Dagblaðið - 24.02.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
9
G
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Minnsti hestur
í heimi?
Bob Pauley heldur því fram að
Teeny Toy, en svo heitir hesturinn á
myndinni, sé sá minnsti i heimi.
Þegar Teeny Toy kom í heiminn
var hann ekki nema 34 sentimetrar á
hæð og vó aðeins 6 kiló. Eigandinn
telur að þegar dverghesturinn haft
náð fullri stærð verði hann varla
hærri en 50 sentimetrar.
Sá hestur sem áður var talinn sá
minnsti i heimi vó 9 kiló við fæðingu
og er stærri en Teeny Toy er talinn
munu verða.
Teeny Toy býr í Virginiu í Banda-
ríkjunum.
Jon Peters hefur búið með Barböru Streisand í sjö ár
Var áður rakari en
framleiðir nú kvikmyndir
Nýja platan hennar Barböru Strei-
sand, „Guilty”, hefur" orðið afar vin-
sæl, ekki sizt lagið ,,I am a Woman in
Love” — eða ,,Ég er ástfangin kona”.
Maðurinn sem Barbara er ástfangin
af heitir Jon Peters og hafa þau verið
saman í sjö ár.
Jon segir að oft gangi bylgjurnar hátt
hjá þeim hjónaleysunum, en samlíf
þeirra hafi aldrei verið leiðinlegt.
„Barbara er mjög sniðug, mjög
hæfileikarík, og fjarskalega blíð,”
segir hann.
„Hún er mjög sterk kona,” heldur
hann áfram. „En ég er það líka. Kraft-
urinn í henni æsir mig upp, svo sam-
band okkar er alltaf spennandi og allt
getur gerzt.
Ég er ekkert óánægður með það.
Hvorugt okkar stjórnar hinu allan tim-
ann. Við ráðum til skiptis. Mig
4C
Jon Peters og Barbara Streisand: Hvor-
ugt stjórnar hinu allan tímann.
dreymdi einmitt um að eignast jafn-
inga. Það er langheilbrigðast.”
Hann segir Barböru hik-
laust til syndanna
Vinir þeirra segja, að það sé einmitt
sjálfstæði Jon Peters að þakka, að
samband þeirra Barböru hefur lukkazt.
„Hann er hugrakkari en margir aðr-
ir, hann lætur hana ekkert vaða ofan í
sig,” segir einn af samstarfsmönnum
Barböru. „Og hún kann að meta það.
Hún er umkringd af fólki sem skríður
fyrir henni og samþykkir allt sem hún
segir. En þegar honum finnst hún vera
að blaðra einhverja dellu, þásegir hann
henni að setjast niður og þegja. Það
kann hún að meta.”
Barbara verður hin reiðasta, þegar
fólk gefur í skyn, að Jon sé með henni
til að hagnast af frægð hennar. „Það
stagast á því, að hann hafi „bara” ver-
ið rakari. En hann átti þrjár rakara-
stofur og allt gekk prýðilega hjá
honum. Þeir sem stofnuðu plötufyrir-
tækið sem ég er á samningi hjá byrjuðu
sem skransalar. Ég get ekki séð að það
sé neitt fínna heldur en að vera rakari,
sem gerir þaðgott.”
Kannski við giftum
okkur sjötug
Barbara segir að Jon hafi mjög
góðan smekk og veiti sér ómetanlegan
stuðning.
Jon Peters hefur verið framkvæmda-
stjóri ýmissa kvikmynda, síðan þau
Barbara kynntust. Ein þeirra var „A
star is born” (Stjarna kemur upp) með
Barböru.
„Ég er frægari núna en meðan ég var
rakari,” segir hann. „Og það getur
verið erfitt. Sérstaklega fannst mér það
í fyrstu. En að vera í þessum bransa og
reyna að láta sem minnst á sér bera —
það er lífsins ómögulegt!”
Til að selja plötur og kvikmyndir
þarf að auglýsa sjálfan sig sem mest.
„Ég tek þessu létt, en Barböru fellur
það þyngra. Hún er oft hrædd við það
sem mér líztvelá.”
Öðru hvoru komast á kreik sögu-
sagnir um, að þau Jon og Barbara séu
að hætta við hvort annað. En það láta
þau sér í léttu rúmi liggja — og þykjast
ekki vera í giftingarhug.
„Við giftum okkur fyrr eða síðar —
líklega þegar við verðum sjötug,” segir
Jon.
-IHH.
1 Mutverki foringjans
„Jæja, strákar! Raðið ykkur nú upp i beina röð og ekkert múður!”
Fuglarnir fimm virðast satt að segja ekki hafa neinn áhuga á aö hlýðá skipunum foringjans. Þeir láta sér fátt um finnast og
horfa bara upp i vindinn. Sá eini sem virðist vera að skipa fyrir snýr hins vegar bakinu i vindinn.
Ekki vitum við af hvaða tcgund fuglarnir eru nákvæmlega en þeir tilheyra einhverri mávatcgund.
Gene Kelly og Francis Ford
Coppola gera röð söngvamynda
Gene Kelly er ekki aldeilis dauður úr
öllum æðum. Hann fór með allstórt
hlutverk í kvikmyndinni Xanadu sem
var sýnd í Reykjavík fyrir nokkru og
þótti standa sig vel. Nú hefur hann
ráðið sig til stórleikstjórans Francis
Ford Coppola, þar sem hann á að
verða leiðbeinandi, söngvari og dansari
í fyrirhugaðri kvikmyndaröð.
Coppola hrósaði Kelly gamla á hvert
reipi er hann skýrði frá samvinnu
þeirra tveggja. „Fyrir mér er Gene
Kelly sá stærsti þegar við lítum á
mannvalið í gömlu söngvamyndun-
um,” sagði hann.
Gene Kelly — i dansstuði.