Dagblaðið - 07.08.1979, Page 31
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 1979.
II
Útvarp
31
Sjónvarp
i
t\
SUMARVAKA - útvaip kl. 21.20:
Sextugsafmælis Rósbergs
G. Snædal minnst
Sumarvakan er á dagskrá útvarpsins
í kvöld kl. 21.20 að vanda og kennir
þar margra grasa sem endranær.
Hjörtur Pálsson, dagskrárstjóri út-
varpsins, ies frásöguþátt eftir Rósberg
G. Snædal rithöfund i tilefni af sextíu
ára afmæli hans. Frásagan nefnist
Stafnsrétt í Svartárdal. Rósberg mun
einnig sjáifur koma fram á Sumarvök-
unni og lesa nokkur Ijóð eftir sjálfan
sig.
Gunnar M. Magnúss rithöfundur
staldrar við í þættinum og les kafla úr
bók sinni Það voraði vel 1904. Gunnar
hefur áður komið fram á Sumarvök-
unni og lesið úr þessari sömu bók.
Að síðustu verður kórsöngur á dag-
skránni. Það er kór Söngskólans í
Reykjavík sem að þessu sinni syngur
nokkur lög undir stjórn skólastjóra
skólans, Garðars Cortes. Sumarvakan
er liðlega klukkustundar löng.
- ELA
Hjörtur Pálsson dagskrárstjóri útvarps-
ins flytur frásöguþátt á Sumarvöku f
kvöld.
<______________________________________
Umræðuþáttur um verzlanir er á dagskrá sjönvarpsins I kvöld.
UMRÆÐUÞÁTTUR —■ sjónvarp kl. 21.00:
HVERNIG GEGNIR
VERZLUNIN HLUT-
VERKISÍNU í DAG?
Ingvi Hrafn Jónsson fréttamaður er
umsjónarmaður umræðuþáttar sem
fluttur verður í beinni útsendingu í
kvöld kl. 21.00 í sjónvarpi.
Ingvi Hrafn er mikill áhugamaður
um verzlun og hefur séð um nokkuð
marga þætti i útvarpi viðvíkjandi því
máli. í kvöld varpar hann þeirri spurn-
ingu til þátttakenda sinna, hvernig
verzlunin gegni hlutverki sínu í dag?
Þeir sem munu skiptast á skoðunum
eru Erlendur Einarsson, forstjóri Sam-
I-----------------------------------
bands íslenzkra samvinnufélaga, Guð-
mundur H. Garðarsson, formaður
Verzlunarmannafélagsins, blaðafull-
trúi Sölumiðstöðvar Hraðfrystihús-
anna og varaformaður Neytendasam-
takanna, dr. Jónas Bjarnason efna-
verkfræðingur og prófessor og Torfi
Torfason kaupmaður.
Þátturinn er fimmtíu mínútna langur
og má búast við heitum umræðum
þessara heiðursmanna.
- ELA
)
r
DYRUNGURINN
— sjónvarp kl. 21.50:
Simon
Templar
afturá
“ 'áinn
Ian Ogilvy, Simon Templar nútfmans.
Kvöldið sem útsending hófst í is-
lenzka sjónvarpinu haustið 1%6 hóf
göngu sína myndaflokkurinn Dýrling-
urinn með Roger Moore í aðalhlut-
verki.
í kvöld, tæpum þrettán árum síðar,
fáum við aftur að sjá Dýrlinginn,
Simon Templar, á skjánum. Að þessu
sinni er það þó ekki Roger Moore sem
fer með aðalhlutverkið heldur eigi síður
glæsilegur maður, Ian Ogilvy.
Þættirnir verða þrettán og nefnist sá
fyrsti Kappsiglingin, fyrri hluti. Upp-
haflega var ákveðið að þættirnir yrðu
framhald af Dýrlingnum nr. 1 og átti
myndaflokkurinn að heita Sonur dýrl-
ingsins. Þar átti Simon Templar eldri
að koma fram sem öldungur en sonur
hans átti að erfa alla glæsimennskuna
og hjálpsemina, við ungar stúlkur, frá
föður sínum.
Frá þessari hugmynd var þó horfið
og ákveðið að gera alveg nýjan dýrling,
en að sjálfsögðu er sá dýrlingur bæði
ríkur og fallegur.
Má því búast við Simon Templar
leikjum eins og tiðkuðust meðal barna
fyrir þrettán árum. Þýðandi mynda-
flokksins er Kristmann Eiðsson og er
sýningartími um klukkustund. - ELA
V________________________________J
„Getur þú ekki bara birt mynd af mér, helzt með ketti,” sagði Guðrún Á. Sfmonar og
við verðum við þeirri ósk hennar.
EINSÖNGUR - útvarp kl. 21.00:
„Ekki vinn ég
hjá útvarpinu”
—segir Guðrún L Símonar
,,Hvað ég ætla að syngja? Ég hef sko
ekki hugmynd um það, ekki vinn ég hjá
útvarpinu,” sagði Guðrún Á. Símonar
er hún var innt eftir því hvaða lög hún
ætlaði að syngja í útvarpi í kvöld.
,,Ég hafði ekki einu sinni hugmynd
um að ég ætti að syngja, þeir eru bara
með þetta á plötum eða bandi. Þetta
var öðruvísi hér áður, þá var gefið út
prógramm áður. Nú er alltaf verið að
spara, það eru bara upptökur einstaka
sinnum, svona spari,” sagði Guðrún
Á. Símonar.
„Getur þú ekki bara sagt að ég syngi
í kvöld eins og Mogginn gerir og birt
mynd af mér, cr það ekki nóg? I lel/t
mynd af mér með ketti,” sagði Guðrún
að lokum og við verðum við ósk hennar
og birtum myndina.
Guðrún mun syngja nokkur islenzk
lög kl. 21.00 og undirleik á píanó ann-
ast Ólafur Vignir Albertsson. - ELA
J
P0STSENDUM
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 84488
NYTSAMAR
TÆKIFÆRISGJAFIR