Dagblaðið - 07.08.1979, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 1979.
(I
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Um helgina voru í fyrsta skipti reynd rafmagnstimatökutaeki hérlendis, en þau voru flutt hingað til lands fyrir Revkjavlkurleikana, sem hefjast á morgun. Tæki þessi eru mjög fullkoinin og er æilunin að nnia þau
á leikunum. A myndinni til vinstri er Omar Magnússon að meðhnndla startbyssuna og á þeirri hægri sést starfsfólk Laugardalsvallar þeysa I markið á fullri l'erð I þvf augnamiði að sjá hveruig tækið viikaði.
Slík læki munu kosta um 2 milljónir króna í allt. DB imndirS.
Oddur Sigurðsson hlc>pur á Reykjavíkurleikunum og er til alls líklegur
HM1986 VERÐUR
EKKI í KÓLOMBÍU
Nær engar líkur eru nú taldar á
því að HM í knattspymu 1986 verði
haldið í Kólombíu eins og ráð hafði
verið fyrir gert. Ástæðan er sú, að eftir
að úrslitaliðunum var fjölgað i 24 geta
æ færri þjóðir tekið að sér slíka stór-
keppni sem HM er. Allar líkur eru á því
að HM keppnin verði haldin í Brasilíu í
staðinn en HM keppnin hefur aldrei
verið háð þar. Tvívegis hafa Uruguay-
menn haldið keppnina og Argentínu-
menn og Mexikanar hafa haldið úr-
slitakeppnina einu sinni hvor þjóð.
Úr því að á annað borð er verið að
skrifa um knattspyrnu má geta þess að
í gærkvöld sigraði v-þýzka liðið
Borussia Dortmund spænska liðið
Atletico Madrid 3 — 1 í vináttuleik sem
fram fórí Dortmund.
Spánverjarnir tóku forystu með
marki Luis Pereira á 17. mínútu en átta
mínútum síðar jafnaði BúrgsmUller
metin fyrir Dortmund. Hein skoraði
síðan annað markið og Marcellini
skoraði sjálfsmark og Dortmund vann
örugglega 3—1.
Þá fóru fram tveir leikir í
ensk/skozku bikarkeppninni í gær-
kvöld. Plymouth og Birmingham gerðu
jafntefli 1 — 1 og einnig Dundee og
Kilmarnock. Nú eru aðeins 12 dagar
þar til enska deildakeppnin hefst að
nýju og á laugardag leika Arsenal og
Liverpool um Charity Shield á
Wembley.
Islandsmet Odds
—Oddur Sigurðsson setti unglingamet í200 metra hlaupi
Oddur Sigurðsson, spretthlauparinn
frá Akureyri, sló svo sannarlega í gegn
á Norðurlandamóti unglinga, sem fram
fór i Osló um helgina. Oddur stóð sig
frábærlega á mótinu og setti nýtt
íslandsmet unglinga, 21,4 sek. í 200
metra hlaupi þrátt fyrir mótvind, sem
nam 4 m/sek. Oddur varð stigahæsti
maður mótsins með 23 stig, sem var
tæplega helmingur allra þeirra stiga,
Alliryfir
Ermarsund
Þrettán sundmenn gerðu um
helgina atlögu að Ermar-
sundinu og ætluðu sér að synda
yfir það en aðeins 9 þessara
tókst ætlunarverk sitt. Þar á
meðal var 12 ára gamall S-
Afríkubúi, Kevin Anderson,
sem varð þar með yngsti sund-
maðurinn sem synt hefur yfir
Ermarsund. Hinn 51 árs gamli
Des Renford synti Ermarsundið
í 14. skipti og hin 21 árs gamla
kanadíska stúlka, Cynthia
Nicholas synti fram og til baka
á 19 tímum og 12 mínútum og
bætti þar með eigið met kvenna
um 43 mínútur. Allir sund-
mennirnir utan einn hófu sund-
ið frá Dover í Englandi, en sá
sem synti af stað Frakklands-
megin, Philip Ross, varð að gef-
ast upp vegna sterkra strauma 3
mílur frá strönd Englands.
