Dagblaðið - 24.02.1981, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
Hvað réði því að hann lagði í
þessa útgáfu einmitt nú?
„Það vill svo til að á þessu ári er
Jónsbók 700 ára og því þótti mér
tilvalið að gefa út íslenskt lögbókar-
handrit sem er jafnframt eitt afþeim
veglegustu. í apríl eru einnig tíu ár
liðin frá því að handritin komu heim
og sjálfsagt er að halda upp á það. Ég
held að það sé einnig mikilvægt að
sýna útlendingum að við séum færir
um að sinna þessum handritum
okkar, stöndum í fararbroddi hvað
snertir útgáfu á þeim og rannsóknir.
Útgáfa Skarðsbókar ætti að færa út-
lendingum heim sanninn um að við
getum þetta,” sagði Sverrir.
Stöndum útlending-
um á sporði
Er íslenskur prentiðnaður fær um
að vinna bók af þessu tagi?
„Áður en ég réðst í þessa útgáfu,
fór ég víða um lönd og skoðaði
sambærileg rit,” svaraði Sverrir, —
„hvernig frá þeim er gengið og eftir
að hafa séð fyrstu blöðin frá prent-
verkinu hér, er ég sannfærður um að
við stöndum erlendum útgefendum
fyllilega ásporði. ”
En hvað verða margir til þess að
kaupa bók á kr. 4693.
„Ég er sannfærður um að fólk
mun láta það eftir sér. Ef við höfum í
huga að 20.000 íslendingar fara til
sólarstranda árlega og eyða kannski
hátt á aðra milljón gamalla króna á
mann, þá er alls ekki fráleitt að
hugsa sér bók á þessu verði. Enda
verður hún i takmörkuðu upplagi og
á allan hátt eins og bestu listaverk.
Og við vitum hvað listaverkin kosta í
dag,” svaraði Sverrir.
Og ef hún selst ekki?
Sverrir Kristinsson hló í símann.
„Þá verð ég að taka afleiðingunum.”
-Al.
Start er tilbúin með
tveggja laga rokkplötu
— tvœr aðrar 45 snúninga plötur eru
vœntanlegar frá Steinum hf.
Það hefur væntanlega ekki farið
fram hjá neinum að nú er í bígerð út-
gáfa á Skarðsbók, einhverju fegursta
handriti sem við eigum, að dómi
Halldórs Hermannssonar. Verður út-
gáfa þessi afar vönduð, jafnvel svo
að vandaðar erlendar útgáfur af
svipuðu tagi falla alveg í skuggann. í
hinni nýju útgáfu verða m.a. 415
skreytingar í lit og var leysigeisli
notaður við litgreininguna, pappír
var sérstaklega framleiddur í Þýska-
landi fyrir bókina sem verður svo
bundin í pergamem í kjöl og horn.
Loks verður Skaiðsbók hin nýja
handsaumuð og handbundin.
í útgáfustjórn bókarinnar eru svo
hinir mætustu menn: dr. Ólafur
Halldórsson, Stefán Karlsson hand-
ritafræðingur, Jón Samsonarson
handritafræðingur, Sigurður Líndal
prófessor, dr. Jónas Kristjánsson og
dr. Kristján Eldjárn.
Með mörg járn
í eldinum
Það liggur svo í augum uppi að út-
gáfa af þessu tagi er óhemjulega dýr
og til marks um það má geta þess að í
sölu mun hvert eintak Skarðsbókar
þurfa að kosta 4695 krónur.
Hefði mátt ætla að meiri háttar
forlög eða stofnanir væru þeir einu
sem gætu staðið í útgáfu sem þessari.
Og þess ber að geta að Árnastofnun
tekur þátt í henni að stórum filuta.
En aðal hvatamaðurinn og hinn
eiginlegi útgefandi er einkaaðili,
Sverrir Kristinsson.
Hver er svo Sverrir Kristinsson?
„Feikilegur dugnaðarforkur” segir
Sigurður Líndal prófessor um hann.
Þar fyrir utan hefur hann verið frarri-
kvæmdastjóri Hins islenska bók-
menntafélags í tíu ár og fasteignasali
þar að auki. DB sló á þráðinn til hans
Ul að fræðast nánar um áhuga hans á
fornritum.
Tíu ára afmæli
„Ég hef nú alltaf verið talsverður
bókaáhugamaður, frá því ég fyrst
man eftir mér,” sagði Sverrir. „Ég
hef safnað bókum og kynnt mér
bókagerð á íslandi frá upphafi i
mínum frístundum. Svo hef ég lengi
haft áhuga á myndlist. Útgáfan á
Skarðsbók er eðlilegt framhald á
þessum áhugamálum mínum.”
Hljómplötuútgefendur verða
fyrr á feröinni með framleiðslu
sína nú en í fyrra. Á laugardaginn
var skýrt á Fólk-síðunni frá þremur
fyrstu plötunum frá SG-
hljómplötum. Steinar hf. eru einnig
að komast i gang. Þrjár 45
snúninga plötur koma frá því fyrir-
tæki í næsta mánuði og ein þeirra
er að mestu tilbúin. Tveggja laga
plata með rokkhljómsveitinni Start.
