Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.08.1979, Qupperneq 3

Dagblaðið - 07.08.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 1979. 3 Kantarnir sem steyptir hafa verið f Safamýri ná langt út i götu. Þeir auka slysahættu að mati ibúa við götuna og margra annarra vegfarenda. Tilgangur borgar yfirvalda með framkvæmdunum er sagður sá að draga úr umferðarhraðanum. DB-mynd: S Steyptir kantar við Safamýrí: „Hægt að eyða peningun- um í eitthvað parfara” Raddir lesenda EQEQQ LITSJONVARPSTÆKI Úrvalstæki, búið öllum þeim tækninýjungum sem góð litsjónvörp þurfa að hafa, svo sem línulampa, viðgerðareiningum og fleiru. Tækið sem sameinar myndgæði og fallegt útlit. Varahluta- og viðgerðarþjónusta á staðnum. Hagstætt verð. Greiðsluskilmálar: Útborgun: 20” tæki 110 þús. 22” tæki 130 þús Eftirstöðvar greiðast á 7 mánuðum. 26” tæki 160 þús. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Atli Rúnar Halldórsson Guðmundur Sigurvinsson, Safamýri 36, kom að máli við DB og sagði íbúa við Safamýri óánægða með þá ráð- stöfun gatnamálayfirvalda í Reykja- vík, að steypa kanta út úr öllum inn- keyrslum og fyrir framan dagheimilið i götunni. Vegna þess sé erfitt að komast út úr innkeyrslunum, sérstak- lega að vetrarlagi. En alvarlegast sé hin aukna slysahætta sem skapist af þessum sökum. „Okkur finnst að það hljóti að vera hægt að eyða pen- ingunum í eitthvað þarfara en svona framkvæmdir,” sagði Guðmundur. Ingi Ú. Magnússon gatnamála- stjóri varð fyrir svörum, er blaðið leitaði upplýsinga hjá borgaryfirvöld- um: „Safamýrin var I5 metra breið og er ekki mikil umferðargata. Við vildum steypa þessa kanta í þrennum tilgangi. Til að draga úr umferðar- hraðanum, til að mjókka götuna og spara viðhaldskostnað á malbikinu og til að fegra umhverfið þarna með grasblettum. Mér skilst að kvartað hafi verið fyrst og fremst yfir skorti á bílastæð- um við barnaheimilið. Við ætlum að taka tillit til þess og munum bæta við bílastæðum þar.” Hringið ísíma 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið Raddir lesenda Horfir þú á eftir ung- um stúlkum? Auðunn Jónsson bilstjóri: Það fer nú eftir því hvort þær vekja áhuga minn, annars horfir maður nú ekki þegar konan er við hliðina á manni eins og núna. Halldór Oddsson sjómaður: Auðvitað litur maður í kringum sig. Stefán Sigbjörnsson sjómaður: Hvað heldur þú? Jón Heimir Sigurbjörnsson spilar með sinfóniuhljómsveit: Já, svo sannarlega geri ég það. Steinþór Sigurðsson sjómaður: Þar versnar í því. Konan mín hérna við hliðina á mér. Jæja ég hlýt nú að gera þaðeitthvað. Birgir Vilhjálmsson sjómaður: Ég er sama sinnis og Steinþór við erum nú að minnsta kosti heilbrigðir.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.