Dagblaðið - 24.02.1981, Qupperneq 18
18
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
Veðrið
Spáð er suðaustanátt um sunnan-
og austanvert landið. A Vesturiandi
verður norðaustanátt en ál á Suður-
og Vosturlandi og slydda á
Suöausturiandi og Austfjörðum.
Klukkan 6 voru suðaustan 4, haglál
og -2 stig I ReykjavBt, suðaustan 6,
slydda og -1 stig á Gufuskálum,
norðaustan 2, ál og -2 stig á Galtar-
vita, suðaustan 2, láttskýjað og 0 stig
á Akureyri, suðaustan 3, skýjað og 2
stig á Raufarhöfn, suðaustan 6,
slydda og 1 stig á Dalatanga,
suðaustan 2, súld og 2 stig á Höfn, og
suðauutan 7, úrkoma og 0 stig á
Stórhöfða.
( Þórshöfn var skýjað og 7 stig,
snjókoma og -1 stig I Kaup-
mannahöfn, snjókoma og -6 stig I
Osló, þoka og -1 stig I Stokkhólmi,
skýjað og -1 stig f London, snjókoma
og -2 stig íHamborg, skýjað og -1 stig
( Parfs, láttskýjað og -2 stig ( MadHd,
heiðskirt og 6 stig ( Lissabon og
rigning og 8 stig (New York.
Andlát
Sveinn Anlon Stefánsson sem lézt 12.
febrúar sl fæddist 16. júlí 1932. For-
eldrar hans voru Stefáji Sveinsson -og
Ólöf Sigfúsdóttir. Sveinn fór ungur til
sjós, m.a. var hann á bátum hjá Frigg-
bræðrum í Vestmannaeyjum, Ármanni
Friðrikssyni, Kolbeini Sigurðssyni og
Guðmundi Sigurðssyni. Árið 1%7
keypti Sveinn ásamt bróður sínum
bát og gerðu þeir út saman í nokkur ár
en síðar var Sveinn einn um útgerðina
og endurnýjaði þá bát sinn reglulega.
Árið 1953 kvæntist Sveinn Þórdisi
Gísladóttur og áttu þau 7 börn.
Sigríður Guðmundsdóttir, Ránargötu
22, lézt í Borgarspítalanum 22. febrúar
sl.
Einar Dagbjartsson, Ásgarði Grinda-
vík, lézt 21. febrúar sl.
Guðbjörg Aðalsteinsdóttir, Sólheim-
um 26, lézt 21. febrúar sl.
Kristján C. Jónsson lézt að Hrafnistu
22. febrúar sl.
Arnbjörg Stefánsdóttir lézt á öldunar-
deild Landspítalans 22. febrúar sl.
Ingólfur S. Ragnarsson yfirvélstjóri,
Hlíðarvegi 18 Kópavogi, lézt 17.
febrúar sl.
Pálína Sigurðardóttir, Garðaflöt 1
Garðabæ, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 25. feb. kl.
13.30.
Guðmundur Ragnarsson, Espigerði 4,
lézt í Landakotsspítala laugardaginn
.21. febrúarsl.
Aðalsteinn Óskar Guðmundsson raf-
virkjameistari verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag, 24. febrúar kl.
16.30.
Reynir Snjólfsson, Njarðargötu 37,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
25. febrúar kl. 10.30.
Krislófer Kristófersson, Leifsgötu 8,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 26.
febrúar kl. 13.30.
Guðlaugar J. Sveinsdóttur frá Hvilft
verður minnzt frá Dómkirkjunni á
morgun, 25. febrúar kl. 15.
Margrét Ketilsdóttir, Mávahlíð 45,
sem lézt 15. febrúar sl. verður jarðsett
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25.
febrúarkl. 15.
Leikmynda- óg búninga-
teikningar til sýnis í Torfunni
Nú stendur yfir í veitingahúsinu Torfunni við Lækjar
götu sýning á leikmynda- og búnignateikningum eftir
Messiönu Tómasdóttur. Þetta eru teikningar úr Oliver
Twist sem nú er verið að sýna I Þjóðleikhúsinu og Sál-
inni hans Jóns mins sem Leikbrúðuland sýnir um þcss-
ar mundir á Frikirkjuvegi II. 1 veitingasalnum uppi
eru svo teikningar úr öskubusku sem var sýnd í Þjóð
leikhúsinu veturinn 1978. Torfan er opin frá kl.
