Dagblaðið - 01.12.1978, Síða 10
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978.
Rúmenía:
CEAUSESCU HELDUR
FRELSISRÆÐUNA í DAG
— mun réttlæta sjálfstæftisbáráttuna gegn Sovétríkjunum ogítreka
fyrri yfirlýsingar
Ræöu þeirrar sem Causescu forseti
Rúmeniu ætlar að halda í dag er beðið
með mikilli eftirvæntingu. Þar er talið
víst að hann muni undirstrika þá skoð-
un sína að riki undir kommúnista-
stjórn hafi rétt til að ákveða málefni
sin sjálf án afskipta og skipana frá
Sovétríkjunum.
Haft er eftir háttsettum embættis-
mönnum i Búkarest, að verið geti að
ræða forsetans verði enn ein ögrun
hans gagnvart forsjá Sovétríkjanna en
samband Rúmeniu við þau hefur verið
mjög stirt meginhluta þessa árs. Búizt
er við að Ceausescu forseti muni í
ræðu sinni réttlæta ástæðurnar fyrir
því að Rúmeníustjórn hefur sett sig
uppá móti Moskvuvaldinu.
Samskipti Sovétríkjanna og
Rúmeníu hafa veriö stirð undanfarin
ár og hafa þar komið til siaukin sam-
skipti Rúmeníu við Kína. Rúmenar
hafa einnig haft uppi sjálfstæðar skoð-
anir á ýmsum málum svo sem deilum
araba og ísraelsmanna og eru þeir eina
Austur-Evrópuþjóðin, sem enn hefur
stjórnmálasamband við ísrael.
Síðan Ceausescu forseti neitaði að
fallast á að auka hernaðarútgjöld
lands síns hefur hann flutt fjórar
ræður þar sem hann hefur ítrekað
skoðanir sinar og sjálfstæði Rúmeníu
gagnvart Sovétríkjunum. Margir sér-
fræðingar telja að forsetinn sé á þeirri
skoðun að stjórnin í Moskvu eigi nú
nóg með að leysa forustuvandamál sín
innan dyra og þvi sé rétti tíminn til að
auka sjálfstæði og áhrif Rúmena.
Ceausescu forseti mun halda ræðu
sína á fundi flokksleiðtoga og þing-
manna, sem formlega er haldinn
vegna þess að liðin eru 60 ár frá þvi að
Rúmenia varð frjálst og sameinað ríki
í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar.
í>
Ceausescu forseti Rúmenlu.
Bandaríkin: _
GETA HOPSJALFS-
MORD ORDHJ HJÁ
ÖDRUM TRÚFLOKKUM?
— mótmælaaðgerðir við höf uðstöðvar trúf lokks Kóreumannsins Moons í
NewYork
Hópur fólks safnaðist í gær saman
fyrir framan aðalstöðvar trúflokks
Kóreumannsins Sun Myung Moon i
New York i Bandaríkjunum. Vildi
hópurinn mótmæla slíkum sértrúar-
söfnuðum og vara við að atburðir eins
og fjöldasjálfsmorðin í Guyana gætu
endurtekið sig. Flestir mótmælend-
anna eru ættingjar félaga í ýmsum trú-
flokkum víðs vegar um Bandaríkin.
Hrópuð voru slagorð eins og —
foreldrar berjist fyrir börnum vkkar —
— niður með sértrúarflot.'*
Fólkið heldur þvi fram að börnum
þeirra og ættingjum sé haldið nauðug-
um, heilaþvegnir og sé misþyrmt á
ýmsan hátt.
Einn í hópnum sem safnaðist saman
fyrir utan aðalstöðvar Moons sagði
frá því að sonur hans hefði gengið sér-
trúarflokki á hönd fyrir sex árum og
hefði hann ekki fengið að sjá hánn í
meira en fjögur ár. Er fjölskyldan
reyndi að hafa samband við soninn
væri henni skýrt frá því að ef hún
kæmi riærri stöðvum trúflokksins
mundi hún ekki sleppa lifandi.
