Dagblaðið - 01.12.1978, Qupperneq 18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978.
18
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
mm
Breiðablik
með sundtíma
í Garðabæ
„Sunddeild Breiöabliks hefur nú fengiö aðstöðu til
æfinga tvo daga i viku 1 sundlaug Garðabæjar og bætir
það mjög úr því aðstöðuleysi, sem sundfólk deildar-
innar hefur búið við undanfarin ár,” sagði Sveinn
Oddgeirsson, formaður deildarinnar, I viðtali við DB i
gær. Sundlaug Kópavogs er það lítil, að hún rúmar
ekki það marga á æfingu að unnt hafi verið að bæta við
nýjum félögum — fólki, sem áhuga hefur á að æfa
sund. Einnig cr sundlaugin ólögleg hvað varðar lengd
laugar. Hún er 16 2/3 metrar en sundlaugin i Garðabæ
25 metrar. Með þessari breyttu aðstöðu getur sund-
deild Breiðabliks nú tekiö við nýjum félögum.
„Við höfum fengið nýjan þjálfara til deildarinnar.
Það er hinn kunni spndmaður Axel Alfreðsson og
hann æfir sundfólk Breiðabliks sex daga í viku.
Árangur af starfi hans er þegar farinn að koma í Ijós
til dæmis hefur Margrét Sigurðardóttir bætt telpna-
met 13—14 ára í 50 metra flugsundi um 3/10 úr sek.
og í 200 m skriðsundi um 2.2 sek. Katrín Lillý Sveins-
dóttir hefur sett 7 telpnamet í flokki 12 ára og yngri og
t.d. bætt metið í 800 m skriðsundi um 18 sek og í 200
m skriðsundi um 8.2 sek. Ennfremur á Steingrímur
Davíðsson 6 met.
Aðrir sem æfa með sunddeildinni hafa bætt tíma
sinn verulega og búast má við að sunddeildin í heild
eigi eftir að sýna bæjarbúum að það sé hægt að æfa þó
aðstaða sé léleg.
Sunddeildin getur bætt við sig áhugasömu fólki, er
hefði áhuga á að æfa sund.
Æfingatimar deildarinnar eru sem hér segir:
í Sundlaug Kópavogs:
Mánudagakl. 19:30—21:30
Fimmtudaga kl. 20:30—22:30
Föstudagakl. 19:30—21:30
|1 SundlaugGarðabæjar:
Þriðjudagakl. 20:15—22:00
Laugardaga kl. 8:00—9:30
Miðvikudaga — þrekæfingar.
Bæjarstjórn Kópavogs hugar nú að nýrri sund-
laugarbyggingu og vonar sunddeildin að bæjar-
stjórnin geri meira en hugsa málið ” sagði Sveinn
Oddgeirsson að lokum.
Allison fékk
banninu aflétt
Malcolm Allison, einum tilþrifamesta framkvæmda-
stjóra í ensku knattspyrnunni, sem nú stjórnar Ply-
mouth í 3. deild, var í gær gefið leyfi af enska knatt-
spyrnusambandinu til að vera á hliðarlinu leikvalla i
leikjum liðs sins.
Allison var settur í bann 1968, þegar hann lét linu-
vörð heldur betur heyra til sin i leik milii Manch.City
og Southampton. Hann var þá hjá Man.City og náði
mjög góðum árangri með liðið. Þetta er i fjórða sinn,
scm Allison reynir að fá banninu aflétt — og tókst það
loks í gær. Hann verður nú loks meðal varamanna
sinna á ný við hliðarlinu.
íslandsmet í
lyftingum
fatlaðra
íSvíþjóð
Nýlega fóru fjórir keppendur á vegum iþróttafélags
fatlaðra I Reykjavfk i keppni i lyftingum — bekk-
pressu — á alþjóðamót fatiaðra, sem haldið var i
Solna i Sviþjóð.
Jón Eiriksson kcppti í 52 kg flokki. Lyfti 45 kg sem
er sama og íslandsmet hans I þessum flokki.
