Dagblaðið - 24.02.1981, Side 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Bernadelte Devlin.
Bemadette í
stjómmál
að nýju
Bernadette Devlin, fyrrverandi þing-
maður á Norður-írlandi, hefur lýst því
yfir að hún hafi í hyggju að hefja þátt-
töku í stjórnmálum að nýju strax eftir
að hún hafi útskrifazt frá sjúkrahús-
inu. Hún varð fyrir skotárás í síðast-
liðnum mánuði en er nú sögð á góðum
batavegi.
Stjóm Reagans:
Camp David er
ekki aðalatriðið
Stjórn Ronalds Reagan hefur boðað
stefnubreytingu í málefnum Mið-Aust-
urlanda og lýst því yfir að Camp David
samkomulagið sé ekki þýðingarmesta
atriðið í stefnu stjórnarinnar. Tals-
maður stjórnarinnar segir að megin-
atriðið hljóti að vera að stemma stigu
við auknum völdum Sovétríkjanna í
þessum heimshluta.
Saudi-Arabía:
Olíusalan fyrir
tvo milljarða
ádag
Saudi-Arabía hefur um tvo milljarða
íslenzkra króna í tekjur á dag af olíu-
sölu. Menntamálaráðherra landsins
hefur látið í ljós áhyggjur vegna þeirrar
þróunar sem orðið hefur á þjóðfé-
laginu vegna olíuauðsins og hvatt til
þess að dregið verði úr olíuframleiðsl-
unni.
Bandaríkin:
Vextirlækkaðir
Þrír aðalbankar Bandaríkjanna hafa
lækkað forvexti úr 19,5 prósentum í 19
prósent vegna minnkandi eftirspurnar
eftirlánum.
Byltingar-
menn
virðast
fáliðaðir:
BYLTINGARTIL-
RAUNÁ SPÁNI
Þjóðvarðliðar hafa þinghúsið á valdi sínu—Konungur skipar hemum að grípa
til allra nauðsynlegra ráða
Þjóðvarðliðar sem í gær ruddust
inn í þinghúsið í Madrid og tóku það
á sitt vald voru þar enn í morgun.
Þjóðvarðliðarnir ruddust inn í þing-
húsið meðan fundur stóð þar yfir og
hnepptu þingmennina 300 að tölu í
gíslingu. Er þeir réðust inn í húsið var
í þann mund að hefjast atkvæða-
greiðsla um Calvo Sotelo sem for-
sætisráðherra.
Juan Carlos konungur kom fram í
sjónvarpi skömmu eftir miðnætti og
sagðist hafa falið hernum að gera
allar nauðsynlegar ráðstafanir til að
tryggja að ákvæðum stjórnarskrár-
innar yrði fylgt og byltingartilraunin
yrði kveðin niður.
Skömmu eftir að hann lauk
sjónvarpsávarpi sínu kom herlið,
skipað um 150 mönnum, að þing-
húsinu og umkringdi það.
Foringi þjóðvarðliðanna. sem
tóku þinghúsið er Antonio Tejero
ofursti, sem þykir öfgafullur hægri
maður. Hann var dæmdur í sex
mánaða fangelsi fyrir tveimur árum
fyrir að hvetja til uppreisnar í hern-
um.
FÍestir ráðherrar spænsku ríkis-
stjórnarinnar voru í þinghúsinu
þegar 200 manna herlið undir stjórn
Antonio Tejero réðst inn í húsið og
tók það á sitt vald.
Jaime Milans del Bosch, yfir-
maður hersins í Valencia, sem í fyrstu
virtist í vitorði með byltingar-
mönnum, virðist hafa hætt stuðningi
við þá og er svo að sjá sem byltingar-
tilraunin hafi mistekizt og verið illa
undirbúin.
Stjórnarhermenn tóku þegar í stað
ýmsar mikilvægar byggingar í
höfuðborginni til öryggis og
uppreisnarmenn hafa þinghúsið eitt
ávaldisínu.
Ekki er ljóst hvort einhver þing-
manna særðist er þjóðvarðliðar hófu
skothríð í þingsalnum. Sjónvarps-
fréttamaður sagði að einn varð-
liðanna hefði miðað byssu að sér og
hótað að skjóta hann ef hann legði
myndavélina ekki frá sér. Varðliðar
eyðilögðu aðrar myndavélar með
byssum sínum.
Eftir að Juan Carlos konungur
hafði hvatt herinn til að grípa til
nauðsynlegra aðgerða lýstu fjöl-
margir hershöfðingjar yfir fullum
stuðningivið hann.
Alfonsos Armada hershöfðingi,
annar valdamesti maður hersins, hélt
til þinghússins og dvaldi þar i rúma
klukkustund. Talið var að hann hefði
reynt að semja við þjóðvarðliðana.
Hann varðist allra frétta er hann kom
úr þinghúsinu.
Tvö stærstu . verkalýðsfélög
Spánar hafa boðað til tveggja
klukkustunda verkfalls í dag til að
mótmæla byltingartilrauninni.
Talið er að Adolfo Suarez for-
sætisráðherra og ýmsir ráðherrar
aðrir séu í haldi i sérstökum her-
bergjum í þinghúsinu.
Tejero hershöfðingi mun hafa i
hyggju að mynda herforingjastjórn á
Spáni til að kveða niður hryðjuverka-
starfsemi og fullyrt er, að hann hafi
hafnað boði Armada hershöfðingja
um að fá að fara úr landi. Haft er
eftir fréttamönnum, er voru i þing-
húsinu, að vaxandi taugaóstyrks sé
tekið að gæta hjá Antonio Tejero og
ýmsir þjóðvarðliðanna sem með hon-
um eru hafi ekkert vitað hvað til
stæði fyrr en í þinghúsið kom.
Suarez, forsætisráðherra.
Um fátt er nú meira rætt í Danmörku en eiturlyfjavandamálið þar i landi enda hafa hverjum degi sprauti 15 þúsund ungmenni sig með eiturlyfjum og á siðastliðnu an let-
fjölmiðlar haldið uppi mjög öflugum áróðri gegn þvf að undanförnu. Fullyrt er að á ust 200 eiturlyfjaneytendur af völdum lyfjaneyzlu, yfirleitt herófns.
Jacqueline Onassis.
Onassis hafði und-
irbúiö hjónaskilnað
—með leynd áður en hann lézt
—hugðist vingast við Mariu Callas á ný
Gríski skipakóngurinn Aristoteles
Onassis hafði með leynd byrjað að
undirbúa skilnað við eiginkonu sína
Jacqueline ári áður en hann lézt.
Áður en skilnaðurinn varð að
veruleika lézt Onassis og Jackie varð
syrgjandi ekkja öðru sinni og erfði
ómældar fjárupphæðir.
Þetta kemur fram í nýrri bók um
söngkonuna Maríu Callas sem gríski
sjónvarpsfréttamaðurinn Arianna
Stassinopoulos gaf út fyrir skömmu.
í hinni nýju bók um- Mariu
Callas er því haldið fram, að Onassis
hafi annars vegar viljað skilja til þess
að taka á ný upp samband við óperu-
söngkonuna Calls og hins vegar til að
auðmýkja Jackie, sem ekki hefði
uppfyllt þær vonir, sem hann hafði
bundið við hana, sem eiginkonu.