Dagblaðið - 24.02.1981, Blaðsíða 15
14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
I
Maradona skoraði
2mörkfyrirBoca
Diego Maradona, sem nú er talinn fremsti knatt-
spyrnumaflur heims, skoraði tvivegis fyrir sitt nýja
félag, Boca Juniors, i 1. deildinni i Argentinu á
sunnudag. Boca sigraði Talleres de Cordoba 4—1.
Mörk Maradona voru bæði skoruð úr vitaspymum.
Um sjötiu þúsund áhorfendur sáu leikinn i Buenos
Aires. Greiddu næstum 500 þúsund dollara i að-
gangseyri.
Maradona átti snilldarleik i Boca-liðinu ásamt
Miguel Brindisi, sem einnig er nýkeyptur til félagsins
og lék sinn fyrsta leik með þvi eins og Maradona.
Gífurlegverðlaun
Björns Borg
—fyrir sigur á McEnroe í einvígi
Tveir fremstu tennisleikarar heims, Svíinn Björn
Borg og John McEnroe, Bandaríkjunum, háðu
einvigi i Melbourne i Ástraliu um helgina og það
voru engir smápeningar í boði. Borg sigraði —
sigraði f tveimur leikjum af þremur.
Tveir fyrstu leikirnir voru þrjár lotur. Keppnin
hófst á föstudag og þá sigraði Borg með miklum
yfirburðum, 6—0 og 6—4. Annar leikurinn var á
laugardag og aftur þurfti Borg ekki nema tvær lotur
til að sigra hinn skæða mótherja sinn, 6—2 og 6—4.
Lokaleikurinn var á sunnudag — þá ákveðnar fimm
Iotur. McEnroe sigraði i fjórum lotum eða 6—4, 1—
6, 7—6 og 6—4. Mikia rignlngu gerði meðan þriðja
lotan stóð yfir. Fresta varð leiknum i tvær og hálfa
klukkustund. Siðan tóku þeir við aftur og sá banda-
riski sigraði. Þyrla beið hans á mótsstað og strax
flogið með hann á flugvöllinn i Melbourne. Þar náði
hann þotu á sfðustu stundu til USA.
Þeir hafa efni á þessu, tennisleikararnir. Fyrir
sigurinn hlaut Borg 500 þúsund dollara og
gullspaða, sem virtur er á 30 þúsund dollara.
McEnroe fékk 300 þúsund dollara! I
Spennai
1. deildinni á Spáni
Spennan er mikil i 1. deildinni spönsku i knatt-
spyrnunni — Atletico Madrid jók forskot sitt i tvö
stig með sigri á heimavelli en Barcelona náði i gott
stig á útivelll. Valencia tapaði hins vegar stigi á
heimavelli — gerði ekki nema jafntefli við eitt af
neðstu liðunum, Real Valladolid. Úrslit i 25. um-
ferðinni á sunnudag urðu þessi — niu umferðir eftir.
Atletico Madrid-Hercules
Real Betis-Barcelona
Real Sociedad-Salamanca
Las Palmas-Zaragoza
Osasuna-Real Madrid
Valencia-Real Valladolid
Sporting Gijon-Almeria
Espanol-Bilbao
Real Murcia-Sevilla
Staðan er nú þannig:
Atl.Madrid
Barcelona
Valencia
Sporting
Real Betis
Real Madrid
Real Sociedad
Sevllla
Espanol
Bilbao
Las Palmas
Hercules
Zaragoza
Osasuna
Valladolid
Real Murcia
Almeria
Salamanca
1—0
1—1
1—0
3—0
1—2
2—2
5—2
1—0
0—0
25 14 7 4 40 28 35
25 15 3 7 51 30 331
25 13 6 6 47 31 32
25 11 8 6 41 27 30
25 12 5 8 41 27 29i
25 12 5 8 43 29 29
25 12 5 8 34 24 29
25 10 8 7 23 25 28
25 10 6 9 26 31 26
25 10 4 11 47 42 24
25 10 4 11 37 41 24
25 7 8 10 25 27 22
25 7 8 10 24 33 22
25 8 6 11 25 35 22
25 5 10 10 26 36 20
25 5 6 14 25 35 16
25 4 7 14 21 49 15
25 4 6 15 21 47 14
Sá svissneski
gafst upp
Svlssneski landsliðseinvaldurinn f knattspyrnunni,
Leon Walker, hefur gefizt upp enda Iftið gengið hjá
honum siðan Sviss vann Island tvfvegis 1979 f
Evrópukeppni landsliða.
