Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 1

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 1
Páll Hermannsson fyrrv. alþingismaður f. 20. apríl 1880 — d. 31. janúar 1058 Það er allra mál, að á þessum helmingi 20. aldar- innar hafi meiri og fjöl- þættari breytingar og fram- farir orðið með þjóðinni, heldur en á nokkru öðru tímabili í sögu hennar. Þeir, sem borið bafa hita og þunga þessa tímabils, eru aldamótamennirnir, mennirnir, sem nú og und- anfarin ár hafa verið að skila af sér störfunum til viðtakandi kynslóðar. Einn af þessunt mönn- um, sem svo mjög hefur komið við sögu Austur- lands þetta tímabil, er Páll Hermannsson, fyiTV. bóndi og alþingismaður, hann lézt 31. janúar 1958. Páll var fæddur á Þorgerðarstöðum í Fljótsdal 28. apríl 1880. Foreldrar hans voru Hermann Jónsson bóndi þar og kona hans Soffía Guðbrandsdóttir. Móður sína missti hann á fyrsta ári og 14 ára missti hann föður sinn. Hann var því að mestu einstæðingur í æsku sinni. Hann sagði mér, að hann hefði sjálfur borgað fermingartoll sinn. Hann hefur því snemma orðið að spila á eigin spýtur. Slíkur æskuskóli

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.