Dagblaðið - 24.02.1981, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
Nær400illa lyktandi nemendur fylla nú skólastof ur og herbergi í Krísuvíkurskóla:
SVININ HAFA V1TKAST STOR-
LEGA V» HÚSNÆÐISSKIPT1N
—segja svínahirðarair í glæsilegasta „svínabúi” landsins
Dagblaðið skýrði frá því á laugar-
dag að loksins væru not fyrir hinn
glæsilega Krísuvíkurskóla, en þar
væru nú setztir að nýir íbúar. Ibú-
arnir eru tæplega 400 svin sem misstu
heimili sitt í óveðrinu er skall á í
síðustu viku.
í óveðrinu fauk helmingur þaksins
af svínabúinu í Krísuvik og brugðu
starfsmenn þess fljótt við til að
bjarga svínunum: Um fimmtíu svín
drápust í óveðrinu, en nokkur hafa
farið í viðbót vegna lungnabólgu.
Sérstaklega smíðaður bíll var
pantaður frá Selfossi til að flytja
svínin og þar sem hinn glæsilegi
ónotaði Krísuvíkurskóli var næstur
bænum voru svínin flutt þangað.
Þar una þau nú glöð við sitt, þrátt
fyrir kulda í skólahúsnæðinu, í skóla-
stofum og herbergjum skólans. Er
DB-menn bar að garði í skólanum í
gær gaus fnykurinn á móti þeim.
Hrínandi svin voru I hverju horni.
Litlir grisir leituðu hlýju hjá
mæðrum sínum sem skuífu engu
minna en ungarnir. Þá gat að lita
dauða grísi, sem lágu eins og hráviði
á göngum skólans.
Krísuvíkurskóli hefur því góðu
hlutverki að gegna þessa dagana þótt
upphaflegt hlutverk hans hafi vissu-
lega ekki verið að hýsa svín. Starfs-
menn svínabúsins hafa hitað upp á
næturnar með ofnum þann hluta
skólans sem nú er í notkun, en enginn
hiti er í skólanum. Má víða sjá vatns-
skemmdir í veggjum vegna kuldans.
Starfsmenn svínabúsins hentu
gaman að þessum nýju vistarverum
Ekki er vfst að mannlegir nemendur hefðu viljað setjast á skólabekk i Krisuvíkur-
skólanum i gær, en þar voru mikil óhreinindi og lyktaði afleitlega.
Gunnar heldur hér á einum grisanna, en þeir voru margir illa útlitandi eftir ævin-
týrið sfðustu daga.
DB-myndir: Einar Ólason.
Krisuvikurskólinn umdeildi hefur nú loksins fengið hlutverki að gegna — að hýsa tæplega 400 svfn. Einhver vildi upp frá
þessu nefna skólann upp á nýtt og þá að sjálfsögðu Grisavfkurskóii!
svínanna og töldu þau hafa vitkazt
mikið frá því þau komu í skólann.
Sögðu þeir einnig að Krísuvíkurskól-
inn væri eini skólinn sem opinn var
óveðurskvöldið og nóttina. En þrátt
fyrir allan glæsileikann í skólahús-
næðinu og allar milljónirnar sem
liggja i steyptum veggjunum er hús-
næðið í engu nógu gott fyrir svínin og
hefur þess vegna verið hraðað við-
gerð á gamla svínabúinu. Er við-
gerðin nú svo langt komin að talið er
að svínin, sem öll eru á penisillinkúr,
geti komizt heim til sín aftur í dag eða
ámorgun.
Krísuvíkurskólinn verður því enn
um sinn auður og yfirgefinn, nema
refirnir 330 sem búa á bænum Krísu-
vik taki upp á því líka að setjast á
skólabekk, það er að segja ef þeir
þola þásvínalyktina . . .
- ELA
Gunnar Sigurjónsson starfsmaður
svinabúsins „messar” hér yfir svinun-
um i einni af skólastofunum. Ekki er
annað að sjá en þeim vel Ifki — enda
sögðu starfsmennirnir að svfnin hefðu
vitkazt mikið þessa daga sem þau hafa
setið á skólabekk.
Lungnabólga gerði strax vart við sig eftir óveðrið og kuldann i skólanum og má
sjá hér afleiðingar hennar.
Svinabúið í Krísuvik. Á myndinni má sjá, til hægri á þakinu, hvernig hluti þess hefur fokið burt. Núna hefur verið gert við
þakið þannig að svínin ættu að geta komizt heim f dag eða á morgun.