10.00—23.30 daglega.
Félagslíf eldri borgara
í Reykjavík
Furugerði 1, þriðjudagar iþar til i júnli
Kl. I3:0pið hús, spilað, teflt, lesið. — Leðurvinna.
skermagerð. — Leirkerasmíði. — Fótaaðgerðir, pant
anir í sima 10309.
Kl. 15: Kaffiveitingar.
Norðurbrún 1, þriðjudaganþaniiíjúnii
Kl. 10: Hársnyrting, pantanir i síma 86960 kl. 14 til
16.
Kl. 13: Fjplbreytt handavinna. — Smeltivinna. —
Teiknun, málun, mynzturgerð. Smiðaföndur, út
skurðuro.fl.
Kl. 14: Létt leikfimi. — Enskukennsla.
Kl. 15: Kaffiveitingar.
Langahlið 3, þriðjudagar iþar til l júnít
Kl. 13: Létt leikfimi.
Félagslíf eldri
borgara i Reykjavík
Dagskráin þar til i júní hefur nú verið ákveðin. Á
mánudögum verður dagskráin í Lönguhlið 3 scm hér
segir:
Kl. 13 Spilaðog tcflt.
Kl. 13 Fjölbreytt handavinna og sala á föndurcfni.
Kl. 13 Fótaaðgerðir, panlanir í sima 34505 cftir há
degi á þriðjudögum.
Kl. 15 Kaffiveitingar.
Mánudagsdagskrá fyrir Norðurbrún I þar til i júní
verðursem hérsegir:
Kl. 13 Fjölbreytt handavinna og sala á föndurefni.
Kl. 13 Smiðaföndur, útskurðuro.fl.
Kl. 13 Lcirmunagcrð.
Kl. 13 Fótaaðgcrð, pantanir i sima 36238 kl. 10—
12, mánudaga og fimmtudaga.
Kl. 14, Enskukennsla.
Kl. 15 Kaffiveitingar.
Kvennadeild Skagfirðinga-
félagsins í Reykajvík
verður með mjólkurvörukynningu í Drangey. Siðu
múla 35, miðvikudaginn 25. febrúar kl. 20.30. Félags
konur, fjölmcnnið og takið með ykkur gesti.
Afturganga einræðisherra
Voveiflegasta frétt gærkvöldsins
var auðvitað taka spænska þinghúss-
ins. Þar voru að verki spænskir þjóð-
varðliðar undir forystu einhvers Ant-
onio Tejero ofursta. Ástandið á
Spáni hefur farið hríðversnandi að
undanförnu, ýmislegt hefur verið að
breytast þar sem gömlu fasistarnir
hafa átt erfitt með að sætta sig við.
Nú síðast varð lögreglan að þola það
að morð hennar á aðskilnaðarsinna
úr Baskahéruðum væri afhjúpað.
Ekki er gott að segja hver þróunin
verður í þinghúsinu en öruggt má
telja að sem tilraun til valdaráns
hefur þessi aðgerð mistekizt. Eins og
oft áður, þegar óvæntir atburðir eiga
sér stað, kom í ljós máttleysi fjöl-
miðlanna tveggja, útvarps og sjón-
varps. Einungis var sagt frá því að at-
burðurinn hafði átt sér stað, og ekk-
ert meir. Má ætla að þegar svona at-
burðir eiga sér stað mætti fjalla svo-
lítið nánar um þá.
Annað sem vakti athygli mína í
fréttatíma sjónvarps voru fréttir af
heimsreisu Jóhannesar Páls páfa 2.
Þarna er greinilega á ferðinni maður
sem ekki lætur segja sér fyrir verk-
um.
Eftir fréttir voru tékknesku kanín-
urnar Sponni og Sparði á dagskrá.
