Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Qupperneq 37
39
þektar tegundir í þrjú ár, 1940—1942. Það, sem sérstak-
lega kemur til greina við samanburðinn, er heildarupp-
skera, stærðarhlutföll, nothæf uppskera, sem er heildar-
uppskeran að frádregnu smælki undir 20 gr. og loks þur-
efni, sem er reiknað eftir eðlisþyngd kartaflanna.
Tafla III sýnir samanburðinn á Rauðum óvöldum og
úrvalstegundunum nr. 1 og nr. 25 Hlutfallstölurnar eru
miðaðar við að óvöldu kartöflurnar séu settar sem 100.
Taflan sýnir greinilega allverulegan árangur af úrval-
inu og er það einkum nr. 25, sem skarar fram úr. Hefur
hún gefið 13.5% meiri heildaruppskeru og 14.7% meiri
þurefnisuppskeru heldur en óvalda tegundin. Mestu
munar þó í nothæfri uppskeru, því að smælkið í úrvals-
tegundunum er miklu minna en í óvöldu kartöflunum
Nr. 1 hefur reynzt nokkru lakari en nr. 25, en þó óvöldu
kartöflunum miklu fremri.
Þessi árangur af úrvalinu má teljast mjög góður og var
þess ekki að vænta, að hann yrði meiri. Auðvitað halda
úrvalstegundirnar öllum aðaleinkennum rauðu óvöldu
kartaflanna, og er ógerlegt að aðgreina úrvalið frá þeim,
sé því blandað saman. Hinsvegar er sá munur á grasinu,
að úrvalstegundirnar hafa kröftugra gras og jafnara held-
ur en þær óvöldu og stærðarmunurinn er sýnilegur þegar
upp er tekið, er meira af stórum kartöflum í úrvalsteg-
undunum, en þó fyrst og fremst minna af smælki (sjá
töflu IV).
Að lokum hefur svo verið gerður samanburður á úr-
valstegundinni nr. 25 og nokkrum öðrum kartöflutegund-
um. í þessum samanburði hafa Rauðar óvaldar einnig
verið. Tafla V sýnir árangurinn. Þar eru þó aðeins teknar
með tvær beztu tegundirnar úr tilrauninni, auk rauðu
tegundanna.
Niðnrstaðan verðnr sú, að nr. 25 hefur gefið mun meiri
uppskeru en óvöldu kartöflurnar og lítið minni uppskeru
að meðaltali heldur en llp to date, Gnlu kartöflurnar