„Við lukum upptökum fyrir
tæpum tveimur vikum,” sagði
Pétur Kristjánsson söngvari Start.
„Bæði lögin á plötunni eru
rokklög. Annað er eftir Jóhann
Helgason, sem samdi einnig
textann. Hitt er eftir Jón Ólafsson
bassaleikara og heitir Stína fína.
Textinn við þaö er eftir Eirík
Hauksson söngvara.”
Pétur sagði að Start ætti nú
frumsamið efni á LP plötu, en
ekkert væri afráðið með útgáfu
einnar slíkrar. Helztu lagahöfund-
arnir í Start eru Jón, Eiríkur og
Nikulás Róbertsson.
Laddi væri með tveggja laga plötu i
smíðum. Aöallagið á henni er erlent
og hinum megin er eitt frumsamið.
Laddi mun nú vera um það bil
tilbúinn með efni á stóra plötu.
Þá hefur verið ákveðin útgáfa á
45 snúninga plötu með Utangarðs-
mönnum. Hún verður svonefnd
„maxi-single” plata, það er
jafnstór og venjuleg LP plata. Ekki
er ákveðið hversu mörg lög verða á
plötu Utangarðsmanna. Steinar
Berg sagði að úr tíu lögum væri að
velja og þau gætu orðið þrjú,
fjögur, fimm eða sex talsins.
-ÁT-
FÓLK
Laddi með eina
2ja laga
Steinar Berg útgefandi sagði í
samtaii við blaðamann DB að
Hljómsveitin Start hefur nú starfaö saman i um eitt ár. Tvegfja laga platan er
hinfyrsta sem Startarar sendafrá sér. DB-mynd: Ragnar Sigurjónsson.
Glysið
syngur
lofi
Thor Vilhjálmsson rithöfundur
varð fyrir nokkrum mánuðum fyrir
því óhappi að hljóðkútur bilaði í bíl
hans. Til að afbera hávaðann fór
hann að yrkja og þessi dýrt kveðna
visa varð þá til:
Slyngur þrasar, glingrar við gull
glysið syngur lofi
þvingarsölur, bingó-bull
braskar i Ringós hofi.
Heyrtá
þorrablóti
„Hvernig er það með þessa græn-
friðunga, vilja þeir líka friða súrhval-
inn?”
Úrlausn á
landafrœðiprófi
Húnavatnssýsla er háslétta mikil.
Þar er einn daJur, sem Svarfaðardal-
ur nefnist. Um hann rennur á. Nefn-
ist hún Svarfaðardalsá. Hún fellur í
Svarfaðardalsvatn.
Skrattinn hefur
aldrei gert
mérneitt”
Þótt aðventistar hafi nú nýlega
lokið við að lesa biblíuna upphátt
spjaldanna á milli án hvílda þá ristir
trúarsannfæring fremur grunnt hjá
mörgum íslendingum. Þannig hafa
þeir aldrei óttazt djöfulinn af jafn
mikilli skelfingu og margar aðrar
þjóðir gera. Þeir hugsa eins og kerl-
ingin sem sagði: „Mér er ekkert illa
við skrattann. Hann hefur aldrei gert
mér neitt.”
Beðið eftir
gestakomu
í Selárdal
Sverrir Kristinsson og samstarfsmenn hans við útgáfu Skarðsbókan f.v. dr. Kristján Eldjárn, Guðni Kolbeinsson, dr. Jónas Kristjánsson, dr. Ólafur Halldórsson,
Sigurður Líndal prófessor, Sverrir Kristinsson, Jón Samsonarson handritafrœðingur, Stefán Karlsson handritafrœðingur og BjarniEinarsson. (DB-mynd: Bj.Bj.)
Bókaunnandi gefur sjálfur
út dýrustu bókina
Skarösbók er vœntanleg í apríl
Eins og fram hefur komið í fréttum
hættir Jón Sigurðsson ritstjórastörf-
um á Tímanum næsta vor. Hefur
Elías Snæland, áður ritstjórnarfull-
trúi á Vísi, verið ráðinn til að taka við
starfi hans. Jón hefur þó ekki snúið
baki við bændum og hugsjónum
þeirra. Þegar hann losnar af Tíman-
um ætlar hann vestur í Selárdal að
ræða mál bænda og önnur merkileg
mál við Ólaf Hannibalsson, sem fyrir
fáum árum kvaddi mölina og ASÍ til
að stunda fjárbúskap í Ketildala-
hreppi.
Ólafur orti nýlega þessa skamm-
degisvísu, en ekki vitum við hvort
hann hafði Jón Sigurðsson þar sér-
staklega í huga:
Hér um vetur sést ei sól,
sjaldan koma gleðiskvísur,
einnig vantar alkóhól-
ista til að kveða vísur.
Fleiló -
F0LK