Dagblaðið - 24.02.1981, Page 6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
i
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
BÚIHVIÐ
TRÚLOFUN
DIÖNU OG
KARLSí DAG
Brezhnevvill
viöræður við
Bandaríkin
—„Munum íhuga þetta mjög alvarlega,”
segir Alexander Haig
Karl Bretaprins, erfingi brezku
krúnunnar, mun tilkynna trúlofun
sína og lafði Diðnu Spencer í dag, að
þvi er brezka dagblaðið London
Times skrifar í gær.
Blaðið segir að brúðkaup Karls,
sem er 32 ára, og Diönu Spencer, sem
er 19 ára, muni sennilega verða í júli-
mánuði næstkomandi.
Lafði Diana er dóttir Spencer lá-
varðar, sem var í þjónustu Georgs
konungs sjötta.
Vinátta Karls og Diönu hefur verið
mjög til umfjöllunar í brezkum fjöl-
miðlum undanfarna mánuði og
margsinnis hefur því verið spáð aö
opinber trúlofun þeirra væri á næsta
leiti.
Diana Spencer hefur þar til nýverið
unnið sem fóstra á barnaheimili í
Pimlico í London. Hún hefur lítinn
frið haft fyrir fréttamönnum eftir að
orðrómurinn um samband hennar og
Karls komst í hámæli.
Leonid Breshnev forseti Sovétríkj-
anna gaf sterklega til kynna í ræðu
sinni á 26. flokksþingi sovézka
Kommúnistaflokksins í gær, að hann
óskaði eftir viðræðum við Ronald
Reagan forseta Bandaríkjanna. Hann
sagði að þörf væri á viðræðum milli
Washington og Moskvu á öllum vald-
sviðum. „Reynslan sýnir að þýðingar-
mesta sambandið er fundur æðstu
manna. Þetta var satt í gær og það er
satt enn í dag,” sagði Breshnev.
Jafnframt sakaði Brezhnev hina nýju
stjórn Bandaríkjanna um að reyna að
eitra andrúmsloftið á milli þessara
tveggja stórvelda. Annars einkenndust
ummæli hans í garð Bandaríkjastjórn-
ar af hógværð og yfirvegun.
Alexander Haig, utanríkisráðherra
Bandarikjanna, sagði að Bandaríkja-
stjórn mundi íhuga tilboð Brezhnevs
mjög alvarlega. ,,Við þurfum að íhuga
þetta mjög alvarlega. Það var ýmislegt
nýtt og athyglisvert í þessari ræðu,”
sagði Alexander Haig.
MCCARTNEY SEZT
AÐÁMONTSERAT
— „Bítlamir koma aldrei saman aftur,”
segirhann
—Paul keyrði niöur tvo Ijósmyndara
Paul McCartney íhugar að setjast að
á suðurhafseyjunni Montserat þar sem
hann hefur dvalið síðustu vikur ásamt
konu sinni og börnum.
Á þessari litlu eyju getur hann notið
lífsins og lifað eins og venjulegur
maður án þess að vekja athygli og án
þess að þurfa að ryðja sér braut gegn-
um hóp aðdáenda og forvitins fólks í
hvert sinn er hann sýnir sig utan dyra.
Hann er ennþá miður sín vegna
morðsins á John Lennon og vill skiljan-
Iega komazt hjá því að hljóta sömu ör-
lög. Hann telur að á Montserat geti
hann lifað eðlilegu lífi ásamt fjölskyldu
sinni en án öryggisvarða, fréttasnápa
og aðdáenda.
„Ég vil ekki enda líf mitt sem fórnar-
lamb einhvers brjálæðings sem eltir
mig og fjölskyldu mína. Ég ætla að
hafa hægt um mig nú í framtíðinni, ég
vil að börn mín alizt upp á eðlilegan
hátt og það er ekki hægt þegar ljós-
myndari leynist sífellt bak við næsta
runna.”
En jafnvel á þessari friðsælu eyju
hefur Paul McCartney ekki alltaf
fengið að vera í friði. Kannski fyrir íbú-
unum en ekki fyrir fréttamönnum.