Jónatan Jónatansson keppti f 56 kg flokki og lyfti
67.5 kg.
Sigmar Ó. Mariasson keppti i 75 kg flokki og lyfti
100 kg, scm er nýtt íslandsmet. Fyrra mct hans var 95
kg.
Gisli Bryngeirsson keppti í 82.5 kg flokki og lyfti
92.5 kg sem einnig er nýtt íslandsmet. 10 kg betra en
hann átti áður.
Þjálfari og fararstjóri i ferð þessari var Július
Arnarsson fþróttakennari, sem verið hefur þjálfari
ÍFRfrá upphafl.
D-vakt lögreglunnar i Reykjavík —
vakt Rúnars Guðmundssonar aðalvarð-
stjóra — bar sigur úr býtum í knatt-
spyrnukeppni lögreglumanna innanhúss.
Lék til úrslita við C-vaktina og sigraði 3-
2. Mörk D-vaktarinnar skoruðu Stein-
dór Gunnarsson, sem nú leikur með
íslenzka landsliðinu i handknattleik i
Frakklandi, tvö, og Iiaukur Ásmunds-
son. Leikið var i iþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi og Grétar Norðfjörð, dómarí
og lögregluvarðstjóri, dæmdi alla leiki f
keppninni.
Á myndinni að ofan er sigursveitin.
Efri röð frá vinstri: Július Árnason,
Steindór Gunnarsson, Óskar Bjartmarz
og Haukur Ásmundsson. Fremri röð:
Rúnar Guðmundsson og Kristinn Peder-
sen, fyrírliði.
DB-mynd Sveinn Þormóðsson
Ólafur H.
Jónsson
Handboltapunktar
frá V-Þýzkalandi
Axel
Axelsson
Leikbannið á Spengler
var stytt í sex vikur
Dankersen 27. nóvember 1978.
Það er greinilegt aö Hofweier er lið
Bundesligunnar þessa stundina. Eftir 10
umferðir hefur liðið aöeins tapað einu
stigi. Liðið sigraði Dankersen um
sfðustu helgi 21-16 en mjög erfirðir leikir
eru framundan hjá liðinu. Annan desem-
ber i Gummersbach og 16. desember i
Grosswallstadt.
Lið Dankersen mátti þola tvö töp á
fjórum dögum. 1 fyrri viku lék liðið gegn
Kiel í Ostsee-höllinni. Sá leikur var mjög
jafn fyrstu 40 mínúturnar — staðan 10-
9 Kiel í hag — en þá náði lið Kiel góðum
kafla. Komst i 14-10 og vann að lokum
með 18-14. Lið Dankersen náði sér
aldrei á strik í þessari viðureign — leik-
menn virkuðu taugaóstyrkir og slappir.
Hvað hinir 7000 áhorfendur i Kiel hafa
mikið að segja fyrir heimaliðið er eigin-
lega ólýsanlegt. Baulað á hverja sóknar-
lotu gestanna en heimaliðið óspart
hvatt. Flest mörk Dankersen skoruðu
Axel 4/2, Waltke 4 og Ólafur 2.
Úrslit leikja um síðustu helgi urðu
þessi:
Leverkusen — Milbertshofen 19-19
Nettelstedt —Hilttenberg 22-14
Gummersbach — Grambke 23-15
Kiel — Göppingen 14-19
Rheinhausen — Gensungen 13-18
Hofweier — Dankersen 21-16
Rintheim — Grosswallstadt 13-13
Hofweier fékk Dankersen I heimsókn
að þessu sinni. Áhorfendur 6000 í
Ortenanhalle í Offenburg og þeir urðu
vitni að skemmtilegum og spennandi
leik, sem var öllu jafnari en lokatölur
segja til um. Um dómgæzluna verður þó
að segjast að hún var ekki í samræmi við
gæði leiksins — til þess hagnaðist heima-
liðið um of. Þegar talað er um lið Hof-
weier verður að skrá einn leikmanninn í
hærri gæðaflokk en aðra. Arno Ehret er
nefnilega yfirburðamaður og árangur
liðsins til þessa er mest honum að þakka.
