Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1966, Page 2
4
um þar á eftir voru stofnuð búnaðarsambönd í öllum sýsl-
um fjórðungsins. Þótt svo væri til ætlast í fyrstu, að þau
héldu tengslum við Ræktunarfélagið, varð það aldrei nema
að nafninu til, þar til ný skipan var gerð fyrir nokkrum ár-
um. Félagið varð ekki annað en ævifélagarnir, sem stofnuðu
þó óvíða deildir.
Þótt starfsemi Ræktunarfélagsins gjörbreyttist svo á fyrstu
starfsárum Ólafs, er ég ekki viss um, að það hafi verið hon-
um svo mjög á móti skapi, né orðið starfi hans á nokkurn
hátt fjötur um fót. Eúnaðarsambands störfunum í heilum
landsfjórðungi fylgdu margs konar snúningar, og þar sem
félagið hafði nær engu föstu starfsliði öðru á að skipa en
framkvæmdastjóranum, hlaut það að dreifa kröftum hans
frá búrekstri og tilraunastörfum. Enda reyndist það svo, að
jafnframt því sem áðurnefnd breyting varð á skipulagi fé-
lagsins, færðist búrekstur þess og tilraunastarfsemi mjög í
aukana. Svo mátti kalla, að félagið ræki stórbú, enda varð
það smám saman einn helzti tekjustofn þess, en jafnframt
því sem búið óx varð tilraunastarfsemin sífellt margþætt-
ari, og var hún rekin af forsjá og kunnáttu. Er það til marks
um afköst Ólafs, að hvort starfið um sig, bústjórnin og til-
raunastjórnin, hefði verið ærið dagsverk hverjum meðal-
manni, ekki sízt þar sem hann gekk að daglegum störfum
utanhúss og innan hvern dag. Hér er ekki staður til að rekja
hinar fjölþættu tilraunir né gera grein fyrir niðurstöðum
þeirra, en skýrslur um þær er að finna í Ársritinu á hverju
ári. En svo mikið er óhætt að segja, að hér var á marga lund
haldið inn á nýjar brautir í tilraunastarfsemi landbúnaðar-
ins, og árangur þeirra varð á margan hátt merkilegur og
mikilvægur fyrir íslenzk búvísindi. Enda má segja, að Ól-
afur sé tilraunamaður fram í fingurgóma, og jafnsýnt um að
gera tilraunirnar og vinna úr niðurstöðum þeirra. Eftir að
Ræktunarfélagið lét tilraunastarfsemi sína í hendur Til-
raunaráðs ríkisins gerðist Ólafur um skeið ráðunautur Bún-
aðarsambands Eyfirðinga, og síðar tilraunastjóri Sambands
nautgriparæktarfélaga Eyjafjarðar, unz liann lét af því starfi
fyrir aldurs sakir á þessu ári.