Dagblaðið - 24.02.1981, Síða 1
7. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981 -46.TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022
Ríkisstjórnin afgreiðir togarakaupamálið:
STJORNM VISAR TIL
FYRRISAMÞYKKTA
útlit
fyrirað
afkaup-
unum
verði
Kaupin á Þórshafnartogaranum
voru til meðferðar á ríkisstjórnar-
fundinum ímorgun.Miklar líkur voru
taldar á þvi fyrir fundinn að málið
yrði endanlega afgreitt af hálfu ríkis-
stjórnarinnar á þann veg að af kaup-
unum geti orðið.
Ríkisstjórnin mun hafa lagt fram
það sem samþykkt hefur verið í þessu
máli í ríkisstjórn annars vegar og
Framkvæmdastofnun hins vegar.
Ein fyrirstaðan í togarakaupa-
málinu er sú tilhögun, sem komið
hefur til tals, að verja til kaupanna
hluta þess fjár sem ætlaður var til að
efla nýsmíði veiðiskipa innanlands.
Hefur t.d. Eggert Haukdal, stjórnar-
formaður Framkvæmdastofnunar
lagzt gegn slíkri ráðstöfun fjárins.
Viðhorf iðnaðarráðherra, Hjörleifs
Guttormssonar, hefur verið hið
sama.
Endurskoðun málsins í ríkisstjórn
er talin geta opnað leið fyrir mála-
miðlun um togarakaupin. -BS.
Lesið yfir svínum í Krísuvíkurskóla
Hvað sem segja mó um svín er óhœlt að segja að þau séu nómfiis. í gœr er DB-menn
heimsóttu Krísuvikurskóla, sem nú hefurfengið nemendur ífyrsta sinn, var ekki ann-
að að sjó en þau hlustuðu með athygli ú kennara sinn, Gunnar Sigurjónsson, er hunn
lasyfirþeim i einni af kennslustofum skólans. Tœpiega 400 „nemendur” eru nú setzt-
ir aó í skólanum, en þeir misstu heimili sitt óveðursnóttina í siðustu viku. Krisuvikur-
skóli hefurþvl góðu hlutverki að gegna þessa daganu. I blaðinu i dag er núnar sagtfrú
heimsókninni i Krisuvíkurskóla.
-KI.A/'DB-m vnd: T.inar Ólason.
-sjábls.10
Kaupskipadeilan:
r
35 TIMA A SATTAFUNDI
Samningafundi undirmanna á
kaupskipum og skipafélaganna lauk
um kl. hálftvö i nótt og hafði þá
staðið í 35 tíma eða síðan á sunnu-
dag. Fulltrúar undirmanna vísuðu i
gærkvöldi frá tillögu frá sáttanefnd
til lausnar deilunni og virðist deilan í
hnút sem stendur. Enginn fundur
hafði verið boðaður í morgun. Verk-
— en árangurslaust og
verkfall skallá
fall undirmanna hófst á miðnætti og
nær til Eimskips, Hafskips, Nesskips
og Jökla en ekki til Skipadeildar
Sambandsins enn sem komið er.
-ARH.
VALDARANSTILRAUN A SPANI
—sjábls.6og7
Ungur íslendingur
hefur setið í mánuó í
fangelsi
íKaupmannahöfn:
Réttað í
dag
IJngur. íslendingur hcl'ur nú setið í
ntánuð i fangelsi í Kaupmannahöfn
en hann var handtekinn 24. janúar sl.
eftir að hafa hent bjórflösku í andlil
lögregluþjóns á veitingahúsi þar i
borg.
íslendingur þessi, sem er sjómaður
að atvinnu, hélt til Kaupmannahafn-
ar og ferðinni var síðan heitið til Svi-
þjóðar þar sem hann ætlaði að fylgj-
ast með leik íslandsmeistara Víkings
og Sviþjóðarmeistara l.ttgi í Evrópu-
keppninni i handknattleik. Maðurinn
fór utan með hópi íslendinga sent
horfðu á leikinn.
Hálfri klukkustund eftir að hann
hafði skráð sig inn á hótel i miðborg-
inni hafði hann verið rændur öllum
fjármunum. Hann var síðan staddur
á veitingahúsi urn kvöldiðen hafði að
sögn i frammi dólgslega hegðun.
Lögregla var kvödd á staðinn cn
þegar fjarlægja átti manninn henti
hann flösku í andlit eins lögreglu-
þjónsins sem hlaut Ijótt sár af.
Sendiráð íslands í Kaupmanna-
höfn hefur fylgzt með máli mannsins.
Þorleifur Thorlacius sendifulltrúi
sagði í morgun að réttað yrði i máli
íslendingsins í dag. „Þar skýrist
hvort honum verður sleppt eða hvað
verður um hann. Hann fær sjálfsagt
einhvern dóm en hvort um frekari
fangelsisvist verður að ræða er ekki
vitað. Hann hefur nú setið inni i
mánuð,” sagði Þorleifur.
Að sögn Þorleifs hefur sr. Jóhann
Hlíðar sendiráðsprestur i Kaup-
mannahöfn annazt piltinn og verður
hann túlkur hans við réttarhöldin í
dag.
-JH.
Fjögur innbrot
íKópavogi
Það var uppi typpið á innbrots-
þjófum, sem lögðu leið sína um
Kópavoginn i nótt. Fyrir klukkan níu
var búið að tilkynna innbrot á fjórum
stöðum í kaupstaðnum.
1 hótt var tilkynnt um innbrot í
Jöfur, bifreiðaumboð, en þar var
einungis saknað skiptimyntar. Farið
var i Fiat-umboðið, brotizt inn í bíla-
verkstæði að Smiðjuvegi 38 og þaðan
m.a. stolið bifreið sem enn var
ófundin. Loks var farið inn i Ás að
Smiðjuvegi 22. Ókunnugt var enn um
þýfi þar. Málin voru öll á frumstigi
rannsóknar i morgun. -A.St.'