Walker sagði starfi sinu lausu eftir sex tapleiki
svissneska landsliðslns i röð. Svissneska knatt-
spyrnusambandið réð nýjan landsliðsþjálfara sl.
föstudag. Það er Paul Wolfisberg, 48 ára, sem
einnig er þjálfari hjá Luceme. Hann mun stjórna
liði Sviss f þeim HM-leikjum, sem liðið á eftir i ár —
gegn Ungverjalandi, Engiandi og Noregi.
Njáll Eysteinsson, TBR
Ef við sigrum Svía f kvöld
pá vinnum við Pólverja tíka
—sögðu fararstjórar íslenzka landsliðsins íhandknattíeik. Sænski landsliðsþiátfarinn bjartsýnn á sigur
Frá Magnúsi Gíslasyni, Lyon.
„Þetta vekur hjá manni heimþrá,”
sögðu islenzku landsliðsstrákarnir
glettnir á svip, þegar ég hitti þá á Hótel
Congress hér i Lyon í gær. Úti fyrir var
nefnilega fslenzk veðrátta, snjóaði.
Piltarnir voru þá nýkomnir af æfingu,
sem reyndar fór fram f hálfrökkri.
Enginn f fþróttahúslnu, sem kunni að
kveikjaljósin.
Islandsmót unglinga í badminton:
Leikir á mót-
inu voru 185!
Nú um helgina var tslandsmót
unglinga i badminton haldið i Laugar-
dalshöllinni. Keppendur voru 132 frá 9
félögum, og voru leiknir 185 leikir í
mótinu. Úrslit urðu sem hér segir:
Hnokkar-tátur:
Njáll Eysteinsson, TBR, sigraði Pétur
Lentz, TBR, ll/2og 11/8.
Ása Pálsdóttir, ÍA, sigraði Guðrúnu
Gísladóttur, ÍA, 6/11, 11/7 og 11/8.
Garðar Adolfsson, TBR og Njáll
Eysteinsson, TBR, sigruðu Þórhall
Jónsson, f A, og Sigurð Harðarson, ÍA
15/9 og 15/9.
Ása Pálsdóttir, f A og Kolbrún Óttars-
dóttir, Umf. Skallagr sigruðu Hafdísi
jBöðvarsdóttur, f A og Guðrúnu Gísla-
Idóttur, ÍA, 11/15, 15/7 ^g 15/12.
Þórhallur Jónsson og Ása Pálsdóttir,
ÍA, sigruðu Sigurð Harðarson og
Guðrúnu Gísladóttur, ÍA, 15/4 og
15/5.
Sveinar-meyjar:
Árni Þór Hallgrímsson, ÍA, sigraði
Ingólf Helgason, ÍA, 11/7og 12/10.
Guðrún Júlíusdóttir, TBR, sigraði
Ástu Sigurðardóttur, ÍA, ll/2og 11/0.
Ingólfur Helgason og Árni Þór Hall-
grímsson, fA, sigruðu Snorra Ingvars-
son og Ólaf Ásgrímsson, TBR, 15/1 og
15/3.
Guðrún Júlíusdóttir og Helga Þóris-
dóttir, TBR, sigruðu Ástu Sigurðar-
dóttur og Maríu Finnbogadóttur, ÍA,
,14/18, 15/7 og 18/17.
Ingólfur Helgason og María Finnboga-
dóttir, ÍA, sigruðu Árna Þór
Hallgrímsson og Ástu Sigurðardóttur,
I'A, 15/9,7/15 og 15/7.
Drengir-telpur:
Pétur Hjálmtýsson, TBR, sigraði
Indriða Björnsson, TBR, 8/15, 18/15
og 18/17.
Þórdís Edwald, TBR sigraði Ingu
iKjartansdóttur, TBR, 12/11 og 11/2.
