Dagblaðið - 02.04.1980, Side 16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. APRtL 1980.
r«
IMDIR UM PÁSKANA KVIKMYNDIR UM PÁSKANA KVIKMYNDIR
flKMYNDIR UM PÁSKANA KVIKMYNDIR UM PÁSKANA KVIKM
>B 1 II i II
Eins og undanfarin ár frumsýna
, flest kvikmyndahúsin nýjar kvik-
myndir á páskunum. Að þessu sinni er
úrvalið mjög fjölbreytt og allir ættu að
geta fundið kvikmynd fyrir sinn
smekk. Mest ber á gamanmyndum eða
myndum í léttum dúr. Þá eru einnig
grafalvarlegar stórmyndir sem ættu aðl
geta komið fólki í viðeigandi hátíðar-
skap. Merkilegasta myndin er án efa'
Brúðkaupsveislan sem Nýja bió býður
i.
ÚrpiskamyndGamla bíós, Á hverfanda hve/i.
Gamla bíó
Á hverfanda
hveli
Gamla bíó ætlar að sýna gamla
mynd, Á hverfanda hveli, en hún var
gerð 1939. Myndin hefur verið í sýn-
ingu meira og minna þessi 40 ár og
hlaut á sínum tíma fjöldann allan af
óskurum hvað sem það segir nú um
gæði myndarinnar. Myndin er byggð á
þekktri skáldsögu Margaret Mitchellis
og Victor Fleming leikstýrði ásamt
George Cukor og Sam Wood. Lengd
myndarinnar er nærri fjórir klukku-
tímar. Með aðalhlutverk fara Clark
Gable, Vivien Leigh og Leslie
Howard. Sögusviðið er borgarastyrj-
öldin í Bandaríkjunum og spannar
árin 1861 til 1873. Á hverfanda hveli
er mjög rómantisk mynd og það má
þvi búast við að eldri kynslóðin
flykkist i Gamla bíó til þess að endur-'
upplifa þessa stórmynd. Yngri kyn-
slóðin er aftur á móti líkleg til þess að
veltast um af hlátri i atriðum sem for-
eldrarnir eru gráti nær.
Stjörnubíó
Úr Brúðkaupsvalslunni aftir Robart AHman, sem Nýja bíó sýnir.
Nýja bíó
Háskólabíó
Kjötbollur
Háskólabíó sýnir kanadíska gaman-
mynd sem heitir Kjötbollur. Leikstjóri
er Ivan Reitman og framleiðandi er>
Dan Goldberg en þessir menn fram-
leiddu Deltaklíkuna sem sýnd var í
Laugarásbíói í fyrrahaust. Myndin
gerist í sumarbúðum fyrir unglinga og
segir frá ærslafullum unglingum og
ótrúlegustu uppátækjum þeirra. Með
aðalhlutverk fer Bill Murry en hann er
víst þekktur þar vestra fyrir hlutverk
sitt í sjónvarpsþætti sem heitir „Satur-
day Night Live”. Ef myndin er eitt-
hvað i líkingu við Deltaklíkuna má
áreiðanlega hlæja sig máttlausan og
ekki er að efa að myndin verður vin-
sæl meðal unglinga.
framhald af American Graffiti sem
Laugarásbió sýndi hér um árið. Þá
var það enginn annar en Georg Lucas
sem leikstýrði en í þessari mynd er
hann titlaður framkvæmdastjóri og
B.W.L. Norton Ieikstýrir þessari nýju
mynd. Myndin gerist á árunum ’64 til
’68 og býður því greinilega uppá aðra
framhaldsmynd. Söguþráðurinn er létt
bland af kappakstri, ástarflækjum og
Vietnamstríði. Myndin á eflaust eftir
að vekja mikla athygli hér á landi
vegna þess að íslensk stúlka, Anna
Björnsdóttir, fer með hlutverk í þessari
mynd. Anna leikur íslenskan skipti-
nema sem á erfitt með að tjá sig á
ensku og hefur hún hlotið ágæta dóma
fyrir frammistöðu sina í þessari mynd
þó hlutverkið sé ekki ýkja stórt. Þetta
er sjálfsagt ágæt afþreyingarmynd og
mikið um tónlist eins og i fyrri mynd-
inni.
Laugarásbíó
Meira Graffítí
Meira Graffiti heitir myndin sem>
Laugarásbió sýnir og er hún óbeint
Hanover-
street
Stjörnubíó sýnir nýja mynd.
Hanoverstreet, sem Peter Hyams leik-
stýrir. Myndin gerist í síðari heims
styrjöldinni og segir frá ástum banda
rísks liðsforingja og stúlku nokkurrai
sem hittast fyrir hreina tilviljun. En
stúlkan er gift og á barn svo þetta
verður ást í meinum. Hér virðist því
enn ein þríhyrningsmyndin vera á
ferðinni. Með aðalhlutverk fara Harri-
son Ford, Christopher Plummer og
Lesley-Anne Down. Myndin hefur
fengið mjög misjafna dóma hjá gagn-
Brúðkaups-
veis/an
Það er áreiðanlega óþarfi að kynna
leikstj. Brúðkaupsveislunnar, Robert
Altman, svo oft hefur hann glatt kalin
hjörtu íslenskra kvikmyndaáhuga-
manna. Nægir I því sambandi að
minna á M*A*S*H, Nashville og
Þrjár konur sem sýnd var í Nýja bíói í
fyrravetur. Brúðkaupsveislan er gerð
1978 og þykir einna mest líkjast Nash-
ville af fyrri myndum Altmans.
Myndin segir frá brúðkaupsveislu
nokkurri þar sem gestirnir eru af
ólíku sauðahúsi. Það hefur liklega
verið ætlun Altmans að gera satíru á
ameriskt þjóðfélag en gagnrýni hans
fer fyrir ofan garð og neðan vegna
þess hve myndin er makalaust fyndin.
Heill stjörnuskari leikur í myndinni,
þar á meðal Mia Farrow, Geraldine
Chaplin, Lillian Gish og Vittorio
Gassman. Það er því óhætt að mæla
með þessari mynd sem prýðis skemmt-
un.
Úr myndinni Meira Graffiti, sam sýnd er i Laugarásbíói.
Lesley Anne Down og Harrison Ford i hiutverkum sinum i Hanoverstræti, sem sýnd veröur i Stjömubiói.