Af 199 mörkum liðsins hefur þessi 1.79
m hái leikmaður skorað 80. Þrettán
urðu mörkin hans á laugardaginn, þar af
fimm úr vítaköstum. Ótrúlegt hvernig
einn leikmaður getur skorað á móti jafn
sterkri vörn og Dankersen hefur yfir að
ráða. Sennilega hefur Dankersen aldrei
leikið gegn jafn sterkum einstaklingi og
Arno Ehret var á þessum degi. Hofweier
hafði yfirleitt yfirhöndina i leiknum —
komst í 6-2, 8-4,10-5 en staðan í hálfleik
var 10-9. Dankersen jafnaði strax i siðari
hálfleik — tveimur leikmönnum var þá
vísað af leikvelli með stuttu millibili og
Hofweier náði forustu á ný. 14-12 var
staðan eftir 45 mínútur, þegar einn
leikmaður Dan.kersen var sendur til
hvíldar. Hofweier jók forustuna og vann
örugglega 21-16. Ehret skoraði 13/5 fyrir
Hofweier, Schieske 2, Schobel 2, og
Leibiger 2. Fyrir Dankérsen skoruðu
Axel 8/3, Waltke 3/1, von Oepen 2,
Grund 2 ogólafur 1.
Aftur voru 7000 áhorfendur mættir i
Kiel, þegar Göppingen kom í heimsókn.
Leikmenn Göppingen létu þá ekkert
hafa áhrif á sig — léku rólega og yfirveg-
að. 14-19 urðu úrslitin Göppingen i hag.
nokkuð, sem enginn hafði reiknað með.
Salzer 4, Bressmer 4 og Busch 4 skoruðu
flest mörk Göppingen en íslendingarnir
Gunnar og Þorbergur skoruðu ekki.
Grambke tók það til ráðs i Gummers-
bach að setja mann til höfuðs Joachim
Deckarm. Björgvin Björgvinsson fékk
það hlutverk. Það er nú svo að lið
Gummersbach hefur yfir það jöfnum og
sterkum leikmönnum að ráða, að lítil
áhrif hefur þó einn þeirra sé tekinn úr
umferð. Þó náði Grambke sterkum leik i
byrjun og hélt jöfnu upp í 7-7 eftir 20
mínútna leik. Kæruleysi hvað skot
snertir hjá útileikmönnunum varð til
þess, að Gummersbach náði hverju
hraðaupphlaupinu á fætur öðru og
staðan í hálfleik var 11-7. Leikmenn
Grambke gáfust þó ekki upp og tókst að
minnka muninn i 14-12 en af sömu or-
sökum og i fyrri hálfleik náði Gummers-
bach afgerandi forustu á ný. Sigraði 23-
15. Wunderlch 6/3, Fey 3 og Rosendahl
3 skoruðu flest mörk Gummersbach.
Björgvin skoraði tvö mörk I leiknum.
Það sem mest kom á óvart var jafn-
tefli Grosswallstadt í Rintheim. Klaus
Zöll, þjálfari Grosswallstadt, var mjög
óánægður að leik loknum — sérstaklega
með sóknarleikinn. Hann lét einnig i það
skína að sigurvissa meðal leikmanna
Grosswallstadt hefði haft áhrif. Rint-
heim komst i 5-2 I byrjun og hafði yfir 9-
7 í hálfleik. 1 lokin mátti Grosswallstadt
þakka fyrir að ná öðru stiginu.
