Dagblaðið - 22.06.1978, Síða 37
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNl 1978.
37
Hvað sögðu þingmennirnir.
ÁTTl MATTHÍAS PANTAÐ
,KOMMAKALL’ ÚR SALNUM?
— „Skuldin eykst um8 milljónir á dag” sagði Geir
Já, fyrsta umferðin var dauf. Ólafi G.
Einarssyni var vel fagnað sem fyrsta
ræðumanni enda á heimavelli. Hann
kvað sinn Sjálfstæðisflokk hafa orðið
undir í lævísum áróðri sem beitt hefði
verið í launamálum, þar sem árangur úr-
bótarstefnu i baráttunni gegn verðbólg-
unni hefði ekki komizt til skila. Ólafur
drap á ágenga þrýstihópa sem settu kerf-
ið úr lagi og málamiðlun sem ætti sér
stað í samsteypustjórnum. Aðgerðir nú-
verandi stjórnar hefðu verið gróflega
mistúlkaðar, allt hefði verið á botni þeg-
ar tekið var við. Tekizt hefði að tryggja
atvinnu, jafnvægi í viðskiptum og draga
úr verðbólgu úr 55 í 26% þar til á þessu
ári, að gera hefði þurft óvinsælar ráð-
stafanir í nauðvörn. Verðbólgan væri
höfuðvandamálið. Hann ræddi síðan
varnar- og öryggismál og las fallega upp-
talningu stefnumarkrhiða síns flokks.
8 milljónir á dag
Geir Gunnarsson alþingismaður bar
ótt á að vanda þegar mikið liggur við.
Við heyrðum þóað hann talað um að lít-
ið hefði farið fyrir efndum loforða þó
þingfylgi stjórnarflokkanna væri um
70%. Hann ræddi um gjaldþrot sjóða,
óðaverðbólgu og óheyrilega vexti.
Geir sagði að þrátt fyrir góðæri hefði
skuld ríkis við Seðlabankann 16 faldazt
og ykist um 8 milljónir á dag. Yfirleitt
væri efnahagslífið í rúst. Og úrræðin
væru þau t.d. í nýjum skattalögum að sá
sem vinnur fyrir aurum sínum borgar
skatt af launum sínum, en sá sem græðir
á annan hátt heldur gróðanum.
Geir nefndi dæmi um mann sem hefði
1000 kr. á timann. Hann væri 4 1/2
klukkustund alla daga ársins að vinna
sér inn upphæð sem samkvæmt nýju
skattlögunum væri „hluthöfum” heimil
sem „skattfrjálst hlutafé”. Geir fékk
mikið klapp fáliðaðs hóps.
„Hilmar minn ..."
Matthias fjármálaráðherra hóf ræðu
sína fast og ákveðið, kunni á hljóðnema,
salinn og allt. Þetta var hans — ekki sið-
ur en fjármálaráðuneytið. Hann byrjaði
á „öryggi í varnarmálum”. „Þvi hefði
stjórnin séð fyrir, 200 mílur væru unnar
og þó verðbólgan væri ekki leyst væri
hún betri nú en þá er núverandi stjórn
tók við öllu á botni.”
Þá kom það eins og pantað kall framan
úr sal; spurning um hvernigMatti skildi
nú við. Matthías brá við eins og Ólafur
Thors var frægur fyrir á sínum tima og
sagði.
„Hilmar minn — og glotti fram i sal-
inn. „Þegar Viðreisnarstjórnin skildi við
hafði verðbólgan verið 6.4%, þegar
vinstri stjórnin skildi við var hún 54%.
Verðbólgan er Í8% á þessu ári.
Og Matthías vildi enn mæla við þenn-
an Hilmar og sagði: „Hlutdeild ríkis í
þjóðtekjum var í lok viðreisnarstjórnar
25%, var 30% eftir vinstri stjórn en nú
21%."
Síðan bætti Matthias við: „Ég er sam-
mála hverjum sem er um að þetta er ekki
nógu góður árangur. En við erum til-
búnir til að vinna með hverjum sem er
að betri árangri verði náð.”