Indriði Björnsson og Pétur Hjámtýs-
Json, TBR, sigruðu Ólaf Ingþórsson,
Interkomið
íefstasætið
Inter-Milano skauzt upp i efsta sætið
f 1. deildinni itölsku i knattspyrnunni á
sunnudag, þegar Roma, sem haft hefur
forustu nær allt keppnistimabilið,
gerði aðeins jafntefli á heimavelli. Inter
og Roma eru nú jöfn að stigum en
markamunur Milano-liðsins betri. Úr-
slit:
Ascoli-Cagliari 0—0
Avellino-Torino 3—0
Catanzaro-Fiorentina 2—2
Inter-Milano-Como 2—1
Juventus-Brescia 2—0
Perugla-Udinese 1—2
Pistoiese-Napoli 0—1
Roma-Bologna 1—1
Staða efstu liða er nú þannig:
Inter 18 9 6 3 28—13 24
Roma 18 8 8 2 27—16 24
Juventus 18 7 9 2 23—11 23
Napoli 17 7 7 3 18—13 21
Torino 18 7 6 3 22—17 20
TBR og Þórð Sveinsson, TBR, 15/9 og
15/9.
Elísabet Þórðardóttir og Elín Helena
Bjarnadóttir, TBR, sigruðu Ingu
Kjartansdóttur og Þórdísi Edwald,
TBR, 17/16 og 15/3.
Indriði Björnsson og Þórdís Edwald,
TBR, sigruðu Þórhall Ingason og
Ingunni Viðarsdóttur, ÍA, 15/12 og
18/13.
Piltar-stúlkur:
Þorsteinn Páll Hængsson, TBR,
sigraði Þorgeir Jóhannsson, TBR, 15/8
og 15/4.
Laufey Sigurðardóttir, ÍA, sigraði
Bryndísi Hilmarsdóttur, TBR, 11/3 og
11/2.
Þorsteinn Páll Hængsson og Ari
Edwald, TBR, sigruðu Gunnar Björns-
son og Þorgeir Jóhannsson, TBR,
9/15,15/12 og 15/12.
Laufey Sigurðardóttir, ÍA og Bryndís
Hilmarsdóttir, TBR, sigruðu Þórunni
Óskarsdóttur, KR og Ingunni Viðars-
dóttur, ÍA, 5/15, 15/4 og 15/7.
Gunnar Björnsson, TBR, og Elísabet
Þórðardóttir, TBR, sigruðu Ara
Edwald, TBR og Þórunni Óskars-
dóttur, KR, 15/12, 11/15 og 15/9.
Bond fær
Bondmeð
krókaleiðum
Kevin Bond hefur leikið sinn síðasta
leik fyrir Norwich. Hann hefur gert
samning við Seattle Sounders i Amer-
fku og Norwich fær 450 þúsund sterl-
ingspund fyrir leikmanninn. BBC
skýrði frá þessu f gærkvöldi og gat þess
jafnframt, að John Bond, faðir Kevins
og stjóri Man.City, hefði samið við
kanadfska félagið um að fá son sinn til
Man. City. í staðinn fær Sounders tvo
leikmenn, Steve Daley og Tommy
Hutchison.
Norwich er að reyna að semja við
Nottm. Forest um Martin O’Neil og
eins er QPR að reyna að fá Gerry
Francis frá C. Palace. Samningar hafa
enn ekki tekizt. Eftir þrjár vikur verður
markaði á leikmönnum lokaö i Eng-
landi.
Þrírnýirtil
Þór á Akureyri hefur fengið þrjá
nýja leikmenn i knattspyrnu til liös við
sig. Gengið var frá félagaskiptum
þeirra i gær. Leikmennirnir eru:
Þórir Gislason, áður FH, en hann er
mun kunnari sem handknattleiksmaður
en knattspyrnumaður. Lék með FH i
vetur, Haukum áður.
Óðinn Halldórsson, Völsungi, mun
leika með Þór f sumar.
Jón Lárusson, sem áður var leik-
maður Þórs, en lék með Magna f Greni-
vfk sl. sumar, hefur aftur gengið til liðs
við sitt gamla félag. GSv.