Staðan eftir 10 umferðir er þessi:
Hofweier 10 9 1 0 199-155 19
Gummersbach 10 7 2 1 169-131 16
Grosswallstadt 10 7 2 1 180-147 16
Göppingen 10 6 I 3 183-167 13
Dankersen 10 6 1 3 173-159 13
Nettelstedt 10 5 2 3 188-156 12
Grambke 10 4 2 4 158-185 10
Kiel 10 3 2 5 151-158 8
Milbertshofen 10 3 2 5 162-172 8
Húttenberg 10 3 1 6 173-187 7
Gensungen 10 3 I 6 166199 7
Rintheim 10 1 2 7 147-168 4
Rheinhausen 10 2 0 8 148-179 4
Leverkusen 10 0 3 7 157-191 3
Um síðustu helgi var dæmt í máli
Horst Spengler, fyrirliða Húttenberg og
þýzka landsliðsins. Dómsorð hljóðaði
upp á sex vikna leikbann. Þetta var
áfrýjunardómur en Spengler fékk fjög-
urra mánaða leikbann I undirrétti. Þessi
dómur er nokkuð furðulegur þar sem
framburður vitna í málinu var Spengler
nokkuð óhagstæður. Án efa spilar per-
sónan Horst Spengler stórt hlutverk
hvað dóminn snertir. Óþekktur leik-
maður hefði eflaust fengið strangari
dóm en fjóra mánuði, svo ekki sé minnzt
á sex vikur.
Vlado Stenzel, landsliðsþjálfari, getur
verið ánægður. Hann hafði gagnrýnt
dómstólana harðlega eftir að Spengler
fékk dóm sinn i undirrétti og sagði að
mesta refsing — yfir fjóra mánuði —
væri sennilega „dauðarefsing”.
Kveðja,
Axel Axeisson,
Ólafur H. Jónsson.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978.
23
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Axel skoraði 10 mörk er
ísland vann B-lið Frakka!
— Kristján Sigmundsson, markvörður, bezti maður íslenzka liðsins í leiknum í gærkvöld
— ísland sigraði með eins marks mun 22-21 ítvísýnum leik
„Það var greinileg þreyta i strákunum
eftir leikinn erflða við Pólland á miðviku-
dagskvöld — og eins og slappað væri af
eftir alla spennuna, sem var i sambandi
við þann leik, þegar við lékum við B-
landsliö Frakklands í Mantes í gærkvöld
Sigur vannst þó — en aðeins með eins
marks mun, 22—21. Axcl Axelsson var
í miklum ham í markaskoruninni eins og
áður. Hann skoraði tíu mörk í leiknum
— fimm úr vítaköstum — og hefur því
skorað 27 mörk I leikjunum þremur á
mótinu i Frakklandi — það cr gegn
Túnis, Póllandi og nú B-liðinu. En
Kristján Sigmundsson, markvörður, var
þó að minu áliti bezti maður islenzka
liðsins í gærkvöld. Hann varði oft mjög
vel — vitakast, eftir hraðupphlaup
Frakka, einnig langskot, og var í
markinu i 50 mínútur. Siðustu tíu mínút-
urnar lék Ólafur Benediktsson í
markinu,” sagði Jón Magnússon, farar-
stjóri íslenzka landsliðsins, þcgar DB
ræddi við hann í Paris í morgun.
„Við höfðum ekki séð iþróttahöllina i
Mantes — ekki Nantes þar sem við
héldum upphaflega að leikurinn ætti að
fara fram — fyrr en við komum þar i
gær. Þetta er rétt fyrir utan Parisarborg
Kaserer
sigraði
Monika Kaserer, austurríska skiða-
konan fræga, sem er 26 ára, sigraði í
gær í stórsvigi I gær í Stubai í Austur-
riki. Keppnin var liður í heimskeppninni
— world series. t öðru sæti varð Christa
Kinshofer, V-Þýzkalandi, tólf sekúndu-
brotum á eftir Moniku. í þriðja sæti var
Maria Teresa Nadig, Sviss.
Vegna snjóleysis i frönsku ölpunum
hefst keppni heimsbikarsins ekki i Val
D’Isere í Frakklandi um aðra hclgi eins
og fyrírhugaö hafði verið. þess í stað
verður keppt i Austurríki og á ítaliu.