Ráðherra ræddi um efndir vinstri
flokka á sínum loforðum og svaraði
Gunnlaugi Stefánssyni því að ekki hefði
hann (þ.e. M.Matt.) samið við Jón Sig-
urðsson um „milljón á mánuði”, það
hefði alþýðuflokksmaðurinn Eggert G.
Þorsteinsson gert. (Datt nú andlitið af
Gunnlaugi).
Matthías fór létt með að svara því sem
hann vildi af fyrirspurnum annarra
frambjóðenda. Taldi Sjálfstæðisflokk til-
búinn til samstarfs um lausn verðbólgu
sem væri höfuðvandi. En stefnumið,
leiðbeiningar eða loforð gaf hann engum
— enda krafðist þess enginn. Hann fékk
mikið klapp og langt, þetta var ekki erf-
iður fundur fyrir hann.
„Synir feðranna"
Gils Guðmundsson (G-l) talaði fyrst
Hann var ekki á móti samstarfi en
taldi menn ekki þurfa að liggja hund-
flata þó þeir ynnu með öðrum. Hann
spurði hvert stóru fjárfúlgurnar fyrir
samstarfið færu nú.
Sigurður Helgason, efsti maður V-
listans hafnaði því að útreið stjórnar-
flokka í sveitarstjórnarkosningum hefði
verið svo slæm vegna illkvittni, eins og
Ólafur G. Einarsson hafði haldið fram.
„Getur ekki verið að einhver hafi staðið
sig illa einhvers staðar? Getur ekki verið
að eitthvað sé að í Reykjavík?” spurði
Sigurður.
Hann las upp lýsingu úr „heimsbók”
sem átti við ítalska demókrata og taldi
hana eiga við Sjálfstæðisflokkinn eins og
hann er nú. „Hann er hættur að skilja
sitt hlutverk,”sagðiSigurður.
Síðan veifaði Sigurður skjölum sem
hann kallaði gögn um „samninga ríkis-
starfsmanna og stuðning við stjórnmála-
'flokkana.” Þetta fauk úr höndum hon-
um (kannski viljandi)„Já, svona fer þetta
allt,” sagði hann. (Þetta hreif að
nokkru).
Sigurður minnti á orð Bjarna Bene-
diktssonar um að þingmenn ættu ekki
að hafa fullt kaup. Það myndi tryggja að
þeir kæmu úr atvinnustéttum og
túlkuðu stéttanna mál. Hvað hefur
síðan gerzt,” spurði hann. (Sjá upphafs-
grein).
Kjartan Jóhannsson (A—1| reyndist
allharður. Hann kvað Framsókn enga
skýringu vilja gefa á þvi hvaða stefnu
hún fylgdi. Alþýðubandalagið benti í
þeim efnum á sína bæklinga, aðalliði í
mörgum flokkum og ennþá fleiri undir-
flokkar.
Hann benti á grátbroslegan grát Gils
þingmanns yfir hugsanlegu falli Geirs
Gunnarssonar sem alþingismanns.
„Þessi lygavefur hljóðaði eins fyrir 4
árum, fyrir 8 árum og fyrir 12 árum,”
sagði Kjartan.
Matthías Matt. reyndi við
verðbólguna, sagði Kjartan. Það gekk
ekki. Hann reyndi við kjördæmamálið.
Fulltrúar Samtakanna, Steinunn Finnbogadóttir, Guðleifur Guðmundsson og Sigurð-
ur Konráðsson.
Fulltrúar Framsóknar. Frá hægri: Jón Skaftason, Ragnheiöur Sveinbjórnsdóttir,
Haukur Níelsson og Gunnar Sveinsson.
Á hinum endanum (til hægri frá áhorfendum) sátu sjálfstæðismennirnir. F.v. Matthías
Mathiesen, Sigurgeir Sigurðsson, Salóme Þorkelsdóttir og Ólafur G. Einarsson.
um belging fjármálaráðherra, nefndi töl-
ur annarsvegar um 25 földun en hins
vegar um rúmlega fjórföldun á fjögurra
ára timabili.