Við tókum nokkra úr landsliðshópn-
um tali og lentum fyrst inni í herbergi
fararstjórnarinnar. Páll Eiríksson
læknir sagði: „Æfíngin tókst ágætlega.
Allir við hestaheilsu og ekkert að van-
búnaði að leggja í Svíana hvað það
snertir.”
Hvernig hefur tekizt að brýna
hópinn fyrir þennan þýðingarmikla
leik, spurðum við Hilmar Björnsson,
landsliðsþjálfara.
„Alveg ágætlega,” svaraði Hilmar.
„Við erum að glöggva okkur á leikað-
ferðum þeirra. Nú hvernig fengizt
verður við kappa eins og Ribendahl, þá
er því til að svara, að ég hef ekki hugs-
að mér að setja hann undir sérstakt
eftirlit í leiknum, nema að nauðsyn beri
til, því í sænska liðinu eru fleiri sterkir
leikmenn. íslenzka liðið get ég ekki
gefið upp. Það verður valið um hádegi
á morgun (í dag), svo það er ykkar að
spáí það.”
Sama lið og sigraði Austur-Þjóð-
verja? var spurt. Ekkert svar en við
tókum þögnina sem samþykki.
Hóflega bjartsýnir
Þeir Gunnsteinn Skúlason og Jón Er-
lendsson voru hóflega bjartsýnir á sigur
gegn Svium. Leikurinn hefst í kvöld kl.
19.00 að íslenzkum tíma og verður í
Grenoble. Þeir töldu þó að ef leikur ís-
lenzka liðsins smellur saman, það ætti
góðan dag, gæti langþráður sigur á Sví-
um náðst.
„Takist okkur að vinna þennan leik
þá vinnum við Pólverja líka,” bættu
þeir Gunnsteinn og Jón við.
Margir hafa verið að ræða um, að ís-
lenzka liðið yrði hugsanlega í þriðja
sæti í A-riðlinum og gæti þá þurft að
leika við Dani um 5.-6. sætið í keppn-
inni. Þeir félagar, Gunnsteinn og Jón,
sögðust ekki hugsa svo lágt meðan tveir
leikir hefðu unnizt, enginn tapazt.
„Meðan svo stendur þá er miðað á
fyrsta sætið.”
Yfirfrakki á Þorberg
„Ég reikna frekar með því, að Svíar
setji á mig yfirfrakka,” sagði Þorberg-
ur Aðalsteinsson, markaskorarinn
mikli, sem hefur yljað áhorfendum
með glæsilegum mörkum og hefur að
þvi er bezt er vitað skorað mest allra
hingað tilámótinu.
„Það verður að ráðast í leiknum
hvernig brugðizt skal við því ef þeir
reyna að stöðva mig úti á vellinum áður
en ég kemst i skotstöðu. Sænska vörnin
er ekki óvinnandi vígi. í henni eru
glufur eins og í sænska skerjagarðin-
um, þrátt fyrir alla risana í liðinu. Éger
ekki svartsýnn á leikinn við Svía,”
sagði Þorbergur að lokum.
Bezti markvörðurinn
Að öðrum ólöstuðum hefur Kristján
Sigmundsson markvörður átt beztan
leik íslenzku landsliðsmannanna, og
engan markvörð höfum við séð hér í
keppninni ennþá, sem varið hefur
markið betur en Kristján. Svíar hafa
því áreiðanlega skoðað markvörzlu
hans mjög nákvæmlega.
„Jú, þeir hafa vafalítið reynt að
finna veikan blett hjá mér en ég er
óhræddur við stórskyttur þeirra eins og
til dæmis Claes Ribendahl. Hann hefur
aðeins skorað þrjú mörk hjá mér í
tveimur leikjum. Einna erfiðastur veit
ég að verður Sten Sjögren, hættulegur
hornamaður, sem skoraði tiu mörk
Svía í leiknum við Austurríkismenn. Ég
vona að mér takist að sjá við honum.
Verði íslenzka vörnin samtaka og taki
rösklega á móti Svíunum er ég hvergi
hræddur,” sagði hinn hægláti mark-
vörður islenzka landsliðsins.