Forráðamenn FIS — alþjóðaskíðasam-
bandsins — tóku þessa ákvörðun i gær
— en aö öðru leyti verður reynt að fylgja
því keppnisformi, sem ákveðið hafði
verið.
og gólfið í íþróttahöllinni í Mantes er
glerhált. Strákarnir máttu hafa sig alla
við að fóta sig. Þetta minnti okkur í
ýmsu á leikinn við Honved í Ungverja-
landi hér á árum áður en var þó ekki
alveg eins slæmt. Það var sleipt en ekki
virtist það há Frökkunum. Þeir, sem
fylgzt hafa með keppninni, voru á einu
máli um að þetta hefði verið bezti leikur
franska B-liðsins í keppninni. Það eru
ungir leikmenn i liðinu og nokkrir þeirra
munu verða i franska liðinu i B-keppn-
inni á Spáni.
Við náðum okkur ekki á strik í
leiknum og eins og ég sagði áður er farið
að gæta þreytu hjá leikmönnum okkar.
Þeir eru ekki vanir því að leika svona
dag eftir dag og æfa einnig. Við sleppt-
um þó æfingunni, sem fyrirhuguð var i
gær, enda komum við ekki heim á
hótelið í Paris fyrr en kl. tvö um nóttina
eftir Pólverjaleikinn. Þar var um talsvert
ferðalag frá Rouen að ræða. En í dag
verður ekkert gefið eftir. Við förum á
æfingu um 10-leytið og i kvöld verður
leikið við A-landslið Frakklands i St.
Maur,” sagði Jón ennfremur.
Leikurinn í gær við B-landslið
Frakka gekk þannig fyrir sig, að Hörður
Harðarson skoraði fyrsta mark leiksins.
Frakkar jöfnuðu. Þá fékk Ólafur Jóns-
son, Víking, viti, sem \ >el skoraði úr,
og á 6. min. kom Ólafur I landi i 3—1.
Hörður skoraði fjórð.i mml íslands, 4—
2,en Frakkar jöfnuðu í 4—4 Þáskoraði
Axel, 5—4, og um .uðjai. ''vrri hálf-
leikinn var jafnt 5 —5. Sigurður
Gunnarsson skoraði sjolta mark Íslands,
6—5, en Frakkar jöfnuðu. Komust á 19
mín. í fyrsta sinn yfir 6—7 og síðan 6—
8. Þorbjöm Jensson og Axel jöfnuðu.
8—8. Frakkar koniust aftur yfir, þegar
þeir skoruðu úr viti. Siðan fylgdu tvö viti
íslands, sem Axel skoraði úr en Frakkar
jöfnuðu i 10—10. Sigurður. Ólafur H.
Jónsson og Axel komu íslandi í 13—10
en Frakkar skoruðu siðasta markið í
fyrri hálfleiknum. Staðan í leikhléi 13—
II.
1 byrjun síðari hálfleiks kom Ólafur
Víkingur íslandi í 14—11, Ólpfur H.
Jónsson í 15—13 og Frakkar minnkuðu
muninn í 15—14. Axel skoraði 16—14
íslenzka liðsins með tilþrifum.
og skoraði einnig næstu þrjú mörk
íslands, tvö úr vítum. Frakkar svöruðu
alltaf og jjeim tókst að jafna i 19—19 á
22. min. Ólafur Jónsson Víking skoraði
20. mark íslands á 25. mín. en Frakkar
jöfnuðu 20—20. Ólafur H. Jónsson kom
íslandi í 21—20 og Páll Björgvinsson.
sem kom þá inná í 22—20. Frakkar
skoruðu siðasta markið í leiknum og
lokatölur urðu því 22—21.
Mörk íslands í leiknum skoruðu þvi
Axel Axelsson 10/5, Ólafur Jónsson 3,
Ólafur H. Jónsson 3, Hörður Harðar-
son, 2, Sigurður Gunnarsson 2, Páll
Björgvinsson I og Þorbjörn Jensson I.
Þeir sem hvíldu að þessu sinni voru
Jens Einarsson, Stefán Gunnarsson,
Þorbjörn Guðmundsson, Hannes Leifs-
son og Viggó Sigurðsson en Viggó mun
leika fyrsta leik sinn í keppninni í kvöld.