Gils kvað Alþbl. aldrei hafa verið
móti kjördæmabreytingu til breytingar á
þingmannafjölda i Reykjaneskjördæmi.
Staðið hefði á öðrum. Alþbl. hefði hins
vegar ekki viljað samþykkja tillögur sem
gætu leitt til fækkunar þingmanna kjör-
dæmisins.
Gils talaði um stjórnmálaflutning
Morgunblaðsins sem „höfuðsóttarkind”
en taldi orð Matthíasar Bjarnasonar um
gróðapunga þau hvatlegustu sem felld
hefðu verið eftir sveitarstjórnarkosning-
arnar.
Gils gerði litið úr Rússagrýlu Salóme
á D-lista og lýsti..sonum feðranna”, þ.e.
A-lista drengjum, sem flugeldaskrauti,
rifnum blöðrum, vindlitlum og liklega
væri sprungið þegar hjá Vilmundi.
„Sama hringekjan"
Jón Skaftason (F-l) hafði ekki langan
tíma til afreka eftir málæði félaga sinna.
„Ég hef verið 20 ár í stjórnmálum og hér
heyrði ég enga nýja lausn, aðeins sömu
hringekjuna,” sagði Jón. „Allt sem and-
stöðuflokkarnir saka aðra um, hafa þeir
sjálfir gert.”
Jón kvað augljóst að tími bráða-
birgðalausna vandamála væri liðinn.
Verðbólguvandinn hefði forgang i allri
stjórnmálastarfsemi. Gera yrði kjara-
sáttmála ríkis og vinnandi stétta. Skipu-
legt átak yrði að gera til nýtingar auð-
linda sjávarins.
Hann kvað vinstri stjórnir engar
töfralausnir hafa á vandanum. „Vinstri
stjórn gagni ekki lengur — slíkan kött
þýddi ekki að kaupa i sekk.”
—ASt.
Alvara á ferðum? Fulltrúar G-listans. Frá hægri Karl Sigurbergsson, Gils Guðmunds-
son og Bergljót Kristjánsdóttir.
t Ó'i'V j.
Ekki eru þeir alveg opnir, alþýðuflokksmennirnir Gunnlaugur Stefánsson og Kjartan
Jóhannsson sem hér hvislast á.
Siguröur Helgason V-lista maður sýndi
tilþrif i ræðustól.
Það gekk ekki. Sjálfstæðisflokkurinn
reynir við margt — ekkert gengur. Hann
var stór og sterkur er hann átti
forystumenn. Nú er það liðin tíð — og
þótt flokkurinn sé stór er hann ekki
sterkur.
K.jarlan talaði um að ráðamenn hefðu
viljað fá „kjölfestu í þjóðfélagið”. Mikið
væri ef þeir væru ekki orðnir sjóveikir á
volkinu. Minnsta kosti væri hætt að tala
um kjölfestu.
„Siðast er þeir tóku við sögðu þeir að
allt væri að hrynja. Fengu þeir ekki
tækifæri? Þeir hafa stjórnað í 4 ár?
Hvað hefurgerzt?”
Steinunn Finnbogadóttir flutti loka-
orð Samtakanna og sagði á leiðinni í
stólinn og i honum nokkra Hannibals-
brandara. Það fór henni ekki eins vel og
honum á sinni tíð. Hún ein svaraði þeirri
fullyrðingu framsóknarfulltrúa að öll
framfaraskref í landhelgismálum væru
Framsókn að þakka ( — og kenna). „Ég
hélt ég færi að heyra að á Islandi hefði
enginn róið til fiskjar nema framsóknar-
menn,” sagði Ijósmóðirin. -A5t.
Guðlaugur Guðmundsson (F—6)
einnig af F-lista kvaö jafnrétti kynja
meira en orðin tóm, minnti á kvennadag
og að F-listinn væri sá eini sem væri
með 2 konur í efsta sæti og 3 i öðru
sæti. Hann fór á sömu brautir og hinir.
