Dagblaðið - 22.06.1978, Side 34
34
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1978.
Bílasýning á þ jóðhátíð Akureyringa:
Bifreiðaklúbbur Akureyrar hélt bíla-
sýningu á Akureyri i tilefni þjóðhátíðar
17. júní. Tiðindamaður DB. Friðgeir
Axfjörð. brá sér á sýninguna og festi
nokkra sýningargripina á filmu.
Þarna mátti sjá gamla og lifsreynda
gripi sem hafa þjónað eigendum sínum
vel á undanförnum áratugum, m.a.
Dixie Flyer. sem verður sextugur á
Margrevndur vagti, Chrysler árgerð 1928.
næsta ári og þó nokkra sem standa undir
náfninu Gamli Ford með virðingu. Þar
voru og aldraðir vörubílar. aðallega
Chevrolet og Ford og vaensta rúta af
Ford-gerð með skoðunarmiða frá árinu
1978.
En gamlingjarnir voru engan veginn
einráðir á sýningunni. Nýjustu Fordar
röðuðu sér upp með vegg Oddeyrar-
skólans, þar sem þeir lífsreyndu gátu
litið til með ungviðinu og gætt að því að
enginn færi sér að voða með nýja og
óreynda vél. Þá vöktu ekki síður athygli
ýmis tryllitæki svokölluð, en eigendur
þeirra fá gjaman krampa í bensínfótinn,
þegar þeir setjast undir stýri. Þar þykir
sá beztur, sem getur skilið mest eftir af
gúmmíi á malbikinu og eigendurnir
anda siðan að sér gúmbrælunni eins og
gamlir lífsnautnamenn anda að sér
höfgum vindlareyk.
Og ekki var nóg að sýna tryllitækin
fullsköpuð. Nei, menn fengu að sjá
hjörtu þeirra slitin frá búknum, átta
gata vélarnar eins og þær komu úr
móðurkviði. Hjörtum þessum fylgdi
síðan alls kyns útbúnaður, millihöfuð,
knastásar og blöndungar af beztu gerð.
Þá má heldur ekki gleyma bensíndælum,
sem afkasta meira en gengur og gerist og
siðast en ekki sízt pústflækjum, sem
setja puntkinn yfir ið-ið.
En myndirnar segja meira en mörg
orð.
JH.
DB-myndir
Friögeir Axfjörö
Ford rúta, enn í fullu fjöri þótt aldurinn færist yhr og skoounarmióinn er mcú ái-
talinu 1978.
MEÐ UNGVIÐINU
LÍFSREYNDIR ÖLDUNGAR LITU TIL
MG 1500 TF árgerð 1955. Skruggutæki, fallegur bíll, sem eitt sinn var 1 eigu Thors Thors.
Vélarnar úr tryllitækjunum vöktu
athygli. Hér má sjá 454 rúmtommu vél
úr Chevrolet árgerð 1975. Fyrir áhuga-
menn má geta þess að maskínan er út-
búin Torker„miIliheadi”, Crane knastás.
Holley blöndungi og bensíndælu, Black
Jack pústflækju og Accel kveikjubúnaði.
Með þessum útbúnaði mun möguleiki á
þvi að komast inn í radarsvið lög-
reglunnar.
HÚLLUMHÆ AF
STAÐ ÚR BÆNUM
Ólafur Gaukur og Svanhildur þykja góðir gestir úti á landi,
þegar þau heimsækja hina ýmsu staði með Húllumhæið sitt.
Húllumhæ hefur nú unnið sér sess sem árlegur viðburöur
sem landsmenn fá að njóta, nema Reykvíkingar og
þeirra.
Borgarnes verður fyrsti viðkomustaðurinn að þessu sinni
og þar verður barnasýning á morgun og á ísafirði á laugar-
daginn
i I lullumhæ-flokknum að þessu sinni eru Halli og Laddi.
Gaukurinn með hljómsveit sína og enski fjöllistaflokkurinn
White Heat, sem sýnir ótrúlegustu kúnstir Hcfur flokkur
þessi komið l'ram á mörgum beztu hótelum heimsins og i
brezka sjónvarpinu. Á skemmtununum verða happdrættis-
vinningar i stuttu sólarbingói, sólarferð meðSunnu.
WHITF HEAT,
unni.
liðsstvrkur Húllumhæsins á landsreis-