Haft var eftir ungri konu sem ekki
hefur séð frænku sina í sex ár, þrátt
fyrir itrekaðar tilraunir að hún væri
þess fullviss að atburðirnir hjá trú-
flokki Jim Jones i Guyana gætu
endurtekið sig hjá öðrum sértrúar-
flokkum viðs vegar um Bandaríkin.
Talsmaður trúflokks Moons, þar
sem mótmælendurnir söfnuðust
saman, sagði að slíkt væri óhugsandi
innan þeirra samtaka. Félagar þeirra
einangruðu sig ekki frá umheiminum
heldur hjálpuðu til við að byggja hann
upp.
Hálfmáni
Kr. 398.000.-
Staðgreiðsluverð
Kr. 358.000.- 2?
Síðumúla 6
REUTER
Argentína:
Biðja hæsta-
rétt að f inna
1542 horfna
ættingja sína
Ættingjar '1542 manna í Argentinu,
sem horfið hafa að því er virðist spor-
laust eftir að hafa verið handteknir og
færðir á brott af vopnuðum mönnum,
hafa leitað til hæstaréttar landsins. Kom
þetta fram i yfirlýsingu, sem samtök,
sem berjast fyrir almennum mannrétt-
indum, gáfu út í gær. 1 samtökunum eru
meðal annars bæði lögmenn og prestar.
Að sögn hafa venjulegar fyrirspurnir
til yfirvalda ekki borið neinn árangur og
þvi einu verið svarað til að ekki væri
vitað til að þetta fólk hafi verið handtek-
ið.
Venjan mun vera sú, að handtök-
urnar fari fram opinberlega og þá venju-
lega framkvæmdar af einkennisklædd-
um mönnum. Segir í yfirlýsingu mann-
réttindasamtakanna, að aðfarirnar hafi
gefið öllum almennum borgurum tilefni
til að ætla að þar væri öryggislögregla
landsins áferð.
London:
Rolling Stones
félagi skilur
Sjö ára hjónabandi Ron Wood gitar-
leikara rokkhljómsveitarinnar Rolling
Stones og eiginkonu hans Chrissie lauk í
gær er henni var veittur skilnaður fyrir
rétti í London vegna framhjáhalds eigin-
mannsins. Fyrir réttinum var upplýst að
ástæðan fyrir skilnaðinum væri sýn-
ingarstúlka að nafni Jo Howard sem
fæddi Wood barn í síðasta mánuði.
Mexíkó:
Dótturfisk-
framleiðanda-
rænt
Dóttur auðugs mexíkansks fiskfram-
leiðanda var rænt í gær þar sem hún var
á ferð í bifreið í Mexíkóborg. Ræningj-
arnir krefjast tveggja milljóna dollara
lausnargjalds. Er það jafnvirði nærri því
eins og hálfs milljarðs íslenzkra króna.
Allsherjarþingið:
Vítur fyrir
samstarf við
Suður-Afríku
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
samþykkti vítur á meðlimi Atlantshafs-
bandalagsins fyrir að vinna ekki nægi-
lega gegn minnihlutastjórn hvítra
manna í Suður-Afríku. Samþykkt var að
víta öll ríki, sem hefðu einhver samskipti
við Suður- Afrikustjórn, hvort heldur er
á sviði stjórnmála, efnahags, hernaðar,
menningareða íþrótta.
Einnig var samþykkt að víta þær
þjóðir sem ekki færu að fullu og öllu
eftir viðskiptabanni þvi, sem Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna samþykkti gegn
Ródesíu. Tillagan á allsherjarþinginu
var samþykkt með 92 gegn 19, 20
greiddu ekkiatkvæði.
Marokkó:
Sökktu togara
og drápu
sjö sjómenn
Spænska stjórnin hefur harðlega
mótmælt þvi við stjórnina í Marokko að
Polisarioskæruliðar sökktu spænskum
togara og drápu áhöfn hans, sjö manns.
Segja Spánverjar að þetta hafi gerzt við
strönd Marokkó. Skæruliðarnir hafa
opinberlega lýst sök á hendur sér fyrir
þennan verknað.