„Þeir Axel og Ölafur halda heim til
Vestur-Þýzkalands í dag og leika þvi
ekki meira á mótinu hér i Frakklandi.
Umferð verður I Bundeslígunni um
helgina og Axel og Ólafur leika þá með
Dankersen við Rheinhausen. Islenzka
landsliðinu hefur verið mjög mikill
styrkur af þeim hér í Frakklandi — þeir
hafa báðir leikið skinandi vel. Eftir
æfinguna i dag förum við svo til sendi-
herra íslands í París, sem hefur boðið
okkur til sín — en svo förum við að
undirbúa leikinn við A-landslið Frakka.
Enn hefur ekki verið ákveðið hvernig
liðsskipan verður i kvöld.
Liðsandinn hér hjá okkur hefur verið
alveg einstakur — þetta eru frábærir
piltar og ferðin hefur verið hin ánægju-
legasta og lærdómsríkasta í alla staði.
Mótinu lýkur á morgun, laugardag. og
þá leikurn við gegn Kínverjum i
Coubertin. Heim kemur liðið um miðjan
dag á sunnudag.” sagði Jón Magnússon
að lokum.
Tveir aðrir Ieikir voru háðir á mótinu í
gær. Pólland vann Túnis 33—22 og A-
lið Frakklands vann Kína með eins
marks mun, 23—22.
Þorsteinn
hættir í mót-
mælaskyni
Þorsteinn Hallgrimsson hefur sagt af
sér formcnnsku í nefnd, sem undirbúið
hefur tillögur um framtiðarstefnu Körfu-
knattlcikssambandsins á næstu árum.
Mun Þorsteinn gera þetta í mötmæla-
skyni við meðhöndlun stjórnar KKÍ á
máli Paul Stewart, leikmanns ÍR, sem
var dæmdur i eins leiks bann cftir átök
við Stefán Bjarkason, Njarðvík, á auka-
móti á Keflavíkurflugvelli. Þorsteinn
Hallgrimsson ætlar ekki að starfa á
vegum KKÍ þetta árið.
Kemur þetta fram í Fréttabréfi Körfu-
knattleikssambandsins en þcss er einnig
getið að dómararnir Sigurður Valur
Halldórsson, Stefán Kristjánsson og
Kristján Sigurðsson, allir í ÍR, hafl
ákveðið að dæma ekki fyrst um sinn.
-ÓG.
Árósa-KFUM í efsta
sæti í 1. deildinni
Árósa-KFU.M liðið, sem Gunnar Einarsson landsliðsmarkvörður úr Staðan i 1. deild í þannig: Danmörku er nú
Haukum leikur með I 1. dcild í Dan- ÁrhusKFUM 7 156-111 14
mörku, er nú komið I efsta sætið i deild- Fr. KFUM 8 201-147 13
inni. Fyrr í vikunni sigraði Árhus- SAGA 7 147-120 10
KFUM Skovbakken, sem einnig er Helsinger 1F 7 120-116 8
Árósa-lið með 24-12 eftir 11-8 í hálfleik. Holte 7 132-129 6
Jan Have skoraði flcst mörk KFUM- AGF 7 114-131 5
liðsins í leiknum eða sjö — en danski ÁlborgHK 8 155-185 4
landsliðsntaðurinn Erik Bue var mark- Skovbakken 7 127-159 4
hæstur hjá Skovbakken með fjögur FIF 7 109-147 4
mörk. Helsingor FC 7 117-140 2
Heimsmeistarakeppnin í golfi á Hawaii:
Islendingar í neðsta sæti
Þeim Björgvini Þorsteinssyni og
Ragnari Ólafssyni gekk afleitlega á
fyrsta degi heimsmeistarakeppninnar i
golfl á Hanalei á Hawaii í gær. Björgvin
lék á 85 högggm og Ragnar á 87 högg-
um og ísland var i neðsta sæti eftir
keppnina i gær með samtals 172 högg.
