Dagblaðið - 24.02.1981, Side 27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981.
Útvarp
27
Sjónvarp
Mikill fögnuður brauzt út i löndum bandamanna þegar fréttist um uppgjöf þýzka hersins.
STYRJÖLDIN Á AUSTURVÍGSTÖDVUNUM - sjónvarp kl. 20,40:
Fall þriðja ríkis-
ins í lokaþættinum
Þriðji og síðasti þátturinn um
styrjöldina á austurvígstöðvunum
verður sýndur í kvöld. í lokaþættinum
verður fylgzt með hruni þriðja ríkisins
og endar myndin á falli Berlínar.
Þýzki herinn fór halloka fyrir
hinum sovézka en Sovétmenn gátu teflt
fram óþreyttu liði. Skæruliðasveitir
fóru að láta æ meir til sín taka eftir þvi
sem þýzka vigvélin veiktist. Sókn
Þjóðverja stöðvaðist og þeir héldu á
flótta. Sovétmenn ráku flóttann. Á
sama tíma voru Bretar og Banda-
ríkjamenn að undirbúa innrás í
Frakkland og þar var stór hluti þýzka
hersins bundinn. Það var orðið tíma-
spursmál hvenær Berlin félli.
Uppistaða þýzka hersins þar voru
ungir drengir og aldraðir menn.
Gylfi Pálsson er þýðandi mynda-
flokksins og er hann einnig þulur.
-KMU.
ÓVÆNT ENDALOK—sjónvarp kl. 21,35:
Konan síkveinandi yfir
lystarieysi bamsins
—bóndanum leiöist þetta væl og hann ákveður að grípa til
sinnaraða
KRISTJÁN MÁR
UNNARSSON
Drottningarhunang nefnist þáttur
i myndaflokknum Óvænt endalok
sem er á dagskrá sjónvarps í kvöld.
Segir þar af hjónum, býflugnabónda
og ungri konu hans. Þau eiga korna-
barn sem þrífst heldur illa, það fussar
við næringu og veldur hinni ungu
móður miklum áhyggjum.
Býflugnabóndinn er mjög at-
orkusamur. Hann notar aldrei
býflugnanet þegar hann umgengst
flugurnar, telur sig ekkert þurfa að
óttast þar sem hann og flugurnar eru
eitt.
Konan er alltaf sikvartandi yfir
lystarleysi barnsins og er bóndanum
farið að leiðast þetta væl. En allt í
einu fær hann bráðsnjalla hugmynd
um hvað barninu sé hollast að borða.
Tekur hann þvi til sinna ráða.
Þýðandi þáttarins er Kristmann
Eiðsson. -KMU.
Unga eiginkonan hefur miklar
áhyggjur af lystarleysi barnsins en
bóndinn lætur sér fátt um finnast.
Hugur hans er bundinn við býflugna-
búið.
w
UTU BARNATÍMINN - útvarp kl. 17,40:
Krakkamir
í Kópaseli
heimsóttir
í Litla barnatímanum i dag, sem Kópavogskaupstað. Það er við
Finnborg Scheving stjórnar, verður Lækjarbotna og eru krakkarnir
farið í heimsókn á barnaheimilið fiuttir á milli f rútu.
Kópasel og hlustað þar á sögustund.
Einnig munu krakkarnir á heimilinu Stjórnandinn, Finnhor.'. Soheving,
syngjanokkurlög. sem er fóstra, starfai einmitt í kópa-
Barnaheimilið Kópasel er rekið af seli. -KMU.
DB-mynd: R. Th.
Finnborg Scheving i krakkahópi.
VIDEO
Video — Tœki—Filmur
Leiga — Sala
Kvikmyndamarkaðurinn — Simi 15480.
Skólavörðustig 19 (Klapparstigsmegin).
KVIKMYNDIR
NEMENDALEIKHÚSIÐ
Peysufatadagurinn
eftir Kjartan Ragnarsson.
6. sýning í kvöld, 24. febrúar, kl. 20.00
7. sýning 26. febrúar kl. 20.00
Miðasala opin i Lindarbæ frá kl. 16—19 atla daga, nema laugar-
daga. Miðapantanir i síma 21971 á sama tima.
Frá Tónlistarskóla Húsavíkur
Skólastjóra og kennara vantar að skólanum frá l. sept. nk.
Umsóknarfrestur er til 6. apríl.
Upplýsingar eru gefnar í síma 41440 hjá skólanefndarfor
manni og í síma 41697 hjá skólastjóra.
Sími skólanser4l560.
Skólanefnd.
Óskum eftir þriggja til
fjögurra herbergja íbúð
í lyftublokk í Heima- eða Vogahverfi í skiptum
fyrir sérhæð með bílskúr í Vogahverfi.
EIGNANAUST
LAUGAVEGI96 - SÍMI29555.