Dagblaðið - 24.02.1981, Page 28
Áframhaldandi valdatafl íFlugleiðum:
Skilyrði fyrir frekari
ábyrgðum ekki uppfyllt
—á hluthafaf undinum í gær—tillaga stjórnar f éll á prósentubroti
Hluthafafundur Flugleiöa hf. í gær
gerði félaginu ekki kleift að uppfylla
það skilyrði ríkisstjórnarinnar fyrir
frekari ríkisábyrgðum fyrir lánum,
að ríkið fengi tvo menn í stjórn fé-
lagsins.
Málið er því í biðstöðu, sem að
óbreyttu kemur í veg fyrir lántökur,
er stjórn félagsins telur mikið nauð-
synjamál.
Á næsta aðalfundi, sem haldinn
verður að líkindum í maímán-
uði, á að kjósa 5 menn í aðalstjórn.
Virðist ríkið þurfa að hafa samstarf
um kosningar til þess að fá tvo menn
í stjórnina.
Með öllu er óvíst að aðild rikisins
hafi bundið enda á valdataflið sem
þreytt hefur verið í Flugleiðum hf.
allt frá sameiningu I.oftleiða hf. og
Flugfélags íslands hf. Ráðandi öfl i
stjórn Flugleiða hf. kanna áreiðan-
lega gaumgæfilega stööu sína. Hún
er engan veginn ljós þegar eign hlut-
hafa er skoðuð og aðild ríkisins er
höfð í huga.
Höskuldur Jónsson, ráðuneytis-
stjóri fjármálaráðuneytisins, lýsti því
yfir á hluthafafundi Flugleiða hf. í
gær, að ríkissjóður myndi sitja hjá
við atkvæðagreiðslur um tillögurnar
sem fyrir fundinum lágu. Var þá
sýnt að þær yrðu ek ki samþyk ktar.
Tillaga stjórnar Flugleiða hf. var
þess efnis að fjölgað yröi í stjórn fé-
lagsins um tvo menn sem yrðu þá
fulltrúar ríkisins.
Til breytinga á samþykktum fé-
lagsins á hluthafafundi þarf 4/5 hluta
atkvæða á fundinum. Lýsti fundar-
stjóri, Jónas Aðalsteinsson hrl., því
yfir, að eftir yfirlýsingu ráöuneytis-
stjórans væri atkvæðagreiðsla til-
gangslaus og færi ekki fram.
Breytingar- og viðaukatillaga
Kristjönu Millu Thorsteinsson um 9
manna aðalstjórn og breytta tilhögun
á kosningu til stjórnar var heldur
ekki borin upp af sömu ástæðum.
Að tilmælum ráðuneytisstjórans
leyfði fundurinn atkvæðagreiðslu um
ákvæði til bráðabirgða um tíma-
bundna fjölgun stjórnarmanna um
tvo, eða til næsta aðalfundar. Féll sú
tillaga á broti úr hundraðshluta, þótt
atkvæði ríkissjóðs styddu hana. -BS.
Keflavíkurflugvöllur
ogSuðurnes:
látningar
ímörgum
fíkniefna-
málum
Keflvíkingur hefur verið úr-
skurðaður í gæzluvarðhald á
Suðurnesjum vegna meintrar aðildar
að fikniefnamáli, sem nú er í
rannsókn syðra. Viðriðnir máliö eru
margir varnarliðsmenn sent hafa
verið yfirheyrðir og sumir setið inni
vegna rannsóknar málsins.
Fikniefnalögreglan á Suður-
nesjum telur þelta mál nokkuð
umfangsmikiö en vill ekki skýra frá
því nánar á þessu stigi.
Lokið cr að mestu rannsókn í
öðru máli þar sem íslendingar létu
varnarliðsmönnum í té 20 grömm af
hassi en fengu í staðinn 35—40
fiöskur af áfengi. Hafa báðir aðilar
játað þau brot. Varnarliðsmenn sem
áttu hlut að máli hafa einnig játað að
. hafa flutt inn og dreift á Vellinum
um hálfu ktlói af marijúana og allt að
100 skömmtuin af LSD.
-A.Sl.
HÖGNIILLA
FJARRI
GÓDUGAMNI
Högni hrekkvisi ok huns nótar voru
illa fjarri nóAu namni I morgun, þegar
hluti þorskfarms hrundi af vörubil ó
Kórsnesbrauiinni i Kópavogi. Hliðar■
bretti ú vörubllnum losnaði skyndilegu
og var ekkiað sökum að spyrja — þeir
yulu lógu eins og hróviði um ullu
götuna. Bllstjórinn nóði sér I sting og
varfljötur að hreinsu upp eftir sig.
■DB-mynd: S.
wmm
Viðræður ríkisst jómar og ASÍ:
LÁGLAUNAFÓLK FÁI
SKATTAÍVILNANIR
Láglaunafófjc á að njóta góðs af
skattabreytingum, sem nú' eru í
undirbúningi. Talað er um, að breyt-
ingin nemi 8—}p mijljörðum gamal-
kjrpria.
Viðræður um í hvaða formi skatta-
breyjingin vefðtir, standa mil)i rikis-
stjórnar og Ajþýðusambandsins.
