Dagblaðið - 24.02.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1981.
DB á ne ytendamarkaði
ABÆ11SRETTUR EDA
KAFFIMEÐLÆTI
Eplakaka sem er ekki bökuð í of ir
Svokallaða danska eplaköku, þ.e.
kakan er ekki bökuð, er hægt að nota
baeði sem ábætisrétt eða sem köku
með kaffi. í Danmörku, þaðan sem
þessi gómsæta eplakaka er upphaf-
lega frá, er hún iðulega notuð sem
ábætisréttur á jólunum. Hún er líka
sannkallaður jólamatur. — Til eru
nokkrar útgáfur af þessari eplaköku,
mismunandi fínar. Hægt er að hugsa
sér að notuð séu svokölluð matarepli
i kökuna. í upphaflegri mynd hefur
hún áreiðanlega verið búin til úr
Neðsta lagið á að vera rasp, svo kemur
eplamauk, o.s.frv. Efsta lagið á einnig
að vera rasp. Svo kemur rjóminn þar
- ofan á. DB-myndir Bjarnleifur.
niðurfallseplum, þ.e. eplum sem falla
sjálfkrafa af eplatrjánum og eru yfir-
leitt ekki seld á markaði. Danir voru
svo sparsamir hér í eina tíð. Raspið
hefur líka að sjálfsögðu verið búið til
úr brauðafgöngum, eins og við
höfum þegar lýst á Neytendasíðunni.
í eplakökuna fer:
1 pakki þurrkuö epli
ca 250 gr rasp
jurtasmjörl. til að steikja raspið i
ca 100—150 gr.
Smávegis sykur. — Vanilludropar.
Ef notuð eru þurrkuð epli (það er
minnsta fyrirhöfnin) eru þau lögð í
bleyti í nokkra klukkutíma og síðan
soðin í mauk. Látið pínulítinn sykur
út í eplin og bætið vatni í pottinn,
þannig að eplamaukið verði samfellt
mauk. Látið vanilludropa út i epla-
maukið.
Raspið, sem verður að vera
ókryddað brauð- eða tvíbökurasp er
brúnað í smjörlíkinu á pönnu. At-
hugið að hita pönnuna vel áður en
smjörl. er brúnað á henni. Þáer rasp-
ið látið út á pönnuna. Athugið að
það má slökkva undir pönnunni
nærri strax, því annars vill raspið
brenna. Hrærið í því á meðan það er
á pönnunni. Athugið einnig að það
heldur áfram að brúnast eftir að
pannan hefur verið tekin af plötunni,
því pannan er svo heit.
Raspið og eplamaukið er síðan
látið til skiptis í hæfilega djúpa skál
(sjá mynd). Fyrst er látið rasp, síðan
eplamauk, svo rasp, — og þá epla-
mauk. Neðsta lagið á að vera rasp og
efsta lagið sömuleiðis. Kakan er
síðan borin fram með isköldum
þeyttum rjóma, skreytt með rifs-
berjahlaupi og rifnu súkkulaði.
Þannig er „venjuleg” eplakaka
búin til. En einnig er hægt að breyta
til með því að láta góða sultu milli
laga og eins gefa marðir bananar
kökunni sérstakan hátíðablæ.
Svona eplakaka hentar vel til fryst-
ingar, en þá verður hún að sjálfsögðu
helzt að vera rjómalaus. Ef bera á
fram eplaköku sem hefur verið fryst
verður að sjálfsögðu að þíða hana
áður en hún er borin fram. Þá getur
verið gott að bregða henni smástund í
heitan ofn, þannig að kakan sé ann-
aðhvort ylvolg þegar hún er borin
fram eða í það minnsta ekki ísköld.
Ein útgáfan af þessari köku er með
ristuðum hnetum eða möndlum, en
hver og einn verður að finna út hvað
honum þykir bezt og hverju hann vill
kosta til hverju sinni.
Þá má einnig taka fram að við
höfum stundum notað frysta rabar-
barann úr garðinum út í eplakökuna,
og jafnvel stundum einnig vanillu-
krem. Endanleg útkoma er þá senni-
Iega komin nokkuð langt frá upphaf-
inu til þess að geta kallast eplakaka.