Ekki aðeins varð þetta ágæta
fólk að glíma við þunga
strauma heldur einnig fjöldann
allan af skipum, en Ermar-
sundið er einhver fjölfarnasta
skipaleið heims.
sem íslenzka landsliðið fékk, en ísland
sendi sameiginlegt lið i keppnina ásamt
Dönum. Þrátt fyrir þessa sameiningu
gömlu fjendanna lék enginn vafi á að
þessi tvö lönd eru langt á eftir hinum
Norðurlöndum þremur hvað getu
snertir enda urðu þau langneðst í stiga-
keppninni.
Islenzku keppendurnir voru væntan-
legir í nótt og í morgun tókst ekki að ná
tali af fararstjórunum. Höfum við því
litlar fréttir að færa utan afreks Odds í
200 metrunum. Oddur mun að sjálf-
sögðu keppa í spretthlaupunum á
Reykjavíkurleikunum, sem hefjast á
morgun og verður vafalítið gaman að
fylgjast með honum en búast má við
því að hann slái íslandsmet Vilmundar
Vilhjálmssonar þá og þegar ef t'ram fer
sem horfir. Oddur er aðeins 21 árs
gamall og hóf að iðka frjálsar íþróttir
fyrir alvöru fyrst á þessu ári og hefur
frami hans á hlaupabrautinni verið
með ólíkindum skjótur.
Björgvin vann
lokaæfinguna
Hinu árlega Jaðarsmóti í golfi lauk
á Akureyri um helgina og því var vart
lokið þegar öldunga- og sveitakeppni
íslandsmótsins hófst af fullum krafti.
Allir beztu kylfingar landsins voru að
sjálfsögðu á meðal keppenda þarna þar
sem mótið gaf kærkomna æfingu fyrir
landsmótið auk þess sem eitt og eitt
stig til landsliðs voru í boði fyrir góðan
árangur. Heimamaðurinn, Björgvin
Þorsteinsson, sigraði í keppninni án
forgjafar á 152 höggum en ekki var for-
ystan stór því næstu menn, þeir Hannes
Eyvindsson og Magnús Halldórsson,
voru báðir á 153 höggum og geysihörð
keppni var um næstu sæti. Gamla
kcmpan Cir.ar Guðnason keppti á
nýjan leik eftir langt hlé, a.m.k. hefur
hann ekki orðið svo framarlega í
sumar, hann varð í 10.-11. sæti.
Það bar helzt til tíðinda á mótinu að
Kristín Pálsdóttir fór holu í höggi á 6.
braut, sem er 165 metra löng af
kvennateignum. Verður þetta að
teljast ærið frambærilegur árangur hjá
Kristínu en hún hefur lengi verið í
fremstu röð kvenkylfinga hér á landi.
Annars urðu úrslit á mótinu sem hér
segir:
Karlar án forgjafar högg
Björgvin Þorsteinsson, GA 152
Hannes Eyvindsson, GR 153
Magnús Halldórsson, GK 153
Magnús Birgisson, GA 155
RagnarÓlafsson, GR 156
Jón Þór Gunnarsson, GA 157
Geir Svansson, 158
Sigurjón Gíslason, GK 161
Jóhann Benediktsson, GS 163
Jónas Kristjánsson, GR 164
Einar Guðnason, GA 164
Með forgjöf högg
Magnús Halldórsson, GK 145
Jón Þ. Gunnarsson, GA 147
Magnús Birgisson, GA 147
Hörður Svanbergsson, GA 147
Konur án forgjafar högg
Sólveig Þorsteinsdóttir, GR 174
Jóhanna Ingólfsdóttir, GR 177
Kristín Pálsdóttir, GK 184
Konur mcð forgjöf högg
Jónína Pálsdóttir, GA 155
Sólveig Þorsteinsdóttir, GR 156
Jóhanna Ingólfsdóttir, GR 159 -St.A.
Laugardalsvöllur—Undanúrslit Bikarkeppni KSÍ
ÞRÓTTUR— Fl m Uj í kvöid rf kl. 19.30