Dagblaðið - 01.12.1978, Page 30
34
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978.
Stjórnin í jólaköttinn?
DB-mynd: R. Th.
„Heldurðu, Ellert, að stjörnin fari ekki í jólaköttinn fyrir þetta fjárlagafrumvarp?” gæti Friðjón Þórðars- þeir allt eins verið að ræða um að fara saman á bíö í kvöld, eða hvort þeir eigi að skreppa saman í kaffi á
son. sjálfstæðisþingmaður sem bezt verið að hvísla að fiokksbröður sinum, Ellert B. Schram. Annars gætu Borginni. _g.s
„Ef ég væri ríkur" DB-mynd: R. Th.
Verzlanagluggar skarta óvenju fallegum varningi þessa dagana, svo sem jafnan fyrir jól. Þótt flestir
sem I þá lita séu á höttunum eftir jólagjöfum handa öðrum sakar ekki að staldra við og skoða eitthvað
sem mann langar sjálfan I. „Ef ég væri rikur,” gæti maðurinn á myndinni verið að hugsa er hann horf-
ir á glæsilegan herrafatnaðinn I glugganum, en hver veit nema glugginn verði einni flikinni fátækari
þegar konan hans hefur keypt handa honum jólagjöfina? -G.S.
„Ég er á leiðinni" db mynd: Bj.Bj.
Jólatré streyma nú til borgarinnar hvaðanæfa, einkum úr Skorradal, Þjórsárdal, frá Þingvöllum og
Jótlandi. Þau eru söguð niður, safnað saman og sett á stórvirka vörubila. Þeir aka þeim i bæinn og
þar er þeim enn staflað upp uns þau eru hengd i raðir og föl kaupendum til skreytingar i stofum sínum
á jólunum. Fáir imynda sér sjálfsagt allt það rask og ferðalag er þeir horfa á friðsælt tréð sitt er það
skartar loks á aðfangadagskvöld. _G.S.
UB-mynd: H.V,
Allt í hund og kött?
Að hlutirnir fari i „hund og kött” hefur venjulega neikvæða merkingu, en svo er þó
ekki á þessari mynd, sem tekin var á Dýraspitalanum í fyrradag. Þar kom hundurinn
aðeins i skoðunarferð til að sjá afkvæmi „stofufélaga” sins á spitalanum. Þvi er hér
með komið á framfæri að kettlingarnir á myndinni fást gefins á Dýraspítalanum.
•G.S.