Auðvitað sigrum við
Sænski landsliðshópurinn og einnig
sá austurríski býr á sama hóteli og sá ís-
lenzki. Ég hitti sænska landsliðsþjálf-
arann, Bertil Andersson, og spurði
hann um álit á viðureign íslands og Sví-
þjóðar.
„Auðvitað sigrum við,” sagði sá
sænski, „en sá sigur verður ekki fyrir-
hafnarlaus. Ef íslenzku leikmennirnir
losna við sænska „komplexinn” eru
þeir til alls líklegir. Við berum mikla
virðingu fyrir íslenzka liðinu, sem við
þekkjum reyndar út og inn,” sagði
Andersson.
Með honum voru tveir aðrir Svíar og
það var greinilegt, að þeir þekktu ís-
lenzkan handknattleik eins og vasa
sína. Þeir þuldu upp nöfn íslenzkra
leikmanna, félaga og úrslit án þess að
tafsa.
Heldúr hefur lítið verið skrifað um
aðra leiki en franska liðsins í blöðin
hér. Þar er þó ekki af miklu að státa.
Franska liðið tapaði báðum sínum
leikjum. Ég tel það hins vegar stór-
hættulegt fyrir okkur. Gífurleg tauga-
spenna hefur þó einkennt það í byrjun
leikjanna. Svíar komust í fyrsta leikn-
um í 7—1 — Pólverjar gerðu enn betur.
Komust í 7—0 og síðan 9—1 en eftir
það fóru Frakkarnir að vinna á í
báðum leikjunum án þess þó að ógna
sigri Svía eða Pólverja nokkru sinni.
Þrír leikir verða í A-riðlinum í kvöld.
Pólland—Austurríki og ísland—Sví-
þjóð leika í Grenoble og hefst fyrri leik-
urinn kl. 17.30að íslenzkum tíma. Hol-
land og Frakkland leika í St. Etienne
kl. 19.00. Í B-riðlinum eru einnig þrír
leikir. Sviss—-ísrael, Danmörk—
Tékkóslóvakía í Poitiers, og Búlgaría—
Noregur í La Rochelle.
-emm.
Aðeins einn sigur og eitt
jafntef li í fjórtán leikjum
Svíar hafa unnið 12 af 14 landsleikjum við íslendinga til þessa. Hver verður
niðurstaðan í 15. viðureigninni f Grenoble íkvöld?
í kvöld mætlr islenzka landsliöið því
sænska á B-heimsmeistarakeppninni I
handknattleik og veröur leikur líðanna
I Grenoble kl. 19 að íslenzkum tima I
kvöld. Eftir sigrana tvo gegn Austur-
riki og Hollandi hafa margir fyllzt
bjartsýni en gæta ber þess að þetta eru
tvö lökustu liðin í riðlinum. í kvöld er
það alvaran sem tekur við. Leikurinn
við Svia getur skipt höfuðmáli þegar
upp verður siaðið og þvi mikilvægt að
ná fram góðum úrslitum.
íslenzka liðið getur þó ekki vísað til
glæsilegs árangurs gegn sænskum
landsliðum í hinum 14 landsleikjum,
sem þjóðirnar hafa leikið. Aðeins einu
sinni hefur ísland náð að sigra og
aðeins einu sinni hefur orðið jafntefli.
Svíar hafa unnið hina leikina, 12 að
tölu.
Fyrsta viðureignin var á HM í Lundi
1950 og þar unnu Svíar 15—7. íslenzk-
ur handknattleikur var rétt í fæðingu ef
svo má segja og því ekki hægt að búast
við miklu. Síðan liðu heil 9 ár þar til
leikið var við Svía á ný. Aftur varð tap
Æsispennandi
f 2. deild
Ármenningar léku tvo leiki I 2. deild
íslandsmótsins I handknattleik á
Akureyri um helgina. Töpuðu öðrum,
unnu hinn.
Fyrri leikurinn var við KA á
föstudagskvöld. KA sigraði i slökum
leik, 15—14, (8—7) og hafði yfir-
höndina nær allan leikinn. Sigur liðsins
raunverulega aldrei í hættu. Friðjón
Jónsson skoraði flest mörk KA í
leiknum eða 8. Björn Jóhannesson var
markhæstur Ármenninga með fimm
mörk.
