Dagblaðið - 07.08.1979, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR7. ÁGÚST 1979.
TIL SÖLU
BMW 2002 ARG. 1971
ALLUR SEM NÝR
UPPLYSINGAR í SIMA 86633.
íKvxra
f'iEÐViSRKO
«.tEov£»œ.\Rfíi*a íAMmnm
Munið frímerkjasöfnun
Geðverndar ,
Innlend og erlend frímerki. Gjarna umslögin heil,
einnig vélstimpluð umslög.
Pnsthólf 1308 eða skrifstofa fél. Hafnarstræti 5,
simi 13468.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
F17900 F17900
Til sölu
3 herbergja íbúð á 3. hæð við Ásbraut í Kópa-
vogi, laus fljótlega.
JÖN E. RAGNARSSON HRL.
TÚNGÖTU 5.
MV Búðin
selur
FJOLSVIÐAMÆLA,
AMPERTANGIR.
MEGGERMÆLA
BIFREIÐA-
STILLIMÆLA O.M.FL.
H m ■ m w * ■ Ármúla26,
MV Buðin,
Útboð
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar óskar eftir
tilboðum í lagningu annars áfanga dreifikerfis á
Akranesi.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræði- og teikni-
stofunni s/f, Heiðarbraut 40, Akranesi, og á
Verkfræðistofunni FJARHITUN H/F Alfta-
mýri 9, Reykjavík, gegn 30 þús. kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð hjá Verkfræði- og teikni-
stofunni s/f, fimmtudaginn 23. ágúst kl. 15.
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar.
F17900
F17900
Til sölu
í Breiðholti 160 ferm íbúð sem skiptist í 4 svefn-
herbergi og tvær stofur. Bílskúrsréttur. Verð kr.
30 millj.
JÖN E. RAGNARSSON HRL.
TÚNGÖTU 5.
Lusaka:
Óvænt samstaða
um Ródesíumálið
hugmyndum að lausn þunglega tekið í Salisbury og
stöðvumskæruliða
Margrét Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, skoraði á alla aðila
að bregða skjótt við og leita lausnar á
deilunni um Zimbabwe/Ródesíu,
þrátt fyrir dræmar undirtektir
stjórnarinnar í Salisbury og skæru-
liða þeirra sem steypa vilja stjórn
Muzorewas af stóli. Sagði brezki for-
sætisráðherrann þetta í ræðu er hann
flutti á ráðstefnu samveldislandanna
í Lusaka í Zambíu.
Samkomulag náðist þar í gær um
leið til lausnar Ródesíudeilunni. Kom
það mörgum á óvart því búizt var við
að til mikilla deilna mundi koma á
milli Thatcher og afrískra þjóðarleið-
toga um Zimbabwe/Ródesíu.
Samkomulagið sem var samþykkt
af öllum þjóðarleiðtogum á ráðstefn-
unni gerir ráð fyrir að stjórnarskrá
Zimbabwe/Ródesíu verði endurskoð-
uð og þar fari fram nýjar kosningar.
Muzorewa biskup, forsætisráð-
herra í Ródesíu og sigurvegari fyrstu
kosninganna í landinu þar sem svartir
fengu að hafa einhver áhrif, lýsti sig
þegar í gær andvígan hugmyndum
um nýjar kosningar. Fyrri kosningar
hefðu verið fullkomlega löglegar og
farið fram undir eftirliti alþjóðlegrar
eftirlitsnefndar.
Skæruliðar Nkomo sem berjast
gegn sveitum stjórnarinnar í Salis-
bury og vilja steypa henni hafa einnig
lýst sig andvíga þeim hugmyndum
sem samþykktar voru á ráðstefnunni
í Lusaka.
Búizt er við að Margrét Thatcher
forsætisráðherra verði gagnrýnd
mjög af hægri sinnuðum flokks-
mönnum sínum í íhaldsflokknum
fyrir afstöðu sína. Vilja þeir viður-
kenna stjórn Zimbabwe/Ródesú, og
aflétta viðskiptabanni gegn ríkinu.
Vel fór á með þeim Margréti Thatcher forsætisráðherra Bretlands og Kenneth Kaunda forseta Zamblu, þar sem þau biðu
eftir því að lokið væri við að leggja teppin á gólf ráðstefnusalarins þar sem leiðtogar samveldisins þinga nú I Lusaka í
Zambíu.
Uganda:
Godfrey Binaisa, forseti Uganda,
sagði í viðtali við fréttamann í gær að
ríkisstjórn hans hefði áhuga á að fá
kanadiska aðila til að þjálfa her og
lögreglu landsins. Einnig væri æskilegt
að sögn forsetans að sérþjálfaðar
sveitir yrðu stofnaðar til að bæla niður
uppþot og óeirðir. Binaisa forseta
sagði þetta í Lusaka höfuðborg
Zambíu, en þar er hann á ráðstefnu
samveldislandanna.
Fulltrúi Joe Clark, forsætisráðherra
Kanada, sagði í Lusaka í gær að for-
sætisráðherrann hefði rætt við Binaisa
og síðan falið nokkrum aðstoðarmönn-
um sínum að undirbúa áætlun umalls-
herjar aðstoð Kanada við Uganda.
Haft var eftir fulltrúanum að í henni
mundi meðal annars felast eitt hundr-
að þúsund dollara fjárframlag strax
og vilyrði fyrir langtímaaðstoð.
Einnig er búizt við að Kanada muni
gefa eftir gjaldfallin lán fyrri stjórnar í
Uganda upp á um tvær og hálfa milljón
dollara
Washington:
Ætia að notagömlu
íhaldsúrræðin
—segir Carter Bandaríkjaf orseti um ráðstafanir sfnar
fefnahagsmálum
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti
sagði í gær að hann væri ákveðinn í
að halda fast í taumana í efnahac',-
málunum og flana ekki útí tein a ; 11-
týri í þeim efnum á næstuiini. Sagi'ist
hann mundu beita aðhaldsaðgerðum
og á þann hátt stýra þjóð sinni af
festu í gegnum þá erfiðleikatíma sem
framundan væru í efnahagsmálum.
,,Ég er ákveðinn í að halda fyrir-
fram ákveðinni stefnu í peningamál-
um, sem öðru,” sagði forsetinn í
ræðu sem hann flutti í Hvíta húsinu
við athöfn er hinn nýi fjármálaráð-
herra William Miller og aðalseðla-
bankastjóri Paul Volcker tóku form-
lega við embættum sinum. Forsetinn
sagðist einnig mundu fylgja ákveð-
inni stefnu varðandi fjármál ríkisins.
Hann sagði að nú væri ekki tíminn
til að breyta um stefnu né taka til
endurskoðunar þá stefnu sem tekin
hefði verið. Þá stefnu sagðist
forsetinn hafa skýrt út fyrir banda-
rísku þjóðinni og öðrum heims-
búum.