Það má e.t.v. kalla það „variasjón
við stefið eplakaka”. Við skulum
minna á það síðar, þegar fyrstu rab-
arbaraleggirnir fara að stinga upp
kollinum í vor.
-A.Bj.
Tíu króna munur á verði rafMöðu:
„VERÐUR ATHUGAД
—segjrVerðlagsstofnun
„Mér finnst skrítið að nákvæm-
lega sams konar rafhlaða kostar á
einum stað 2 krónur og öðrum stað
12 krónur og 50 aura,” sagði Björg-
ólfur Kristjánsson í viðtali við Neyt-
endasíðuna.
Hann fékk sér á fimmtudagsmorg-
un göngutúr um Þingholtin og leit-
aði um leið að rafhlöðu í útvarpið
sitt. Ódýrustu rafhlöðuna fann hann
í verzlun við Baldursgötuna, á 2
krónur, en þá dýrustu úr söluturni
við Grundarstíg, á 12,50. Sem dæmi
um milliverð má nefna að í KRON
kostaði sams konar rafhlaða kr. 7,40
en hafði að sögn afgreiðslumanna
hækkað úr 5 krónum í fyrri viku
vegna nýrrar sendingar.
Rafhlöður eru ekki háðar verðlags-
ákvæðum. Álagning á þær í heildsölu
og smásölu er frjáls en þó má hvorki
innflytjandi né seljandi hækka þá
álagningu sem hann hefur einu sinni
ákveðið. „Þessi munur er ekki eðli-
legur og við munum athuga málið
nánar,” sagði Friðbjörn Berg,
deildarstjóri á Verðlagsstofnun.
Einhverju kann aðmuna á verði að
rafhlöður eru til miss:erkar. Þannig
eru alkaline rafhlöður sem cndast
lengi langdýrastar. Síðan koma raf-
hlöður frá einstaka fyrirtækjum sem
merktar eru með litlum + . Ódýrastar
eru síðan sams konar rafhlöður sem
ekki eru með +. Ástæða er til þess að
hvetja fólk til þess að athuga sinn
gang með verðið á þessum hlutum
sem öðrum því þó þeir séu ekki stórir
gerir margt smátt eitt stórt.
DS.
Asetonið
ekki nógu
gott
R. kom að máli við Neytendasíð-
una og benti á að ekki væri nógu gott
að ráðleggja fólki að hreinsa límbletti
af með asetoni eins og gert var á
síðunni á þriðjudag. Að vísu væri
það gott svo langt sem það næði en
um það bil 80% af þeim hlutum sem
á venjulegum heimilum væru þyldu
ekki aseton.
R. sagði mun betra að nota feiti,
t.d. smjörlíki eða matarolíu, spritt
eða hreinsað bensín. Hreinsaða bens-
ínið væri líka gott til þess að ná af
plástri. |
-DS.. |
__________________■ 'l
Húsráð
/ stað þess að eyða mörgum fallegum
vordögum I röð við að gera hreint eld-
húsið er upplagt að gera það I mörgum
hlutum. Eftir að uppþvotti eftir matinn
er lokið má taka til I einni skúffu eða
einum skáp og þáfinnur maður ekkert
fyrir verkinu.
Látið pönnuna hitna vel áður en smjörlikið er látið á hana, þá brúnast það eins og
skot og ekkert festist á pönnunni! En athugið að þá heldur það sem á pönnunni er
áfram að brúnast þó að búið sé að taka pönnuna af hellunni, þvi hún var svo heit i
upphafi!
Uppskriftin sem gefin er i greininni er mátuleg i tvö föt eins og sjást á myndinni.
Þessi tegund af kökufötum hentar alveg sérlega vel fyrir danska eplaköku enda er
annað „danskt postulin”. Það er þó ekki skilyrði að fatið sé úr dönsku postulini,
en það sakar ekki!
Upplýsingaseðill
til samanbuiðar á heimiliskostnaði!
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- |
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaital heimiliskostnaðar |
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili__________________________________i
i
Sími 1
------------------------------------------,
i
Fjöldi heimilisfólks_ l
i
Kostnaður í janúarmánuði 1981.' |
___________________________________________ i
Matur og hreinlætisvörur kr._____________i
Annað kr.________________1
i
Alls kr. _ i
B VIKIX j
■'■■■1.1. .. ——————