Á laugardag lék Ármann svo við
Þór, en Þór er fallinn í 3. deild.
Ármann sigraði 23—22 og gefur það
liðinu von að halda sæti sínu í
deildinni. Þetta var ekki skemmtilegur
leikur. Ármann hafði yfirhöndina í
fyrri hálfleik. Mest fjórum mörkum
yfir. Þór tókst að brúa það bil í þeim
síðari. Þá skiptust liðin á forustunni en
Ármann skoraði sigurmark sitt 15
sekúndum fyrir leikslok. Friðrik
Jóhannsson var markhæstur
Ármenninga með sex mörk en Sigurður
Sigurðsson skoraði mest fyrir Þór, sjö
mörk.
Staðan í deildinni er nú þannig:
Breiðablik
HK
ÍR
KA
Týr
Afturelding 11
Ármann 11
Þór, Ak. 11
2 217—210 15
2 188—157 12
2 219—190 12
3 188—169 12
4 1 68—162 10
6 220—231 10
6 204—220 8
10 217—282 1
-GSv.
niðurstaðan, 16—29 í Boraas og á HM
1961 í Essen varð aftur tap uppi á ten-
ingnum, 10—18. Síðan kom eini sigur-
inn gegn þessum „frændum” okkar á
Norðurlöndum. í HM-keppninni í
Bratislava 1964 sigraði ísland 12—10
og sá leikur telst á meðal eftirminnileg-
ustu leikja íslands. Svíar komu hingað í
heimsókn 1967 og léku tvo leiki. í þeim
fyrri náðist eina jafnteflið, 21—21, en í
þeim síðari unnu Svíar naumt, 16—15.
Sama markatala varð er þjóðirnar
mættust í Helsingborg tveimur árum
síðar. Aftur komu Svíar hingað til
lands í heimsókn 1973 og unnu
‘okkur tvívegis. Fyrst 16—13 og
síðan 13—12. Enn unnu Svíar, 18—16,
á Norðurlandamótinu 1975, sem
haldið var í Danmörku og 1977 unnu
þeir tvo stórsigra er landinn heimsótti
þá. Fyrst 28—17 í Halmstad og síðan
20—14 í Ystád. Þjóðirnar mættust
síðan í Baltic keppninni í Danmörku
1979ogennsigruðu Svíar, nú 19—17.
Síðasta viðureign þjóðanna fram að
leiknum í kvöld var síðan á Norður-
landamótinu í Noregi í haust. Þar
mættust þjóðimar í Elverum og Svíar
unnu stórsigur, 22—14. Það má því
glöggt sjá að Svíar hafa alltaf reynzt
okkur sérlega erfiðir og ekki er von á
öðru í kvöld. Vonin um sigur er þó allt-
af mikilvæg og allir vita það að með
sínum bezta leik getur landsliðið unnið
Svíana. Hvort það tekzt nú verður að
komaíljósíkvöld.
-SSv.
Njarðvikingum, Íslandsmeisturunum I körfuknattleik 1981, var afhentur tslandsbikarinn eftir sigur þeirra á Ármanni i
Njarðvik á föstudagskvöld. Stórsigur á Ármanni 126—66. Á myndinni að ofan veitir fyrirliði UMFN, Gunnar Þorvarðar-
son, bikarnum móttöku.
Valur varð í öðru sæti á islandsmótinu i körfuknattleik. Leikmenn liðsins fengu silfurverðlaun sin eftir sigurieikinn við KR 1
Laugardalshöll á sunnudag og þá var þessi mynd tekin. DB-mynd S.
Lftil spenna í 1. deild karla íblaki:
Augu manna beinast að
keppninni í2. deild
Laugdælir unnu sinn fyrsta sigur i 1.
deild karla á íslandsmótinu í blaki fyrir
síðustu helgi er þeir lögðu Fram á
heimavelli sinum, Laugarvatni, með
Utlitið er svart hjá
Akureyrar-Þórsurum
Þórsarar frá Akureyri léku tvo leiki
hér syðra f I. deildinni i körfuknattleik
og töpuðu þeim báðum. Fyrst gegn
Keflavik, 92—105, og siöan fengu þeir
skell gegn Grindavik, 66—89. Þá sigr-
uðu Framarar Borgnesinga 91—66 i
Borgarnesi.
