Dagblaðið - 24.02.1981, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
Um hitaveitutengingar
—alttígrænumsjó
Hafsteinn Blandon vélaverkfræðing-
ur skrifar:
Þegar undirritaður leit sem snöggv-
ast inn á fyrirlestur um stjórnbúnað
hitakerfa, sem haldinn var á nám-
skeiði í húsakynnum Byggingaþjón-
ustunnar í Reykjavík nýlega, var
varpað á tjald mynd af tengingu hús-
kerfis við hitaveitu undir stórletraðri
fyrirsögn „Allt í grænum sjó”.
Á myndinni var sýnd notkun
þrýstiminnkara sem stjórntækis fyrir
ofnakerfi með sjálfvirkum ofnlok-
um. Taldi fyrirlesarinn, einn af sölu-
mönnum Danfoss-umboðsins á ís-
landi, að þrýstiminnkari væri alls-
endis óhæfur til stýringar á slíkum
kerfum og að „allt yrði í grænum
sjó” í hitakerfinu ef ekki væri not-
aður þrýstijafnari, sem er mun dýr-
ara stjórntæki en þrýstiminnkarinn.
Námskeiðið um stýringu hitakerfa
hefur verið haldið víða um land und-
anfarið og ofangreindar fullyrðingar
þvi náð eyrum margra, sem sjá um
tengingar á hitakerfum. Hef ég því
tekið saman nokkra mola um þessi
mál áhugamönnum til fróðleiks.
Þegar sjálfvirkir ofnlokar eru not-
aðir á hitakerfi er nauðsynlegt að
mismunaþrýstingi yfir kerfið sé ætíð
haldið innan hæfilegra marka. Þegar
valin eru stjórntæki til þess að halda
mismunaþrýstingnum hæfilegum er
rétt að gera sér grein fyrir því, að
hitakerfi tengd fjarvarmaveitum eru
tvenns konar að gerð.
Tvöfalt kerfi er það nefnt, þegar
afrennslisvatnið frá hitakerfinu fer til
blöndunar- eða kyndistöðvar. í slíku
kerfi geta orðið sveiflur bæði á inn-
taksþrýstingi og bakþrýstingi kerfis-
ins og því nauðsynlegt að nota þrýsti-
jafnaratilstýringar.
Einfalt kerfi er það hins vegar
nefnt, þegar afrennslisvatnið frá hita-
Bréfritari fjallar um tengingu húskerfa við hitaveitu.
DB-mynd Einar Ólason.
kerfinu er Iátið renna í skolplögn.
Slík kerft eru mjög algeng hérlendis á
stöðum sem njóta jarðvarmaveitu.
Venja er að setja svokallaðan slaufu-
loka á afrennsli einfalds kerfts til að
halda uppi bakþrýstingi. Með því að
nota þrýstiminnkara með innbyggðri
þrýstijöfnun, sem vinnur óháð sveifl-
um á inntaksþrýstingi, er auðvelt að
halda mismunaþrýstingi innan hæfi-
legra marka í slíku kerfi.
Miklum fjármunum er varið ár
hvert í uppbyggingu fjarvarmaveitna.
Full ástæða er til að hvetja húseig-
endur og aðra sem fyrirhuga tenging-
ar við hitaveitu að kynna sér vel hvers
eðlis hitakerfið er svo velja megi hag-
kvæmustu stjórntæki i hverju tilfelli.
Hvað um þá sem eru
ennþá verr settir?
Öryrki hringdi.
Árlega veitir ríkið hóp öryrkja
eftirgjöf á aðflutningsgjöldum af bif-
reiðum og er það vel. En eins og
gefur að skilja geta þeir einir nýtt sér
þetta sem hafa sæmilega heilsu og
nokkuð góð fjárráð.
Stór hópur öryrkja getur ekki nýtt
sér þennan styrk, sem ríkið á vissu-
lega þakkir skildar fyrir að veita
okkur öryrkjum. Margir eru ekki í
það líkamlega góðu ástandi að þeir
geti stjórnað bíl fyrir utan alla hina
sem ekki hafa fjárhagslegt bolmagn
til að kaupa og reka bíl.
Við sem svona er komið fyrir
þurfum eftir sem áður að komast
leiðar okkar, en þá þurfum við að
kaupa undir okkur dýra leigubíla.
AHir sjá að það er tekjulausum ör- tollum er góðra gjalda verð en hvað
yrkjum um megn. Þessi eftirgjöf á um þá sem eru ennþá verr settir?
Spurning
dagsins
Ertu búin(n) að gera skatt-
skýrsluna og skrifarðu undir
með góðri samvizku?
Pélur Olgeirsson fulltrúi: Ég fékk
frest, en ég ætla að gera hana fljótlega
og skrifa undir með góðri samvizku.
Jóhanna Óskarsdóttir sjúkraþjálfart:
Já, ég skrifaði undir með góðri
samvizku.
Marfa Hallbjörnsdóttir skrifstofu-
maður: Já, auðvitað skrifa ég undir
með góðri samvizku.
Þessi bill hefur verið notaður til að
hjálpa fötluöum til að komast milli
staða, e.t.v. þarf fleiri slíka.
Raddir
lesenda
Við teljum
að notaðir VOL VO bílar séu betri en nýir bílar af
ódýrari gerðum.
244DL, ÁRG. '81,
beinsk., óskráður, kr. 125.000
245GL, ÁRG. '80,
beinsk., ekinn 15000, kr. 115.000
245GL, ÁRG. '79,
sjálfsk., ekinn 36000, kr. 105.000
244GL, ÁRG. '79,
beinsk., ekinn 16000, kr. 95.000
244DL, ÁRG. '78,
beinsk., ekinn 35000, kr. 80.000
244DL, ÁRG. '77,
beinsk., ekinn 66000, kr. 75.000
144DL, ÁRG. '74,
beinsk., ekinn 150000, kr. 43.000
DAIHATSU CHARADE, ÁRG. '80,
5 dyra, ekinn 10000, kr. 60.000
VOLVO jw VEUIRHF
Suðurlandsbraut 16, R.
Sími 35200.
Magnús Jósefsson, starfrækir vinnu-
vélaleigu. Nei, ég er ekki búinn aðgera
skattskýrsluna. Ég hef lengri frest þar
sem ég er með smáatvinnurekstur.
Þröstur Guðmundsson kerfis-
fræðingur: Já, ég er búinn að gera
skattskýrsluna og skrifa undir með
góðri samvizku.
4
Kristrún Sigurðardóttir kennari: Já,
ég er búin að gera skattskýrsluna.
Auðvitað skrifaði ég undir með góðri
samvizku.