Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 2
4
er harður, en hollur þeim, sem klakklaust kemst í gegnum
liann.
Páll gekk í Möðruvallaskóla og lauk þaðan prófi 1903.
Þar á eftir stundaði hann barnakennslu á vetrum í heima-
héraði í nokkur ár, en ýmiss konar störf að sumrinu, t. d.
við byggingu Lagarfljótsbrúar, þar var hann verkstjóri og
tri'maðarmaður Sigurðar Thoroddsens landsverkfræðings.
Páll hóf búskap að Vífilsstöðum í Tungu 1908 og bjó þar
góðu búi til 1923, en þá fluttist hann að Eiðum sem bú-
stjóri við skólabúið þar, hætti búskap 1946 og settist að á
Reyðarfirði og var þar síðan.
Páll var tvíkvæntur. Fyrri kona Þórey Eiríksdóttir dáin
1920. Síðari kona Dagbjört Guðjónsdóttir, er lifir mann
sinn.
Páll Hermannsson hafði setið í stjórn Búnaðarsambands
Austurlands um 21 árs skeið þá er hann lézt 31. jan. sl. nær
78 ára að aldri. Formaðnr Sambandsins hafði hann verið 10
síðustu árin.
Það var ekki af neinni tilviljun, að Páll hafði setið svo
lengi í stjórn Sambandsins og verið formaður þess. Hæfi-
leikar hans, vinsældir og tiltrú, hafa kallað hann til starfa á
flestum sviðum félagsmála á Austurlandi.
Enginn var hann miðlungsmaður, hann bar langt af að
gáfum og glæsileik. Hafði hann því frá fyrstu tíð valizt í
trúnaðarstöður og til forystu í sveit sinni og héraði. Sem
árin liðu fjölgaði þeim störfum í félags- og menningarmál-
unr Austurlands, sem honum voru falin, þar á meðal full-
trúastarf á alþingi fyrir Norðmýlinga í 19 ár.
Páll var sérlega starfhæfur maður til allra félagsmála-
starfa, enda á síðari árum þjálfaður og vanur slíkum störf-
um.
Búnaðarsamband Austurlands naut þessara góðu hæfi-
leika hans um langt skeið, enda mótaðist starfsemin síðari
árin af störfum hans, þar sem þungi þeirra hvíldi aðallega á
honum sem formanni. Búnaðarsamband Austurlands er ein