Gunnar Sveinsson (B—2) kvað alla
framtíð velta á að framsóknarmenn
tækju þátt í henni. Hann var meðal
þeirrá fyrstu sem nefndu fisk í þessu fisk-
lausa kjördæmi, ræddi um að rétta við
ofveidda stofna, nýta landgrunnið og
byggðastefnu. Hann gat talna sem
sýndu að Reykjaneskjördæmi hefði á sl.
kjörtímabili notið 20,5% af framlögum
til menningarmála, Reykjavík kæmi
næst með 19% og aðrir minna.
Hann var sá eini sem minnti á hita-
veitu Suðurnesja, er hann sagði vera
sérkapitula og spara milljarða. Hann
kvað engri rikisstjórn i 30 ár hafa
auðnazt að ráða við verðbólguna.
Eiríkur Rósberg fékk aftur orðið og
ítrekaði stefnuskrá Stjórnmálaflokksins.
Hann deildi á óreiðu og flokkakerfið sem
öllu réði og bað menn vara sig á skulda-
söfnuninni sem hefði ógnvekjandi
hættur í för með sér.
Sjö listar í kjöri
F-listi
A-listi B-listi D-listi Samtaka f ijálslyndra G-listi S-listi V-listi
Alþýðuflokksins: Framsóknarflokksins: Sjálfstœðisflokksins: og vinstri manna Alþýðubandalagsins Stjórnmálaflokksins Óháðra kjósenda
l.KjartanJóhannsson 1. Jón Skaftason 1. Matthías Á. Mathiesen 1. Steinunn Finnbogadóttir l.GilsGuðmundsson I. Eirikur Rósberg 1. Sigurður Helgason
2. Karl Steinar Guðnason 2. Gunnar Sveinsson 2.0ddurólafsson 2. Þorgerður J. Guðmundsdóttir 2.Geir Gunnarsson 2. Syeinn Sigurjónsson 2. Dr. VilhjálmurGrímurSkúlason
3. Gunnlaugur Stefánsson 3. RagnheiðurSveinbjamardóttir 3. ólafur G. Einarsson 3. Sigurður Konráðsson 3. Karl G. Sigurbergsson 3. VilborgGunnarsdóttir 3. Gísli Kristinn Sigurkarlsson
4. Ólafur Bjömsson 4. Haukur Níelsson 4. Eirikur Alexandersson 4. Hannibal Helgason 4. Bergljót S. Kristjánsdóttir 4. Davið ólafsson 4. Sigurpáll Einarsson
5. Guðrún Helga Jónsdóttir 5. Sigurður J. Sigurðsson 5. Salome Þorkelsdóttir 5. Dóra Sigfúsdóttir 5.SvandísSkúladóttir 5. Einar Dagbjartsson 5. Sigurður Héðinsson
6.öm Eiösson 6. Dóra Sigurðardóttir 6. Sigurgeir Sigurðsson 6. Guðleifur Guömundsson 6. Björn Ólafsson 6. Anna Kristjánsdóttir 6. JúlíusSigurðsson
7. Jórunn Guðmundsdóttir 7. Halldór Ingvason 7. Ásthildur Pétursdóttir 7. Jens J. Hallgrimsson 7. Albina Thordarson 7. Ásgeir Heiðar 7. Kristján Sveinn Kristjánsson
8. Reynir Hugason 8. Gylfi Gunnlaugsson 8. Hannes H. Gissurarson 8. Sigurður Ingi Hilariusson 8. Kjartan Kristófersson 8. Sigfús Eiríksson 8. ValgerðurSveinsdóttir
9. Jón Hólmgeirsson 9. Valtýr Guðjónsson 9. EUert Eiriksson 9. Margrét Pálsdóttir 9. Njörður P. Njarðvík 9. Sigriður H. Jóhannesdóttir 9. Ingólfur Pétursson
10. EmilJónsson. 10. Hrafnkell Helgason. 10. Axel Jónsson. 10. Andrés Kristjánsson. 10. Magnús Lárusson 10. Sigurður Þorkelsson 10. Guðni Jónsson.