Þrátt fyrir að í þessum þætti sé ekki
eins mikið um eltingaleiki og bar-
smíðar og hjá Tomma og Jenna þá
held ég að krakkar hafi nokkuð
gaman af þessum þáttum. Þar kemur
sennilega til bæði skemmtilegar
fígúrur og leikinn lestur Guðna Kol-
beinssonar.
fþróttir Jóns B. Stefánssonar voru
fjölbreyttar að vanda eins og þessi
mánudagsþáttur þeirra félaga er oft-
ast nær. Jón B. var með svipmyndir
frá glímu, badminton, handbolta og
listdansi áskautum.
Siðast á dagskrá sjónvarps var
sænska sjónvarpsleikritið Hýenunni
stekkur ekki bros. Þetta var nokkuð
trúverðug mynd hjá Svíunum og þörf
áminningokkursemeigum því láni að
fagna að geta um frjáls höfuð strokið
hér norður á enda veraldar.
Fyrir þá sem horfðu á myndina
hlýtur sjónvarpsdagskrá gærkvölds-
ins að hafa einkennzt af draugum.
Fyrst i fréttum frá Spáni þar sem
draugur Frankós fyrrum einræðis-
herra svífur greinilega enn yfir vötn-
unum og síðan í sjónvarpsleikritinu
þar sem barizt var örvæntingarfullri
baráttu við draug Pinochets einræð-
isherra í Chile.
r™~.............^
Stjórnméfafundir
Bílasýning í Ameríku
Correna Famh og V AN tuitflaður > minniugu É
BátablaSur - Gufuvagnar
l.ídl kenn.<du$tund utn rafkeríí bílsms
Allt sem þarf
mótor í Mótorsport
2. árgangur er hafinn hjá Mótorsportblaðinu og
kennir har margra grasa að vcnju. Bæði s[X)rtbála
áhugafólk og vélsleðamenn finna citthvað við sitt liæfi
auk bílaáhugamanna sem beint eða óbeint tengjast
bifreiðaíþróttaklúbbum.
I blaðinu að þcssu sinni eru myndir frá bílasýningu i
Amcriku. viðtöl ,við Guttorm Guðmundsson scm
ferðazt hefur mikið þar veslra og Hálfdán Jónsson for
mann Kvartmiluklúbbsins. bátablaður cftir „Gáska”
saga gufuvagna. erlendar fréttir, ísakstur. saman-
burður vélsleðatcgunda. rcynsluakstur Lanccr 1600
og Suzuki LJ 80V. kennslustund um rafkerfi bilsins og
margt annað skemmtilegt efni. Blaðið fæst á blaðsölu
stöðum um land allt og kostar kr. 20 í lausasölu cn kr.
18 fáskrift.
Næsta tölublað kcmur siðan út 20. marz.
Sjálf virkt val til
Stóra-Bretlands
Laugardaginn 21. febrúar 1981 var sjálfvirkt val sim-
tala til Stóra Bretlands tekið i notkun. Gjald fyrir sjálf-
virk símtöl verður kr. 9,80 á min. en gjald fyrir simtöl
með aðstoð talsambandsins við útlönd (09) cr kr.
12.50 á min. miðað við núverandi gengi SDR.
Þá skal og á það bcnt að notendur sjálfvirka síma
kerfisins á 92-svæðinu geta nú einnig hringl beint til
útlanda.
Kúluhús við Kröflu
Nýlega var reist kúluhús úr trefjaplasti yfir borholu
nr. 12 við Kröfluvirkjun. Þelta er fyrsta islenzka verk
smiðjuframleidda húsið af þessari gerð húsa sem hafa
rutt sér mjög til rúms erlendis hin siðari ár. — Hafin
verður framleiðsla á glærum gróðurhúsum fyrir
heimagarða úr sama efni á komandi vori. Framlciö
andi: Fossplast hf. Selfossi. Hönnuður: Einar Þor
steinn Ásgeirsson. Arkitektar Kröfluvirkjunar: Man-
freð Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson.
Ný bók: Skólastofan
eftir Ingvar Sigurgeirsson
Út er komin bókin Skólastofan. Umhverfi til náms og
þroska. Höfundur er Ingvar Sigurgeirsson námsstjóri.