Ríkisstjórnitt jét' Ájfjýðusambánds-
ménn fýrir tveímur vikum fá 9 vaj-
kosti til að vejja úr. Ájftýðusam-
bandsmenn eiga að vega með hvaða
hætti skaftabreytingarnar komi jág-
launafólki aðsem mestum notum.
þetta er i samræmi viö efnahags-
áætjun ríkisstjórnarinháf um ára-
mótin. í tengsjum við skerðingu verð-
bóta 1. marz næstkomandi hét rikis-
stjórnin að bæta jtihum jægstlaun-
uðu tekjutapið með skattajækkun-
„pakki” fyrir
8-10 milljarða
g.kr. í
undirbúningi
Fundur ráðherra og ASÍ-manna
var I gær, og annar verður í dag.
í áramótaáÉetluh rikisstjórnarinnar
var sagt, að skattar skyldu lækkaðir
sem svarar „einu og hálfu prósenti í
kaupmætti lægri launa og meðal-
launa” -fiH.
Srjálst, úháð dagbJað
ÞRIÐJUDAGUR 24. FEB. 1981.
Danmerkurheimsókn
Vigdísar:
20 Danir
vinna við
undirbúninginn
— í danska utanríkis-
ráðuneytinu — og tveir
í íslenzka sendiráðinu
vinna líka baki brotnu
Tveir starfsmenn íslenzka sendiráðs-
ins í Kaupmannahöfn hafa unnið nær
stanzlaust síðan í byrjun janúar við
undirbúning opinberrar heimsóknar
Vigdisar Finnbogadóttur forseta ís-
lands, sem hefst í fyrramálið. Þessi
undirbúningsvinna hefur nú náð há-
marki sínu, að sögn Þorleifs Thor-
laciusar sendifulltrúa. Mest vinna hefur
farið í undirbúning hádegisverðar, sem
forseti íslands býður til í veitingahús-
inu Langelinie Pavilion á föstudaginn,
en þar verða 135 gestir.
Danska utanríkisráðuneytið hefur
ekki heldur legið á liði sínu við undir-
búning heimsóknarinnar — þar hafa
hvorki meira né minna en tuttugu
manns unnið baki brotnu við að gera
allt klárt.
Sendiráð íslands í Kaupmannahöfn
hefur að undanförnu útvegað fjölda
kaupmanna þar í borg stórar Iitmyndir
af forseta íslands og í gær mátti sjá
þær myndir í gluggum verzlana á Strik-
inu — verzlana sem einkum selja lopa
og ullarvörur.
Dágóð aðsókn hefur verið að sýn-
ingu fjögurra íslenzkra listamanna í
Galleri Center Ardens i Holbergsgötu
18, en þar sýna Rúrí, Jón Gunnar
Árnason, Tryggvi Ólafsson og Alfreð
Flóki skúlptúra, teikningar, objekta og
málverk. Sýningin verður opin til 8.
marz. -EJ, Kaupmannahöfn.
Akureyrar-
bömin mæta
við ráðhúsið
— ídagtilað þrýstaá
bæjaryf irvöld að
semja við fóstrur
, .Foreldrar lita ekki á dagvistir sem
geymslur heldur sem uppeldisstofn-
anir og beri að meta störf fóstra hlið-
stætt kennarastörfum,” sagði Erling-
ur Sigurðarson menntaskólakennari
á Akureyri í morgun. Hann var í hópi
foreldra bama á dagvistum Akureyr-
arbæjar sem efndu til fjölmenns
fundar um deilu bæjaryfirvalda við
fóstrur í gær. Nær 200 manns sóttu
fundinn, þar á meðal fulltrúar fóstra,
Helgi Bergs bæj’arstjóri og nokkrir
bæjarráðsmenn. Fundurinn lýsti
stuðningi við kröfur fóstra um að fá
kaup samkvæmt 13. launaflokki og
afnám deildarfóstrutitils úr samning-
um. Bæjaryfirvöld hafa þegar sam-
þykkt að greiða fóstrum samkvæmt
13. flokki en eftir heitinu deildar-
fóstra. Fóstrur vilja að það starfs-
heiti falli út og eftir standi fóstra.
I dag hefst bæjarráðsfundur á
Akureyri kl. 15. Foreldrar ætla að
fjölmenna með börn sín við ráðhús
bæjarins, afhenda stuðningsályktun-
ina við kröfur fóstra og fylja henni
eftir með nærveru sinni. Á fundinum
í gærkvöldi lýstu félagsmálafulltrúi
Akureyrarbæjar, formaður Starfs-
mannafélagsins og Soffía Guð-
mundsdóttir bæjarráðsmaður
Alþýöubandalags stuðningi við fóstr-
ur en aðrir sem til máls tóku og töl-
uðu af hálfu bæjaryfirvalda, töldu
tormerki á að ganga að kröfunum.
Foreldrar barna reyna að leysa vand-
ræSi Síh með þyi að leit^ á náðir vina
bg'ættingja. Einhverjir þurfa jafnvel
að fá sig lausa úr vinnu og gæta barn-
anna heima við.
-ARH.
A V i’