Dagblaðið - 07.08.1979, Page 18
18
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 1979.
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Sigraði á þriðju
holu bráðabanans
—David Granam vann PGA-keppnina í golf i eftir bráðabana
við Ben Crenshaw
Astralíubúinn David Grahum vard
uin helt;ina PGA meistari í golfi er
hann sigradi Kandarikjamunninn Bcn
Crenshaw á 3. holu í brádahana o)>
krækti sér þar með í 60.000 dollara
verðlaun l'yrir fvrsta sælið. Crcnshaw
l'ór iieldur ekki biankur út úr keppninni
þar sem hann nældi sér í 40.000 dollara
fyrir annað sætið. I þriðja sæti varð
svolitt þckktur kyIfiny*nr, Rex Caldwell
að nal'ni. Þrátt fjrir sigurinn í bráða-
banunum átti Gralinm að vera búinn að
uera út um keppnina lónj>u áður. Pyrir
síðustu holiina, sein er par 4, hafði
liunn tvö höj>j> i forskot á næsta mann,
Ben Crenshaw.
Skyndilej>a var cnj>u líkara en alls-
herjar tauj>aveiklun j>ripi um sij> hjá
Graham sem fór 18. holuna á 16 höj>j>-
um. Þetta nægði Crcnshaw til að jafna
mctin, en Graham kom fram hefndum
á 3. holu bráðahanans sem fyrrsagði.
Þar fór hann á einu hnggi undir pari cn
C'renshaw varð að láta sér nægja par.
Graham, sem er 33 ára gamall, varð
þar mcð fyrsti útlendingurinn til að
vinna þessa keppni síðan Gary Playcr
sigraði í henni 1972. Aðcins einn
Ástraliubúi hefur unnið þcssa keppni
áður en það var Jim Ferrier árið 1947.
Bráðabaninn á milli Crenshaw og Gra-
ham varð geysilega skemintilegur og
fyrstu tvær holurnar hafði Crenshaw
undirtökin. Á fyrstu holunni sctti
Graham niður sex metra pútt og lck á
pari eins og Crenshaw. Á annarri hol-
unni fór hann létt með 2 metra pútt og
fór á „fugli” sem og Crenshaw gerði
cinnig. Á þriðju holunni snerist gæfan i
lið með Graham og i 2. höggi sinu var
hann aðeins tæpa þrjá metra l'rá holu.
Crenshaw lenti í sandgryfju með sitt
annað skot, en tókst meistaralega að
slá upp úr henni inn á flötina og ein-
púttaði — fjögur högg.
Graham varð því að setja niður al'
tæplega þriggja metra færi, sem hann
og gerði auðveldlega, en vonbrigðin
voru geysilega fyrir Crenshaw þvi hann
missti ekki aðeins af sigrinum heldttr
einnig 20.000 dollurum og cinnig af sið-
asta lausasætinu í landsliði USA sem
leikur við úrval Fnglands og Evrópti
siðar í haust. Stöðu hans tekur l.cc
Eldcr, sent verður þar með fyrsti
svertinginn til að taka þátt í þessari
keppni. Staða efstu manna á PGA niót-
inu varð þessi:
högg
David Graham, Ástr. 69-68-70-65 = 272
Ben Crenshaw, USA 69-67-69-67 = 272
Rex Caldwell, USA 67-70-66-71 = 274
RonStreck, USA 68-71-69-68 =276
Jerry Pate.USA 69-79-69-61 =278
Gibby Gilbert, USA 69-72-67-69 =278
Don January, USA 69-70-71-69 =279
Fleiri frægir kappar komu þarna á
eftir en það vakti mikla athygli hversu
nvir.'ir lítt þckktir kylfingar röðuðu scr
efstn elin.J 'r' v Pate eyðilagði alger-
le.ua ma niö,'ulc:ka á öðrum degi
keppninnar er hann lek á 79 höggum cn
bættt i<uð -iðan rækilega upp lokadag-
inn er hann lék á 61 höggi — 9 undir
pari vallarins. Tom Watson, sem leiddi
eftir fyrsta daginn á 66 höggum, varð í
12. sæti ásamt fleirum á 281 höggi.
Gamla kempan Genc Littler fór á 282
höggum og þeir Hubert Grcen og
Graham Marsh voru cinnig báðir á
282 höggum.
GEMMILL TIL
BIRMINGHAM
Kinverska landsliðinu í knalt-
spyrnu, scm nú cr á fcrðalagi um Bret-
lundscyjar, virðist ætla að ganga illa að
skora ef marka má úrslit þcirra tvcggja
lcikja, sem liðið hcfur lcikið. Um
helgina lék liðið gegn I. deildarliði
Middlcsbrough og tapaði 0—2 eflir að
liafa verið undirO—I í hálfleik. í fyrsta
lcik sínum töpuðu Kínvcrjarnir firir
WBA 0—4.
Það voru þeir David Armstrong
(viti) og Billy Ashcroft með skalla, sem
skoruðu mörk Middlesbrough. Irving
Nattrass, fyrrum fyrirliði Newcastle,
lék sinn fyrsta leik með Middlcsbrogh
en litið fór fyrir honutn að þessu sinni.
