Dagblaðið - 18.10.1979, Síða 14
Bakarinn geröistgæzlumaður íStjómarráðinu:
MENN LÆRA BAKSTVR
EINS OG FAÐIR VORH)
„Nýja ríkisstjórnin er sú
sjötta í röðinni síðan ég kom
hingað. Ég kom fyrst í tíð
Bjama heitins Benedikts-
sonar. Já, blessaður vertu,
mér hefur líkað ljómandi vel
við þá alla, ráðherrana sem ég
hef kynnzt,” sagði Hans Kr.
Eyjólfsson, gæzlumaður í
Stjórnarráðinu.
Hans átti 75 ára afmæli á
mánudaginn og notaði tóma-
rúmið í stjórnarskiptunum til
að halda upp á daginn. í
Stjórnarráðinu hefur hann
verið í tæp tíu ár, eða frá 21.
janúar 1970. Vinnudagarnir
hans eru misjafnlega eril-
samir. Undanfarnir dagar
hafa verið óvenju strangir,
vegna stjórnarskiptanna og
tíðrar komu stjórnmála-
manna og fréttamanna í
Stjórnarráðið. Hans hefur
verið á þönum: Tekið yfir-
hafnir gesta og vísað þeim
réttar leiðir, ljósritað vís-
dómsplögg fyrir ráðherra og
sitthvað fleira -sem starfinu
fylgir.
En hvað skyldi Hans hafa
fengizt við áður en hann tók-
að sér gæzlu í húsi forseta
vors og ríkisstjórnar?
„Ég var bakari í ein 50 ár.
Lærði meðal annars i Kaup-
mannahöfn og vann síðan í
Sveinsbakarii.
Þetta er erfitt starf og ég
var orðinn afskaplega þreytt-
ur undir það síðasta. Það var
góð tilbreyting að koma
hingað á sínum tíma.”
Gripur þú enn í baksturinn
i frístundum?
„Já, ekki get ég neitað því.
Fyrir afmælið mitt fékk ég
aðstöðu hjá kunningja
minum í bakaríi og lagaði
kransaköku og bollur. Það er
með baksturinn eins og Faðir-
vorið: Menn læra þetta einu
sinni og svo gleymist það
aldrei!”
Ætlarðu að þjóna fleiri
ríkisstjórnum?
,,Ja, þegar menn eru
komnir á þennan aldur, þá fer
að halla undan fæti. Ég ætla
að reyna að vera í þessu á
meðan heilsan endist. Hvort
ég eigi eftir að fá sjöundu
ríkisstjórnina veit ég ekki.”
-ARH
„Mór hefur líkað Ijómandi irel við
alla ráðherra sem ég hef kynnzt i
starfinusegir Hans Kr. Eyjólfs-
son, gæztumaður Stjórnarráðsins.
Hann varð 75 ára daginn sem
stjórnin hans Benedikts Gröndals
fæddist og á örugglega eftir að
þjóna fíeiri rikisstjórnum í framtiö-
inni. DB-mynd Ragnar Th.
- ogsvogleymistþetta aldrei
Erla Stefánsdóttír var með vlnsœl-
ustu söngkonum landsins fyrir
nokkrum árum. Eitt vinsælasta
lagið sem hún söng inn ó plötu var
Lóan er komin. DB-mynd: FAX
Prentverk Odds
Bfomssonar
Með söng-
konuí |
afgreiðslunni
Erla Stefánsdóttir söngkona er það
fyrsta notalega sem þú sérð þegar þú
kemur inn í Prentverk Odds Björns-
sonar á Akureyri enda vinnur hún
þar i afgreiðslunni. Hér er hún sjálf-
sagt að skrifa um jólabækur forlags-
ins, sem verða tiu til tólf talsins að
þessu sinni. Reikna má með að jóla-
bækurnar hækki um allt að fimmtíu
prósent frá því í fyrra og kosti því í
kringum tíu þúsund krónur.
Af væntanlegum bókum frá Prent-
verki Odds Björnssonar má nefna
minningar Jónasar frá Hofdölum,
sjálfsævisögu Friðriks Hallgríms-
sonar frá Úlfstaðakoti, minningar
Árna Björnssonar tónskálds, Sumar
við sæinn eftir Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur, bókina Nýja baðstofan eftir
Oddnýju Guðmundsdóttur, Blóð-'
bönd eftir Sidney Sheldon og Nálar-
auga eftir Ken Follett. — Nú og ekki
má gleyma honum Slouther blessuð-
um. Jólabókin hans að þessu sinni
nefnist Svartigaldur. FAX, Akureyri.
Canon kynnir verk
Rafns Hafnfjörð
Það er ekki aðeins að Rafn
Hafnfjörð ljósmyndari sýni
verk sín á Kjarvalsstöðum
þessa dagana. í miðopnu
septemberheftis tímarits
Canon ljósmyndafyrirtækis-
ins eru birtar myndir eftir
Rafn og farið um hann
nokkrum orðum.
í greininni segir meðal ann-
ars að Rafn hafi átt myndir í
íslandsdeild heimssýningar-
innar í Montreal árið 1967.
Með myndum sínum „vill
Hafnfjörð opna augu fólksins
fyrir þeirri sérstæðu fegurð
sem prýðir ísland, ekki aðeins
með myndum af tignarlegum
fjöllum og leiksviðslegum
fossum heldur einnig hinum
stórkostlegu undrum náttúr-
unnar,” skrifa Canonmenn
um myndir Rafns.
Blað þetta, Canon
Chronicle, kemur út i um
fimm milljón eintaka upplagi.
Því er dreift til flestra landa
heimsins, svo að ekki er kynn-
ingin á myndlist Rafns nein
smásmíði.
Á sýningu sinni á Kjarvals-
stöðum sýnir Rafn Hafnfjörð:
188 ljósmyndir. Þær elztu eru
orðnar 25 ára gamlar. Nýj-
ustu myndirnar á sýningunni
vann Rafn í haust.
FÓLK
Það var höldur betur glatt á hjalla í diskótekinu H-100 á Akureyri þegar Bjarki Tryggvason
söngvari kynnti nýju plötuna sina „Einn á ferð". Bjarki virtist hinn ánægðasti eins og sjá
má á myndinni, en þar er hann að þakka sínum betri helmingi fyrir veittan stuðning. Hann'
er sko ekki einn á ferð hann Bjarki... FAX, Akureyri.
BJARKIER ALDEILIS
EKKIEINN Á FERÐ!
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1979.