
Sigur D-listans í kosningunum
sunnudaginn 25. júni er sigur frelsis og
framfara.
Halldór Ibsen,
form. fulltrúaráðs
Sjálfstæðisflokksins
i Keflavik.
Halldórlbsen
IMY SENDING
Noppy
Heilsubótartafflan
gefur yður ótal möguleika til notkunar, eru góðar fyrir heilsu yöar, þær má
notaheima, í sundlaugunum, ígufubaöi, ígarðinum, á ströndinni o.s.frv.
Töfflurnar eru léttar og laga sig eftir fœtinum, örva blóö-
rásina og auka vellíðan, þola olíur og fitu, auövelt að
þrífa þœr.
Fóanlegar í 3 litum: Gult, rautt, blátt
Stœrðir nr. 35—46.
Verð kr. 2.570.-
POSTSENDUM
Skóverzl. Þórðar Péturssonar,
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll. Sími 14181.