I lcr fylgja svo með úrslit í ensk/skozku
bikarkeppninni.
Birmingham-Bristol City 0 4
Blackburn-Burnlcy 2-2
Bury-Sunderland 4—2
Cambridgc-Sheff. Utd. 0- 1
Fulham-Plymouth 1—0
Mansfield Town-Notts. County 0—1
Oldham-Bolton Wanderers 1—3
Preston-Blackpool 3—1
Archie Gemmill var um helgina
seldur til Birmingham fyrir 150.000
sterlingspund frá Nottingham Forest.
Sala Gemmill hefur staðið yfir nokkuð
lengi en gengið hefur á ýmsu og ckki
náðst samkomulagi við nein félög fyrr
en nú. Ekki mun Birmingham vcita af
kröftum Gemmill, cf liðið hyggst vinna
sér sæti i 1. deildinni á nýjan lcik, cn
liðið vann sér sæti í henni 1972. Fyrsta
árið gekk þokkalcga — liðið varð í 10.
sæti cn siðan gekk allt á afturfói- 'iiun
og liðið var ætíð í fallbarátt■ i u z það
loks féll i vor.
og síðan aftur gegn Schalke 04 um helgina
l’étur l’élursson gcrir það ekki cnda-
slcppl incð Feycnoord þessa dagana.
Ifann cr þcirra aðalsóknarmaður, það
gátu islcnzkir áhorfendur séð hcr hcima
i bciinsókn liðsins þar sem Pétur
skoraði 6 af 12 mörkum liðsins í fcrð-
inni. Fcycnoord lék í sl. viku í móti á
icgum bi/ka liðsins Srhalke 04 og
kcpptu þar auk gcstgjafanna, Fcyc-
noord, Bcnfica og I.iverpool.
í fyrstu umferðinni lék Feyenoord
gegn l.iverpool og varð jafntefli 2-2 að
venjulegum leiktíma loknum. Phil
Thompson náði forystunni fyrir Liver-
pool á 35. mínútu en Jan Peters jafnaði
fimm mínútum síðar. David Johnson
kom Liverpool yfir á nýjan leik á 47.
minútu en Korput jalnaði aftur fyrir
Feyenoord á 80. mínútu. Það þurfti þvi
vítaspyrnukeppni til að skera úr um
sigurvegara. í þcirri keppni skoraði
Liverpool fjórum sinnum en Feye-
noord aðcins einu sinni og vat þar
Pétur að verki, að sjálfsögðu, sem
aðalvítaskytta liðsins. Benfica vann svo
Schalke i hinum leiknum í þessari
umferð.
Úrslitin fóru síðan fram nú um
hclgina og þá vann Benfica Liver-
pool eftir vítaspyrnukeppni. Alan
Kennedy kom Liverpool yfir á 74,
mínútu cn sex min. siðar jafnaði
Alhinho fyrir Benfica. í vitakeppninni
fór markvörður Benfica, Bcnto, á
kostum og varði þrjár spyrnur leik-
manna Liverpool og Bcnfica vann 4-3
eftir tvær umferðir (10 skot á lið). í
leiknum um 3. sætið vann Schalke
Feyenoord einnig á vítuiti eftir að jafnt
hafði orðið 1-1 eftir venjulegan lcik-
tíma. Pétur Pétursson , skoraði fyrir
Feyenoord á 38. minútu en Vilson
D/oni jafnaði fyrir Schalke á 72.
mínútu úr viti. ekki var sagt í skeytum
hvernig vitakeppninni lauk nema hvað
Schtdke vann hana.
Hollen/ka dcildakeppnin hefst
þann 19. þessa ntánaðar og er greini-
legt að Pétur er í mjög góðu formi
þessa dagana. Nú i þessari viku ntun
Feyenoord keppa í litlu móti á vegúm
Molenbeck og verða þar einnig PSV
F.indhoven og Ipswich Town frá
Englandi.
Pétur Pétursson skorar nú grimmt íyrir lið sitt, Fcyenoord, og um helgina skoraði
hann eina mark liðs sins gegn Schalke 04.
PETUR SK0RAÐI
GEGN UVERPOOL
Bandaríska knattspyrnan er stöðugt á uppleið ef marka má fréttir og umsagnir
þeirra scm nýlega hafa farið til Bandaríkjanna og séð þar knattspyrnu. Myndin
hér að ofan er úr iþróttablaðauka Fort Lauderdale News og cr úr leik Fort
Lauderdale Strikers og New York Cosmos. Kapparnir, sem eigast við á þessari
mynd eru báðir heimsfrægir. Þetta eru George Best (t.v.) og Johan Neekens, en
ekki þekkjum við leikmanninn að baki þeim.
Koch setti
nýtt heimsmet
—í Evrópubikar kvenna í friálsum
Austur-þýzku stúlkurnar sigruðu
eftir gífurlcga harða keppni við þær
sovézku í Evrópubikarkeppninni í
frjálsum íþróttum í Torinó á Ítalíu um
helgina. Hlutu 102 stig en þær sovézku
100 stig. Eftir fyrri daginn hafði
Austur-Þýzkaland náð fjögurra stiga
forustu, 52 stig gcgn 48. í þriðja sæti í
keppninni varð Búlgaría með 76 stig.