Kanada var i fyrsta sæti á 137 höggum.
Þeir Dave Barr og Dan Hallderson léku
á 67 og 70 höggum. Ekki tókst öllum
þjóðunum að Ijúka keppninni i gær —
írland, Venezúela, Burma, Finnland,
Belgía og Júgóslavia áttu að Ijúka fyrstu
umferðinni snemma í morgun.
Keppendur á mótinu eru frá 48
þjóðum og gekk keppnin hægt fyrir sig í
gær. Suður-Kórea náði beztum árangri
um morgunin og hafði forustu fyrstu
þjóðanna, sem luku keppninni í gær. En
svo komu Kanadamennirnir og Dave
Barr náði beztum árangri allra
keppenda. Lék á 67 höggum — fimm
undir pari vallarsins. Þegar Dan
Hallderson lék á 70 höggum náði
Kanada tveggja högga forustu i keppn-
inni. 1 öðru sæti voru keppendurnir frá
Filippseyjum með 139 högg. Eleuterio
Nival lék á 69 höggum og Rady Lavares
á70 höggum.
Bandaríkin, sem eru talin hafa mikla
sigurmöguleika í keppninni, var á 141
höggi. John Mahaffey lék á 69 höggum
og Andy North, sem sigraði á opna
bandaríska meistaramótinu í sumar —
US open — lék á 72 höggum. Eins og
áður ségir gekk keppnin hægt fyrir sig og
í sumum riðlunum tók keppnin um
fimm klukkustundir. Oft var bið við
þriðju holuna — hina stytztu á vellinum
og greinilegt fljótt i gær að ekki mundi
öllum keppendum takast að Ijúka keppn-
inni fyrir myrkur. Mótið mun standa í
fjóra daga á hinum fagra golfvelli
Princeville Makai, sem er á norður-
strönd eyjunnar Kauai.
Helztu úrslit í gær urðu þessi.
137 — Kanada (Dave Barr 67 — Dan
Hallderson 70)
139 — Filippseyjar (Aleuterio Nival 69
— Rudy Lavares 70).
141 — Bandaríkin (Andy North 72 —
John Mahaffey 69)
141 — Argentína (Florentino Molina
71 — Vicente Fernandez 70).
142 — Ástralía (Greg Norman 71 —
WayneGrady71)
142 — Mexíkó (Ernesto Acosta 71 —
Victor Regaldo71)
142 —Suður-Kórea (Han Cgang Sang
72 — Kim Suck Bong 70)
143 — Skotland (Ken Brown 72 — Sam
Torrance71)
144 — Kolombia (Juan Pinzon 72 —
Luis Eduardo Arevalo 72)
145 — Svíþjóð (Gunnar Muller 71 —
Hans Hedjerson 74)
145 — Brasilía (Jaime Gonzalez 71 —
Josias Draxler 74)
145 — Spánn (Manuel Pinero 72 —
Antonio Garrido73)
146 — England (Howard Clark 72 —
MarkJames74)
146 — Wales (Craig de Foy 71 —
David Vaughan 75)
146 —Suður-Afrika (Nicky Price 73 —
Bobby Verwey 73)
Af öðrum þjóðum má nefna Noreg
166 (Tore Svilland 84 — Erik Donne-
stad 82). Frakkland 149 (Patrick Cotton
76 — Jean Garaialde 73), Holland 156
(Simon van der Berg 79 — Jan Dorre-
stein 77). Vestur-Þýzkaland 148
(Siegfried Vollrath 75 — Bernhard
Langer 73, Nýja-Sjáland 159 (Denis
Clark 75 — Kim Southerdan 84), Sviss
171 (FrancoSalmina 79 — Denis Maina
92). Danmörk 155 (Per Greve 78 —
Herluf Hansen 77), halíu 153 (Renato
Campagnoli 80 — Gerlamo Defino 73)
og Japan 149 (Norio Suzuki 73
Shirgeru Uchida 76).