Nýlega var hann svo reiður vegna þess
að tveir ljósmyndarar frá AP eltu hann
að hann sneri bíl sínum við og keyrði á
bíl Ijósmyndaranna. Það gerði hann
þrátt fyrir að Linda kona hans og þrjú
barnanna voru í bílnum.
Núna býr Paul McCartney ásamt
konu sinni og börnum í einbýlishúsi
um tuttugu mínútna keyrslu frá „Air
Studio” þar sem hann vinnur að gerð
nýrrar hljómplötu. Fyrir rúmri viku
kom Ringo Starr til eyjarinnar og það
varð til að auka á orðróminn um að
bítlarnir þrír sem eftir lifa hygðust gefa
út hljómplötu saman til minningar um
John Lennon.
„Ringo aðstoðar mig í nokkrum
lögum á plötunni. Það er allt og sumt.
Við erum alls ekki að endurvekja The
Beatles. Það verður aldrei.”
Paul McCartney ásamt fjölskyldu sinni. Hann á nú þá ósk heitasta að geta lifað eðlilegu lifi með fjölskyldu sinni og gerir sér
vonir um að það sé hægt á Montserat.
Hinn sautján ára gamli morðingi hylur andlit sitt eftir að hafa játað að hafa einn
framið morðið og komið sökinni á félaga sinn.
„ÉG VAR ÞVINGAÐ-
UR TIL AÐ JÁTA”
—segir 20 ára gamall Álaborgarbúi, sem sat saklaus ífangelsi
f 211 sólarhringa.—Morðinginn var 17 ára vinur hans,
sem kom sökinni á félaga sinn
Tuttugu ára gamall maður frá
Álaborg grét af gleði um síðustu helgi
þegar saksóknarinn Ole Stigel til-
kynnti honum að fallið hefði verið
frá ákæru á hendur honum fyrir
morð.
í 211 sólarhringa hafði hann verið
í gæzluvarðhaldi grunaður um að
hafa myrt deildarhjúkrunarkonuna
Inger Agneta. Helming þess tíma var
hann í einangrun. Það var svo ekki
fyrr en í lok síðustu viku, að sautján
ára gamall félagi hans játaði að hafa
verið einn valdur að morðinu, að
fallið var frá ákærunni. Félagi hans
hlaut hins vegar átta ára fangelsis-
dóm.
Þrátt fyrir að hinn 20 ára hafi
ekki verið hreinsaður 100% gat hann
ekki leynt gleði sinni og nú segir hann
að það sé hans heitasta ósk að verða
lögregluþjónn.
,,Það hljómar kannski undarlega
en ég vil mjög gjarnan verða lög-
regluþjónn og ég ætla að sækja um
lögregluskólann þegar ég hef lokið
herskyldu,” segir hann.
Hinn grunaði var handtekinn 25.
júlí í fyrra, sama dag og sautján ára
félagi hans. Fingraför hans höfðu
fundist í húsi hinnar myrtu. Sá 20 ára
gamli lýsti yfir sakleysi sínu og sagði
að fingraförin væru frá þeim tíma, er
hann heimsótti son hjúkrunar-
konunnar.
Nokkrum dögum síðar játaði
hann á sig morðið og þrátt fyrir að
hann drægi játninguna til baka var
gæzluvarðhald hans framlengt aftur
og aftur því hinn 17 ára hélt því fram
að hinn 20 ára væri aðalmaðurinn.
Það var ekki fyrr en 14. nóvember að
hinn 17 ára játaði að hann einn hefði
framið morðið. Ákærunni var þó
fram haldið þar til um síðustu helgi.
„Lögreglan þvingaði mig til að
játa,” sagði sá 20 ára síðar. „Þeir
sögðu að það myndi bitna á
fjölskyldu minni ef ég játaði ekki.
Þess vegna játaði ég á mig morð sem
ég hafði ekki framið.”
Lögreglan neitar því að hún hafi
beitt þann 20ára þvingitnum.