Þá kom Bretland mcð 62 stig, siðan
Rúmenía 58, Vcstur-Þýzkaland 58,
Pólland 55 og ítalia 29 stig.
Mjög góður árangur náðist í
keppninni. Marita Koch, A-Þýzka-
landi, setti nýtt heimsmet í 400 m
hlaupi, hljóp á 48.60 sek. þó hún
hlypi á áltundu og yztu brautinni.
Bætti hcimsmet sitt um þrjú sekúndu-
brot. Önnur varð Maria Kulchunova,
Sovét, á 49.63 sck. og varð því þriðja
konan til að hlaupa 400 m innan við $0
sck. Sú, scm varð fyrst til þess, Ircna
Szcwinska, Póllandi, varð þriðja i
Torinó á 51.27 sck.
Sigurvcgarar í cinstökum grvinum
urðu. 800 m hlaup. Nikolina Shtereva,
Búlgaríu, 1:56.3 mín. 100 m hlaup.
Marlics Göhr, A-Þýzkaland, 11.03 sek.
400 m grindahlaup. Marina Makcyeva,
Sovét, 54.82 sck. (Karin Rossley, A-
Þýzkalandi iinnur á 55.10 sck.).
Kringlukast. Evclin Jahl. A-Þýzka-
landi, 68.92 m. Spjótkast F)va Raduly-
Zorgo, Rúmcníu, 66.28 m. 4x 100 m
boðhlaup. A-Þýzkaland 42.09 sck. sem
er heimsmctsjöfnun. I.angstökk
Brigitte Wujak, A-Þýzkalandi, 6.89 m.
100 m grindahlaup Tatiana Anisimova,
Sovét, 12.77 sek. — Grazyna Rabstzyn,
Póllandi, önnur á 12.85 sek. 3000 m
hlaup Svctlana Gtftkova, Sovét, 8:52,0
mín. Kúluvarp Ilona Slupianck, A-
Þýzkalandi, 20.93 m. 4x400 m boð-
hlaup. A-Þýzkaland 3:19.7 min. 200 m
hlaup Ludmila Kondratyava, Sovét,
22.40 sek. Marlies Göhn, A-Þýzka-
landi, önnur á 22.50 sek. Hástökk
Rosemarie Ackcrmann, A-Þýzkalandi,
1.99 m. Sara Simeoni, Ítalíu, önnur
með 1.94 m. 1500 m Totka Pctrova,
Búlgaríu, 4:03.2 mín.,
Oster missti
af sigrinum
— tapaði fyrir Banik Ostrava í TOTO-keppninni
Tciti Þórðarsyni og lclögum í Oster
tókst ckki að sigra í sínum riðli TOTO-
kcppninnar um hclgina cins og þcir
höfðu vonazt til. Til þess þurftu þeii
að ná jafntefli gegn tékkneska liðinu
Banik Ostrava, cn máttu þola 2—3 tap
í úrslitaleik riðilsins. Tckkarnir sigruðu
því í riðiinum — hlutu cinu stigi mcira
cn Öster. Standard l.iege, liði Ásgcirs
Sigurvinssonar, hcfur gengið aflcitlcga
í æfingaleikjum að undanförnu, m.a.
tapað 0—7 fyrir Kaiserslautern og um
hclgina mátti Standard þola tap á
hcimavclli fyrir v-þýzka liðinu Wcrdcr
Brcmcn 1—2. Werder Bremen er lið
scm ekki hcfúr gcngið ailt of vcl i
Bundcsligunni undanfarin ár þannig að
grcinilcgt er að citthvað bjátar á hjá
Standard þcssar vikurnar.
Önnur úrslit í keppninni, sem lauk
nú um helgina, urðu sem hér segir:
Malmö-Eintracht Brunschweig 2—2
Ódense-Bohemians Prag 0—2
Gautaborg-FC Ziirich 5—1
Vejle-Grasshoppers 2—0
Esbjerg-Kalmn: 4—2
Austria Sal/burg-Aarhus 2—2
Rapid Vín-Maccabi 2—2
MSV Duisburg-Royal Antwerpen 2—2
Slavia Sofia-Brno (Tékkósl.) 2—0
GAK Graz-Darmstadt 98 1 — 1
Slavia Prag-St. Gallen 2—0
L.ask Linz-Chenois Genf 3—0
Spartak Trnava-First Vín 3—0
Það sem langmest kemur á óvart í
þessari keppni eru hin óvæntu töp
svissnesku liðanna tveggja,
Grasshoppers og Zúrich, fyrir
dönskum og sænskum liðum. Þá tapar
Kalmar, liðið sem leikur gegn Keflavik,
i UEFA-keppninni, illa gegn danska
liðinu Esbjerg, þannig að af þéssu ntá
greina að Keflavík ætti að eiga þokka-
lega möguleika á sigri, a.m.k. hér
heima.