Dagblaðið - 24.02.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
I I
Liggur vel á Blönduósbúum sem ólmir vilja fá Blönduvirkjun
Einn og einn fylgir
Páli á Höllustöðum
—segir H jálmar Eyþórsson f réttaritari Dagblaðsins
„Á okkur liggur furðanlega vel
miðað við tíðarfarið. Tíðin hefur rokk-
að í vetur, ýmist verið þíða eða frost,”
sagði Hjálmar Eyþórsson fréttaritari
Dagblaðsins á Blönduósi þegar hann
var inntur eftir fréttum úr byggðar-
laginu.
„Hér er enginn snjór, varla hægt að
fara á skíði og í vetur hefur verið ákaf-
lega snjólétt. Og í rokinu á dögunum
gerðist svo iítið að menn þora varla að
nefna það eftir öll ósköpin sem gengu á
fyrir sunnan. Það var varla meira en að
losnuðu og fykju fáeinar járnplötur.”
Blönduvirkjun er eðlilega mikið til
umræðu á Blönduósi og annars staðar í
sýslunni. Eða eins og Hjálmar orðaði
það: „Auðvitað er mikill hugur i
mönnum að fá þessa virkjun. Hún
myndi gjörbreyta öllu atvinnulífi í hér-
aðinu. Við heyrum varla raddir á móti
Blönduvirkjun nema einn og einn
mann frammi I sveit sem fylgir Páli á
Höllustöðum!”
Félagslífið er í daufara lagi, þó var
þorri blótaður baki brotnu og mikið
étið að vonum. Húnvetningar eru ann-
ars hressir í anda og láta ekki á sig fá þó
að Rússaflensunni hafi smávegis skotið
niður og hún lagt mann og mann i
rúmið.
- ARH
Ómar og Jón Ragnarssynir á fullri ferð á isilagðri brautinni.
Ómar Ragnarsson um Swedish Intemational rallið:
FORMSATRIÐIN VORU
„Það erfíðasta við þessa keppni má
segja að hafi verið undirbúningurinn.
Við þurftum að standa í alls konar
formsatriðum til þess að fá skoðun á
bílinn og geta verið með. Til dæmis
vorum við aðeins fjóra daga í Svíþjóð
við að gera okkur klára en tíu í Nor-
egi,” sagði Ómar Ragnarsson er rætt
var við hann um þátttöku hans og Jóns
bróður hans í sænska rallinu Swedish
International.
Ómar og Jón eru fyrstu íslending-
arnir sem taka þátt i alþjóðlegu ralli á
erlendri grund. Þeir fóru utan með
þeim eina ásetningi að ljúka keppni og
stóðu við það. Þeir höfnuðu í 66. sæti.
Af 116 bílum, sem hófu keppni,
komust 73 í mark. Sigurvegari varð
Hannu Mikkola frá Finnlandi. Hann
ók á Audi Quattro. Landi hans Ari
Vatanen varð í öðru sæti og Finninn
Pentti Arikkala hafnaði í þriðja sæti.
Þeir óku báðir á Escort.
Það varð Svíum mikið áfall að
Finnar skyldu hafna í þremur efstu
sætunum því að þeir höfðu haft yfir-
burði i þessari keppni í um þrjátíu ár.
Þeim tókst þó að ná fjórða, fimmta og
sjötta sætinu. Anders Kulláng varð i
fjórða sæti, Stig Bomqvist í fimmta og
Björn Johansson í sjötta sæti.
Swedish International rallið fór fram
dagana 13.-15. þessa mánaðar.
Leiðin, sem ekin var er 1.350 kílómetra
löng. Þetta rall er eitt af tíu sem gefa
ökumönnum stig til heimsmeistara-
nafnbótar.
„Sænska rallið sker sig að nokkru
leyti frá öðrum í heimsmeistarakeppn-
inni,” sagði Ómar. „Viðast hvar eru
menn úr leik eftir að hafa keyrt bílana
sina í hass. í sænska rallinu koma
margir í mark á óskemmdum bílum, en
ef þeir fara út af þá eru þeir úr leik. Allt
í sambandi við keppnina er mjög
strangt. Tími til viðgerða er til dæmis
ákaflega naumur. Við Jón fengum að
finna fyrir því þegar bilaði hjá okkur
ljósrofi. Þá fyrst áttum við á hættu að
detta úr keppninni því að bílarnir eru
skoðaðir hvað eftir annað.
Fyrir bragðið vorum við á sífelldum
þönum þegar tækifæri gafst til að fara
yfir búnaðinn og því vildi ýmislegt ann-
að gleymast. Eins og til dæmis að hella
bensíni á bilinn. Við þurftum að bregða
okkur í sparakstur einu sinni vegna
þess hve bensínlitlir við vorum orðnir.