Bókin hefur undirritilinn Handbók fyrir kennara og
kennaranema og er hin sjötta i Ritröð Kennarahá
skóla Islands og Iðunnar.
I bókinni eru reifaðar gamlar og nýjar hugmyndir
um skólastarf og bent á leiðir til að gera kennslu að
skapandi starfi. Er þar tekið mið af kennslufræðileg-
um hugmyndum sem rutt hafa sér til rúms á siðustu
árum og cru kcnndar við opna skólann. Höfundur
bókarinnar mælir þó ekki með að slikt fyrirkomulag
verði notað einvörðungu, heldur telur að rétt sé að
milliveg opins skóla og hefðbundinnar kennslu.
„Þcssir kennsluhættir eru oft kenndir við opna
skólastofu,” segir hann í formála. Síðan segir:
„I opinni skólastofu er reynt að nýta þá kosti opna
skólans aðskapa nemendum fjölbreytt viðfangsefni og
umhverfi er gefa þeim kost á nokkru verkefnavali og
tækifæri til að taka virkan þátt i aðskipuleggja námið.
Jafnframt er haldið í það form hefðbundna skólans að
hvcr ncmandi hefur ákveðinn kennara. tilheyrir
ákveðnum ncmendahópi og hefur ákveðna skólastofu.
— Með þessum hugmyndum er reynt að skapa sveigj
anlegt skólaform sem unnt er að breyta, bæta og þróa
cftir því sem aðstæður leyfa og reynslan kennit;^
Bókin Skólastofan grcinist í fjóra aðalkafla scm
skiptast svo hver um sig i allmarga undirkafla. Margar
myndir og uppdrættir til skýringar cru í bókinni. enn
fremur ábendingar um námsgögn. atriðisorðaskrá og
heimildaskrá. Bókin cr 128 blaðsiður. Prentrún prcnt-
- aði.
Bókmenntakynning
hjá BSRB
Bókmcnntakynning verður hjá BSRB i kvöld. þriðjud.
24. feb., kl. 20.30 að Grettisgötu 89. Indriði G. Þor
steinsson heimsækir þá opinbera starfsmenn og svarar
fyrirspurnum eftir að Hjörtur Pálsson dagskrárstjóri
hefur talað um skáldið og Baldvin Halldórsson leikari
lcsið úr verkum Indriða. Opinberir starfsmenn og
gestir þeirra eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
, Aðalfundir
Kvenfélag Breiðholts
heldur aðalfund sinn i anddyri Breiðholtsskóla
miðvikudaginn 25. febrúar kl. 20.30. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál. Ennfremur
verður kynningá sildarréttum. Allir velkomnir.
Ferðafélag íslands
heldur kvöldvöku
Ferðafélag íslands heldur kvöldvöku miðvikudaginn
25. febrúar kl. 20.30 stundvíslega að Hótel Heklu.
Rauðarárstig 18.
Kristján Sæmundsson. jarðfræðingur kynnir í máli
og myndum: Jarðfræði Kröflusvæðisins og Kröflu-
elda. Myndagetraun: Grétar Eiriksson. Allir velkomn-
ir meðan húsrúm leyfir. Veitingar í hléi.
AA-samtökin
1 dag, þriðjudag, verða fundir á vegum AA-samlak
anna sem hér segir: Tjarnargata 3c kl. 12 og 21.
Tjarnargata 5b kl. 14 og 21. Neskirkja kl. 21, Akra
nes. Suðurgata 102 (s. 93-2540). kl. 21. Akureyri.
Geislagata 39 (96-22373). kl. 21. Keflavík. Klappar
stígur 7 (s. 92-1800), kl. 21. ísafjörður. Gúttó uppi. kl.
20.30, Siglufjörður. Suðurgata 10. kl. 21, Keflavikur
fiugvöllur (Svavar) kl. 11.30, Dalvik kl. 21.
í hádeginu á morgun. miðvikudag. verða fundir
sem hér segir: Tjarnargata 5b (opinn) kl. 12 og 14.
