Dagblaðið - 24.02.1981, Page 16
16
I
Menning
Mennint
Ustatók°8g*gnn,V’
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
Memingarverðlaiinin
ámorgun:
endurtóte
ílj6ssKo6|*'s*na
nng
Menning
*
Mennii
17/ heiðurs eða óþurftar?
Á morgun, miðvikudaginn 25.
febrúar, verður tilkynnt um það
hverjir hljóta Menningarverðlaun DB
fyrir árið 1981. Sex dómnefndir hafa
setið að stðrfum undanfarnar vikur
og veitir DB nú i fyrsta sinn
viðurkenningu fyrir kvikmyndagerð.
Þetta er i þriðja sinn sem
Menningarverðlaun DB eru veitt og
eru þau & góðri leið með að verða arf-
takar Silfurhests og Silfurlampa i
vitund alls almennings.
Magdalena Schram, leiklistargagnrýnandi Vísis:
„Óhætt að óska verðlauna-
höfum fyrirfram til hamingju
— Kstraen gæði fremur en söluhæfni ráða vai dómnefnda”
„Liklega er ekkert nema gott um
allt það að segja, sem vekur athygli á
Magdalena Schram.
listaverkum og veitir viðurkenningu
fyrir þau,” sagði Magdalena Schram,
leiklistargagnrýnandi Visis „Raunar
þykir mér Dagblaðið standa sig
nokkuð vel, hvað varðar þessi svo-
kölluðu menningarmál í þvi að hafa á
sinum snærum ábyrgan menningar-
ritstjóra og gagnrýnendur, hverra
dómgreind er hægt að treysta á flest-
um listasviðum.
Reyndar imynda ég mér, að það sé
fyrir þeirra orð, að fámennar
dómnefndir skeri upp úr um, hver
hljóti verðlaunin hverju sinni.
Viðkomandi verðlaunahafi getur
verið nokkurn veginn viss um að '
hafa verið valinn af fagþekkingu og
að listræn gæði, fremur en vinsældir
og/eða söluhæfni þess, sem hann
skapar, ráði vali dómnefndar. 1 þetta
sinn að minnsta kosti lætur DB það
eftir sér að segja sem svo, að
vinsældiroggæðiséuekkieitt oghið
sama.
Fyrir þessar sakir er óhætt að
óska tilvonandi menningarverðlauna-
höfum blaðsins fyrirfram til
hamingju,” sagði Magdalena Schram
og bætti við:
„Hinu má þó ekki gleyma, að
listir eru aðeins einn þáttur i
menningu þjóðar og lofsverð fram-
koma við þann þátt nægir ekki ein til
að geta hrósað sér af menningarlegu
yfirbragði. En þetta er ef til vill
augljósara en svo að það þurfi að
taka fram.”
-IHH.
Egill Friðleifsson tónlistarkennari:
„Umstangið er umdeilanlegt
— en þó er ég heldur hlynntur þessum verðlauna veitingum en hitt”
„Þessar verðlaunaveitingar hafa
tvær hliðar,” sagði Egill Friðleifsson
tónlistarkennari, sem í vetur hefur
kynnt islenzka tónlistarmenn i
sjónvarpinu mánaðarlega.
„Það er ekki auðvelt að draga
menn í dilka og gera upp á milli lista-
manna og listaverka. Hlutverk
dómenda er því ekki öfundsvert — og
allt umstangið raunar umdeilanlegt.
Ég gleðst hins vegar alltaf með
þeim, sem hljóta viðurkenningu fyrir
unnin afrek — og þess vegna er ég
heldur hlynntur þessum verðlauna-
veitingum en hitt, þrátt fyrir aug-
Ijósa annmarka,” sagði Egill
Friðleifsson.
-IHH
Egill Friðleifsson.
DB-mynd: Bjarnleifur.
DB mun afhenda þessi verðlaun
við sérstakan hádegisverð i Þingholti,
Hótel Holti og eru þau nú i formi
postulinsskjalda, sem Kolbrún
Björgólfsdóttir keramikhönnuður
hefur hannað, en áður hafa þau
Jónina Guðnadóttir og Haukur Dór
unniðgripi þessa fyrir DB.