Dálítið kyndug staða er nú komin
upp í 1. deildinni því dæmt var í kæru-
máli Grindvíkinga gegn Þór í leik lið-
anna á Akureyri fyrr í vetur. Þór sigr-
aði í leiknum en Grindavík kærði. Þeir
unnu svo kæruna og hafa sennilega þar
með bjargað sér frá fallinu. Staðan er
nú þannig í 1. deildinni er aðeins tveir
leikir eru eftir:
Fram
Keflavík
Grindavik
Þór
Skallagr.
15 13
15 12
15 5
16 4
15 4
2 1395-1158 26
3 1279-1186 24
10 1222-1271 10
12 1271-1426 8
11 1212-1280 8
Grindavík á eftir að leika við fram i
Njarðvík og Skallagrímur á eftir að
mæta Keflavík í Borgarnesi. Telja
verður líklegt að Fram og Keflavík
vinni sina leiki og fari svo kemur það í
hlut Þórs og Skallagríms að leika tvo
aukaleiki um fallið. Þar standa Borg-
nesingar betur að vígi því Gary
Schwartz, burðarás Þórs 1 vetur, er
farinn af landi brott og kemur ekki
aftur. Það er því ljóst að róðurinn
verður erfiður hjá Þór.
-SSv.
þremur hrinum gegn einni. Þrátt fyrir
þennan sigur eru litlar likur á þvi að
Laugdælum takist að ná Fram að
stigum og forðast þannig fallið og ekki
bætti úr skák tap þeirra gegn Viking
daginn eftir. Vikingur vann þann leik
3—1.
Aðeins einn leikur fór fram um
helgina í 1. deildinni, ÍS lék gegn Fram
og fóru leikar þannig að Stúdentarnir
unnu 3—0, 15—8, 15—13 og 16—14.
Forysta Þróttar er það afgerandi að
óhætt er að segja að öll spenna sé fyrir
bí i deildinni. ÍS er öruggt með annað
sætið og staða hinna liðanna er nokkuð
skýr. Þó er bezt- að hafa allan vara á,
því alltgeturgerzt.
Menn hafa þvi litið niður 1 næstu
deild en 2. deildar keppnin fer fram í
tveim riðlum, Suðvesturlands- og
Norðaustanlandsriðli. Tvö efstu liðin í
hvorum riðli Jcomast áfram í úrslita-
keppni sem fram fer í Reykjavík í lok
marz.
f Suðvesturlandsriðli hefur B-lið
Þróttar forystu. Liðið tapaði sínum
fyrsta leik í deildinni um síðustu helgi,
er það mætti ÍBV í Vestmannaeyjum.
Heimamenn unnu 3—0.
ÍBV fylgir B-liði Þróttar eins og
skuggi. Sá hængur er á að tvö lið frá
sama félagi mega ekki leika í sömu
deild þannig að B-lið Þróttar kemst
ek ki í 1. deild vinni það deildina.
f Norðausturlandsriðli er keppnin
opin í báða enda. Þar eiga hreinlega öll
Iiðin möguleika á að komast í úrslita-
keppnina, UMSE, ÍMA, Bjarmi og
Þróttur Neskaupstað. Þó minnkuðu
möguleikar Norðfjarðarliðsins all snar-
lega um síðustu helgi er það lék tvo
leiki á Akureyri og tapaði báðum, 0—3
gegn ÍMA og 2—3 gegn UMSE.
Staðan í 2. deild er nú þessi:
Suðvesturlandsriðill
Þróttur b 7 6 1 18—8 12
ÍBV 6 5 1 15—4 10
Hveragerði 7 3 4 10—17 6
HK 6 2 4 12—12 4
Samhygð 6 0 6 4—18 0
Norðausturlandsriðill
UMSE 4 3 1 11—7 6
ÍMA 3 2 1 7—3 4
Bjarmi 4 2 2 7—9 4
Þróttur, Nes. 3 0 3 3—9 0
-KMU.
\