Kvenfélag Hreyfils
Fundur verður i Hreyfilshúsinu í kvöld. þriðjudaginn
24. febrúar. kl. 21. Sýnikennsla á smurðu brauði.
Hreyfilskonur. fjölmennið og takið með ykkur gcsti.
ökukennarar
Munið fundinn með Óla H. Þórðarsyni i kvöld,
þriðjudag, kl. 20.30 í Domus Medica.
ísfirðingar —
sjálfstæðismenn
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Ingólfsson og Óli M.
Lúðvíksson ræða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs i kvöld.
þriðjudag 24. feb.. kl. 20 i Sjálfstæðishúsinu uppi.
Sjálfstæðismenn. komið og ræðið fjárhagsáætlun-
.na og bæjarmálin. Fjölmennið.
Aðalfundur Framsóknar-
félags Njarðvíkur
Framhaldsaðalfundur félagsins verður haldinn i
Framsóknarhúsinu í Kefiavik í kvöld kl. 20. Gestur
fundarins verður Jóhann Einvarðsson alþm. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
FUF-félagar Kópavogi
Framhaldsaðalfundur verður haldinn i kvöld.
þriðjudag 24. febr.. kl. 8.30. Mætum öll.
Kvikmyndin Lilja
sýnd 4 sinnum i
finnska sjónvarpinu
tslenzka kvikmyndin Lilja. sem byggð er á samnefndri
smásögu Halldórs Laxness, verður sýnd 4 sinnum i
finnska sjónvarpinu á næstunni. Ástæðan fyrir þess-
um sýningafjölda er m.a. sú að komin er út bók í Finn-
landi sem ætluð er til kennslu og ber nafnið Pohjois-
masisa Kertojia en í bókinni eru eingöngu smásögur
sem hafa verið kvikmyndaðar. Smásagan Lilja er birt i
heild i bókinni og síðan er gerður ítarlegur saman-
burður á kvikmyndinni og sögunni. t bókinni er kvik
myndin Lilja talin gott dæmi um hvernig hægt sé að
kvikmynda smásögu þannig að myndin lifi sjálfstæðu
lifi sem kvikmynd án þess að hallað sé á söguna.
Bókinni hefur verið dreift i menntaskólum og eru
nemendur hvattir til að lesa söguna áður en myndin
verður sýnd. Lilja er eitt þeirra verkefna sem tekið
verður fyrir bæði i bókmenntakennslu og fjölmiðla-
fræði i finnskum menntaskólum í vetur. Höfundur
bókarinnar Phjoismaisia Kertojia er Reijo Rae. Leik-
stjóri Lilju er Hrafn Gunnlaugsson, kvikmyndatöku
stjórnaði Snorri Þórisson og hljóðupptöku annaðist
Jón Þór Hannesson.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Nr. 37 — 23. febrúar 1981. Ferðamanna- gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 6,480 6,498 7,148
1 Sterlingspund 14,684 14,724 16,196
1 Kanadadollar 5,422 5,437 6,981
1 Dönsk króna 0,9944 0,9972 1,0969
1 Norskkróna 1,2191 1,2255 U448
1 Sœnsk króna 1,4213 1,4252 1,5677
1 Finnsktmark 1,6032 1,6076 1,7684
1 Franskur franki 1,3177 1,3214 1,4535
1 Belg. franki 0,1899 0,1904 0,2094
1 Svissn. f ranki 3,4065 3,4160 3,7576
1 Hollenzk florina 2,8156 2,8234 3,1057
1 V.-Þýzktmark 3,0711 3,0796 3,3876
1 itölsk líra 0,00642 0,00644 0,00708
1 Austurr. Sch. 0,4346 0,4358 0,4794
1 Portug. Escudo 0,1156 0,1159 0,1275
1 Spánskurpaseti 0,0757 0,0760 0,0836
1 Japanskt yen 0,03122 0,03131 0,03444
1 írsktDund 11,364 11,396 12,536
SDR (sérstök dráttarróttindi) 8/1 7,9868 8,0091
* Breyting frá slóustu skráningu. Simsvari vegna gengisskráningar 22190.
y