Það voru einir 22 kílómetrar sem við
lögðum að baki í þessum sparakstri.
Þá má geta þess að við áttum í tals-
verðum dekkjavandræðum. Við
fengum ekki þau dekk sem við vorum
búnir að panta nema að takmörkuðu
leyti. Á fyrstu tveimur sérleiðunum í
keppninni vorum við. á vitlausum
dekkjum og gekk því að vonum illa.”
Auk Ómars og Jóns fór dálitill liópur
Islendinga lil Svíþjóðar til að fylgjast
með rallinu. Meðal þeirra var Ólafur
Guðmundsson sem tók meðfylgjandi
myndir. Hann kvað starfsmenn við
rallið hafa verið um 1500 og allt skipu-
lag eins og bezt varð á kosið. Ólafur
kvað ferðina hafa verið mjög gagnlega
fyrir íslendingana og Ómar tók í sama
streng.
, ,Það var óskaplega mikil reynsla að
vera með í þessu,” sagði Ómar. „Það
er eiginlega synd og skömm að notfæra
sér hana ekki í öðrum keppnum. Við
bræðurnir ætluðum bara að fara einu
sinni í svona keppni, en nú langar
mann auðvitað að fara aftur. — Nei,
það eru engar áætlanir um frekari
ferðir, en auðvitað miðlar maður
öðrum af þessari reynslu, sem maður
hiaut þarna úti í Svíþjóð. . - ÁT
Þó að þcir bræður yrðu ekki ofar í röð-
inni en í 66. sæti sló Ómar í gegn við
verðlaunaafhcndinguna. Þar hcrnidi
hann eftir jeppakcppni, eins og honum
einuin er lagið. Sá þá niður í úfinn á
mörgum kcppendum og aðstoðarmönn-
um sem viðstaddir voru.
Verðlaunaafhendingin. Finnar unnu þrefaldan sigur. Í efsta sæti varð Hannu
Mikkola, þá kom Ari Vatanen og Pentti Airikkala varð númer þrjú.
Sigurvegari i sænska rallinu varð Finninn Hannu Mikkola sem ók Audi Quattro.
Hann er nú f efsta sæti heimsmcistarakeppninnar að tveimur keppnum loknum ásamt
Jean Ragnotti frá Frakklandi og Svíanum Anders Kulláng.
DB-myndir: Ólafur Guðmundsson.
gr, VINNUEFTIRLIT
M RÍKISINS
Síðumúla 13,105 Reykjavík. Sími 82970.
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar neöangreindar stöður við
Vinnueftirlit ríkisins:
Yfirlæknir
Viðkomandi skal vera sérmenntaður í atvinnusjúkdóma-
fræði, embættislækningum eða liafa jafngilda menntun til
starfsins. Verkefni yfirlæknis eru skilgreind í 68. gr. laga
nr. 46/1980.
Upplýsinga- og
fræðslufulltrúi
Viðkomandi skal hafa staðgóða menntun og starfsreynslu
á sviði upplýsinga- og fræðslumála eða hliðstæðra starfa.
Umdæmiseftirlitsmaður
á Austurlandi með aðsetri á Egilsstöðum eða Reyðarfirði.
Krafist er staðgóðrar tæknimenntunar, a.m.k. vélstjóra IV.
stigs með sveinspróf eða jafngildrar menntunar auk starfs-
reynslu.
Umdæmiseftirlitsmaður
á Vesturlandi með aðsetri í Borgarnesi, á Akranesi eða ná-
grenni. Krafist er staðgóðrar tæknimenntunar. a.m.k. vél-
stjóra IV. stigs með sveinspróf eða jafngildrar menntunar
auk starfsreynslu.
Vinnueftirlitsmaður
til eftirlits með byggingarvinnustöðum og trésmíðafyrir-
tækjum á höfuðborgarsvæðinu. Krafist er sveinsprófs í tré-
smíði eða húsgagnasmíði og víðtækrar starfsreynslu.
Vinnueftirlitsmaður
til eftirlits með heilbrigðisstofnunum, þjónustufyrir-
tækjum, skrifstofum og skyldri starfsemi. Krafist er
staðgóðrar menntunar og starfsreynslu með tilliti til ofan-
greinds starfssviðs.
Umdæmiseftirlitsmenn og vinnueftirlitsmenn þurfa að
gangast undir námskeið sem haldin verða á vegum
Vinnueftirlits ríkisins.
Launakjör verða samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu
skulu sendar Vinnueftirliti ríkisins, Síðumúla 13, Reykja-
vík, eigi síðar en 15. mars nk.
EINNA ERFIÐUST