Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Side 5
Fundargerð
Aðalfundur Ræktunarfélags Norðurlands 7. nóv. 1942.
Ár 1942, laugardaginn 7. nóvembermánaðar, var aðal-
fundur Ræktunarfélags Norðurlands haldinn í húsi fé-
félagsins á Akureyri. Fundurinn hófst kl. 1 e. h. Fundar-
stjóri var kosinn formaður félagsins, Sigurður E. Hlíðar
alþingismaður, og skrifarar fundarins þeir Árni Jóhanns-
son og Konráð Vilhjálmsson.
Var þá gengið til dagskrár:
1. Kosin kjörbréfanefnd: Hólmgeir Þorsteinsson, Tóm-
as Björnsson og Árni Jóhannsson.
Þessir fulltrúar voru mættir:
Frá æfifélagadeild Akureyrar: Ármann Dalmannsson,
Árni Jóhannsson, Konráð Vilhjálmsson, Tómas Björns-
son, Jón Kristjánsson, Stefán Stefánsson.
Frá æfifélagadeild í Öngulsstaðahreppi: Árni Jóhann-
esson, Þverá.
Af stjórninni var aðeins mættur formaður, Sigurður
E. Hlíðar.
Ennfremur voru mættir formaður Búnaðarsamhands
Eyjafjarðar, Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri, og bún-
aðarþingsfulltrúi Hólmgeir Þorsteinsson á Hrafnagili.
2. Skýrsla framkvæmdastjóra:
Framkvæmdastjóri lagði fram reikninga félagsins fyrir
árið 1941 og voru þeir endurskoðaðir af kjörnum endur-