Dómnefndir skipa gagnrýnendur
DB á hinum ýmsu sviðum menning-
armála, sérfræðingar „utan úr bæ”
og gagnrýnendur annarra blaða og
því ætti að vera tryggt að úrslitin
verði sanngjörn og gefi rétta mynd af
þróun íslenskra menningarmála á
árinu 1980.
Fyrri verðlaunahafar DB eru Ása
Sólveig rithöfundur, Sigurður A.
Magnússon rithöfundur, Þorgerður
Ingólfsdóttir kórstjóri, Manuela
Wiesler flautuleikari, Helga Ingólfs-
dóttir semballeikari, Gallerí Suður-
gata 7, Rikharður Valtingojer grafik-
listamaður, Stefán Baldursson leik-
stjóri, Kjartan Ragnarsson leikari og
leikritahöfundur, Gunnar Hansson
arkitekt, Manfreð Vilhjálmsson
arkitekt og Þorvaldur S. Þorvaldsson
arkitekt.
En ekki eru allir á eiÁ sáttir um
gildi verðlaunaveitinga flf þessu tagi
og þvi höfum við beðið nokkra lista-
menn og gagnrýnendur að segja
skoðun sina á Mennifigarverðlaunum
DB.
-AI.
Sigurður Harðarson arkitekt:
„Verðlaunin geta
skapað umræðu
—fólk tengir ekki arkitektúr við alvarlega sköpun”
,,Ég veit ekki hvort ég á að tjá mig
nokkuð í þessu sambandi,” sagði
Sigurður Harðarson arkitekt, „sum-
um finnst arkitektar eigi bara að
þegja og teikna. En það sem fyrst
kemur upp i huga mér er, að svona
verðlaun geti verið þáttur i að skapa
umræðu um þau verðmæti, sem um
er að ræða í hverju tilviki.
Arkitektúr hefur ekki fengið þann
sess í hugum fólks, að hann sé
eitthvað sem þurfi að ræða um. Fólk
tengir arkitektúr ekki við alvarlega
sköpun.
Svona verðlaun geta orðið hvati
til að þessi grein sé tekin alvarlega.
Siðan má deila um hvaða aðilar ættu
helzt að leggja mat á arkitekta og
standa fyrir umræðu um verk þeirra.
Ágætt, ef Dagblaðið gerir það, en
auðvitað kemst maður ekki hjá því
að láta sér detta i hug, að DB sé að
þessu til að vekja athygli á sjálfu sér
og skapa sér með þessu móti visst
menningarálit.
Annars hef ég verið nokkuð sáttur
við hvar verðlaunaveitingar Dag-
blaðsins i arkitektúr hafa lent.
Sigurður Harflarson mefl barn sitt.
DB-mynd: Bjarnleifur.
Kannske mætti hugsa sér að ná-
kvæmari flokkun væri viðhöfð.
Verkefnin eru svo margvísleg. Eitt
er að teikna opinbera byggingu,
annað að gera gott íbúðarhús, það
þriðja að gera upp gamalt hús. Þetta
er svo ólikt og menn hafa misjafna
möguleika tii að „láta Ijós sitt
skína”. Það er ekki sambærilegt að
fást við að byggja fyrir hið opinbera
með sterkan fjárhagslegan bakhjall
eða reyna að finna góða lausn fyrir
einstakling þar sem kannske þarf að
gera mikið úr litlu,” sagði Sigurður
Harðarson að lokum. -IHH.
Áskriftarsími
Eldhúsbókarinnar
er 2-46-66
FILMUR OC VÉLAR S.F.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14-S 21715.23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bilaleigubílum erlendis
Þeir höföu hugsað sér að leggja í langferð, þessir krakkar sem DB-
menn hittu á leikvelli í Kópavogi á dögunum áður en föstrur lentu
svo illilega upp á kant við bœjaryfirvöld að dagvistarstofnunum þar í
bœ var lokað. Ekki er útlit fyrir að börnin hafi komizt langt á farar-
tœkinu því arna en engu að síður eiga þau vœntanlega öll langa og
blómlega lífsgöngu fyrir höndum. DB-mynd Einar Ölason.